Dagblaðið - 07.01.1978, Side 4
4.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1978.
Vantar umboðsmenn í
Hveragerði
Upplýsingarí síma 91-22078
eða 99-4314 BMBIÐ
Innheimtufólk óskastí
BREIÐHOLT
Upplýsingarísíma27022
mSBIABIB
Framleiðendur!--------------
Framleiðendur!
Viljum taka að okkur sölu og dreil ingu á
góðum innlendum framleiðsluvörum.
Þ.Björgúlfssonhf.
Furuvöllum 13, Pósthólfl85—Akureyrí
Sími96-11491
Til sölu
Bröyt2XB árgerd 1970.
Nýr snúningsmótor, vél nýupptehin.
Vagnhöfða 3 Reykjavík,
sími 85265.
Vörubifreiða- & þungavinnuvélasala.
Díkoíinn /f.
Spprtvöruverslun
Hafnarstræti 16 simi 24520
§
Leikfimibolir,
buxur, stuttar
ogsíðar,
margirlitir
Vona mér takist að bæta
árangur minn á árinu
—þarf fyrst að ná mér alveg af meiðslunum,
sagði Hreinn Halldórsson, íþróttamaður ársins 1977
Hreinn Halldórsson, íþróttamaður ársins, ásamt konu sinni,
Jóhönnu Þorsteinsdóttur, og Sindra, fimm mánaða syni þeirra —
hann var 20 merkur þegar hann kom i heiminn. Efni í afreksmann,
eða finnst ykkur ekki? DB-mynd Bjarnleifur.
„Ég er að sjálfsögðu ánægður
með þá vegsemd er íþrótta-
fréttamenn hafa sýnt mér með
þessari útnefningu. Ég vona
bara að ég nái mér sem fyrst af
þeim meiðslum er hafa háð mér
— og að mér takist að bæta
árangur minn á nýbyrjuðu ári,“
sagði Hreinn Halldórsson er í
gær var kjörinn íþróttamaður
ársins 1977 af samtökum
íþróttafréttamanna. Það fer
ekki á milli mála að Hreinn er
vel að vegsemdinni kominn —
varð Evrópumeistari í kúlu-
varpi innanhúss í San
Sebastian á Spáni — og setti
síðan glæsilegt Islandsmet 1
Stokkhólmi, 21.09. Hreinn
hlaut 70 stig — sem þýðir að
allir fjölmiðlarnir er þátt tóku
— útvarp, sjónvarp, DB, Mbl.,
Vlsir, Þjóðviljinn og Tíminn
settu Hrein i fyrsta sæti sem
íþróttamann ársins.
„Arangurslega séð er ég þó
ekki ánægður, það er seinni-
part ársins,“ sagði Hreinn enn-
fremur. „Hefðu meiðsli ekki
sett strik í reikninginn hjá mér
'— meiðsli sem í raun ógnuðu
þvf að ég gæti tekið þátt I
Evrópumótinu í San Sebastian,
þá er ég fullviss um að árangur-
inn hjá mér hefði verið betri.
Nú er bara að vona að hnéð gefi
sig ekki,“ sagði Hreinn enn-
fremur.
Samtök fþróttafréttamanna
úthlutuðu vegsemdinni fþrótta-
maður ársins að Hótel Loft-
leiðum f samvinnu við Volvo-
umboðið hér á landi, Gunnar
Asgeirsson hf., I gær. Samtökin
úthlutuðu sæmdarheitinu
fþróttamaður ársins f 22. sinn
— og Hreinn Halldórsson hlaut
það f annað sinn. Hreinn mun
þvf taka þátt f kjöri fþrótta-
manns Norðurlanda sem Volvo
verksmiðjurnar standa fyrir.
Alls hlutu 26 Iþróttamenn til-
nefningu f ár — allt frá frjáls-
um fþróttum til fatlaðs fþrótta-
manns — svo breiddin var
mikil'"— 4 frjálsfþróttamenn, 4
handknattleiksmenn, 3 lyft-
ingamenn, 5 knattspyrnumenn,
2 júdómenn, 2 körfuknattleiks-
menn, 2 skfðamenn, 2 sund-
menn, 1 golfmaður, 1 fimleika-
maður og einn fatlaður fþrótta-
maður.
