Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 6

Dagblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977. Kaup og búvöruverð hér og á öðrum Norðurlöndum: Iðnverkamaður hér 4-5 sinnum lengur að vinna fyrir búvörunum Sænskur iðnverkamaður er 26 mínútur að vinna fyrir kílói af smjöri í heildsölu en hinn íslenzki er 132 minútur að því. Eru þó ekki meðtaldar í verðinu niður- greiðslurnar, sem hér nema 578 krónum á kfló, það er rúmlega klukkutímakaupi iðnverkamanns- ins. Sænskir og norskir iðnverka- menn eru aðeins 15 mínútur að vinna fyrir eggjakílói í heildsölu og danskir 11 mfnútur. Islenzkir iðnverkamenn eru 46 mfnútur að vinna sér nóg inn til að borga kíló af eggjum f heildsölu. Þetta er mikill munur á kaup- mætti. Hvort tveggja kemur til, að verðið á búvörunum er hér miklu hærra en á hinum Norðurlöndun- um, reiknað f fslenzkum krónum á núgildandi gengi, oftast um tvö- happdrætti RAUÐA KROSSINS + falt hærra. Auk þess er kaup verkafólks hér um helmingi lægra en þar, reiknað f fslenzkum krónum. Utkoman verður þvf að fslenzkur verkamaður er oft á tfð- um um fjórum til fimm sinnum lengur að vinna fyrir ákveðnu magni búvara, og stundum er munurinn enn meiri. Margra tíma puð umfram hina Ef litið er á nautafilet á heild- söluverði, eftir að kjötiðnaðar- menn hafa fjallað um það, skorið og svo framvegis, er islenzkur iðn- verkamaður 232 mfnútur að vinna fyrir því. Danskur iðnverka- maður er hins vegar 56 mfnútur að þessu og það tekur sænskan iðnverkamann 66 mínútur og norskan 76 mfnútur. Skinka, tilbúin eftir meðferð kjötiðnaðarmanna, kostar fslenzk- an iðnverkamann 235 mínútur f vinnu, á heildsöluverði. Sá sænski krækir f skinkuna eftir aðeins 41 mfnútu vinnu og hinn danski eftir 21 mínútu. Svipuðu máli gegnir um bacon. Munurinn verður hlutfallslega mun minni ef litið er á sumar aðrar vörur en búvörur. Til dæmis er íslenzkur iðn- verkamaður 174 mínútur að vinna fyrir kaffikílói áheildsöluverði, sá norski 60 mfnútur og sá sænski 83 mfnútur. Reiknað er með 565—570 krón- um á tfmann sem algengasta kaupi iðnverkafólks hér á landi. - HH Skoðanakönnun sjálfstæðismanna KLIPPIÐ Undirritaður flokksbundinn í Sjólfstœðisflokknum i Reykjavík, styður að sú neðangreinda spurninga, sem krossað er framan við, verði meðal fimm spurninga i skoðanakönnun Sjálfstæðisflokksins samfara prófkjöri f Reykjavík. □ Eruð þér hlynntur þvf að varnarliðið taki þátt i kostnaði vegna þjóðvegagerðar hérlendis? □ Eruð þér hlynntur því að leyfðverði bruggun og sala áfengs öls á íslandi? □ Eruð þér hlynntur því að rekstur útvarps verði gefinn frjáls? □ Eruð þér hlynntur þvf að aðsetur stjórnarráðsdeilda verði f gamla miðbænum svonefnda? Nafn Heimili _________________________________________ Óskast lagt strax inn á auglýsingadeild blaðsins merkt: Skoðanakönnun um þjóðmái. Arfðandi er að seðiilinn berist fyrir nk. mánudagskvöid 7. nóvem- ber. KLIPPIÐ Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að efna til skoðana- könnunar um þjóðmál samfara prófkjöri i Reykjavík dagana 19., 20. og 21. nóvember nk. Undirritaðir telja þetta ákveðin tímamót í sögu flokksins og hvetja því ailt sjálfstæðisfólk til þátttöku. Vegna mjög naumra tímatakmarkana