Dagblaðið - 27.01.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978.
Nimeiri forseti Súdans.'
mjög handgenginn Sovétstjórn-
inni en eftir misheppnaða
uppreisn kommúnista árið 1971
hefur Nimeiri mildað róttækan
sósíalisma sinn og hann hefur
myndað and-sovézkan þrí-
hyrning með Egyptalandi og
Saudi Arabíu umhverfis
Rauðahafið.
Misheppnaðar uppreisnar-
tilraunir voru einnig gerðar
gegn Nimeiri árin 1975 og 76.
En nú fyrir nokkrum mánuðum
gaf hann öllum pólitískum
föngum og flóttamönnum upp
sakir. Þetta leiddi til þess að
margir uppreisnarmenn sneru
aftur heim. Sá valdamesti af
þeim er sennilega Sadig el
Mahdi sem dæmdur var til
dauða fjarverandi árið 1976 en
hann var talinn heilinn á bak
við síðustu uppreisnar-
tilraunina í Súdan.
TENGSLIN AUKAST
Á MILLI BANDARÍKJ-
ANNA OG SÚDAN
Tilraunir Nimeiris til sátta
virðast af heilum huga gerðar
og möguleikar virðast á því að
Mahdi verði forsætisráðherra á
nýjan leik eftir kosningar í vor
en hann gegndi því embætti á
fimm ár eftir stríð Araba og
ísraelsmanna árið 1967 og
ástandið hafi versnað 1974 þeg-
ar palestínskir hermdarverka-
menn myrtu bandaríská sendi
herrann og aðstoðarmann hans
í höfuðborg Súdan, Khartoum,
er Súdan nú nánasta bandalags-
land Bandaríkjanna á megin-
landi Afríku. Þetta kemur
skýrt í ljós er Bandarikjamenn
eru að þróa hina nýju
Afríkustefnu sína.
t desember sl. varð Súdan
fyrsta Afríkuríkið sem stjórn
Carters Bandaríkjaforseta
samþykkti að selja herþotur.
Utflutningur Banda-
ríkjamanna til Súdans hefur á
undanförnum tveimur árum
numið um 100 milljónum
árum áður, þ.e. áður en hin
misheppnaða uppreisnar-
tilraun var gerð.
Verð af þessu stjórnmálalega
samkomulagi í Súdan mun það
henta vestrænum og arabískum
ríkjum vel sem vilja auka fjár-
festingar sínar í Súdan.
Þótt Súdan hafi slitið stjórn-
málasambandi við Bandaríkin í
Shillukar, frumbvggjar í
Súdan.
Víða er vatnsskortur i Súdan en
framtíðinni með miklum áveitum.
verður rekinn í
dollara og fjárhagsaðstoðar er
að vænta frá Bandaríkja-
mönnum á næstunni.
ÖRYGGISNET
OLÍURÍKJANNA
Ahugi Arabaríkjanna á
Súdan jókst mjög eftir stríð
Araba og Israelsmanna 1973.
Þá ræddi Bandaríkjastjórn
þann möguleika að nota mat-
vælavopnið á olíuvopn arabísku
landanna. Síðan hafa arabískar
fjárfestingar í Súdan verið
feikilegar. Nú er það ekki
spurningin um peninga, heldur
^þrauthugsaðar áætlanir. í
Súdan sameinast nú arabískir
olíupeningar, vestræn tækni og
afrísk hráefni.
Miklar áætlanir eru í gangi
þar sem gert er ráð fyrir stór-
auknu ræktuðu landsvæði þar
sem beitt verður áveitum og
bændur rækta í stórum stíl
fjölbreyttar landbúnaðaraf-
furðir.
NÝTT KANADA
Ef Súdan nýtir alla sína
miklu möguleika gæti landið
verið komið í hóp með löndum
eins og Bandaríkjunum.
Kanada og Argentinu árið 1990
sem eru heimsins stærstu mat-
vöruútflutningslönd.
Vegna þess hve stjórnmála-
ástand innanlands er orðið gott
verður hlutverk Súdan stöðugt
mikilvægara fyrir arabísku og
afrísku löndin sem á seinni tím-
um hafa færzt í átt frá komm-
únismanum.
