Dagblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER 1977.
1
NÝJA BIO
Herra Billjón
Islenzkur texti.
Spennandi og gamansöm banda-
rf'V ievintýramynd um fátækan
Itala sem erfir mikil auðæfi eftir
ríkan frænda sinn í Ameríku
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Síðustu sýningar.
N
I
AUSTURBÆJARBÍÓ
8
ísienzkur texti.
4 Oscarsverðlaun.
Ein mesta og frægasta stórmynd
aldarinnar.
Barry Ly'ido'l
Mjög íburðarmikil og vel leikin,
ný, ensk-amerisk stórmynd í lit-
um.
Aðalhlutverk: Ryan O’Neal og
Marisa Berenson.
Sýnd kl. 5 og 9.
‘ HÆKKAÐ VERÐ.
Sími 1«444
Hefnd hins horfna
Spennandi og dulræn ný banda-
rísk litmynd
Clynn Turman
Joan Pringle
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl 3, 5, 7,9ogll.
Herkúles ó móti Karate
(Hercules vs. Karate)
Skemmtileg gamanmynd fyrir
alla fjölskylduna.
Leikaljúii: Anthony M. Dawson.
Aðalhlutverk: Tom Scott, Fred
Harris, Chai Lee.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I
HÁSKÓLABÍÓ
8
Laugard. 5/11
Ung og saklaus
(Young and Innocent)
Sýnd kl. 5.
Hraðlestin til Rómar
(Rome Express)
Sýnd kl. 7.
Skemmdarverk
Sunnud. 6/11
Konan sern hvarf
(Lady Vanishes)
Sýnd kl. 5.
Skemmdarverk
(Sabotage)
Sýnd kl. 7.
Ung og saklaus
(Ydung and Innocent)
Sýnd kl. 9.
Kl. 3 á sunnudegi er einnig barna-
sýning,
Emil í Kattholti.
Hitchcock í Hóskólabíói
Næstu daga sýnir Háskólabíó
syrpu af gömlum úrvalsmyndum,
3 myndir á dag, nema þegar tón-
leikar eru.
Myndirnar eru:
39 þrep
(39 steps).
Leikstj. Hitchcock, aðalhlutv.
Robert Donat, Madeleine Carroll.
Skemmdarverk
(Sabotage).
Leikstj. Hitchcock, aðalhlutv.
Sylvia Sydnev, Osear Homolka.
Konan sem hvarf
(Lady Vanishes).
Leikstj. Hitchcock. Aðalhlutv.
Margaret Lockwood, Michael Red-
grave.
Ung og saklaus
Young and Innocent).
' stj. Hitchcock. Aðalhlutv.
• ick de Marnay, Nova Pil-
lieám.
Hraðlestin til Rómar
»me Express).
lj. Walter. F’orde, aðalhlutv
t-.s!!. ■! Kalston, Conrad Veidt.
LAUGARÁSBÍÓ
Svarta Emanuelle
8
Ný, djörf ítölsk kvikmynd um
ævintýri svarta kvenljósmyndar-
ans Emanuelle í Afríku.
Isl. texti.
Aðalhlutverk: Karin Schubert og
Angelo Infanti.
Leikstjóri: Albert Thomas.
Sýnd kl. 5, 7, 9ogll.
Stranglega bönnuð börnum innan
16 ára.
GAMLA BIO
8
Ben Húr
Ein frægasta og stórfenglegasta
kvikmynd allra tíma sem hlaut 11
óskarsverðlaun.
Nú sýnd með islenzkum texta.
Sýnd kl. 3, 6 og 9.
Venjulegt verð, kr. 400.
BÆJARBÍÓ
Hreinsað til í Buck Town
Hörkuspennandi amerísk slags-
málamynd, ein harðasta mynd
sem gerð hefur verið.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 5.
Bönnuð börnum.
Kvennabósinn
Sprenghlægileg gamanmynd sem
gerð er undir stjórn Tim Burstalls
sem er þekktasti kvikmyndaleik-
stjóri í Astralíu.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
STJÖRNUBÍÓ
8
The Streetfighter
Gharles Bronson
JamesCoburn
Islenzkur texti.
Hörkuspennaqdi ný amerísk
kvikmynd í litum.
Sýndkl. 4,6,8 og 10.
Bönnuð börnum ipnan 14 ára.
Sjónvarp annað kvöld kl. 20.30: Haukur ílitum
FASTUR PUNKTUR í SKEMMT-
ANALÍFINU í MÖRG ÁR
Hljómsveit hins geysivinsæla
Hauks Mortens kemur fram í
sjónvarpinu í kvöld, í litum. Hauk
þekkja allir og dá. Hann hefur í
mörg ár verið einn fastur, góður
punktur í skemmtanalífi fólks í
höfuðborginni. Núna skemmtir
hann á Hótel Sögu við miklar
vinsældir.
