Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 31.01.1978, Qupperneq 10

Dagblaðið - 31.01.1978, Qupperneq 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1978. L Útgefandi Dagblaðið hf Framkvæmdastjori: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjornarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. íþrottir: Hallur Simonarson. Aöstoðarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrít: Asgrimur Palsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tomasson, Bragi Sigurösson. Dóra Stefónsdóttir, Gissur Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljosmyndir: Árni Póll Johannsson, Bjarnleifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: ólafur Eyjó£?i*on. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjórn Síöumúla 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsími blaösins 27022 (10 línur). Áskrift 1600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakiö. Setning og umbrot: Dagblaðiö og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugerö: Hilmir hf. SíÖumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Talningaræ vintýrí Fyrsta talning í prófkjöri Fram- sóknarflokksins í Reykjavík benti til, að Kristján Friðriksson hefði lent í þriðja sæti til alþingiskosn- inga, Sverrir Bergmann í fjórða sæti og Þórarinn Þórarinsson í fimmta. Munurinn var svo naumur, að atkvæðin voru talin í annað, þriðja og fjórða sinn. Við þessa endurtalningu fór atkvæðaseðlum að fjölga. Voru nöfn þeirra Þórarins og Sverris og ýmissa annarra á æ fleiri seðlum., Nafn Kristjáns kom hins vegar ekki fram á þeim seölum, sem nú töldust til viðbótar. Lauk talningu svo rúmum sólarhring eftir íokun kjörstaða, að Þórarinn var kominn í þriðja sæti, Sverrir í fjórða og Kristján í fimmta. Nokkrum dögum síðar kom í ljós, að 50-60 seðlum fleira hafði komið fram í prófkjör- inu en skráður fjöldi þátttakenda var á kjör- skrá. Þegar slíkt gerist er skýringin venjulega sú, að við talningu sé lætt inn fölsuðum atkvæða- seðlum, án þess að þess sé jafnframt gætt að taka út aðra seðla á móti. Þannig myndast misræmi milli kjörskrár og seðlafjölda. Vitni hafa kvartað um, að innsiglisrof at- kvæðakassa og talningin í heild hafi farið fram með losaralegum hætti. Auk þess hafa fram- bjóðendur kvartað um, að fulltrúar þeirra hafi ekki getað fylgzt með talningunni. Þegar seðlar eru orðnir of margir, er kjör- stjórn vandi á höndum. Hún hlýtur að eiga erfitt með að meta, hvaða seðlar eru grunsam-' legri en aðrir. Þá er helzta vonin sú, að þátttak- endur í kosningunni hafi í rauninni verið fleiri en kjörskráin sýnir. Svo virðist sem seðlum hafi fækkað á nýjan leik við fimmtu og síðustu talningu, sem fór fram um síðustu helgi, viku eftir prófk.jör. Var þá aftur komið verjanlegt samræmi milli kjör- skrár og seðlafjölda. Kannski varpa framsóknarmenn í Reykjavík öndinni léttar. Hitt er svo skoðun margra ann- arra, að þvílíkt talningarævintýri gæti aðeins gerzt hjá Framsóknarflokknum og þá eingöngu í Reykjavík. Ráðherrasiðleysi Siðleysi landsfeöranna hefur sætt haróri gagnrýni í Dagblaðinu að undanförnu. Nú hefur enn lengzt syndaregistur eins þeirra, Halldórs E. Sigurðssonar vegamálaráöherra. Þrír sóttu um starf rekstrarstjóra vega- gerðarinnar á Austurlandi. Tveir þeirra voru verkstjórar vegagerðarinnar en einn rafvirki og framsóknarmaður, sem ekki hafði nálægt vegagerð komið. Umdæmisverkstjórinn á Austurlandi mælti með öðrum verkstjóranum í starfið. í samræmi viö það óskaði vegamálastjóri eftir staðfestingu á skipun hans. Ráðherra skipaði hins vegar rafvirkjann og flokksbróður sinn. Mikil reiði er á Austfjörðum vegna þessa siðleysis. Sú reiði nær jafnt til framsóknar- manna sem annarra. Það stendur þeim líka næst að hafa landsföðurinn ofan af siðleysinu. Fyrsti dagpabbinn í Frederiksberg í Danmörku: Hœtti oð vinna við iðn sína og fór að passa fjögur börn mjög stoltar af mér og kunn- ingjum mínum í hópi karla finnst það allt í lagi að taka að sér starf sem þetta. Ég gæti trúað að margir vildu gjarnan taka að sér að passa börn, aðeins ef það væri algengara og viðurkennt í samfélaginu. BÖRNIN ERU FORDÓMALAUS Gæzlubörnin koma á morgn- ana kl. átta og foreldrar þeirra sækja þau síðan á daginn kl. 4-5. Ekki er fyrirfram ákveðið VELVILJI OG STOLT Börnin sem koma í daggæzl- una til Leifs eru öll þriggja ára og þau eru sitt frá hverju land- inu, Póllandi, Nýja Sjálandi og Noregi. Börnin læra ýmislegt og þar á meðal dijnsku og nú eftir þrjá mánuði í vistinni eru vandræði vegna tungumála ekki lengur fyrir hendi. Börn- — jaf nréttið potost