Nimeiri hefur verið ákafur
fylgjandi friðarumleitana
Sadats Egyptalandsforseta og
afturhvarfs Mahdis til Súdans
bætir sambúðina við Libýu og
Eþíópíu sem voru ásökuð um að
hafa hjálpað til við
uppreisnartilraunirnar í
Súdan.
í ár verður Nimeiri formaður
einingarsamtaka Afríkuríkja
OAU og miklar vonir eru
bundnar við aukna samvinnu
Araba og Afríkumanna og þess
er vænzt að olíupeningarnir
taki að streyma til Afríku.
er það skattyfirvalda að ákveða,
hvað er frádráttarbært frá
skatti og hvað ekki. Alþingi
telur sig þess umkomið að
hlýða ekki þessum lögum. Þeir
ákveða sjálfir firnahá laun, og
síðan alls kyns aukaþóknanir.
Sumt heitir dagpeningar, sumt
dvalarkostnaður. Auk þess
margvísleg fríðindi önnur.
• Síðan ákveður Alþingi að gefa
sumt af þessu upp til skatts og
annaðekki.
Það kann að vera álitamál
hvað þingmenn eigi að hafa í
laun. En það er ekki álitamál að
þingmenn eiga að hlýða lands-
lögum. Þegar þingmenn dansa
línudans á yztu nöf skattalag-'
anna og beinlinis brjóta þau, þá
er það fyrir neðan allar hellur.
Fordæmið er afleitt. Og í venju-
legu samfélagi ætti þetta að
vera sá hlekkurinn sem síðast
brysti.
En það gerist ekki hér. Al-
þingi sjálft tekur þátt í verð-
bólguleiknum, ögrar umhverfi
sinu, og tilkynnir þegnunum
um leið að þeir skuli barasta
brjóta þau lög sem þeir mögu-
lega komast yfir að brjóta, Og
það skiptir engu máli hvort
þeir heita Sólnes eða Gils, eru
íhaldsmaður eða kommi. Þeir
eru að stíga verðbólgudansinn.
Skattsvik eru útbreidd. Þau
eru meiri háttar samfélagsböl.
Alþingi setur lögin, þar á meðal
lög til þess að stemma stigu við
skattsvikum. En hvernig getur
það gengið upp að þingið sjálft
sem stofnun hlíti ekki skatta-
lögum? Spyr sá sem ekki veit.
ALBERT 0G SÓLNES
Það hefur lengi verið eitt af
fjölmörgum opinberum
leyndarmálum í þessu sam-
félagi, að fjöldi fólks á veru-
legar gjaldeyriseignir í erlend-
um bönkum. Það er vissulega
mikið álitamál, hvernig reglum
um erlendan gjaldeyri er rétt-
látlega fyrir komið. Það er
vissulega álitamál hvort hægt
er að ætlast til þess af ferða-
manni sem á nokkur þýzk mörk
í afgang eftir ferðalag að hann
skipti því yfir í íslenzka mynt,
sem minnkar að verðmæti nær
daglega. Þetta gerir verðbólg-
an, eina ferðina enn. Og ef
þetta gildir um ferðamenn, þá
hlvtur það að gilda um fleiri.
Viflausar gjaldeyrisreglur
hafa iðulega verið þverbrotnar.
Það er þó einhver meiri háttar
geðklofi í samfélaginu, þegar
bankamálaráðherrann sendir
frá sér reglugerð um gjald-
eyrisreikninga í íslenzkum
bönkum, meðan slík eign er
brot á islenzkum lögum, sem
sami maður, þá sem dómsmála-
ráðherra, á að sjá um að sé
hlýtt.
Fjölmargir eru nefndir til
sem eigendur gjaldeyrisreikn-
inga í dönskum bönkum. Skatt-
rannsóknarstjóri virðist röskur
og heiðarlegur embættismaður,
og er ekki að efa að hann hefur
gildar ástæður til þess að bíða
enn um sinn að birta nöfn
gjaldeyriseigenda. En gallinn
við slíka bið er samt sá, að
fjölmargir saklausir borgarar
eru nefndir til, og hafa auð-
vitað af því ómæld persónuleg
óþægindi. Mannlegt samfélag
er einu sinni þannig saman
sett.
