Dagblaðið - 05.11.1977, Page 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÖVEMBER 1977. '23,
Útvarp ídag kl. 17.30: Sámur
Ævintýri tveggja drengja og hunds
Fastur liður í vetrardagskrá út-
varpsins í svo mörg ár sem blaða-
maður man hefur verið fram-
haldsleikrit barna og unglinga.
Nú er veturinn greinilega kominn
því í dag hefst fyrsta framhalds-
leikrit vetrarins fyrir börn.
Nefnist það Sámur og er í þrem
þáttum.
Haft var samband við Klemens
Jónsson leiklistarstjóra út-
varpsins og þuls með leikritinu
um Sám og hann spurður um það.
Sagði hann að það væri fyrst og
fremst gert til þess að kenna
börnum að bera virðingu fyrir
dýrum og að þykja vænt um þau.
Leikritið er gert eftir norskri
sögu eftir Jóhönnu Bugge-Olsen.
Það var Mereta Lie Hoel sem
færði í leikbúning. Þýðandi er
Sigurður Gunnarsson.
Sagt er frá tveim drengjum og
samskiptum þeirra við hundinn
Sám. Annar drengjanna,
Erlingur, finnur hann hálf-
vesældarlegan úti á götu og fer
með hann heim og vill fá að hugsa
um hann því hann vorkennir
geyinu. Frændfólk hans, sem
hann býr hjá því foreldrarnir eru
báðir látnir, er ekkert hrifið af
hugmyndinni og bannar Erlingi
að hafa hundinn. Hann gerir sér
því lítið fyrir og strýkur ásamt
Sámi og vini sínum. Þeir fara
upp á gamlan bóndabæ sem pabbi
Erlings hafði átt og halda þar til.
Vitaskuld lenda þeir í mörgum
ævintýrum þar. Oft eru
drengirnir hætt komnir en alltaf
bjargar Sámur þeim.
Leikendur eru þau Sigurður
Skúlason, Sigurður Sigurjónsson,
Valdimar Helgason, Auður
Guðmundsdóttir, Karl Guðmunds-
son og Jón Gunnarsson. Þulur er
eins og áður var getið Klemens
Jónsson. Leikstjóri er Guðrún Þ.
Stephensen.
-Fyrsti þátturinn nefnist
Erlingur finnur Sám og er á dag-
skrá klukkan hálf sex í dag. -DS.
Sámur var hálfvesældarlegur
þegar Erlingur fann hann.
Útvarp annað kvöld kl. 22.15: Danslög
Gífurlegur áhugi á
að læra að dansa
Sjónvarp íkvöld kl. 20.30:
Undirsamaþaki
LADDIISVIÐSBRANSANUM
„Áhuginn á dansi hefur aukizt
alveg glfurlega síðastliðin tvö ár,“
sagði Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari er DB hafði samband við
hann til þess að forvitnast um það
hvernig væri að sjá um danslaga-
tíma útvarpsins.
„Eg held ekki að það sé dansað
svo mikið eftir lögunum í út-
varpinu, nema þá kannski úti á
landi. Ég held að það sé meira um
það að fólk bara hlusti á lögin í
rólegheitum, enda reyni ég að
velja lög þannig að gaman sé að
hlusta á þau líka. Það eru svona
lög sem mér sjálfum finnast
skemmtileg og ég hef orðið var
við að væru vinsæl.“
— Hvernig fer svona lagaval
fram? Hvaðan færðu til dæmis
allar þessar plötur sem þú leikur?
„Sumt á ég sjálfur Það hef ég
keypt erlendis þegar ég er að
ferðast fyrir dansskólann. Annað,
og þá aðallega þessar táninga-
plötur, fæ ég lánað í verzlunum.
Mér dettur svona ýmislegt í hug
þegar ég er að velja lögin. Svo
geri ég dálítið að því að spila lög
sem ég veit að eru vinsæl á
veitingahúsum. Ég var einu sinni
hljóðfæraleikari sjálfur og veit
því að fólki þykja skemmtileg lög
sem það getur raulað með og
þekkir."
— Hvernig er svo staðan í dans-
menntinni? Heldurðu að þjóðin
sé vel menntuð í danskúnstinni?
„Menntun í dansi hefur aukizt
alveg gífurlega ásamt vaxandi
áhuga. Ég get sagt þér svona sem
dæmi að nú er allt troðfullt í
dansskólanum hjá mér og meira
að segja strákar á aldrinum 9-10
ára og allt upp í 16 ára eru þar í
miklum mæli en mjög erfitt var
að fá stráka á þessum aldri til
þess að læra að dansa hér áður
fyrr.
Ég veit ekki alveg hverju ber
að þakka þetta en fyrst og fremst
held ég þó að það sé breytt tónlist
sem þessu veldur. Bítlatónlistin
er horfin áð mestu og í staðinn
komið rokk og þá verður fólkið að
halda meira utan um hvort annað.
Og þá er víst betra að vera í takt.“
— Hvernig er það með þessa
gömlu íslenzku dansa, eins og til
dæmis, ræl, polka og skottís? Eru
krakkar áhugasamir um að læra
þá?
„Hvort þeir eru. Það er óskap-
lega mikill áhugi hjá krökkunum
á þeim dönsum.“
— I gamla daga var alltaf dans-
kennsla í útvarpinu. Heldurðu
ekki að tilvalið væri að koma upp
slíkri kennslu í til dæmis
sjónvarpi?
„Ekki get ég ímyndað mér
annað. En ætli það þyki ekki of
dýrt. Það þarf margt fólk í kring-
um þetta og jafnvel þó við dans-
kennarar tækjum ekki mikil laun
hleðst utan á þetta allúr mögu-
legur aukakostnaður,“ sagði
Sigvaldi Þorgilsson danskennari.
Og þá er bara að taka sporið.
-DS.
íslenzka sápuóperan Undir
sama þaki heldur áfram í kvöld og
verður þá sýndur 4. þáttur af sex
og nefnist hann umboðsskrif-
stofan. Er það að öllum líkindum
Eddi sem fyrir henni stendur.
Eddi er leikinn af Þórhalli.
Sigurðssyni, öðru nafni Ladda, og
er sagt að stór hluti af handritinu
hafi verið skrifaður með hann 1
huga. Hvað sem satt er í því er
óhætt að segja að hann er einn
alskemmtilegasti leikarinn í þátt-
unum og eru þó margir góðir.
Margir kunna vel að meta
þættina og finnst þeir bæði
fyndnir og vel gerðir. Undir-
ritaður er einn af þeim. Aðrir eru
þeir aftur á móti sem finnst eins
og höndunum hafi verið kastað til
og að þættirnir standi varla undir
nafni. Þó hafa umræður á síðum
fjölmiðla verið furðulega litlar
miðað við annað og má túlka það
hvernig sem menn vilja. Sumir
telja það ugglaust merki um
áhugaleysi en aðrir telja að
ástæðan sé einfaldlega sú að
menn séu ánægðir og nenni ekki
að skrifa um það.
-DS.
Það vantar nú ekki að umboðs-
maðurinn sé virðulegur i nýja
stólnum sem hann keypti fyrir
„góð sambönd“ í síðasta þætti.
»B-m>ndH8rðu'
umáskrifen,
BIAÐIÐ
Áskriftasími __________
Dagblaðsins er 27022
frfálst,
úháð
dagblað
3. /VRCi. — MANUDACiUR 24. UKTORKR 1977 — 235. TBL. RITSTJORN SlÐCJMCLA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOI.Tl llj AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI «7022