áleiðis Leif Stjernelund með dóttur sína Maju í fanginu og dagbörnin sín þrjú, Esben frá Noregi, Kim frá Nýja Sjálandi og Veróniku frá Póilandi. Leif Stjernelund, 27 ára gam- all Dani, vill ekki gera mikið veður út af því þótt hann sé fær um að vinna sama starf og kon- ur hafa unnið í aldaraðir. Það kostaði hann ekki mikla um- hugsun að gerast heimavinn- andi húsfaðir og taka þrjú börn í daggæzlu. Leif er því fyrsti ,,dagpabbinn“ í Frederiksberg í Danmörku. „Þetta kom af sjálfu sér,“ segir Leif. „Ég hef alltaf átt gott með að umgangast börn. Þar fyrir utan hafði konan mín hærra kaup en ég,“ en Leif er lærður gullsmiður og hefur starfað sem slíkur. „Við hjónin eignuðumst barn fyrir þremur mánuðum og annað okkar varð að hætta að vinna og það var eðlilegra og sjálfsagðara að það væri ég sem hætti.“ Til þess að hafa fullt starf heima og til þess að auka tekjur heimilisins hafði hann sam- band við félagsmálayfirvöld í Frederiksberg og hefur nú í þrjá mánuði gætt þriggja barna auk daglegra heimilisstarfa og gæzlu á fimm mánaða dóttur sinni. unum líður vel og kalla Leif alltaf pabba. „Fólk horfir oft á okkur þegar ég er úti að ganga með öll börnin fjögur," segir Leif. „Það eru einkum konur sem ég hitti á ferðum mínum og þær eru líka að passa börn. Við hittumst yfirleitt á leikvöllum og í dýra- garðinum og konunum finnst það bráðsnjallt að ég skuli hafa tekið þetta starf að mér. Konan mín og konur sem eru samstarfsmenn hennar eru r MINNIHLUTASJÓNAR- MID OG STRÁKÚSTAR HREINSUNARDEILDA Það er ekki laust við að síð- asta helgarvinna hreinsunar- deildar Framsóknarflokksins hvetji almenna kjósendur til að taka enn ofan hattinn til heiðurs manninum sem fann upp prófkjörið. Yfirstandandi vetur mun lengi í minnum hafður sem frostaveturinn mikli þrátt fyrir eindæma veðurblíðu. Flokks- eigendur allra átta hefur kalið verulega og nokkrir orðið úti. Strákústurinn er að ryðja Sér til rúms sem pólitískt stjórn- tæki í höndum óbreyttra borgara. TEIKN Á HIMNUM Skoðanakönnun samfara próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins hefur að öðrum mannþingum ólöstuðum leitt stærstan sann- leika fram t dagsljósið. Fram að prófkjöri var forysta flokksins gjörn á að þykjast tala fyrir hönd hins þögla meirihluta. Á geysifjölmennum tfma- mótafundi áhugamanna um nýjar leiðir innan Sjálfstæðis- flokksins í haust birtust fyrstu skrif handarinnar á vegg Hótel Borgar. Auðlindaskattur, gjald- taka af varnarliði og kúvending skipunar landbúnaðarmálá fengu d.vnjandi undirtektir borgarafundar. Hinn annars þögli meirihluti lét til sín taka á fallegu haustkvöldi. Hefðu völvur flokkseigenda ómakað sig á borgarafundinn mikla þá hefðu þær strax séð skír óánægjuteikn á björtum himni. Réttmætur dráttur ályktana hefði firrt flokkinn mannvígum. Raunsæir flokks- •eigendur áttu að kenna sinn vitjunartima og ganga til móts við óánægðan meirihluta þög- ulla kjósenda. í þess stað beið flokkseigenda ömurlegt hlut- skipti nátttröllsins fjarri mannabyggð i grárri morgun- skímunni. MINNIHLUTANUM SAMKVÆMIR Úrslitum frægrar skoðana- könnunar mun hlotnast ódauðlegur sess í minjasafni fallinna flokkseigenda. Þau færðu alþýðu manna heim sanninn um marga hluti sem áður voru sveipáðir hulu vaf- ans: Viðishúsakaupin alræmdu voru afþökkuð og útvarpseinok- un frábeðin. Öskað var eftir mannréttindum í formi öl- bruggunar og drykkju. Blekk- ingavefurinn sem kallaður hefur verið íslenzk utanríkis- stefna í varnarmálum var af- hjúpaður sem hávaðasamt minnihlutasjónarmið. Loks höfnuðu kjósendur lækkun kosmngaaldurs. Viðbrögð flokksforystunnar gegn framkomnum meirihluta- skoðunum kjósenda sinna halda áfram að verða fólki undrunarefni. I stað umburðar- lyndis landsfeðra átti að berja óbreytta flokksmenn til hlýðni. Víðishræið var að sjálfsögðu keypt um hábjartan dag. Ekk- ert útlit er fyrir jákvæðar undirtektir við útvarpsfrelsi eða öldrykkju. Andstaðan gegn dulbúnu einkahermangi útval- inna hefur þó kallað fram lang- alvarlegastan taugastrekking. Þeir segja hana neikvæða gagn- vart heiðri og hagsmunum íslenzku þjóðarinnar, menn- irnir sem hafa veðsett öfugan höfuðstól landsins í erlendum bönkum og sitja Bildenberg- fundi með fljúgandi Hollend- ingum. En svona til að undirstrika fyrirlitningu sína á þöglum kjósendum er stigið stórt skref til upphefðar þeirri skoðun sem ein hlaut afgerandi afsögn: Ákveðið hefir verið að lækka aldursmörk flokksbundinna kjósenda í borgarstjórnarpróf- kjöri í 16 ár. Hugtakið lýðræði klæðist ýmsum dulargervum í Bolholtinu.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.