Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 29.07.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978. 13 Sandspyraukeppni kynnt: Gæta veróur sjávarfalla þegarkeppter — aldrei hefur orðið slys í sandspyrnu, hvorki á ísiandi né í Bandaríkjunum Eins og nafnið gefur til kynna er sandspyrna spyrnukeppni milli farar- taskja i sandi. í grundvallaratriðum gilda sömu reglur um sandspyrnu og kvartmiluspyrnu. 1 sandspyrnu er keppt á mun styttri braut og er sandspyrnubrautin ein- ungis 100 „jardar” eða 91.44 metrar að lengd. 1 sandspymu spyrna tveir bílar í einu og mega þeir hvorki fara yfir miðlínu brautarinnar né hliðar- línu hennar. Ef þeir gera það tapa þeir spyrnunni. Takmarkið er að komast brautina á sem stytztum tíma, og sigrar sá er kemur í mark á undan. Eins og i kvartmílukeppnum eru gerðar strangar öryggiskröfur i sand- spyrnu, enda er það svo að aldrei hefur orðið alvarlegt slys í keppni, hvorki á lslandi né í Bandaríkjunum þar sem þessi bifreiðaíþróttagrein nýtur nú sí- vaxandi vinsælda. Á íslandi hafa verið haldnar fjórar sandspyrnukeppnir á vegum Kvart- míluklúbbsins og hafa þær allar verið vel sóttar. Keppnir þessar hafa verið haldnar í landi Hrauns í ölfusi á sönd- unum við ósa ölfusár. Sú hugmynd hefur komið fram að nota landsvæði Kvartmíluklúbbsins við Geitháls undir sandspyrnubraut til að byrja með. Þar er búið að ýta moldinni upp úr fjögur hundruð metra kafla og þyrfti því einungis að keyra sand i hann svo að hægt væri að halda þar sandspyrnu. Væri nokkur bót að því þar sem þá þyrfti ekki að fara eins langt til að komast á keppnissvæðið. Einnig væri Kvartmíluklúbburinn ekki eins háður veðri, flóði og fjöru. Sjórinn flæðir nefnilega yfir keppnis- svæðið að Hrauni svo halda verður keppnirnar þegar lágstreymt er og fjara um miðjan daginn. Nei, hann er ekki að taka upp kartöflur. Þessi bill er kallaður „Alpine Oakie” og sést hann hér taka af stað I dæmigerðum sandspyrnustll. Hér er „tslendingur” i einni af fjörum sandspyrnukeppnum sem kvartmilu- klúbburinn hefur staðið fyrír. Kvenfólkið lætur ekki sitt eftir liggja í sandspyrnunni. Hér er Janice Morgan búin að taka forystuna i einni þrykkjunni. Ekki likist þessi nú mikið gömlu jeppunum sem við erum svo vön. Bill Dial kom Chevrolet vél fyrir þar sem ökumaðurinn er jafhan en situr sjálfur frammi I vélar- húsi. » Hér sjáum við dekkjabúnaðinn sem Chuck Neal notaði er hann setti heims- metið. Sem sjá má eru það fjögur dekk með risastórum skóflum. Heimsmetið í sandspyrnu er 2.844 sek. og var það sett i sandspyrnukeppni sem haldin var nýlega á Santa Maria sand- brautinni I Californiu. Það var Chuck Neal sem setti það og sést hann hér þeysast eftir brautinni. ngaseðill til samanburöar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Kostnaóur í júlímánudi 1978 Matur og hreínlætísvörur kr. Annað kr, Alls kr. m iww Fjöldí heímílisfólks i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.