Röð 10 efstu varð þannig, at-
kvæði fylgja á eftir.
Hreinn Halldórsson 70
Asgeir Sigurvinsson 53
Vilmundur Vilhjálmsson 52
Geir Hallsteinsson 39
Gústaf Agnarsson 24
Gfsli Þorsteinsson 21
Ingunn Einarsdóttir 20
Guðmundur Sigurðsson 18
Björgvin Þorsteinsson 11
Ingi Björn Albertsson 10
Aðrir sem stig hlutu: Jón H.
Karlsson 8, Janus Guðlaugsson
7, Jóhannes Eðvaldsson 7,
Kristinn Jörundsson 7, Óskar
Jakobsson 6, Skúli Óskarsson 6,
Sigurður Jónsson 5, Hörður
Barðdal 4, Jón Sigurðsson 4,
Gfsli Torfason 3, Sonja
Hreiðarsdóttir 3, Björgvin
Björgvinsson 2, Halldór Guð-
björnsson 2, Steinunn Sæ-
mundsdóttir 2, Berglind
Pétursdóttir 1 og Þórunn Al-
freðsdóttir 1 stig.
- h halls
Fimmtán hafa orðið
íþróttamenn ársins
— þar af Vilhjálmur Einarsson, silfurhafi f rá
01. í Melbourne, fimm sinnum. Hreinn Halldórsson
hlaut naf nbótina í annað sinn
Samtök íþróttafréttamanna
úthlutuðu sæmdarheitinu
íþróttamaður ársins f 22. sinn f.
gær — og oftast hefur
Vilhjálmur Einarsson, þrf-
stökkvari, silfurhafi frá
ólympfuleikunum í Melbourne
f Astralfu hlotið sæmdarheitið,
alls fimm sinnum. Samtökin
tóku upp þann sið að veita
viðurkenninguna árið 1956 —
og alls hafa 15 íþróttamenn
hlotið þessa vegsemd. En þeir
eru:
1956-
1957-
1958-
1959-
1960-
1961 -
1962-
1963 -
1964 -
1965-
1966-
1967 -
1968-
1969-
1970-
1971 -
1972-
1973-
■ Vilhjálmur Einarsson
- Vilhjálmur Einarsson
- Vilhjálmur Einarsson
- Valbjörn Þorláksson
- Vilhjálmur Einarsson
- Vilhjálmur Einarsson
- Guðmundur Gfslason
- Jón Þ. Ólafsson
- Sigrfður Sigurðardóttir
- Valbjörn Þorláksson
- Kolbeinn Pálsson
■ Guðm. Hermar nsson,
- Geir Hallsteinsson
- Guðmundur Gislason
- Erlendur Valdimarsson
- Hjalti Einarsson
- Guðjón Guðmundsson
- Guðni Kjartansson
Friður hópur, afrekshópur — sjö þeirra hafa hlotið vegsemdina
iþróttamaður ársins — hin voru meðal hinna tíu efstu í ár.
Efri röð frá vinstri — Jón Þ. Ólafsson 1963, Erlendur Valdimars-
son 1970, Gísli Sigurðsson nr. 6 í ár, Gústaf Agnarsson nr. 5, Ingi
Björn Albertsson nr. 10, Hjalti Einarsson 1971, Guðni Kjartansson
1973. Neðri röð frá vinstri: Guðmundur Sigurðsson nr. 8, Sigríður
Sigurðardóttir 1964, Hreinn Halldórsson 1976, 1977, Ingunn Einars-
dóttir nr. 7, Guðmundur Hermannsson 1967. DB-mynd Bjarnleifur
Bjarnleifsson.
1974 — Asgeir Sigurvinsson 1976 — Hreinn Halldórsson
1975 — Jóhannes Eðvaldsson 1977 — Hreinn Halldórsson