Dagblaðið - 05.11.1977, Side 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977.
þröngar niöur, sumar naou
aðeins niður að hnjám, víðar
yfir mjaðmirnar, eins konar
kvennabúrs-buxur. Mikið bar á
alls kyns blússum. Vöktu
blússur eða jakkar Yves St.
Laurent sérstaka athygli. Þær
voru úr léreftsefnum, vatterað-
ar í kringum mittið, með síðum
öxlum. Þær voru af öllum sídd-
um en mest spennandi þóttu
þær sem voru víðar og náðu _
aðeins niður í mitti. St. Laurent
notar jafnan mikið poplínefni
og svo var einnig nú. Annars
bar mikið á alls kyns frottéefn-
um, sléttu og riffluðu flaueli og
röndóttu tafti. Litirnir voru
skýrir en mjög dempaðir, nema
einstaka rauðir og appelsínu-
gulir litir. Kakí-litir voru mjög
áberandi á sýningunum og þá
með alls kyns öðrum litum, —
kaki-svart, kakí-ryðrautt, dökkt
og ljóst kakí og öll kakí-litbrigði
þar í milli. Græni liturinn var
líka mjög áberandi.
I kvöldfatnaðinum bar mikið
á hlýralausum shiffonkjólum
með víðum pilsum, einnig
kjólum úr krepi með lausum
stykkjum frá öxlunum.
Þeir ítölsku hrifnir
af gegnsœjum efnum
Einnig bar mikið á alls kyns
köflóttum efnum hjá St.
Laurent. ítölsku tízkufrömuð-
irnir eru ákaflega hrifnir af
gegnsæjum efnum og aðrir eru
óðum að taka þau upp. Brjóstin
eru ekki lengur alls ráðandi í
tízkuheiminum.
Karl Lagerfeld lagði mesta
áherzlu á beiðar axlir, mjótt
mitti og grannar mjaðmir.
Kjólar hans voru sumir svo
þröngir yfir mjaðmirnar að það
varð að hafa klaufar í hliðun-
um! Hann hélt áfram að nota
rósótt efni en sleppti öllum píf-
um og blúndum sem mikið
hefur borið á undanfarið.
Valentino sýndi aftur á móti
rósahatta og rómantískan fatn-
að. Hann lagði áherzlu á
blúndukraga og víða og létta
músselínkjóla yfir þröngar bux-
ur sem voru jafnvel sumar
hverjar úr rósóttum efnum.
Á þessari upptalningu sést að
tízkan fyrir næsta vor og sumar
er æði fjölbreytileg. Það verður
gaman að fylgjast með því sem
kemur svo á markaðinn þegar
framleiðendurnir eru búnir að
umskapa fötin í „neytenda-
pakkningar". A.Bj.
UMÞENKINGAR UM
GRENSÁSDELD OG ÍVAF
Fjórða sept. 1977 ritaði
Magnús Kjartansson grein í
Þjóðviljann, sem ætti að sér-
prenta og dreifa um lands-
byggðina. Magnús er manna
kunnugastur þeim málum, sem
þar ber á góma og frammá-
maður á því sviði. Þar má líka
við bæta: „Sárast brennur
eldurinn er sjálfan hittir
mann.“ Við vorum báðir á
Grensásdeild sl. vetur, en ég þó
betur settur, hafði orðið fyrir
þeirri þjóðarblessun að lenda
undir bil; þeir sem ekki eiga bíl
verða líka að taka þátt í öld
bílsins. Þetta entist mér i 9
vikur á slysadeild Borgar-
spítalans og Grensás.
Borgarspitalinn er stundum
mitt annað heimili og kann ég
þar vel við mig, þó vil ég undan-
skilja slysadeildina. Þar er þó
ekki um að kenna læknum né
öðru starfsfólki, en þrengslin
eru lik og í hýbýlum frum-
stæðra þjóða.
Eftir að gert hafði verið að
sárum minum, var ég keyrður
upp á gang. Þar var rúm við
rúm ásamt tækjum. Þarna stikl-
uðu læknar, hjúkrunarfólk og
kannski gestir af mikilli leikni
milli rúmanna.
