Dagblaðið - 29.07.1978, Side 4

Dagblaðið - 29.07.1978, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978. BÍLASALA Seljum í dag: Renault 20TL árg. '77 verð 3.600þús. Renault 16TL árg. ’73 verð 1.400þús. Renault 16 TL árg. '72 verð l.lOOþús. Renault 12TL árg. '77 verð 2.600þús. Renault 12L árg. '75 verð 1.800þús. Renault 12TL árg. '74 verð 1.450þús. Renault 12 Station árg. '73 verð 1.550þús. Renault 12TL árg. '73 verð 1.100þús. Renault 4TL árg. '78 verð 1.900þús. BMW518 árg.'77 verð 4.300þús. Suðurlandsbraut 20. Sími 86633. Veiðileyfi í Blautalóni á Skaftártungumannafrétti til sölu hjá skála- verði við Ófæru á nyrðri Fjallabaksleið. Ennfremur sala og upplýsingar í símum 30012 Reykjavík, Þorsteinn, 5252 Hvolsvelli, Sigursteinn, og 7233 Vík í Mýrdal, Árni. Leigutakar. Hjallafiskur Merkið sem vann harðfisknum nafn FaiSt hjá: Verzlunin BorgarhöH, Dalvik. Hjallur hf. - Sölusími 23472 Tromp Bíllinn gegn bensínhækkuninni Autobianchi Sparneytinn bæjarbíll Bjartur — fípur aukmargra góðra kosta Bíll sem er vel liðinn um aila Evrópu. Láttu freistast. Eigum alltaf úrval notaðra bíla á sanngjörnu verði. Það borgar sig að reynslu- aka. Wl | m H_ ‘M"'B3ÖRNSSONACo BILDSHÖFÐA 16 SÍM! 81530 REYKJAVIK DB á ne ytendamarkaði GLEYMUM EKKIGURKUNUM Þótt tómatarnir hafi verið langefst á baugi hjá okkur undanfarið megum við samt ekki gleyma blessuðum agúrkunum. Þær eru núna á afar hentugu verði fyrir neytendur og ættu sem flestir að notfæra sér það. Á Græna torginu i Blómavali kosta agúrkur nú 420 kr. kg. — Þeir sem ætla sér að sulta agúrkurnar ættu því að fara að drifa í málinu. Á Neytenda- siðu DB 1. júlí sl. birtum við uppskrift að stórgóðum „asíum” sem búnar eru til úr agúrkum. Uppskriftin er ágæt, en nú hefur verðið á henni breytzt, vegna þess hve agúrkurnar hafa lækkað i verði. Með 15 stk. af agúrkum eins og gert er ráð fyrir i upp- skriftinni kostar allur skammturinn núna um2400kr. A.Bj. Hægt að nota næstum því hvað sem er í tómatafyllingar I fyrradag birtum við uppskrift að tómötum sem fylltir voru með kartöflusalati. Það er ýmislegt annað sem gott er að nota sem fyllingu i tómata. Uppistaðan i fyllingu getur verið majones sem hrært er upp með ými eða sýrðum rjóma og út i það má brytja svo að segja hvaða grænmeti sem er, ávexti rækjur og blanda saman að vild. Verðið fer þá að sjálfsögðu eftir því hvað notað er í fyllinguna. En eins og stendur eru tómatarnir sjálfir minnstur kostnaðurinn við slíka rétti, en ef notaðar eru margar tegundir af grænmeti hleypir það verðinu upp. En bráðlega fer að koma upp í eigin matjurtagörðum og þá lítur kostnaðar- liðurinn við blandaða grænmetisrétti öðru visi út, þegar ekki þarf að gera annað en bregða sér á bak við hús og ná sér í ilmandi nýtt og fínt grænmeti beint upp úr jörðinni. En að sjálfsögðu hafa ekki allir tækifæri til þess að hafa matjurtagarða. Og svo eru lika aðrir sem eiga börn sem eru i skólagörðum, og nú fer bráðum að koma upp hjá þeim ýmislegt góðgæti. — Foreldrar ættu samt ekki að hirða afrakstur barna sinna án þess að greiða þeim eitthvert lítilræði fyrir. A.Bj. Tómatarog afturtómatar: Tómatchutney Við ætlum að grandskoða allar mat- reiðslubækur sem við höfum undir höndum og birta allar leiðbeiningar sem við finnum um hvernig má varð- veita tómata til vetrarins. — Við vilj- um einnig biðja lesendur Neytendasíð- unnar um að hringja til okkar og segja frá ef þeir kunna einhverjar leiðir sem við höfum ekki komið auga á. Hérna kemur uppskrift af tóm- atchutney. Það er þykkara heldur en tómatsósa og má nota annað hvort í soðna pottrétti eða út á kjöt eða fisk- rétti. 