Dagblaðið - 07.01.1978, Page 14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1978.
Hvaða hljómsveit kemur
JL O — fáarhljómsveitirkoma tilgreina
Cf ffO laffcf Cff w ■ — Framkvæmdastjórinn þögull
Þessarar spurningar spyrja
anzi margir unglingar þessa
dagana. En svörin liggja ekki á
lausu. Framkvæmdastjóri
Listahátíðar, Hrafn Gunn-
laugsson er þögull eins og gröf-
in, að minnsta kosti við Dag-
blaðið.
„Eg iæt ekkert hafa eftir
mér um þetta fyrr en ég hef
lundirskrifaðan samning á
borðinu fyrir framan mig,“
sagði Hrafn og bætti við, „ef ég
þegi þá ekki um þetta til
eilífðarnóns."
Aðstandendur Listahátíðar í
Reykjavík hafa tekið höndum
saman við Listahátíðir á
hinum Norðurlöndunum um
að ráða einhverja eina hljóm--
sveit til að leika á öllum hátíð-
unum. Þetta er tvímælalaust
viturleg ráðstöfun, því að nógu
mikið klúður og leiðindi hafa
orðið í sambandi við útvegun
rokkhljómsveitar á undanförn-
um árum.
Skemmst er að minnast þess,
að fyrir tveimur árum átti að
fá ensku hljómsveitina Sailor
til að koma á Listahátíð. Sú
tilraun kafnaði í fæðingunni.
Augljóst má vera að feitari
biti er í takinu nú en Sailor.
Listahátiðir á hinum Norður-
löndunum hafa ekkert við það
að gera að taka saman hönd-
um, nema einhverjir sérstak-
lega dýrir skemmtikraftar
standi til boða. Hægt er að
útiloka allar enskar hljóm-
sveitir, þar eð þær eru all-
KOMA EMERSON LAKE AND PALMER? — Dagblaðinu er ekki kunnugt um hvað sú víðfræga
hljómsveit verður að bardúsa í vor. Varla er þó hægt að ímynda sér að ELP heimsæki Listahátíð, þar^
eð hijómsveitin er gott meira en trió á hljómlcikum, eins og myndin sýnir.
flestar fremur smáar í sniðum,
— það er að segja þær sem eru
ekki flúnar úr landi ennþá.
Af enskum landflótta hljóm-
sveitum koma helzt til greina
Led Zeppelin, Rolling Stones,
Electric Light Orchestra,
Fleetwood Mag eða Emerson
Lake And Palmer.
Hægt er að útiloka þrjár
þeirra strax. Led Zeppelin
hefur ekki starfað saman síðan
f haust, er sonur Roberts Plant
lézt. Með öllu er óvíst hvenær
hljómsveitin tekur til starfa
aftur. Jimmy Page gítarleikari
Zeppelin fullyrðir þó, að
hljómsveitin sé ekki hætt.
Með öllu er óvíst um framtíð
Rolling Stones um þessar
mundir. Keith Richard á yfir
höfði sér ævilanga fangelsis-
vist í Kanada fyrir meinta sölu
á eiturlyfjum. Verði hann
dæmdur er fullvíst talið að
hljómsveitin leysist upp.
Electric Light Orchestra
kemur heldur ekki til greina,
þar eð hljómsveitin mun vera
að leggja upp í hljómleikaferð
um Norðurlöndin um þessar
mundir. — Þá eru eftir af
ensku hljómsveitunum Fleet-
wood Mac og Emerson Lake
And Palmer. Fleetwood Mac
var, síðast er fréttist, á ferða-
lagi um Suður-Ameríku og
hvað ætti svo sem að hindra
hana 1 að koma í hljómleika-
ferð til Norðurlandanna að
henni lokinni? — Dagblaðið
hefur engar spurnir haft af
ELP upp á síðkastið.
Bandarískar hljómsveitir af
stærri gráðunni eru frekar
fáar þessa dagana. Þær eru
helztar Eagles, Chicago, Beach
Boys og Grateful Dead.
Chicago var á ferð um
Evrópu — þar á meðal um
Norðurlöndin — á siðasta ári
og sömuleiðis heimsóttu
Eagles Evrópu. Beach Boys
komu í stutta heimsókn til
Englands síðastliðið haust,
léku á lokuðum hljómleikum f
London og þóttu standa sig
iila. Fréttir af hljómsveitinni
herma að þar ríki mikil upp-
lausn, meðlimirnir séu ýmist
orðnir klikkaðir eða komnir í
aðrar hljómsveitir, en Beach
Boys sé þó enn til að nafninu
til. — Mjög litlar fregnir hafa
farið af Grateful Dead og er
hljómsveitin sem óðast að tapa
fylgi sínu.
Hver þessara hljómsveita
skyldi svo heimsækja ísland?
Kannski er það engin þeirra.
Forsendan, sem gefin var í
upphafi kynni að vera röng.
Hver veit nema við eigum eftir
að sjá Kinks á sviði ennþa einu
sinni? Allt er þégar þrennt er.