Það sótti á mig kuldi og ég
var að biðja um meira ofan á
mig en það gekk ekki. Allir
voru i önn og kannski var öðru
meira aðkallandi að sinna.
Síðan komst ég inn á sjúkra-
stofu og leið þá betur. Þar var
samt áskipað með fram veggj-
um og rúm á miðju gólfi. Menn
lágu þar í allskonar stellingum,
limir á sumum hengdir hátt 1
loft. Mér datt i hug draugurinn
í Hlöðuvík sem kvað.
„set ég fót upp í rót,
en hinn niður við fjalamót."
Aðrir hentust um á hækjum
af mikilli leikni, enn aðrir á
hjólatíkum af svo mikilli list, að
ég hefði viljað láta kvikmynda
það.
Grensás var næsti áfangi, en
þar hékk nú annað á sþýtunni,
þótt margt vanti eins og
Magnús bendir á. Ég starði dol-
fallinn á tækin og allskonar
áhöld i æfingasalnum, þar sem
endurhæfingin fór fram. Þetta
minnti mig á gömlu ævintýrin
þegar menn svifu yfir lög og láð
á hrosshausum, kústasköftum
og fleiru þess háttar. Kannski
eru hvergi meiri sannindi en í
gömlum æfintýrum, séu þau
rétt skilin. Þau eru hugsýnir,
sem alltaf eru að breytast í
veruleika.
Grensásstöðin er heillandi
kraftaverk, fyrirboði þess er
koma skal. Maður sér þar marg-
an sem lífið hefur leikið grátt,
en losnað þó úr gömlum þræla-
viðjum. Sumir af þeim sem út-
skrifast þar mundu einhvern
tlma hafa heyrt undir krafta-
verk. Kraftaverk hafa gerst á
öllum öldum, þótt enginn viti
með sönnu um formúluna. Eru
þau kannski kraftur sem
maðurinn fær stöku sinnum tök
á?
Aðrir benda á dulvitund,
dulin djúp, sem menn „detti
stundum í“, undir sérstökum
kringumstæðum. Orð eða hug-
tök segja lltið um þessi lítt
könnuðu svið, en menn deila að
vanda með kjapti og kóm án
þess að reyna að komast að
niðurstöðu á mannlegan hátt.
Þessi svið, sem reynt er að
kanna, eru sennilega ekki
neinn dulheimur heldur
heimur, sem heyrir okkur til
með vaxandi mennsku. Vlsinda-
menn uppgötva margt og mikið,
helst þó tæki til dráps og
eyðileggingar. Stundum detta
líka ólærðir menn ofan á
lausnir sem vísindamenn hafa
ekki svör við. Þetta hefur eng-
um tekist að skýra, látið heyra
undir „tilvik", en tilveran
Kjallarinn
Halldór Pjetursson
bendir hvergi til sliks. I hennar
rás er hvergi slegin feilnóta,
tilvik ekki til. Ég eins og
áttræðir menn og þar yfir, hef
lifað merkilegt tímabil, þótt
menntun nema af lestri hafi
verið áfátt. Margar gátur hafa
verið leystar, en samkvæmt
framþróun er alltaf jafnmikið
framundan. Mér finnst, að I
raun og veru sé ekkert dular-
fullt til: sú hugsun sé bara
„punktur á skökkum stað.“
Þegar lausnir hafa fengist
finnst engum þetta lengur
dularfullt.
Ný sannindi
eða „Surtarlogi“
Spaugs- og spottyrði fara
stundum vel í munni og eiga
sinn rétt, en svo er þó ekki
alltaf. Stundum er uppskera
þeirra lik kartöflurækt hér-
lendis. Sjálfur má ég ekki
djarft um tala, þvf að stundum
hafa þau dunið aftur á eigin
höfði, þó ekki án lærdóms. Við
skyldum þvf fara okkur hægt f
þvf að tefja framgang þess sem
okkur vantar ráðningu á. Hugs-
ast gæti, að þaðan komi
ráðning, sem varnar þvf að
þessi dásamlegi heimur okkar
verði lagður fyrir róða. Svo
virðist nú málum komið, að
ekkert nema ný sannindi geti
girt fyrir „Surtarloga".