6 kg tómatar — rauðir — (3000 kr.) lOgr heill kanill lOgrallrahanda lOgr heill negull lOgrmúskat 50 gr. salt 1/4 tsk cayennepipar 1/2 lítri edik 3/4 kg strásykur (um 180 kr.) Tómatarnir eru þvegnir og skornir í tvennt og hakkaðir í hakkavél og síðan látnirsjóðaí 15—20mínútur. Kryddið er allt látið í léreftspoka (eða svolitla tusku sem bundin er saman utan um kryddið) og soðið i edikinu smástund. Edikið er siðan látið standa með kryddpokanum i um það bil 2 klukkutíma. Það er síðan siað og látið saman við tómatana. Sykurinn er látinn saman við og allt soðið þar til það er orðið eins og jafn grautur. Sett á glös sem er lokað strax. Verð: 3.180 kr. A.Bj. Rannsókn á orsökum heilbrigði — leitað eftir upplýsingum frá almenningi Hverjar eru orsakir heilbrigði? Rannsóknarstofnun vitundarinnar — Geir V. Vilhjálmsson sálfræðingur — vinnur nú að rannsókn þess. Á fréttamannafundi á dögunum skýrði Geir frá rannsókninni og sagði m.a.: „Hér er um að ræða rannsókn á sál- líkamlegri (psychosomatiskri) heil- brigði, en i rannsókninni hefur m.a. verið fjallað um sálrænar, félagslegar og andlega orsakir streitu, sálrænna og likamlegra sjúkdóma. Tilgátur um samskipti likama og sálarlifs hafa verið athugaðar með bætta meðhöndlun sjúkdóma og heilsuvernd i huga og grundvöllur hópvinnu meðal íslenzkra heilbrigðisstétta hefur verið athugaður.” Rannsóknarstofnun vitundarinnar vill koma þeirri beiðni á framfæri við fólk, að það sendi henni upplýsingar um heilbrigði og heilsu- vernd og lofar að meðhöndla allar upplýsingar af fyllsta trúnaði. Helzt er safnað upplýsingum um: 1. Reynslu fólks af heilbrigðis- þjónustu á íslandi. 2. Reynslu af því hvaða lifnaðar- hættir, þar á meðal mataræði, útivist, hreyfing, félagslíf og fleira hafi gefið fólki bezta raun til varðveizlu heilsu. 3. Hvaða leiðir, hefðbundnar eða óvenjulegar, hafi reynzt fólki vel i leit að leið til endurhæfingar eða lækning- ar. ÓV. Breytist afgreiðslutími verzlana? Hugsanlegt er að á næstunni verði einhverjar breytingar á afgreiðslutíma verzlana í Reykjavik. Borgarráð hefur tilnefnt þrjá borgarfulltrúa í nefnd sem á að yfirfara reglugerð um af- greiðslutimann. 1 nefndinni eiga sæti Björgvin Guð- mundsson, sem er formaður, Adda Bára Sigfúsdóttir og Markús öm Antonsson. „Ég veit ekki hvenær nefndin kemur saman. Það er undir Björgvin Guðmundssyni komið,” sagði Adda Bára í samtali við DB. Hún kvaðst ekki hafa neinar sérstakar tillögur um breyttan opnunartíma verzlana og gengi óbundin til starfa i nefndinni. Adda Bára sagði að Alþýðubanda- lagið væri fremur ihaldssamt i þessum efnum og vildi ekki að vinnutími af- greiðslufólks væri of langur. Björgvin Guðmundsson er erlendis um þessar mundir. Hann hefur áður Kannski sú tið sólarhringinn. renni upp innan skamms að hægt verði að verzla allan lagt til að borgarstjórn hætti afskipt- um sínum af afgreiðslutíma verzlana og afgreiðslutími yrði gefinn frjáls. Skipun Björgvins í formannsembætti í nefndinni er talin auka likur á því að talsverðar breytingar verði á afstöðu borgarstjórnar í þessu máli. GM. BIAÐID frfálst, iíháð dagblað

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.