Dagblaðið - 31.01.1978, Síða 11

Dagblaðið - 31.01.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. JANUAR 1978. 11 JÓNAS HARALDSSON hvað Leif og börnin taka sér fyrir hendur hvern dag. Þau fara í leiki innanhúss og síðan er farið í göngutúra. Þau fara oft í dýragarðinn sem er nálægt heimili Leifs og börnin hafa mjög gaman af því. En oft fara þau i lengri ferðir og þá ferðast þau með lestum eða almenn- ingsvögnum. „Ég hef aldrei mætt fordóm- um hjá börnunum," segir Leif. „Þau kvarta ekki yfir því að það sé karlmaður sem passar þau. Það er gott samband á milli þeirra og mín.“ EKKI HÁTT KAUP EN NÝTIST VEL Mánaðarkaup Leifs er 4200 kr. danskar eða um 155 þúsund íslenzkar krónur og fyrir hvert barn eru greiddar 1400 kr. eða tæplega 52 þúsund krónur. Þetta pr ekki mikið kaup fyrir mikla vinnu en tekjurnar eru nær skattfrjálsar þannig að þær nýtast vel. Öll útgjöld heimilisins i mat, leikföng og fleira borga opinberir aðilar. Þetta fyrirkomulag hentar Leif Stjernelund og konu hans vel og Maja litla dóttir þeirra nýtur þá umönnunar annars foreldris síns. Leif gerir ráð fyrir þvi að vera heima þar til hún verður tveggja þriggja ára. Þegar hægt verður að koma henni á barnaheimili býst hann við að fara að vinna aftur að iðn sinni. Starfið við barnagæzluna hefur reýnzt skemmtilegt að mati Leifs. Það er mikið að gera en honum líkar samvistin við börnin. Áður en hann byrjaði hafði hann ekki mikla reynslu í meðferð barna en hafði lesið mikið og í raun hefur hann ekki lent í neinum alvarlegum vandræðum. LIFIÐIAUÐNINNI Elías Mar Speglun Helgafell 1977 Til eru bækur sem „þoldu þennan dóm“ eða réttara sagt hlutu þau örlög á árinu sem leið að komast ekki einu sinni upp á yfirborðið á þeim mikla flaumi ritaðs máls sem flæddi yfir landið síðasta mánuð ársins, að vanda, og verða að bíða þess, að þeim skoli einhvers staðar á land á nýju ári. Þetta á einkum og sérílagi við um bækur, sem birtast ekki fyrr en komið er mjög nálægt viðmiðunarpunkt- inum sjálfum, jólahátíðinni, og mætti líkja þeim við vínföng, sem borin eru á borð síðla nætur fyrir vel slompaða og aðframkomna veizlugesti. Það er ekki einu sinni víst að nokkur þeirra komi þeim níður. nema einhver hafi vit á því að stinga veigunum undan, til þess svo að rétta sig af með þeim næsta dag — á líkan hátt væri þjóðráð að geyma sér hinar síð- komnu bækur og glugga ekki í þær fyrr en bókavíma jóla- mánaðarins er tekin að renna af fólki og janúarmánuður er genginn í garð með sinni lítter- eru þynnku. Þetta mundi eiga við um Ijóðabókina Speglun eftir Elías Mar sem barsl okkur í hendur nú fyrir nokkrum dögum. Sú bók hefur greinilega laumazt út um bakdyr bókaútgáfunnar Helgafells án þess að fá í vegar- nesti þau lofsyrði forlagsins sem yfirleitt eru látin fylgja nýútkomnum bókum á kápu- síðu og í auglýsingum, enda höfðu þá fyrir skömmu tveir gæðingar og forgangshöfundar þeyst úr hlaði téðs forlags með miklum gný og glæsibrag fram á vígvöll bókamarkaðarins: þjóðskáldið Tómas eftir margra ára þögn og höfuðskáldið Laxness með sinn árlega skammt til þjóðarinnar, sem virðist vart geta lifað af árið án þess að heyra eitthvað frá sínu höfuðskáldi og þá er betra að það sé „ja, seisei, sussujú, hana- nú, mikil ósköp“ en ekki neitt. SKRILSINS FRAMHJÁ SKARNFLÓR UM HJARN FÓR Elías nefnir kver sitt Speglun og má rekja þá nafn- gift til samnefnds kvæðis, sem mun vera yngsta kvæðið í bók- inni, en þar standa þessar línur: eins og verk mitt erspeglun mín eins og ég er speglun Guðs. Af þessum orðum mætti ætla að þau ritverk sem hér eru borin fram hafi einkum að geyma það