Dagblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 14
14
/*
Benedikt
Gunnarsson
að Kjarvals-
stöðum
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1977.
Nr. 23 „Við sundin blá“ olia 1973
100 myndir
Bom-aikt Gunnnrsson er
mikilvirkurlistamaður semásér
að baki langt listnám og
fjölbreyttan og frjóan listferil.
Auk málverksins hefur Bene-
dikt fengist við veggmyndagerð
og skreytingar í skólum og
opinberum byggingum og notað
þar ýmis efni, svo sem
glermósaík og steint gler, en
fyrir Keflavíkurkirkju gerði
hann 18 glerglugga.
Benedikt er nú lektor í
myndlist við Kennaraháskóla
tslands og situr því við sama
borð og flestir starfsbræður
hans i listinni, með tvöfaldan
vinnudag að baki.
. ...
Benedikt hefur auðsjáanlega
málað af miklum móði síðustu
árin því í vestursal Kjarvals-
staða getur að líta afrakstur
fjögurra næstliðinna ára. Meiri
hluti þeirra 100 mynda sem
hann sýnir spanna yfir tíma-
bilið frá 1974-1977.
Eftir að hafa lesið á aug-
lýsingaskilti fyrir utan Kjar-
valsstaði að Benedikt sýni
þarna 100 myndir get ég ekki
neitað því að að mér læddist sá
grunur, að þarna væri meiri
áhersla lögð á magn en gæði,
þvi óneitanlega er það
furðulegt að sjá slíkar
staðhæfingar í þessu húsi, líkt
og um myndamarkað væri að
Nr. 52 „Kvöld í sjávarþorpi“ olía 1971.
Hrafnhildur Schram
ræða. Það er mikið á áhorfand-
ann lagt að ætla honum að
skoða 100 myndir á einni
sýningu, nemaharngefi sér því
betri tima. Helst pyrfti að vera
um tvær heimsóknir að ræða,
en eins líflegt og sýningarhald
hefur verið í borginni undan-
farnar vikur, verður fólk að
hafa sig allt við til að komast þó
ekki sé nema einu sinni í hvern
sýningarsal.
Minna er oft meira og þykist
ég þess fullviss að Benedikt
hefði náð fram sterkari sýningu
ef grisjaður hefði verið burt
stór hluti olíumálverkanna, en
mörg þeirra eru full keimlík til
að hanga svona þétt. Fyrir
bragðið hefðu pastel-
myndirnar, sem að minum
dómi bera sýninguna uppi,
fengið að njóta sin betur. Marg-
ar þeirra eru hálfgerðar horn-
rekur og héngu i myrkri
frammi á gangi þegar mig bar
þar að.
Geimför og
náttúrustemmningar
Olíumálverkin telja hátt á
sjötta tug og eru þau ótvírætt
merki þess að myndgerð Bene
dikts hefur á sfðustu árum
þróast úr abstraktinu yfir í hálf
fígúratív form. Benedikt er
ekki landslagsmálari í eigin-
legri merkingu. Við þekkjum
ytri fyrirbæri úr náttúrunni,
fólk og vélar, sem hann gefur
til kynna, segir hálfsagða sögu.
Siðan er það áhorfandans að
láta augað raða saman og
tengja stöðluð og saman-
þjöppuð form, þar sem útlínur
stundur.i leysast upp í and-
rúmsloftinu. Við höfnina nr. 48
er gott dæmi um slík
vinnubrögð. Benedikt leitar
víða fanga í myndefnisvali
sínu, þess bera heiti myndanna
glöggt vitni. Þarna gefur að líta
kvöldstemmningar i sjávar-
þorpum og ýmis fyrirbæri
tæknialdarinnar, svo sem
geimfara og farkosti þeirra,
maðurinn sem speglast í slétt-
um málmfleti vélarinnar eða í
stálhjálmi vinnufélaga sins.
En það eru fyrst og fremst
náttúruöflin sem eiga ftök f
Benedikt. Myndaflokkur hans
Eldur í Heimaey sem telur 11
myndir býr yfir næstum trúar-
legu inntaki. í þeim ríkir óráðið
ástand ótta og örvæntingar, þar
sem jarðneskar verur og þoku-
kenndir svipir heyja baráttuna
við æðri máttarvöld. Benedikt
fer frjálslega og stundum dálit-
ið glannalega með litinn eins og
t.d.f Eldur f Heimaey nr. 31. Oft
ber liturinn smágerð formin
algjörlega yfirliði þannig að
form og litur vinna hvort á móti
öðru. Mörg olíumálverkanna
virka því lftið sannfærandi og
yfirborðskennd þrátt fyrir góða
tækni og markvissa mynd-
byggingu. Þvf finnst mér Bene-
dikt hæfa mjög vel að vinna
stór (monumental) verk eins
og t.d. veggmyndir þar sem
sterk litameðferð hans passar
stórum formum betur.
Benedikt er snjall teiknari og
njóta þeir eiginleikar hans sin
be.st f pastelmyndagerðinni.
Þar laðar hann fram sérgildi
þess vandmeðfarna efnis sem
pastelkrítin er, sem krefst þess
að sá sem með hana fer litsetji
og teikni i senn. öll litameðferð
verður þar mýkri og þar kemur
fram ný og ljóðræn hlið hjá
Benedikt sem hvergi örlar fyrir
í málverkinu. Þar fær líka hug-
myndarik teikning hans að
njóta sín til fulls, sem sjá má
m.a. i myndum nr. 91, 81, 80, 96
og 67 þar sem kunnátta
málarans kemur vel fram.
Sýningu Benedikts lýkur
sunnudaginn 6. nóvember.
Verzlun Verzlun Verzlun
Má bjóða yður Tívolí?
Ekki bara fallegt heldur stórglæsilegt
sófasett sem hentar yður vel.
Viðgerðir og klæðningar.
Vönduó vinna.
Bólstrun Guðmundar H. Þorbjörnssonar
Langholtsvegi 49. sími 33240
Þungavinnuvélar
Vllar gerðir og stærðir vinnuvéla og vöruhila á söluskrá
Utvegum úrvals vinnuvélar og bíla erlendis frá.
Vlarkaðslorgið. Einholti 8, siini 28590 og 74575 kvöldsími.
MOTOROLA
Alternatorar i liila og háta. 6/12/24/32
volta.
rialinulausar Iransislorkveikjur i flesta
bila.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. Vrinúia 32. Simi 37700.
Skrifstofu
SKRIFBORO
Vönduó sterk
skrifstofuskrit-
borð i þrem
stæróum.
Á.GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiója,
Auöbrekku 57. Kópavogi, Simi 43144
Sítni 40299
0&B
INNRETTINGAR
I
Auðbrekku 32. Kópavogi.
Eldhúsinnréttingar. "Hnota og eik.
Til afgreiðslu innan 2ja til 3ja vikna.
Uppstilltar á staðnum.
Verzlunin ÆSA auglýsir:
Setjum gutteyrnalokka í eyru
með nyrri tækni. • A
Notum dauðhreinsaðar gullkúlu
Vinsamlega pantið í sima 23622.
Munið að úrvalið af tízkuskart-
grlpunum er í ÆSU.
Á
SJIirn SKIIMIM
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
SmiSattofa.Trönuhrauni 5. Simi: 51745.
Austurlen^k
undraveröld
opin á |
Grettisgötu 64 7
%&<SJDfo.
SÍM/ 11625
-
I