- AT -
Ragnar Sigurösson ergengkm íTívob'
—Ellen Kristjánsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar, kemur heim íapríl
MÆTTUR I HRINGIDUNA
— Ragnar Sigurðsson hefur
verið lítt áberandi á
poppmarkaðinum síðan hann
vék fyrir Björgvini Gíslasyni í
hljómsveitinni Paradís. Hann
lék um skeið með hljóm-
sveitinni Lava í Svíþjóð en er
nú mættur til ieiks á ný.
Ragnar Sigurðsson gítarleik-
ari er genginn I Tívolí. Hann
lék fyrst með hljómsveitinni
sem fullgildur meðlimur á
fimmtudaginn var, í Klúbbn-
um.
Ragnar var þó búinn að hafa
nokkur kynni af Tívolí áður,
þvi að hann hafði leikið með
allar götur frá öðrum i jólum.
Friðrik Karlsson gítarleikari
þurfti að bregða sér til Þýzka-
lands og var Ragnar fenginn til
að leysa hann af á meðan. Sam-
starf Ragnars og meðlima
Tívolí virðist hafa gengið svo
vel að það varð úr að hann
ílentist í hljómsveitinni.
„Eg hef trú á því, að þetta
eigi eftir að bæta hljómsveitina
til muna,“ sagði Ölafur Helga-
son hljómsveitarstjóri Tivoli.
„Nú, ef það gerist ekki, þá
verður annar hvor gitarleikar-
inn að hætta. Maður stendur
ekki i því að halda úti sex
manna hljómsveit nema að hún
geri góða hluti.“
Söngkona Tívolí, Ellen Krist-
jánsdóttir, hefur dvalið i
Bandaríkjunum undanfarna
mánuði við söngnám. Hún
hugðist koma heim aftur nú í
mánuðinum, en að sögn Olafs
hefur hún frestað heimförinni
fram í apríl.
„Ellen gengur beint inn í
Tívolí, þegar hún kemur," sagði
hann. — Ellen verður þar með
sjöundi meðlimur hljómsveitar-
innar, en harla fátítt er orðið að
hljómsveitir séu svo stórar.
Undantekning frá þvf eru þó
Eik, sem er i frii, og Dúmbó og
Steini. Síðarnefnda hljómsveit-
in starfar aðeins hluta úr ári.
- AT-
Fyrsta raunverulega rockplatan?
Hyggjast hljóðríta hljómlist móður náttúru
Robin Lumley hljómborða-
leikari Brand X og Jack
Lancaster fyrrum meðlimur
Bloodwyn Pig íhuga nú að
hljóðrita fyrstu plötuna, sem
aðeins hefur að geyma hljóm-
list jarðarinnar. Þeir hafa
fengið loforð um aðstoð frá
háskðlanum í Newcastle í Eng-
landi til verksins.
Lumley og Lancaster
ráðgera að hljóðrita hljóma
sandsins á Shetlandseyjum, i
Noregi, Astralíu og á austur-
strönd Afríku. Eins og öllum
er kunnugt gefur sandur af
mismunandi þykkleika frá sér
ólíka tóna, þegar pressu er
hleypt á hann.
Nú, hljóma fallandi vatns-
dropa ætla kumpánanir að
taka upp í enskum hellum,
brothljóð borgarisjaka á
Islandi, músíkina í fjúkandi
sandi í Sahara eyðimörkinni
og við Aqabaflóa ætla þeir að
taka upp flautandi klett. Ekki
má gleyma sólarljósinu. Það
verður hljóðritað, þegar það
varpast á ákveðnar skaðlausar
lofttegundir.
Robin Lumley hefur lýst
þessari væntanlegu hljóm-
plötu sem hinni fyrstu
raunverulegu rock
(grjót)plötu, þrátt fyrir að
hann eigi á hættu að móðga
væntanlega Mustendur með
þvi.
Ur Rolling Stone.
Verzlun
Verzlun
Verzlun
j
Takiö
eftir
Verzlun okkar að Grettisgötu
46 er með mikið úrval af raf-
eindaefni. t.d. rafeindaraðein-
ingar frá JOSTYKIT og
HEATHKIT, kassar, spennar,
viðnám, þéttar, transistorar og
rafeindadvergrásir.
Hönnum rafeindatæki og önn-
umst ta-kjaviðhald.
Hringdu — komdu — skoðaðu.
Sameinihf.
Grettisgötu 46. Pósthól' 7150.
Sími 21366.______________
w
h*
1
?
Þú getur keypt bát, sam-
settan eða ósamsettan (ef '
þú vilt spara) hjá okkur á
hagstæðu verði. Gerum
einnig við báta og annað
úr glassfiber (trefja-
plasti).
SE*plast hf. — Sími 31175
og 35556. Súðarvogi 42.
pBIABID
[frjálst, óháð daghlað
Hollenska FAM
/_ fam
ryksugan. endingargóð. 'öflug
og ódvr. Iiefur allar kla-r úti viö
hreingerninguna.
Verð aðeins 43.10(1,-
meðan hirgðir endast.
Stadgreiösluafsláttur.
HAUKUR & ÓI.AFUR
Armúla 32
Sinii 37700.
INNIÞURRAR MILLIVEGGJAPLÖTUR
5,7 og 10 cm. Ath. nákvæmni í þykkt
og lögun.
Sparar pússningu.
STEYPUSTÖÐIN H/F,
símar 35625 og 33600.