Dagblaðið - 27.01.1978, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1978.
iþrótiir
Iþróttir
Iþróttir
Bþróttir
I
. •• ''
Sannfærður um að
við sigrum Dani
—sagði Björgvin Björgvinsson, fyrírliði íslenzka lands-
liðsins, ef tir HM-leikinn við Sovétmenn í gær
Duncan Bridge
• ' •' ... X
4
Brian Wallwork
Frá Halli Hallssvni, Arósum.
„Við sigrum Dani á laugardag.
Það er sannfæring mín eftir
síðari hálfleik okkar gegn Sovét-
mönnum. Við höfum ekki lengur
minnimáttarkennd, sem islenzk
landslið hafa haft gegnum árin
gegn Dönum. Með baráttu,
svipaðri baráttu og var í síðari
hálfleik gegn Sovétmönnum, þá
sigrum við Dani,“ sagði Björgvin
Björgvinsson, fvrirliði islenzka
Tveir Englendingar á
badmintonmóti TBR
— sem hefst á morgun íTBR-húsinu
A laugardag og sunnudag verður
haldið svonefnt Tropicana-mót í
hadminton. Keppt verður i ein-
liðaleik og tvíliðaleik karla og
kvenna. Mót þetta er nýtt af nál-
inni. en þess er vænzt að það verði
haldið árlega.
T.B.R. bauð tveimur enskum
■badmintonleikurum til mótsins,
en þ.eir eru Brian Wallwork, 25
ára gamall, sterkasti leikmaður-
inn i Lancashire. Hann var i
undanúrslitum i einliðaleik í
enska meistaramótinu 1977. Og
Duncan Bridge, 19 ára frá Surre.v,
fvrrum ungiingameistari og
unglingalandsliðsmaður. Hann
var í úrslitum í enska meistara-
mótinu i tvíliðaleik 1976 og 1977.
Englendingar eru meðal sterk-
ustu badmintonþjóða heimsins og
því má telja það mikinn feng fyrir
okkur að fá slíka kappa í heim-
sókn. Verður vafalaust skemmti-
legt að sjá þá sýna leikni sína.
Allir sterkustu leikmenn
íslendinga munu að sjálfsögðu
verða meðal keppenda og má þá
fyrst nefna þá Jöhann Kjartans-
son og Sigurð Haraldsson Is-
landsmeistara. Verður fróðiegt að
sjá viðureignir þeirra yið ensku
snillingana.
Eins og að framan segir verður
mótið haldið nk. laugardag og
sunnudag. Það verður í húsi
Tennis- og badmintonfélags
Reykjavikur að Gnoðarvogi 1, og
hefst kl. 15.00 báða dagana. Fyrri
daginn hefst keppnin með einliða-
leik, og verður leikið fram að
undanúrslitum. Síðan verður
keppt í tvíliðaleik og verður þá
keppt íram að úrslitum. A sunnu-
dag hefjast undanúrslitaleik-
irnir í einliðaleik kl. 15.00, en
síðan koma úrslitaleikirnir hver
af öðrum.
UT-
SALA
UTSALAN
HEFST
ÍDAG
OPIÐTILKL.
7ÍKVÖLD
20-60%
AFSLÁTTUR
b<ikhú/id
Strandgotu
Hafnarfirfti
Sími 50075
landsliðsins eftir ieikinn i gær-
kvöid.
„Fyrir leikinn var gífurlegt
taugastríð hér i Árósum og ég játa
að það kom illa niður á leik okkar
framan af. Við vorum fimm
mörkumundir i halfleik og það er
ákaflega erfitt að vinna upp slíkt
forskot. Því miður höfum við ekki
náð þeim klassa, sem til þarf til að
sigra slíkt lið sem Sovétmanna —
en við minnkuðum muninn mjög
um tima og þegar staðan var 17-18
þá vantaði okkur þann neista til
að jafna og komast yfir. Það fór
gífurleg orka í að vinna upp for-
skotið og r.okkur góð tækifæri
fóru forgörðum og það var mikið
áfall fyrir okkur að missa Árna
Indriðason útaf. Okkar sterkasta
varnarleikmann. En við vinnum
Dani — það er sannfæring mín“,
sagði Björgvin að lokum.