Albert Guðmundsson, ál-
þingismaður, var um það
spurður í útvarpsþætti skömmu
fyrir jól, hvort hann ætti gjald-
eyrisreikninga í Bandaríkjun-
um. Hann kvað nei við. Hvort
hann ætti í Danmörku? Hann
kvað nei við. Hvort hann ætti í
Frakklandi? Því vildi hann
ekki svara af persónulegum
ástæðum! Á þessu kunna að
vera eðlilegar skýringar, sem
þá liggja ekki í augjum uppi.
Málið er einfaldlega það, að al-
þingismaður, sem á að vera að
setja samfélaginu leikreglur,
getur ekki staðið frammi fyrir
samborgurum sínum, og slegið
úr og í með það, hvort hann sé
lögbrjótur. Slík ögrun gengur i
revíu, en ekki í samfélagi sem
telur sig siðmenntað.
Og sama giidir um Jón G.
Sólnes. Þjóðviljinn segir að
hann sé meðal þeirra sem eigi
ólöglega reikninga í Danmörku.
Satt eða logið, þá spyr blaðið
alþingismanninn. Hann neitar
engu en harðneitar að ræða
málið. Þetta er í sjálfu sér ein-
falt, annaðhvort hefur Sólnes
brotið lög eða hann hefur ekki
brotið lög. En hafi hann ekki
brotið lög, þá á hann að segja
það, og þá er ekki meira um þáð
að segja.
' Menn hafa fyrr komizt upp
með slíkt í samtryggðu verð-
bólgusamfélaginu. En það er
gersamlega óþolandi, ef þing-
menn, sem eiga að setja land-
inu lög, þverbrjóta þau á alla
enda og kanta. Það er vísasti
vegurinn til að gera samfélagið
allt að ræningjabæli — eins og
virðist vera að koma á daginn.
Albert og Sólnes eru auðvitað
aðeins tveir af sextíu þing-
mönnum sem brjóta skattalög-
in. Ef þeir hafa brotið gjald-
eyrislögin líka, verður málið
enn svartara. Fólkið í landinu á
heimtingu á að fá að vita, hvað
er satt og hvað er logið í þessum
efnum.
VERÐBÓLGA VERÐBÓLGA
Að baki þessu, að baki ögr-
andi alþingismönnum, ögrandi
bankastjórum, skattsvikum
þingmanna og þaðan út um allt
samfélagið, býr hugsunarhátt-
ur sem verðbólgan hefur fætt
af sér. Verðbólgan hefur áður
rústað samfélög. Hún er að fara
illa með okkar samfélag. Það
verður æ fleirum æ ljósara.
Þess vegna verðum við að snúa
við blaðinu. Við bókstaflega
verðum.
—' Landsbankamálið: -------------------
Margra mánaða rann-
sókn er framundan
— i raun um tvö mál að ræða, fjártökuna og
meinta okurlánastarfsemi deildarstjórans
1 •' .iiiiMikn l.anil.Nliank:ini:iK. ...\ ......'k. ..a . ..... ...
150 MILUÓNIR KRÓNA UMREIKNAÐ
TIL NÚVERANDIVERD6ILDIS
er sú upphsð sem deildarstjórinn er talinn hafa svikið af emu fynrts
d 9M mpk ....viðskiptuin »'>"
Landsbanka
málið:
almenna eríiðleika a i
um frá erlendum
vegna leyndarskyld
vissum ha
þær M
sakamál
um fjir
veldar k
þeirra i
upplýsir.
prmntta
viðskiptum
kostnaðarliði bankans.
fyrr setstr. Til hlið.Mðn
i er vitað um nokkra aðila.
hafa fennið lin hi* f“"
Rannsókn I f
miðar stöðuRt a
sú. sem þeuar vi
svikin af aðall*
skiptavina l
150 milljöm
að til nút
peninga Er
milljóna kr
voru ut a
miðað við kn
LandsbankamáUnu:
Upplýsinga
Dúmsmálaráithprf.
skrifar LandshnnU-.
Oómsm
lofar sV
rn kemur á næstunni
CV - I gær fékk stjorn
Landsbanka Islands bréf
frá dómsntálaráóherra
Olafi Jóhannessyni þess
efnis, aó óskað er eftir
upplýsingum i skýrslu
um gang La.tds
3= &'“ír4vs
55 « smt
. , A.,,IIK jr“ l1'*- seil, hiinn tclur
J,““! ||p|„|
✓