bjóðum við hér- með ÖLLU FLOKKSBUNDNU SJALFSTÆÐISFÓLKI að gerast á auðveldan hátt stuðningsmenn þeirra fimm spurninga sem vitað cr um að hafin er söfnun meðmæl- enda fyrir. Alls þurfa 300 manns að styðja hverja spurn- ingu. Hver maður getur aðeins stutt eina spurningu. Þér krossið við þá spurningu sem þér viljið að verði með i skoðanakönnuninni, skrifið nafn yðar og heimilisfang undir og sendið strax á auglýsingaafgreiðslu blaðsins. Ef þér viljið safna fleiri meðmælendum á eigin spýtur þá skrifið texta á blað í samræmi við þá spurningu sem þér viijið styðja og sendið nöfnin á sama stað. Nánari uppiýsingar í síma 74575 um helgina. Ahugamenn um nýjar leiðir innan Sjálfstæðisflokksins. Mikið strit fslenzkir iðnverkamenn þurfa að ieggja mikið á sig til að afla matar sins, jafnvel margra klukkutíma strit umfram frændur sína á Norðurlöndum fyrir einu kílói. Taflan sýnir hve margar mínútur iðn- verkamaður er að vinna fyrir einu kílói af eftirtöldum landbúnaðarvörum og kaffi ó heildsöluverði. Norequr Danmork ísland 17 28 132 76 56 232 52 21 235 62 22 178 15 11 46 60 82 174 Smjör Nautafiiet Skinka Bacon Egg Kaffi Frægustu graf íkmenn Pólverja sýna hér: r MERKILEG SYNING A KJARVALSSTÖDUM Listunnendum gefst gott tækifæri næstu dagana til að skoða pólska grafíklist. Almennt er pólska grafíkin talin í sér- flokki, ekki hvað sfzt í plakatgerð. Á þessi tegund listar langa hefð i Póllandi. Þótti Listráði Kjarvals- staða því við hæfi að kynna grafík Pólverjanna. Tókst að fá hingað myndir eftir marga beztu menn Pólverja fyrir tiistilli menningar- málaráðuneytis Póllands. Lista- maðurinn Ryszard Otreba valdi myndirnar sem hingað voru send- ar. Myndirnar eru alls 130 talsins og eru eftir 34 listamenn. Sýningin verður opnuð í dag kl. 15. 50. barnaskemmtun Höskuldar leikara Höskuldur Skagfjörð hefur að undanförnu farið vítt og breitt um landið og haldið skemmtanir fyrir börn. Hafa þessar skemmtanir orðið mjög vinsælar og nú um helgina verður hann með 49. og 50. skemmtun sina. Verður sú fyrri í Festi í Grinda- vík kl. 5 í dag og 50. skemmtunin i Selfossbíói kl. 4 á morgun, sunnudag. Höskuldur þykir hafa einstakt lag á að koma börnunum í gott skap, enda taka þau virkan þátt i sumum atriða skemmtananna, en 10 atriði eru á hverri skemmtun. M.a. sýnir hann tvær kvikmyndir 35 mm filmur. Er önnur rúss,- nesk barnamynd og hin banda- risk teiknimynd. Þá eru leikþætt- ir og upplestur. I tilefni af þessum fjölda skemmtananna og timamóta um helgina verða aðgöngumiðar númeraðir. Tfu heppnir gestir fá góða vinninga. En allir munu lik- lega fara syngjandi út eins og oft hefur komið fyrir áður. -ASt. 14árekstrar áhálfri annarri klukkustund Gífurleg umferð var í Reykja- víkurborg í gær, enda fyrsti föstu- dagur mánaðarins, en slikir dagar skera sig úr um um'svif og umferð fólks. Ofan á bættist að veður var mjög stillt og gott og dregur slíkt ekki úr. Um tuttugu árekstrar urðu frá því kl. 6 i gærmorgun til 6 í gær- kvöldi. Þar af urðu 14 á hálfum öðrum tíma síðdegis. Meiðsli urðu í tveimur tiifcílum «.n i hvorugu tilfellanna alvarleg. - ASt. Odysseifur f B eftir Gaj. Glataður engill eftir Karwacki.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.