sem kallast persónu- legar tilfinningar skáldsins og spegli þá þær sérstaklea sem fremur væru af guðlegum toga. Þó væri sennilega nær að segja, að þau spegli öðru fremur það skringilega og viðsjárverða fyrirbrigði umhverfis okkur sem við nefnum veröld og það kannski ekki alltaf i sérlega guðlegu ljósi. Reyndar er þessi speglun ekki heilleg, heldur í smábrotum, enda eru ljóðin samtíningur frá þrjátiu ára tímabili eða frá 1949. Þau eru því, eins og gefur að skilja, ærið sundurleit, og sum þeirra væri raunarnærað bendla við hag- mælsku en skáldskap sam- kvæmt hefðbundinni skiptingu, með þvi að áhrif þeirra byggjast fremur á rímlist en raunverulegri speglun, hversu mjög sem þau annars kunna að hitta naglann á höfuðið. Sumar þessar vísur hafa gengið manna á milli, til dæmis vísan um Jósep, þar sem beitt er á skemmtilegan hátt því stíl- bragði sem fornir menn nefndu tmesis: Anta-jafnan etur bus, einnig Pega- ríður sus, spiri- þvi ei tevgar tus Thoria-kappinn frækn cius. í líkum dúr er og kvæðið um kempuna Bjarnþór, sem „rims- ins vegna“ verður ekki einung- is að vera barnrör heldur líka garnmjór í þokkabót. Á mörkum þessa tvenns, sem að ofan var upp talið, hag- mælsku og skáldskapar, mega teljast rímuð ádeilukvæði eins og Ákall til dollars almáttugs 1954 og Jólavertíðarlok 1959, þar sem ádeilan í þeim er einum of bein og tuggukennd — hið síðara minnir raunar sterklega á kvæði eftir Stein Steinarr um sama efni. I báðum þessum kvæðum Elíasar kemur dollarinn bandaríski við sögu sem ímynd hins illa, eitthvað i' líkingu við það sem menn nefndu áður Djö- eða jafnvel Ands-, en einhvern veginn orkar þetta léttvægara nú, annó 1978, en það kann að hafa gert annó 1954 eða annó 1959, hvort heldur það er af því að við höfum þegar ánetjazt þessari óvætti, dollaranum, svo mjög, að við erum hætt að taka eftir djöfullegu eðli hans, eða við kunnum ekki lengur að óttast hann, eftir að hann tók að fara halloka fyrir öðrum sterkari tjaldmiðli. SLYS Í SKÖPUNARVERKINU En önnur ljóð, einkum þau sem eru ort í lausu máli, verða einlægari og opnari, þannig að veröldin nær að speglast í þeim í allri sinni nekt. Það sem blasir við sýn er eitthvað í ætt við eðlisvísindalega heimsmynd okkar aldar: jörðin okkar verður þar „abnormal" kúla í kúhispili skaparans, abnormal rogna þess að hún, ólíkt hinum normölu kúlunum, ber utan á ser þetta „slys í sköpunarverk- inu“, mannlífið, sem virðist e.kki eiga annað stefnumið Bók menntir eðra en að geta útrýmt sjálfu ■tér og öllu i kringum sig, enda ?r það helzt að skilja á fjallinu Ararat i einu kvæðinu, að það sjái eftir því að hafa verið lend ngarstaður forföður okkar og mælist undan slíkri þjónustu í framtíðinni — en sennilega ímiðar Nói framtíðarinnar sér jðruvísi farkost en örk. Eyði- leiki þessarár heimsmyndar kemur einna skýrast og sterk- ast fram í kvæði eða öllu heldur Ijóði í lausu máli, sem nefnist Ævintýri í austurlenzkum stíl, þar sem naðra vefur sig um grjóthnullung og gerir úr honum lýtalausa kúlu — það er freistandi að túlka þessa sögu, með hliðsjón af ýmsu öðru í bókinni, sem einskonar nútíma- lega sköpunarsögu. En Elías lætur sér þó ekki nægja að draga upp svo nötur- lega heimsmynd, heldur reynir hann stundum að tefla fram einhverju sem gæti myndað mótvægi gegn henni og þeim beyg sem af henni sprettur: Auðn á sitt líf ?ins og líf sína auðn. Þar verður aldrei dauði. Hví erum við þá skefld? Það gæti semsagt verið verra, og t kvæðinu Vor má jafnvel finna eitthvað sem mætfi kalla irúarjátningu: Hversu sem vegnar lífi i eymd og ugg andspænis stundardauðanum sem bíður, eitt