Málfegurðarmenn, skáld-
mæringar og vísindamenn hafa
oft tekið djúpt f árinni. Þeir
hafa talið sig vegna lærdóms
vita betur en aðrir. Þarna er
sannleikskorn, en þeim ætti
einnig að vera ljósara en
öðrum, hve vitneskja mannsins
nær ennþá skammt. Þeim hefur
þvf oft farið sem mér og mfnum
lfkum. I læknavfsindunum og
annarri háfræði hafa komið
fram menn, sem barðir hafa
verið niður af „kollegum", sem
hærra voru settir og áttu sér
öflugri bakhjarl. Oft hefur
þetta leitt til þess, að fjölda
mannslífa var eytt á kvala-
fullan hátt, en það er erfitt að
kefla sannleikann til fulls.
Þeir sem lutu í lægra haldi
komu aftur á dagskrá með
pálmann f höndunum, en hinir
sátu eftir með háðsmerki f bak
og fyrir. Okkur væri kannski
hollt að hlaða ekki hellum dóms
að höfði afla, sem lftt eru
rannsökuð. Maðurinn á mörgu
ósvarað, en ráðið er að leysa
slfkt „jarðneskri skilningu."
Ég vil svo að endingu taka
undir með Magnúsi Kjartans-
syni um, að allir öryrkjar.hvert
sem meinið er myndi keðju þar
sem hver hlekkur er treystur,
myndi sér málsvara á öllum
áhrifasvæðum þjóðlffsins.
Stuðningurinn á að vera gagn-
kvæmur, en vanda skal valið.
Mikill hluti þessa fólks getur
enn unnið margt f þjóðarþágu,
gefist þvf tækifæri þar til.
Halldór Pjetursson
rithöfundur.
11
Það er þvf ekki að furða, þótt
menn taki það sem gefinn hlut,
að annað meginatriðið f stefnu-
skrá Sjálfstæðisflokksins,
nefnilega það „að skilja á milli
hans og sósíalista", fylgi arf-
gengislögmálinu, a.m.k. meðan
starfsferill flokksins spannar
ekki stærra tímabil en það, að
kynslóðaskiptin raska ekki til-
takanlega þvf lögmáli.
En fslenzkir stjórnmálaflokk-
ar hafa orðið fyrir áhrifum er-
endra strauma, einkum og sér i
lagi frá Norðurlöndunum, og þá
sérstaklega frá Svfþjóð. Það má
telja mikla ógæfu, hversu mjög
íslenzkir stjórnmálamenn hafa
aðhyllzt sænska þjóðmála-
stefnu og haft hana að leiðar-
ljósi í þeim málum, sem varðar
þjóðarheill okkar Islendinga.
Stjórnmálaflokkar eru ann-
aðhvort vinstri- eða hægriflokk-
ar, framhjá því verður ekki
gengið. Ekki þarf sú staðreynd
að þýða það, að slíkir flokkar
geti ekki staðið saman að mynd-
un ríkisstjórnar, þegar sérstak-
ar aðstæður skapast, sem krefj-
ast slikrar samstöðu. — Hins
vegar er það deginum ljósara
að samvinna slíkra gagnstæðra
stjórnmálaafla getur ekki farið
nema á einn veg, ef heilindi í
slfkri samvinnu hafa verið Iögð
til grundvallar, nefnilega þann,
að annar flokkurinn verður
fyrir áhrifum frá hinum, og
þarf þá ekki alltaf það að vera,
að sá fámennari verði áhrifa-
minni f slfku samstarfi.
Það má t.d. telja fullvíst, að í
samstarfi Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins um tólf
ára skeið hafi Sjálfstæðisflokk-
urinn orðið fyrir slfkum áhrif-
um frá Alþýðuflokknum og
straumum þeim, sem hann
leitaði eftir frá Svíþjóð, að
áhrifanna gæti enn þann dag f
dag.
