Dagblaðið - 07.01.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 07.01.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1978. 7 Nú er það skylda að nota hlífðarhjálm —allir ökumenn bif hjóla og farþegar eldri en 12 ára Um áramótin gengu i gildi lög á íslandi sem skylda ökumenn bif- hjóla af öllum gerðum til að hafa hlífðarhjálma. Allir farþegar, er á bifhjólum aka, og náð hafa 12 ára aldri, skulu og hafa hlífðar- hjálma, samkvæmt hinum nýju lögum. Allir hljóta að fagna þessum nýju lagaákvæðum. Eitt mun samt ýmsa undra, að tekið skuli fram aldurstakmark fyrir þá er far þiggja á bifhjólum og bera eiga hjálma. Þvkir sýnu nær að Isfirðingar f lugu burt úr jólafríinu Flogið var til Isafjarðar í fyrradag í fyrsta sinn frá því fyrir áramót og þaðan fluttir tæplega 270 farþegar í fimm vélum. Einnig voru tvær ferðir frá ísafirði til Akur- eyrar með Flugfélagi Norð- urlands og fluttir 25 farþeg- ar. -A.Bj. allir ættu að gera það, hvort sem þeir eru 12 ára eða yngri. Rannsóknir sýna að beri bif- Viðurkenníng Efnahagsfcandalagsins. ' Taian fyrir aftan bókstafinn E segir til istn í hvaða landi hjálmurinn er viðurkenndur OfsnSK SlarKJard Pínsk Staodafts : Svensk Siandard Tiðurkenningarmiði Efnahagsbandalagsins. Danski viðurkenningarmiðinn. Finnski viðurkenningarmiðinn. Sænski viðurkenningarmiðinn. RÆKJUVINNSLAN AÐ FARA í GANG Á HVAMMSTANGA „Rækjuvinnslan er um það bil að fara í gang, bátarnir fara á sjó á föstudag og vinnslan hefst á mánudaginn," sagði Karl Sigur- geirsson fréttaritari DB á Hvammstanga. „Við eigum nú fjóra báta, Glað, Heppinn, Aðalbjörgu og Rósu, sem er alveg glænýr bátur, smíðaður hjá Básum f Hafnarfirði í nóvember. Bátarnir eru frá 14 upp í 47 tonn á stærð. Fyrir áramótin veiddist mjög vel af rækjunni. Vertiðin sem byrjar yfirleitt I októberlok hófst ekki fyrr en 1. nóvember. Svæðið var ekki opnað fyrr vegna seiða, og Hafrannsóknastofnunin vildi kanna það betur. Má segja að hráefnið hafi verið samfellt fram að jólum en aflinn varð 151 tonn. Skammturinn sem Hvammstangi má veiða úr Húna- flóa er 360 tonn. Þannig eigum við eftir að fá 209 tonn. Með sæmilegum gæftum eigum við að klára þetta í marz. Við höfum haft fregnir af því að fiskur sé genginn í norðan- verðum Húnaflóa og eru menn að velta fyrir sér möguleikum á að krunka eitthvað í þann fisk. En okkur vantar bolfiskmóttöku. Voru rækjuvinnsluhúsin notuð tvö undanfarin sumur til þess að gera að handfærafiski og salta hann. Sl. sumar var gerð varanleg bryggja við grjótgarðinn og er nú aðstaðan i höfninni mjög góð. Má því segja að útgerðarmálin hafi iþróazt á mjög skemmtilegan hátt hér á undanförnum árum,“ sagði Karl. —Hvað vinna margir við rækju- vinnsluna? ^Rækjuvinnslustöðin Meleyri h/f hefur nokkra fastráðna starfs- menn, en það eru húsmæður sem vinna að rækjunni. Alls starfa um 20 manns hjá rækjuvinnslunni. Konurnar eru aðeins ráðnar yfir vertíðina. Þær eru flestar húsmæður og kæra sig ekki um öllu meiri vinnu en á rækjuvertfðinni," sagði Karl. -A.Bj. A Þingeyri stytta menn sér stundir við bíóT sjónvarpið og bridgespil „Hér er yfirleitt alira þokka- legasta félagsllf. Við höfum kvikmyndasýningar einu sinni f viku og böll eru hér að jafnaði hálfsmánaðarlega eða á þriggja vikna fresti,“ sagði Páll Pálsson frétaritari DB á Þingeyri. „Við verðum eðlilega að búa að öllu sjálf og ég tel að við komum saman nokkuð reglu- lega. Hópur manna, yfirleitt 16- 20, kemur saman einu sinni f viku til þess að spila bridge og þessi hópur hefur gert það f mörg ár. Nú, svo höfum. við sjónvarpið. Það sést yfirleitt þokkalega, þótt liturinn sé kannske farinn eitthvað að útvatnast þegar hann er kom- inn til okkar. Við höfum endur- varpsstöð hérna rétt við þorpið sem sendir okkur geislann frá Stykkishólmi. Það eru einir tfu sem hafa fengið sér litsjón- varpstæki," sagði Páll. -A.BJ. hjólafólk hlffðarhjáima draga hjálmarnir úr meiðslum hjá 80% þeirra sem f slysi lenda og í Noregi hefur verið sýnt fram á að þeir björguðu 15% þeirra er í slysum lentu frá dauða. Island er síðast Norðurlanda til að lögfesta notkun hjálma fyrir bifhjólafólk. Enn er ekki til reglu- gerð um viðurkenningu hjálma hér. Umferðarráð mælir með þeim hjálmum sem á er límdur viðurkenningarmiði umferðar- yfirvalda í Danmörku, Finnlandi eða Svíþjóð svo og þeim gerðum er bera viðurkenningarmiða Efnahagsbandalagsins. Þeim, sem kaupa sér hjálma er bent á að hafa þá f áberandi lit, þ.e: gulum eða orangelit. Æskilegt er að hlffðargleraugu séu keypt um leið og hjálmurinn til að allt passi saman. -ASt. Hjáfmurinn á að vera þannig gerður að hann hlífi örugglega höfðinu frá enni og niður fyrir hnakka. Fráhvarf frá þessari reglu geta gert hjálminn lftlls virði sem hlíf. r ■§1 MBl IWk ■ tesl 11 ■ ' * þettaaeríéa fyrirþig Aðstoða við að orða auglýsingu þína, ef þú óskar. Svara í síma fyrir þig. Veiti fyrirspyrjendum upplýsingar um það sem þú auglýsir og tek við tilboðum sem berast. Njóttu góðrar þjónustu ókeypis. Opið til kl. 10 í kvöid BIABIÐ :■;;;: í: Dagblaðið, smáauglýsingaþjónusta. Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022 I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.