Plötur Hauks hafa einnig orðið
mjög vinsældar og afar margar.
Hver man ekki eftir að hafa heyrt
hann syngja í útvarpið lög eins og
Bjössa á mjólkurbílnum. I
rauninni líður ekki sá óskalaga-
þáttur að Haukur syngi þar ekki
að minnsta kosti eitt lag og jafn-
vel fleiri.
Nú leggur Haukur undir sig
sjónvarpið og þar að auki í litum.
Hann leikur fyrir dansi gesta í
sjónvarpssal og heima á gólfi.
-DS.
Sjdnvarp íkvöld kl. 21.00: Köttur frumskógarins
Fátt orðið eftir af tígrisdýrum
„Það er sagt þarna frá uppruna
tígrisdýra sem er nokkur annar
en flestir halda og saga þeirra
rakin," sagði Öskar Ingimarsson
er hann var spurður um myndina
Köttur frumskógarins sem á dag-
skrá er í sjónvarpinu í kvöld.
„Það eru sýndar gamlar
teikningar og sagt frá því að í
eina tíð töldu menn tígrisdýrið
jafnvel göldrótt. Svo er mynda-
bútur sem gerður var sérstaklega
fyrir seinni heimsstyrjöldina á
vegum brezka varakonungsins.
Hann sést þar á tígrisdýraveiðum
með mikilli viðhöfn. Alls konar
tilburðir eru þar viðhafðir til þess
að gera allt sem stórkostlegast.
Þessi mynd er merkileg fyrir það
að svona veiðar tíðkast ekkr
lengur en voru ríkjandi hér áður
fyrr. Þetta er sem sagt liðin saga.
Nú eru tígrisdýrin fá en það er
samt ekki af þvi að þau hafi verið
ofveidd. Hitt er víst ástæðan að
þetta svokallaða tígrisdýraland er
að verða horfið. Búið er að höggva
skóginn að mestu leyti og felia
háa grasið sem er skilyrði þess að
tígrisdýrið geti lifað.
Greint er frá tilraun sem verið
er að gera með að ala upp
tígrisdýr í vernduðu umhverfi en
sleppa þeim svo aftur og gera þau
villt. Það er maður einn sem fæst
við þetta til að reyna að koma í
veg fyrir útrýmingu. Hann hefur
ungana í sérstakri girðingu en
sleppir þeim svo út þegar þeir
fara að eldast. Það er ákaflega
spennandi að vita hvernig þessi
tilraun gengur,“ sagði Öskar Ingi-
marsson.
Myndin um tígrisdýrið er brezk
og hefst hún klukkan níu í kvöld
og lýkur tíu mínútur fyrir tíu.
Hún er svört/hvít.
-DS.
Sjónvarp f kvöld kl. 21.50: Nevada Smith
HEFNDIR KYN-
BLENDINGS
Skáldsagnahöfundurinn
Harold Robbins nýtur, eftir því
sem undirritaður bezt veit,t
mikilla vinsælda á Islandi jafnt
sem í hinum enskumælandi
heimi. Að minnsta kosti ein skáld-
saga, Hnífurinn, hefur verið þýdd
á íslenzku og aðrar bækur hans
seljast mjög vel á ensku. Fróðum
mönnum, sem segjast hafa vit á
bókmenntum, finnst þó að það
fólk sem lesi Harold Robbins sé
ekki á neitt ákaflega háu bók-
menntalegu plani eins og það er
orðað. En flestir munu þó fallast á
að bækurnar séu spennandi og
mjög djarfar.
Því er þetta skrifað hér að á
dagskrá sjónvarpsins i kvöld
klukkan fimm mínútur fyrir tíu
er kvikmyndin Nevada Smith sem
gerð er eftir einni bóka Harolds
Robbins The Carpetbaggers.
Nevada Smith er ein söguper-
sónan þar og fær hann þarna
heila kvikmynd út af fyrir sig.
Sagt er frá Max Sand sem fyrir
þvi varð í æsku að bófar myrtu
foreldra hans og sór hann
hefndir^ Max er kynblendingur.
Sagan hans er í hálfgerðum bút-
Um og greinir hver frá vissu
skeiði.
Steve McQueen, sem leikur
aðalhlutverkið, er þó sagður geta
tengt þessa kafla saman svo út
komi lifandi mynd. Hann fær lof
fyrir leik sinn í kvikmyndahand-
bók okkar og myndatakan líka.
