Dagblaðið - 27.01.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR 1978.
13
bændastétt þar sem þau að ætt
og eðli eiga svo augljóslega
heima. En það vilja örlögin
ekki hafa. Tryggvi sýkist af
berklum, óvinnufær langtímum
saman, nokkra mánuði við
dauðans dyr á sjúkrahúsi,
fjarri heimili sínu. Við svo búið
verður hann að hrökklast frá
búskap og byrja upp á nýtt lifs-
baráttu verkamanns á Akur-
eyri, farinn að heilsu og
kröftum og með þungt heimili,
aldraða tengdaforeldra og
sjúka mágkonu á sínum vegum
auk konu og barna.
Hér verður sú atburðarás
ekki nánar rakin. En það sem
nú var sagt ber að sama brunni
og áður: þessar minningar eru
á meðal margs annars merki-
legar fyrir það hve fast fyrri
öid og þessi tengjast í frásögn-
inni og hve ljóst og skýrt þær
leiða í ljós samfélagslegar for-
sendur fyrir afdrifum og örlög-
um einstaklinga í sögunni. Ör-
eiginn úr sveitinni verður
öreigi á mölinni. Með alveg lát-
lausu móti lýsa minningar
Tryggva Emilssonar um leið
uppreisn kúgaðrar alþýðu hins
fyrra samfélags á íslandi í sam-
félagi nýrra tima. Sjálfur
dregur Tr.vggvi þetta dæmi
skýrt saman þar sem hann
minnist föður síns að ævilokum
hans:
„Faðir minn, segir hann,
fæddist í fátækt og hann dó
eignalaus og einmana, ekkert
skýli átti hann lengur til að
hírast í, engan kindakofa eða
kind til að gefa hey á garða,
ekkert innanstokks nema hrör-
legt rúmið sem hann lagðist í að
morgni dags til að deyja...
Börnin hans eru verkafólk,
barnabörnin lærðu mörg til
smiða eða annarra iðngreina,
barna-barnabörnin sýnist mér
útlit fyrir að flest leiti
meiri menntunar. Slík er þróun
in, slík varð breytingin eftir að
samtökum alþýðunnar óx ás-
megin í þjóðlífinu og gátu látið
til sín taka.“
RODINN í AUSTRI
Á Akureyri fer Tryggvi brátt <
að gefa sig að verkalýðsmálum
og pólitík auk hinnar daglegu
lífsbaráttu fyrir sér og sínum
— þótt slíkt háttalag sé síst til
þess fallið að auka gengi hans á
vinnumarkaði. En sósíalismi
Tryggva Emilssonar virðist
með alveg náttúrlegu móti
sprottinn af lífskjörum hans og
lífsbaráttu, jafn-sjálfgefinn
honum og aanað sem kemur
fram við hann á lífsleiðinni.
Barn að aldri hrífst hann af
fyrstu fréttum af byltingunni í
Rússlandi. Kynni hans og eigin
raun af lífi og kjörum verka-
fólks i sveit og á möl í harð-
neskjulegu stéttaþjóðfélagi
leiða hann með sjálfsögðu móti
til fylgis við hina róttækustu
verkamenn í kommúnistaflokki
verkalýðsfélagi og þátttöku í
baráttu með þeim. í frásögn
hans fléttast stéttabarátta,
þjóðfrelsi, sósíalismi í raun og
sann saman í einn málstað.
Það er svo annað mál að það
sem Tryggvi segir gagngert um
verkalýðsbaráttu og pólitík
fyrri ára litast vitaskuld af
hans eigin þátttöku í barátt-
unni, í þeim frásögnum eru
söguleg pólitísk vigorð eins og
,,burgeis“, „hvitliði" enn í sínu
gamla gildi og ljómi mikill
lelkur um foringja kommúnista
og sósíalista, Einar og Brvnjólf
og aðra, en skuggi grúfir að.þvi
skapi yfir andstæðingunum. í
þessu efni er helst eins og höf-
undinum bregðist raunsýni.
hófsemi, yfirsýn sem annars
auðkennir frásagnir hans.
Þetta er vitaskuld eðlilegt, en
verður að vísu kvíðvænlegt ef
beint pólitískt efni kemst i
fyrirrúm í þriðja hluta minn-
inganna sem enn er ókominn.
Það er bágt til að hugsa ef þetta
mikla verk Tryggva Emilssonar
á fyrir sér að lækka flugið í
lokin.