Nú stendur Svfþjóð frammi
fyrir miklum efnahagsvanda,
og allsendis óvfst hvort þvf
landi verður bjargað frá vand-
anum. Astæðan fyrir þeim
vanda, sem við er að glfma f
Svfþjóð er sú, -að framleiðslu-
kostnaður hefur hækkað
óhóflega, og það velferðarrfki,
sem Svfþjóð var, sér nú fram á
að þurfa að skera stórlega niður
opinber útgjöld til velferðar-
mála til þess að framleiðsluat-
vinnuvegirnir geti staðið undir
sér.
Sama vandamál höfum við ts-
lendingar verið að glfma við
hér, nema hvað framleiðsluat-
vinnuvegir hér á landi eru ekki
færir um að standa undir þeim
lífs-„standard“ sem við höfum
náð með félagslegum kröfu-
gerðum, vegna þess að að-
stæður og skilyrði hafa ekki
verið fyrir hendi til þess að
slíkar kröfugerðir væru rétt-
lætanlegar.
Og Sjálfstæðisflokkurinn er
ekki samur og hann var. Hann
hefur vaxið meir á þverveginn
en upp á við, tekið meiri
breidd. Hans faðmur stendur
einnig opinn öllum þeim sem
þjáðir eru af misgengi annarra
flokka, og hefur þar munað
mest um þá Alþýðuflokksmenn,
sem tóku kristni í tólf-ára göng-
unni og gerðust likamningar
sjálfstæðismanna, en fluttu
með sér félagshyggjuandann til
þess að bera klæði á vopnin í
þeim ágreiningi, „sem skilur
milli flokksins (Sjálfstæðis-
flokksins) og sósíalistanna.“
Auðvitað væri ekkert um það
að fást, þótt Sjálfstæðisflokkur-
inr væri ekki sá sami og í upp-
hafi — ef hann gengi ekki upp í
gagnstæðu sfna, ef svo má að
orði komast.
Sem dæmi um þetta má taka
það, að sjálfstæðismenn töldu,
að réttindi og skyldur einstakl-
ingsins ættu að haldast í
hendur, nema í örfáum undan-
tekningartilfellum. — Nú er
öldin önnur, og flokkurinn
boðar, að öllum beri sömu og
jöfn réttindi og hlunnindi, og
þjóðarheildinni eða rfkisvald-
Kjallarinn
Geir R. Andersen
inu beri að uppfylla skyldurnar
og bera ábyrgðina.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
m.a. stutt þá yfirlýsingu, að Al-
þingi hafi óskert löggjafarvald.
— Nú er samþykkt svo að segja
þegjandi, að lög séu sett með
verkföllum eða einungis
hótunum um verkföll. — Við-
skipta- og verðiagshömlur voru
taldar af hinu illa, sem auðvitað
má til sanns vegar færa. Nú er
haldið til streitu hvers konar
verðlags- og viðskiptahömlum,
sem eru upprunnar í heimi
sósíalismans, enda jafnaðar-
mennskan orðið eitt megin við-
fangsefni margra þeirra hags-
munahópa, sem hafa tekið að
sér að vfsa veginn í stjórnmála-
starfi sjálfstæðismanna.
Stjórnmálaflokkar geta
aldrei orðið frjálsir og óháðir,
þótt stofna megi fyrirtæki og
fjölmiðla undir slikum kjörorð-
um. Allir íslenzkir stjórnmála-
flokkar hafa átt sitt málgagn til
stuðnings baráttu sinni. Sjálf-
stæðisflokkurinn einn á ekkert
slikt málgagn. Meira að segja
keppast þau tvö dagblöð, sem
helzt hefði mátt vænta stuðn-
ings frá við stefnu Sjálfstæðis-
flokksins, Morgunblaðið og
Vfsir, við að lýsa þvf yfir, að
þau séu lfka „frjáls og óháð“ og
ekki einu sinni háð eigendum
sfnum, hvað þá stjórnmála-
stefnum. Stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa aldrei
kunnað almennilega að meta
þessar yfirlýsingar en orðið að
sætta sig við þær.