%
M
Sterkasta vörn er
ég hef leikið gegn
—sagði Axel Axelsson
eftirHM-leikinn
Frá Halli Hallssyni, Arösum.
„Þetta er tvímælalalaust sterk-
asta vörn er ég hef leikið gegn.
Hæðin á varnarmönnum Sovét-
ríkjanna er slík, að ég kom ekki
skoti vfir vörnina og því einbeitti
ég mér að undirskotum í síðari
hálfleik," sagði Axel Axelsson,
markhæsti leikmaður íslands
eftir ósigurinn gegn Sovétríkjun-
um.
„Sovétmenn verða heims-
meistarar. Það er sannfæring
mín. Mjög sterkt lið og ieikmenn
þess eru ótrúiega, iíkamlega
sterkir.
Margt jákvætt kom fram í leik
okkar, sér í lagi í síðari hálfleik,
sem við unnum með einu marki.
Mark\arzla - Gunnars Einars-
sonvar var mjög góð. Við náðum
hraðaupphlaupum en fórum því
miður illa með nokkur góð tæki-
færi.“ sagði Axel ennfremur," og
ég er ekki í nokkrum vafa að ef
við náum upp sama baráttuanda,
sama sigurvilja gegn Sovét-
mönnum í síðari háifieik. þá
sigrum við Dani. Um það er engin
spurning i mínum huga.“
Færslan í ísl. vörn-
inni ekki nægileg
— sagði Karl Benediktsson,
landsliðsnefndarmaður
Frá Haiii Hallssvni, Arósum.
„Við náðum okkur ails ekki vel
á strik í fvrri hálfleik og raunar
skipti það sköpum í leiknum. Við
fórum ekki nógu langt fram í
vörninni — og færslan í vörninni
var ekki nógu mikil. Það vantaði
herzlumuninn," sagði Karl Bene-
diktsson, landsiiðsnefndarmaður,
eftir leikinn í gær.
„En við eigum að vinna Dani
með sama baráttuvilja og var í
síðari hálfleik. Leikurinn gegn
Sovétmönnum var mjög erfiður
f.vrir okkur. Þar munaði mest
hin mikla hæð, sem Sovézku leil
mennirnir höfðu fram vfir okku
Einar Magnússon var eini lei|
maður íslands, sem gat stokki
upp yfir sovézku vörnina o
skorað. Þá er vert að minnast
mjög góðan ieik Gunnars Einar
sonar í markinu. Hann varði «
stakri prýði en var raunar óhcpi
inn nokkrum sinnum. Þá var þa
mikið áfall að missa sterkast
varnarmann okkar. Arna Indriði
son, út af,“ sagði Karl.
Það varerfitt að
eiga við þá sovézku
— sagði Gunnar Einarsson, markvörður
Frá Halli Hallssvni. Arósum.
„Ég er ánægður með leik minn
gegn Sovétinönnum — vinkum í
síðari háifleik. Þá var vörnin hjá
okkur líka mjög góð og hre.vfan-
leg en opnaðist hins vegar oft
illa í þeim fvrri," sagði Gunnar
Einarsson, sem stóð sig með mik-
illi prýði í marki íslands í gær.
„Það var ákaflega erfitt að eiga
við Sovétmennina — sér í lagi
Maksimov. Hann náði tvívegis að
vippa vfir mig þar sem ég var í
boltanum en herzlumuninn
vantaði. Þá var mjög erfitt að eiga
við skot sovézku risanna. En ég er
mjög bjartsýnn. Barátta okkar
var góð í síðari háifleik og mcð
henni eigum við að fara langt
með að sigra Dani," sagði Gunnar.