Dagblaðið - 13.12.1977, Síða 10
24
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 13. DESEMBER 1977.
Elton
□F OEIMMARK
Jólablússumar
frá Elton komnar
PEY5UDE1LDIN
Sérverslun,kjallaranum, M i 0 bæja r ma rkaö n u m,
Aöalstræli 9, sími 10756. Póstsendum.
Vindmyllumar
settu svip á bæinn
— það hvein og söng í timburhúsunum f Þingholtunum
þegar hollenzka myllan barðist við storminn
Bankastræti árið 1947. Þá var hollenzka myllan löngu horfin þaðan og umhverfið hafði tekið á sig þá
mynd sem gerist i höfuðborgum.
Vindmyllur settu eitt sinn svip
sinn á Reykjavík. Þær eru nú
allar horfnar fyrir löngu en voru
miklar byggingar á sínum tíma.
Tvær þeirra voru stærstar, önnur
var í Bakarabrekkunni en hin við
Hólavelli. Þá var öldin önnur
þegar mylluvængir snerust svo
að hvein í. Nú man enginn myll-
urnar, enda er engin þeirra
lengur uppi standandi.
GAURAGANGURINN
í VINDMYLLUNUM
FÆLDI HESTANA
Sami maðurinn reisti báðar
myllurnar. Hann var kaupmaðúr
að nafni Knudtzon. Hann rak eina
stærstu verziunina hér í bæ rétt
fyrir aldamótin 1800.
Knudtzon kaupmaður lét reisa
mylluna við Hólavelli um 1830.
Þar til að myllan kom möluðu
menn korn sitt sjálfir en nú bauð
kaupmaðurinn upp á þessa þjón-
ustu. Þrátt fyrir mylluna héldu
menn áfram að mala korn sitt
sjálfir allt fram til 1880. Þá bök-
uðu menn sitt brauð heima, svo
myllan hafði ekki mikið að gera
fyrst í stað. Þá hugkvæmdist
Knudtzon að reisa bökunarhús.
Þar með sló hann tvær flugur í
einu höggi.
Brátt fór svo að kaupmannin-
um fannst tími til kominn að færa
út kvíarnar, svo hann fór að huga
að landi fyrir annað brauðgerðar-
hús. Hann fékk sér því mælda
lóð i Ingólfsbrekku en nú heitir
gatan Bankastræti. Knudtzon lét
einnig byggja bökunarhús í einni
línu frá stiftamtmannshúsinu.
sem gekk undir nafninu kon-
ungsgarður á þeima tíma. í
staðinn fyrir tukthúsnaftiið.
Bakari í þetta nýja hús var
fenginn frá Danmörku og hét
hann Bernhöft. Þessi danski
bakari starfaði fyrir Knudtzon í
ellcfu ár en árið 1845 kaupir hann
bökunarhúsið af honum. Talið er
að Bernhöft hafi keypt mylluna
við Hólavelli einnig. Knudtzon
cr ckki hættur við vindmyliurnar
þó að hann scldi þá við Hóíavelli.
Hann sækir nú unt lóð fyrir ofan
túngarð Arnarhóls til að byggja
sér aðra. Byggingarnefnd bæjar-
ins telur það óheppilegan stað
vegna þess að hestar rnyndu
fælast við allan gauraganginn
myllttnni. En kattpmaðurinn gaf
sig ekki og fékk lóðina undir
mylluna i Þingholtunum. skamntt
frá þeim stað sent hann sótti upp-
haflega um. Talið var óhætt að