ÞJÓÐLÍF OG SAGA
En sjálfsagt er óþarft að
kviða því. Það er ekki pólitísk
umræða eða endurminning um-
liðinna sögulegra átaka og bar-
áttu sem skiptir mestu í þessum
bókum heldur lýsing mannlífs
og þjóðlifs sem ól þessa baráttu
af sér og bar málstað öreigans
fram til sigurs að lokum. Minn-
ingar Tryggva Emilssonar veita
yfirsýn mikillar sögu eins og
einn einstaklingur úr hópi þús-
undanna hefur sjálfur lifað
hana og hún bregður um leið
upp ótal skilríkum dæmum
mannlífs og reynslu, alþýðu-
fólks og Iífskjara og örlaga þess
úr umhverfi og samtíð höf-
undarins. Vafalaust verður enn
af nógum slíkum efnum að taka
þegar sagan berst suður til
Reykjavíkur og nær samtíman-
um í þriðja bindi verksins.
Hér hefur fátt verið rætt um
málfar og myndríkan, oft
skrúðmikinn rithátt Tryggva
Emilssonar. en einmitt í stíln-
um birtist vitaskuld skáldleg
sjóngáfa höfundarins og næmi
skilningur á fólki og örlögum
sem bækur hans hvarvetna
lýsa. Sjálfsagt mtétti ýtast á um
það hvort minningar hans séu
„skáldskap ofar" af því að þær
séu sannar, eða kannski í eðli
sínu stórbrotin „epísk túlkun“
á lífsbaráttu íslenskrar alþýðu
þó að þær séu sannar. Það má
nú einu gilda. Hitt er vfst að
alþýðuleg íslensk bókmenning
arfur hans aftan úr hinu forna
samfélagi æskuáranna, vita-
skuld frjóvguð margvlslegri
reynslu fullorðinsára í kreppu
og stéttabaráttu, þjóðfélagi í
þróun og ummyndun, hefur
borið merkilegan ávöxt með
æviminningum Tryggva Emils-
sonar.
En það er meira mál en hér
verði farið út í að greina
sundur hvað nýtt sé og hvað
gamalt, hvað arftekið og hvað
alið af nýjum tímum og tíðar-
anda í rithætti og heimssýn
hans.
Halldór Pjetursson
úr málinu og Alþingi ætti að
auka orðgleði sína þar um.
HÖFÐINGJASTJÓRN?
Til afréttingar á heiðri
þjóðarinnar þarf annaðhvort
almúginn eða höfðingjarnir að
ráða ríki. Á alþýðu hefur verið
minnst, en sýnilegt er að hún
vill þar ekki um sinna. Hitt er
að m.vnda hér kvnborna aðals-
mannastjórn. Þessi lýðræðis-
ruslahaugur er orðinn svo
holgrafinn, að vart er stígandi
niður svo mammonsmengun
leggi ekki fyrir vit. Við eigum
að brenna bákninu, keyra
hæstarétt út á Halamið og setja
hnefarétt í staðinn. Ég spyr er
ekki öll okkar gullaldarsaga frá
þeim tíma, að svona lög giltu?
Við megum ekki hengja hatt
okkar á þótt kynbornir menn
skoruðu búkarla á hólm, ættu
þeir betra land. Ekki heldur
láta það villa okkur sýn, þótt
höfðingjar á Sturlungaöld,
frægustu öld sem yfir oss hefur
gengið, tækju einyrkabændur á
engi til höggs, nauðguðu kon-
unni, því börn sluppu, sem
sváfu undir sátu. Þeir geltu
líka búskussa svo ekki ælist
upp óþjóðalýður. Slíkt mundi
ekki gerast^nú, heldur öðrum
aðferðum beitt. Svo var það
kynlífið á þessari old sem
brann eins og björgunarviti.
Við aðför að Þorvaldi í Vatns-
firði lá hann í sæng sinni með
hjalskonu við hvora hlið. Hugs-
ið bara um muninn á lífinu
núna; vart má höfðingi glingra
við byrgiskonu, svo hún hóti
ekki að segja konu hans það.
Svona má láta sama manninn
margborga glingrið. Þrátt fyrir
þannig smáglettur var þetta
blómstrandi þjóðlif og stjórn-
endur létu ekki almúgann ögra
sér. Væri ekki réttast að reisa
merki þessara kynbornu
manna? Þeir höfðu að vísu sína
smágalla, en um fátt getum við
staðið þeim á sporði. Vonandi
er það ekki ritvilla að þeir hafi
verið kynbornir, að standa hafi
átt af konu bornir. Slík stjórn
þyrfti ekki að vera að ráðfæra
sig við grásleppukarla og
búhokrara.
Það fyrsta er, að þeir ríkustu,
atkvæðamestu og kynbornustu,
tækju höndum saman um
stjórn landsins. Þetta gæti leitt
til þess að hér kæmi fram
kynbornasta þjóð veraldar.