Aðrir leikendur eru Karl
Malden, Brian Keith og Suzanne
Pleshetta. Leikstjóri er Henry
Steve McQueen í hlutverki sínu
sem Nevada Smith.
Hataway.
Myndin fær 2 og hálfa stjörnu í
kvikmyndahandbókinni sem
þýðir að hún sé svona sæmileg.
Þýðandi er Kristmann Eiðsson.
Myndin mun ekki vera við hæfi
barna. Hún er svört/hvít og nærri
tveggja tíma löng.
-DL.
Útvarp
Laugardagur
5. nóvember
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Hvað vorður í úfvorpi og sjónvarpi?
Dagskrárkynningarþáttur
15.00 Miðdegistónleikar.
15.40 Islenzkt mál. Asgeir Blöndal
Magnússon cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. óperuaríur og
dúettar. Renata Tebaldi, Kim Borg,
Placido Domingo og Katia Riccerielli
syngja.
17.00 Enskuktmnsla (On We Go) i
tengslum við kennslu í sjónvarpi; —
þriðji þáttur. Leiðbeinandi: Bjarni
Gunnarsson menntaskólakennari.
17.30 Framhaldsleikrit barna og
unglinga: „Sámur" eftir Jóhönnu
Bugge-Olsen. Mereta Lie Hoel færði í
leikbúning. Sigurður Gunnarsson ísl.
Leikstjóri: Guðrún Þ. Stephensen.
Fyrsti þáttur: Erlingur finnur Sám.
Persónur og leikendur: Erlingur/Sig-
urður Skúlason, Magni/Sigurður
Sigurjónsson, Madsen pylsugerðar-
maður/Valdemar Helgason, Margrét
frænka/Auður Guðmundsdóttir, óli
frændi/Karl Guðmundsson, lögreglu-
þjónn/Jón Gunnarsson, þulur/Klem-
enz Jónsson.
18.00 Söngvar í léttum dúr. Tilkynning-
ar^
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Frónaauki. Tilkynningar.
19.35 „Skemmtilegt skjól en ekki skálka-
skjól." Jökull Jakobsson lítur inn í
Drafnarborg og ræðir við Bryndísi
Zoega forstöðukonu.
2Ö.00 Sónata í d-moll op. 121 eftir Robert
Schumann.
20.30 Teboð. Gestgjafinn, Sigmar B,
Hauksson, tekur til umræðu „bóhem
líf“. Gestir: Benedikt Arnason, Jör
mundur Ingi og Sigríður Björnsdóttir
Auk þeirra leggja Atli Heimir Sveins-
son og Guðmundur Jónsson sitt af
mörkum.
21.00 Tríó í d-moll op. 49 eftir Felix
Mondelssohn. Yyval-trióið leikur.
21.40 „Bíó", smásaga eftir Ása í B».
Höfundurinn les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
^3.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
6. nóvember
8.00 Morgunandakt Herra Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.30 Létt morgunlög Hljómsveit
Mantovanis leikur.
9.00 Fréttir. Vinsaelustu popplögin Vignir
Sveinsson kynnir.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Morguntónleikar.
11.00 Messa í Gaulverjabsajarkirkju.
12.15 Dagskráin.Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Hvers vegna vinnum við? Þórir
Einarsson prófessor flytur annað
hádegiserindi sitt um stjórnun.
14.05 í.minningu Þorsteins Valdimarssonar
Helgi J. Halldórsson cand. mag. flytur
erindi um skáldið og ljóðagerð þess,
Hjörtur Pálsson les úr „Smalavisum“
og sungin verða nokkur lög eftir
Þorstein við Ijóð hans og þýðingar.
14.55 Miðdegistónleikar
16.15 Veðurfregnir.Fréttir.
16.25 Á bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson útvarpsstjóri stjórnar
þættinum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir
17.30 Utvarpssaga barnanna:
„Útilegubömin i Fannadal" eftir
Guðmund G. Hagalín Sigriður Hagalin
leikkona byrjar lesturinn.
17.50 Stundarkom með brezka
píanóleikaranum John Ogdon
Tilkynningar.
. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Spegill, spegill..." Fjórði og siða§ti
þáttur Guðrúnar Guðlaugsdóttur um
snyrtingu og fegrunaraðgerðir.
19.55 Tónlist eftir Joseph Haydn
20.30 Útvarpssagan: „Víkursamfélagið"'
eftir Guðlaug Arason. Sverrir
Hólmarsson lýkur lestri sögunnar.