er sem varir, eitt, þótt allt um þrotni: ástin, sú bljúga þrá að vera til. Þegar öllu er á botninn hvolft, má því segja, að ljóð Eliasar séu ekki einungis- speglun veraldarinnar, heldur einnig innlegg í þá baráttu sem i henni er stöðugt háð, þar sem líf og fylling berjast gegn eyðingu og tómi. Kristján Arnason KRISTJÁN ÁRNASON SJO PLAGUR MORGUNBLAÐSINS Margföld óáranthefurherjaðá Morgunblaðið í vetur. Prófkjör og skoðanakannanir hafa dunið yfir blaðið líkt og sjö plágur Egyptalands. allar sömu nótt- ina. Margar hugsjónir féllu á kné fræga prófkjörsnótt. Fótaburður Morgunblaðsins er ekki í nokkrum takt við þann stríðsdans sem stiga þarf til framdráttar Sjálfstæðisflokkn- um á kosningaári. I stað víg- búnaðar gegn öðrum stjórn- málaflokkum er blaðinu falið að grafa upp herör gegn máttarviðum Sjálfstæðisflokks- ins. Hver flokkseigandinn á fætur öðrum er teymdur fram til vitnisburðar á síðum blaðsins um ágæti núverandi hermangsskipulags. Skoðanir 7254 kjósenda á þessum mála- flokki eru fundnar léttvægar. Reykvískir borgarar eru taldir í alvarlegri þörf fyrir leiðsögn um mvrkvuð göng eigin skoðana. Sir Winston Churchill var einn upphafsmaður hermangs á gullöld stríðsgróðans. Afbökun á frægri setningu þessa góða NATÓ-dáta er ágætlega við hæfi: Aldrei í samanlagðri veraldarsögu einkahermangs hafa jafnmargir lagt svo mikil skrif af mörkum með jafnlitl- um árangri! Ó FÁNAFJÖLD... Einn liður í herferð flokks- eigenda gegn þöglum meiri- hluta sjálfstæðismanna er að spyrða hann saman með Adólfi sáluga Hitler undir nafnbótum lýðskrumara. Fjölmargir góð- borgarar réttu í eina tíð fram brúnklædda hönd til heiðurs litríkri fánaborg íslenzkra þjóð- ernissinna. Margir þeirra hafa ,að verðleikum markað djúp spor i sögu eigendafélags Sjálf- stæðisflokksins eins og gengur. Einn slíkur gamall Þórshamar lagði á það ríka áherzlu við undirritaðan á götuhorni um daginn: „Ástæðan fyrir því að hann Adólf okkar náði til fjöldans var að hann efndi loforðin. Hann kom óneitanlega mörgum bióðbrifamálum í höfn þrátt legum striðsrekstri. Hann legumfitreiðsrekstri. Hanií vann þjóð sína upp úr verð- bólguölæði, hvað sem hver segir. Ef endurheimting gjald- miðilsins, hraðbrautakerfi Þýzkalands og fjöldi annarra þrekvirkja eru taldar ódýrar lausnir lýðskrumara þá veitir þessari þjóð ekki af töluverðu slíku lýðskrumi um þessar mundir. Það er alla vega hald- betra en rándýrar lausnir stjórnvalda sem komið hafa okkur á erlendan vonarvöl við hlið Nýfundnalandsins gjald- þrota. Hann Adólf var ekki lýð- skrumari. Hafandi tapað st.vrjöld voru öll hans verk dæmd að hætti sigurvegara en ekki að verðleikum." Svo mörg voru þau orð gam- als fánabera sem eitt sinn sló saman skóhælum á götum Þriðja rlkisins. Þeim er hér með komið óbreyttum á fram- færi án álagningar. Sieg Heil! FLÍS í EÐLUM FÆTI Alkunn er sagan um Andrókles sem dró flís úr særðu ljóni. Dýrið launaði honum síðar greiðann með líf- gjöf í hringleikum Rómarskríls- ins. Risaeðlan í Aðalstræti 6 virðist nú meidd á fæti. Hún æðir viðþolslaus um búrið og slær halanum í rimlana. Hún þarfnast meðferðar kunnáttu- manna eða jafnvel innlagn- ingar á Dýraspítalann. Flísina verður að draga úr fætinum áður en hún veldur varanlegum skemmdum. Illt væri að sjá Asgeir H. Eiriksson einu risaeðlu landsins flutta á brott i járnum til endanlegrar varðveizlu í Sædýrasafninu við Hafnarfjörð. Andróklesinn sem nú linar háværar þjáningar Morgun- blaðsins sáir ekki út í vindinn. Sjálfstæðisflokkurinn allur mun uppskera rfkulega fyrir vikið í komandi kosningum. BLÁSIÐ TIL NÁVÍGIS Nýjasta tækni i