Tökunt Sviss til dæmis, ekki
stærri þjóð. Hún er með ægis-
hjálm í augum og þangað
streymir auðurinn, sem ekki á
friðland annars staðar. Þangað
kvað auðurinn af olíu-
hneykslinu hafa lent, þar
eigum við lendingu visa.
Með burtför báknsins mætti
leggja útgerð aó mestu niður,
sem alltaf er rekin með
bullandi tapi, sem þó allir vilja
velta sér uppúr. Sannast þar, að
þangað sækir klárinn. sem
hann er kvaldastur. Nokkrir
smápungar og trillur gætu
aflað það fiskmeti sem með
þyrfti, og þetta fólk mundi á
einhvern hátt sjá fyrir sér
sjálft. Svo þyrfti nokkra
sauðbændur i Þingeyjarsýslu
við að hleypa til og framleiða
kjöt handa stjórninni. Á Suður-
landi nokkra stórbændur
vélbúnatil sálarog líkama til að
framleiða mjólk, kálfa og holda
naulakjíit. Þá mundi framleidd-
ur þjóðarbjór og áfengi selt
með mennsku verði, því eitt-
hvað þyrfti til að gljábera
sálina. Utflutningur yrði
óþarfur, landheigin leigð svo
dýrt, að rikiskassinn mundi spú
af offylli, við opnun.
Fólki mundi fækka svo
mikið, að leggja mætti niður
alla þá styrki, sem greiddir eru
fólki fyrir það eitt að fæðast,
f.vlla sig af mat og deyja svo á
ríkiskostnað. Allt þetta yrði
með nútímasniði kvaða og
kvalalaust. Allir héldu sinni
eigintegu náttúru án ábyrgðar,
mundi þá mörgum aðalsmanni
dátt að dandala við hnellnar
hnjákur, þótt af öæðra kyni
væru. Berið saman muninn á
gamla aðalsmannaveldinu. þá
mátti landsfaðir láta sækja
landsseta, rista hann á kviðinn
og koma fótum sínum fyrir í
holinu, þetta afskrifar hitaveit-
an. Með hnefarétti, er aðeins
eitt blað með stóra sannleik á
hendi, þar með allar vitleysis-
þrætur niðurkveðnar, sem
draugar áður. Menntakerfinu
þarf að snúa við svo kviðurinn
viti upp, því lækna þarf hina
sálrænu magakveisu og
meinlokur, sem geta myndað
andateppu, t.d. með 5-6 tíma
ræpum á þingi.
Hér mér er mönnum í sjálfs-
vald sett hvora tillöguna þeir
aðhyllast. Hver verður að bera
sína sök. Það hlægilegasta er,
að kenna öðrum sín eigin
afglöp. Þetta er sá réttvísandi
dómur, að fara í eigin barm og
leita að veilum, sem leiðrétta
þarf.
Halldór Pjetursson
rithöfundur.
Einstakt tækifæri
Sófasett frá
kr. 160 þús.
Staka stóla og
borðstofustóla
frá kr. 15 þús.
Margar stærðir af springdýnum
og svampdýnum frá kr. 10.500.-
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur hf.
Brautartiolti 2 - Sfmar 11940 -12691
Staka sófa
frá kr. 40 þús.
Borðstofuborð
frá
kr. 35 þús.
Aðstoðargjaldkerí
Óskum eflir að ráða aðstoðargjaldkera að fjármáladeild
vorri nú þegar.
Innifalið í starfinu er innheimta löghoðinna trygginga og
almenn skrifstofustörf.
Verzlunar- eða samvinnuskólamenntun æskileg, en
starfsreynslu er krafizt.
Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu vorri að Armúla
,'i.
SAMVINNUTRYGGINGAR
— Starfsmannahald —
ísaksturs-
keppni
Bifreiðaíþróttaklúbbs Revkjavíkur
verður haldin að Leirtjörn í Mosfells-
sveit sunnudaginn 29. janúar kl. 2.
Væntanlegir keppendur hafi samband
við skrifstofuna Laugavegi 166. Sími
22522 eftir kl. 8 í kvöld.
Oskumeftir
bifvélavirkjum
eða mönnum vönum bifreiðaviðgerðum.
Einnig réttingamönnum.
Upplýsingar ísíma 76400
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 — Simi 15105
\ flug-
NEMAR
Flugtak h/f heldur árshátíð sína 28.
jan.
Tryggið vkkur miða í tíma. í fyrra var
allt uppselt.
Miðar í gamla flugturninum.
gamla flugturnínum
Reykjavikurfiugvelli.
Sinii 28122.