Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 23
23' DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ1978. (* Útvarp Sjónvarp D Útvarp kl. 13.30 í dag: Brotabrot Ritari Sendisveinafélags íslands — Pétur Pétursson útvarpsþulur rif jar upp gamla tíð Brotabrot nefnist þáttur með blönd- uðu efni sem er á dagskrá í dag kl. 13.30, og er þátturinn í umsjá blaða- mannanna Ólafs Geirssonar og Einars Sigurðssonar. Fjölmargt verður í þætt- inum og víða komið við, m.a. rætt við rannsóknarlögreglumann um frágang bíla við sumarbústaði. Flugmálastjóri Agnar Kofoed-Hansen mun segja frá reynslu sinni, er hann stökk í falihlíf í fyrsta sinn, en dóttir hans var einmitt fyrst kvenna á íslandi til að stökkva í fallhlíf úr flugvél. Þeir félagarnir Ólafur og Einar heimsóttu Reikni- stofu Háskólans og töluðu þar við Pál Jensson um tölvu skólans, en hún er til margs nýtileg og heyrum við hana spila lög fyrir okkur. Fyrirhugaður úti- markaður á Lækjartorgi verður til um- ræðu en það eru tveir arkitektar sem hafa hugsað sér að setja hann upp. Fyrir nokkuð mörgum árum var til Sendisveinafélag tslands og sá er gegndi starfi ritara þar er íslendingum að góðu kunnur, en það er enginn ann- ar en Pétur Pétursson þulur sem mun koma i þáttinn og segja frá félaginu og störfum þess. t hádeginu ekki alls fyrir löngu brugðu þeir Ólafur og Einar sér á Melavöll og spjölluðu þar við trimm- ara sem hlupu þar um. Fyrsti djákninn á íslandi síðan fyrir siðaskipti var vigð- ur á dögunum og verður rætt við hann, en hann heitir Ágúst K. Eyjólfs- son. t framhaldi af sýningu skátasirk- ussins á línu milli Hallgrimskirkju og Iðnskólans þar sem tveir ofurhugar hjóluðu, verður rætt við íslending sem stóð á höndum á öðrum turni Akur- eyrarkirkju fyrir nokkrum árum svo við virðumst nú eiga til ofurhuga. Þátturinn Brotabrot stendur yfir í tvo og hálfan tíma. •ELA- Til sölu: Mávahlið 2ja herb. 65 fm risíbúð. Útb. 5,8 millj. Brávallagata 3ja herb., 70 fm ibúð á 4. hæð, stórarsvalir. Útb. 7 millj. Laugarneshverfi 3ja herb. 120fmsérhæð. 35fmbíl- skúr. Meistaravellir 4ra herb. 115 fm íbúð, svalir i suður. Bílskúrsréttur. Framnesvegur 3ja herb. ný 80 fm ibúð á 1. hæð. Digranesvegur Neðri sérhæð, 150 fm, 4 svefn- herb., 2 stofur, suðursvalir. Bílskúr 35 fm. Hjarðarhagi Neðri sérhæð, 130 fm, 3 svefn- herb., 2 stofur, suðursvalir. Bíl- skúrsréttur. Bræðraborgarstigur Raðhús, rúmlega tilbúið undir tré- verk, ca 225 fm. Uppl. á skrifstof- unni. Mosfellssveit Raðhús, fokhelt, 96 fm að grunn- fleti, 2 hæðir og kjallari með inn- byggðum bilskúr. Bræðraborgarstígur 4ra herb. íbúð 120 fm á 4ðu hæð. Suðursvalir, 40 fm stofa. góð sam- eign. Eignaskipti Gnoðarvogur 160 ferm 6 herb. íbúð, neðri sér- hæð. Svalir í suður. í skiptum fyrir einbýlishús í Vogum, Heimum, Laugarási eða svipuðum slóðum. Góð milligjöf. Vesturbær Neðri sérhæð 150 ferm i 12 ára gömlu húsi í skiptum fyrir einbýlis- hús i Vesturbæ. HvassaleKi 110 ferm 4ra herb. ibúð á 1. hæð ásamt bílskúr I skiptum fyrir rað- hús eða einbýli I Smáíbúðahverfi eða nágrenni. Milligjöf. IMorðurmýri Sérhæðir óskast. Ýmsir skipti- möguleikar. Hliðahverfi Neðri sérhæð 140 ferm í skiptum fyrir góða eign i austurbæ Kópa- vogs. Húsamiðlun Fasteignasala Söklttjóri: Vilhelm Ingimundarson. Heimasimi 30986. Templarasundi 3. Shnar 11614 og 11616. Þorvaldur Lúflviksson hri. Víkan á ótrúlega lágu kynningarverði: LEYFILEGT ÍÍERD KYNNINGAR VERÐ Vikan á neytendamarkaöi Vikan er aldeilis spræk þessa dagana. Hún er á fullri ferð með Dagblaðinu í neytendamálum. I hverju blaði birtast verð og gæðakannanir á ýmsum vörutegundum eða aðrar mikils- verðar upplýsingar fyrir neytendur. Áskrifendur fá stórt og fallegt veggspjald til að færa inn heimilisútgjöldin og kannað verður hver séu meðalútgjöld fjölskyldna, sundurliðuð eftir fjölda fjölskyldumanna. Þannig fá áskrifendur samanburð á sínum mánaðarlegu útgjöldum við stóran hóp annars fólks í landinu. Gríptu símann, hringdu í 27022 og pantaðu kynningaráskrift. Þá kostar mánaðaráskrift þig aðeins kr. 1.440 og eintakið kr. 330 til áramóta. Upphæðin verður innheimt í einu lagi. Einnig flytur Vikan efni fyrir alla fjölskylduna: Forsíðuviðtölin frægu, framhaldssögur, smásögur eftir íslenska sem erlenda höfunda, myndasögur fyrir bqrnin, bílaþætti, poppþætti, getraunir, heilabrot, draumaráðningar og margt, margt fleira. Gríptu gæsina meðan hún gefst. Hringdu strax og pantaðu kynningaráskrift til áramóta. Síminn er 27022.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.