20.50 Píanótríó í G-moll op. 15 eftir
Smotana Trio Di Bolzano leika.
21.15 Bjami frá Vogi og grískan Séra Jón
Skagan flytur frásöguþátt (Aður á
dagskrá 11. maí í vor).
21.45 iþróttir. Hermann Gunnarsson sér
um þáttinn
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi
Þorgilsson danskennari velur lögin og
kynnir.
23..25 Fréttir. Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
Laugardagur
5. nóvember
16.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.15 On We Go Enskukennsla. Þriðji
þáttur endurfluttur.
18.30 Rokkveita ríkisins. Rúnar Júliusson
og félagar. Stjórn upptöku Egill,
Eðvarðsson. Aður á dagskrá 20. apríl
1977.
18.55 Enska knattspyman
Hlé.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Undir sama þaki. tslenzkur fram-
haldsmyndaflokkur I léttum dúr. 4.
þáttur. Umboðsskrifstofan. Þátturinn
verður endursýndur miðvikudaginn 9.
nóvember.
21.00 Köttur frumskógaríns Brezk
fræðslumynd. Fullvíst er talið, að ekki
séu fleiri en fimm þúsund tígrisdýr í
heiminum. Erfitt er að kvikmynda
dýrin, þar sem þau eru einkum á ferli
að næturlagi, og eins samlagast þau
svo umhverfinu, að vont getur verið
að greina þau í fulltri dagsbirtu. Kvik-
mynd þessi var einkum tekin á
Norður-Indlandi og í Nepal, og-
komust kvikmyndatökumennirnir oft
í hann krappan, eins og glöggt sést í
myndinni. Þýðandi og þulur Oskar
Ingimarsson.
21.50 Nevada-Smith Bandariskur
„vestri" frá árinu 1966, byggður á
frásögn í bókinni „The Carpet-
baggers" eftir Harold Robbins. Leik-
stjóri Henry Hathaway. Aðalhlutverk
Steve McQueen. Karl Malden og Brian
Keith. Söguhetjan Max Sand er k.vn-
blendingur. Þrir bófar m.vrða foreldra
hans og hann sver að hefna þeirra.
Þýðandi Kristmann Eiðsson. Myndin
er ekki við hæfi barna.
23.45 Dagskráríok
Sunnudagur
6. nóvember
16.00 Húsbandur og hjú (L) Brezkur
myndaflokkur. Eigi skulu konur gráta
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
17.00 Drangeyjarferð Mynd frá ferðalagi
sjónvarpsmanna til Drangeyjar
sumarið 1969. Fylgst er með bjargsigi
í eynni og skoðaðir sögufrægir staðir.
Umsjónarmaður ólafur Ragnarsson.
Síðast á dagskrá 28. ágúst 1974.
18.00 Stundin okkar Fyrst er mynd um
Súsí og Tuma, síðan spjalla Glámur og
Skrámur saman, fuglarnir hennar
Maríu leika listir sínar og „Frænk-
urnar" syngja tvö lög. Leikbrúðúland
sýnir þátt um Siggu og skessuna eftir
Herdísi Egilsdóttur, og loks verður
sýnd mynd, sem tekin var í Listdans-
, sköla Þjóðleikhússins.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Haukur I lit (L) Haukur Morthens
og hljómsveit hans leika fyrirdansi oe
skemmta gestum í sjónvarpssal og
þeim, sem heima sitja. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson.
21.00 Gœfa eða gjörvlleiki. Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur, byggður á
sögu eftir Irwin Shaw. 4. þáttur. Efni
þriðja þáttar: Rudy Jordache kynnist
Ginny Calderwood, dóttur vinnuveit-
anda sfns. Kornung stúlka verður
þunguð af völdum Toms, og hann
hlýtur fangelsisdóm. Axel faðir hans
leysir hann út og ver t# þess öllu
sparifé sfnu, þar á meðal peningum,
sem hann hugðist lána Rudy, en hann
áformar að reka sportvöruverslun
Senn líður að því, að brauðgerð Axels
verði rifin. Fullur beiskju styttir hann
sér aldur. Þýðandi Jón O. Edwald.
21.50 Dick Cavett rœðir við AJfred
Hitchcock (L) Kvikmyndaleikstjórinn
heimskunni talar m.a. um ýmsar kvik-
myndir sínar, samstarf sitt við leikara
o.s.frv. I þættinum eru sýndir kaflar
úr fáeinum Hitchcock-myndum. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.55 Að kvöldi dags (L). Vilhjálmur Þ.
Gíslason fyrrv. útvarpsstjóri flytur
hugvekju.
23.05 Dagskráríok.