áróðursvís- indum flokkseigendafélagsins er að senda sinn frambærileg- asta þingmann, frú Ragnhildi Helgadóttur, til fundarhalda I flokksfélögum. Umræðuefninu Norrænt lýðræði var breytt í Skoðanakannanir, fjölmiðlar og Alþingi. Enda eru flokksmenn nú í meiri þörf fvrir leiðbein- ingar í völundarhúsi eigin skoð- ana en fyrir hæfilegan skammt af samnorrænu lýðræði. Elslíulegt erindi frú Ragn- hildar yljaði fundarmönnum um hjartarætur. Erfitt er um sanngjarnan samanburð nema ef vera skyldi í höfuðlausn Egils Skalla-Grímssonar. En þrátt fyrir að hefðbundin fræði flokkseigenda hafi verið fall- ega fram borin þetta kvöld, þá glæða umbúðirnar innihaldið ekki þeim neista sem þarf til að seyða þöglan meirihluta Reyk- víkinga til fylgilags. Hins vegar fer ekki hjá því að menn velti vöngum: Hvílík sóun að þreyta þessa ágætu hæfileika í návígi við eigin flokksfélaga. Bíða engin meira aðkallandi verkefni úrlausnar þessa stundina, hvorki í nánd við Alþingishúsið á Austurvelli eða í Bolholtinu? 1 kjölfar þessa fundar má vænta áframhaldandi vitnis- burðar gegn skoðanakönnunum og prófkjörum í deildum og stofnunum flokksins það sem eftir lifir vetrar. UNDIR HERFORINGJASTJÖRNU Orðgnótt íslenzka málsins býður bæði mörg orð yfir sama hlutinn og margan skilning á sama orðinu. Dæmi: Samsetn- ingin Erlendur Sveinn Her- mannsson getur hæglega táknað rammíslenzkan einka- son Hermanns bóndi í Afdal fjarri öllu ástandi. I annan stað merkir hún óskilgreint svein- barn erlends atvinnuhermanns. Annað dæmi: Valkostir fylgja einnig orðinu Herfor- ingjastjórn. Það getur táknað stjórn skipaða herforingjum og einnig stjórn sem gætir hags- muna herforingja. Fyrri kosturinn er alþekkt stjórnarfar í Latnesku Ameríku og víðar. í Nigeríu sitja herforingjar við völd. Þar kom safaríkt bankahneyksli fram í sólarljósið fyrir skömmu. Landsmenn brugðu skjótt við og leiddu ábyrga fyrir líflátsdóm. Honum var síðan fullnægt einn sunnudags- eftirmiðdag og á ströndinni að viðstöddu fjölmenni. tslendingar þekkja ekki þessa tegund herforingjastjórn- ar. Bankaræningjar okkar standa yfirleitt nær fálkaorð- unni en fangelsinu. Aftöku- sveitirnar starfa heldur ekki í dagsljósinu í Reykjavík. Neðan- jarðarsveitir sögusmiða annast mannorð þeirra sem ryðja þarf úr vegi hverju sinni. En herforingjar NATO- bræðralagsins í Pentagon mega hins vegar sæmilega við una. Opinber skilgreining herfor- ingjastjórnar íslenzka lýðveld- isins á þjóðarstolti hefur leitt eftirfarandi í ljós: Pyngja her- foringjanna í Pentagon erorðin viðkvæmasta liffæri íslenzka þjóðarlíkamans. BLÓTVEIZLA FLOKKSEIGANDANS Nú er miður þorri. Lands- menn heiðra fornkonunginn mikla með súrmatsblóti. A slík- um helgistundum krjúpa trúað- ir menn jafnt sem sértrúaðir og þakka fyrir snúð sinn. Það ákallar hver sinn herra i þög- ulli þakkargjörð: „Vér fögnum þvl að vér erum ei sem aðrir menn. Vér þökkum hljóðir fyrir Kröflur, Borgar- fjarðarbrýr og Víðishús. Vér biðjum jafnframt: Leið oss ekki í prófkjör heldur frelsa oss undan skoðunum Re.vkvik- inga. Gef oss vorn daglegan þagnarmúr með Lesbók um helgar. L.já oss hermang, einok- un og bankaleynd. Magna oss hæfilega verðbólgu til eigna- aukningar. Auk oss lánstraust í erlendum bönkum. Hjálp oss að veðsetja vinnuþrek lítilla englabarna. Veit oss styrka tungu til lýðskrums og þjóðinni eyru undir öfga. Efl oss mátt til að setja fleiri verðmiða á landið, löngu selt landið. En umfram allt: Forða oss undan hræðilegum strákústum hreins- unardeildar!" Asgeir Hannes Eiríksson verzlunarmaður.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.