Rekstur Morgunblaðsins er
kapituli út af fyrir sig, hvernig
það blað hefur smám saman
komizt undir áhrif frá komm-
únistum með beinni eignarað-
ild, skrif þess og túlkun þjóð-
mála, áróður fyrir uppgangi Al-
þýðuflokksins með myndum og
viðtölum, stuðningur við maó-
isma og fleira f þessa áttina.
Allt er þetta til þess fallið og
hefur stuðlað að þvf að veikja
þá sjálfstæðisstefnu, sem upp-
haflega var mörkuð og stærstur
hluti stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins vill fylgja.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins eiga ekki aðgang að neinum
málgögnum með áhugamál eða
yfirlýsingar, og hafa þvf óspart
notað hina óháðu fjölmiðla,
sem nú eru einungis sfðdegis-
blöðin tvö, Dagblaðið og Vfsir.
Annar ritstjóri Morgunblaðsins
hefur t.d. látið þau orð falla, að
sem betur fer sé sá tfmi liðinn,
þegar alþingismenn hringdu og
báðu um, að hin eða þessi mál
yrðu nú tekin upp af blaðinu
— blaðið væri ekki lengur háð
duttlungum einstakra þing-
manna um efnisval! Það væri
frjáls og óháð stofnun, rekin á
ábyrgð ritstjóranna.
Það er löngu kominn timi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
huga að þeirri staðreynd, að
stjórnmálaflokkur, sem er
jafnáhrifamikill og spannar
það vitt svið sem Sjálfstæðis-
flokkurinn gerir, þarf að eiga
aðgang að einhverju þvf mál-
gagni, sem almenningur á kost
á að kynna sér og hafa áhrif á
með skoðanaskiptum, ef svo
ber undir, með sjálfstæðum
greinum um hvaðeina sem hæst
ber hverju sinni.
Bliku dregur nú á loft og
óveðursský hrannast upp á
himni fslenzkra stjórnmála.
Mörgum hættir til að láta
stjórnmálaviðhorf sitt draga
um of dám af augnabliksaf-
stöðu til einstakra dægurmála
en láta langtfmasjónarmið lönd
og leið.
Dægurmál eru að vfsu svo
snar þáttur stjórnmálanna, að
þau geta oft orðið fyrirferða-
mesta atriðið f daglegri stjórn-
málabaráttu. Hins vegar ættu
dægurmál og sérhagsmunapóli-
tík, sem samanstendur af fyrir-
greiðslu hvers konar, ekki að
skipa fyrirrúm þegar menn
marka sér stefnu eða ákveða
hvar f flokki þeir standa. Það
ættu að vera markmið megin-
stefnunnar, sem ráða afstöðu
til dægurmálanna, en ekki öf-
ugt.
Sérkenni og séreðli Sjálf-
stæðisflokksins og stefnu hans
verður enn að rekja til uppruna
hans, þ.e. til sameiningar
Ihaldsflokksins og Frjálslynda
flokksins og því ber nauðsyn til
þess, að barátta flokksins sé
háð á grundvelli þeim sem þess-
um flokkum var markaður og
leiddi til sameiningar þessara
flokka, þ.e. á grundvellf ein-
staklingsframtaks og atvinnu-
frelsis og þess að skilja milli
fiokksins og sósfalisma. _
An þessara markmiða og bar-
áttu f framkvæmd fyrir þeim
hvenær og hvar sem tækifæri
gefast, og tækifærin eru svo
sannarlega fyrir hendi nú, þarf
Sjálfstæðisflokkurinn að sætta
sig við þau vfxláhrif, sem eiga
sér ávallt stað, þegar látlaus
viðleitni er á báðar hliðar til
þess að komast að viðunandi
málamiðlun. Slfkt leiðir til
einskis annars f stjórnmála-
flokki en að gera hann valtan á
vinstri og haltan á hægri.