Dagblaðið - 29.07.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1978.
Hvitt: E. Meyer
Svart: Sævar Bjarnason
Köngsindversk vörn
1. RO Rf6 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4.
o—o 0—0 5. c4 d6 6. Rc3 e5 7. d4
Rbd7 8. Dc2
Allt hefur þetta sést áður og einnig
síðasti leikur hvíts. Algengara er þó 8.
e4.
8. — c6 9. Hdl De7 10.e4exd4 11.
Rxd4He812.h3a513.Bf4
Betra er 13. Be3 Rc5 14. Hel, en
þannig tefldist skákin Ivkov-
Matulovic í Júgóslavíu 1956. Núgetur
svartur jafnað taflið með 13.— Rc5!,
þvi 14. Rxc6? bxc6 15. Bxd6 gengur
ekki vegna 15. — Da7.
13. - Rh5?! 14. Be3 Rc5 15. Hd2
Hvítur getur leyft sér að leika
rólegan leik sem þennan, því vegna
fjarveru riddarans á f6 er þrýstingur
svarts á e-peðið ekki merkjanlegur.
Riddarinn er hins vegar ekki í vegi
fyrir f-peðinu nú og það reynir svartur
að notfæra sér í framhaldinu.
15. - Be6 16. b3 f5!? 17. Hadl
Had8 18. Rxe6?
Hvitur teflir upp á að vinna peð, en
það á eftir að verða dýrkeypt, eins og
sést af framhaldinu.
18. - Rxe6 19. Bb6 Hd7 20. Bxa5
f4 21. g4
21. — f3!
Lykilleikurinn. Nú nær svartur yfir
þyrmandi frumkvæði á kóngsvængn-
'um og munar þar mestu um;
að biskupinn á a5 tekur ekki þátt í
baráttunni.
22. Bxf3 Rhf4 23. Bb4 Be5! 24. Re2
Ef 24. Bg2, þá 24. - Dh4
ásamt....Rg5, með vinningsstöðu.
24. - Rxh3 + 25. Kg2 Dh4 26. Rg3
Hf7!
Nýir menn bætast stöðugt í sókn
svarts án þess að hvítur geti nokkuð að
gert.
27. Hhl Reg5 28. Hd3 Hef8! 29.
Bd2
Loksins kemur biskupinn syndugi til
varnar, en of seint — hvita staðan er
Þetta fundarborð og stólar eru meðal þess, sem sýnt er á Westnofa-sýningunni 1 JL-húsinu,
Norsk úrvalshúsgögn
sýnd í JL-húsinu
Á mánudagskvöldið lýkur í JL-húsinu
við Hringbraut í Reykjavík sýningu á
úrvalshúsgögnum frá norsku húsgagna-
samsteypunni Westnofa. Það er einn
stærsti framleiðandi húsgagna á Norður-
löndum.
Sýningin hefur staðið frá 17. júlí.
Westnofa var stofnað af nokkrum
fyrirtækjum í húsgagnaiðnaði í Noregi.
sem sameinuðust í eitt með það sérstak-
lega fyrir augum að ná sterkari aðstöðu
gagnvart útflutningi. Síðan þá hefur út-
flutningur samsteypunnar vaxið hröð-
um skrefum frá ári til árs og er Westnofa
nú orðið stærsti húsgagnaframleiðandi
Norðmanna.
Á sýningunni i JL-húsinu eru sýndar
þær vörur, sem beztar undirtektir hafa
hlotið, svo og allt það nýjasta frá hús-
gagnasýningunni i Kaupmannahöfn i
vor. Fulltrúar Westnofa hafa séð um val
húsgagna og skipulag sýningarinnar.
Sýningarsvæðið er fimm hundruð fer-
metra gólfflötur á þriðju hæð JL-húss-
ins. Þar gefur að iíta veggsamstæður,
sófasett, borðstofusett, fundarborð og
stóla og fjölmargar gerðir leðurstóla með
stálgrind eða á formspenntri trégrind.
Húsgögn þessi eru yfirleitt hönnuð af
þekktum húsgagnaarkitektum. —ÓV.
Ráðherra staðfesti ólögmætar lánareglur:
\
„Siðlaust athæfi”
— segir Bragi Guðbrandsson, formaður SÍNE
„Okkur grunaði aldrei að ráðherra
mundi staðfesta úthlutunarreglur sem
Bæjarþing Reykjavíkur er búið að
dæma ólögmætar,” sagði Bragi Guð-
brandsson, formaður Sambands ís-
lenzkra námsmanna erlendis, í samtali
við DB.
„í vor féll í Bæjarþingi dómur í máli
sem íslenzkur námsmaður í Noregi
höfðaði gegn Lánasjóði íslenzkra
námsmanna,” sagði Bragi. „Náms-
maðurinn taldi að úthlutunarreglun
sem stjórn Lánasjóðsins setti brytu íj
bága við lög um námslán, þar sem í
þeim væri ekki tekið tillit til fjölskyldu-
stærðar námsmanns. Dómurinn
komst að þeirri niðurstöðu að reglurn-
ar væru ekki í samræmi við lögin.
Þegar þetta lá fyrir héldum við að
nú yrðu úthlutunarreglur sjóðsins
felldar úr gildi,” hélt Bragi áfram. „En
raunin varð önnur. Meirihluti stjórnar
Lánasjóðsins gerði um það tillögu að
hin umdeildu ákvæði í úthlutunarregl-
unum stæðu óbreytt. Og menntamála-
ráðherra staðfesti reglurnar.”
Bragi sagði að framkomu ráðherra
væri ekki hægt að kalla annað en sið-
leysi. Ný ríkisstjórn tæki senn við og
það væri alkunna að sigurvegarar
þingkosninganna hefðu aðra afstöðu
til lánamála námsmanna en stjórnar-
flokkarnir. Það hefði þvi verið eðli-
legra að láta staðfestingu biða nýs
menntamálaráðherra.
Bragi Guðbrandsson sagði að um
helgina yrði haldin sumarráðstefna
SÍNE. Þar yrði hin nýja staða i lána
málum reifuð. Þingið er opið öllum is-
lenzkum námsmönnum erlendis. Það
er haldið í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut og verður sett nk. laugar-
dagkl. 13.00.
•_____________________GM.^
töpuð. Framhaldið þarfnast ekki
skýringa.
29. - Rxf3 30. Hxh3 Dxg4 31. Dcl
Bxg3 32. fxg3 Rxd2 33. Hxd2
Dxe4+ 34. Kh2 Hfl
— og livítur gafst upp.
Þá kemur hér ein af léttara taginu,
með lauslegum athugasemdum.
Hvitt: E. Michaelides
Svart: Ásgeir Þ. Árnason
Ponziani-byrjun
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. c3 Rf6 4.d4
ítalinn Mariotti lék hinn varfærnis-
lega leik 4. d3 gegn Friðriki Ólafssyni
í Las Palmas, en komst ekkert áleiðis.
4. — Rxe4 5. d5 Re7 6. RxeS Rg6 7.
Rxg6!?
„Teórían” mælir með 7. Bd3, en
eftir 7. — Rxe5 8. Rxe4 Bc5 hefur
svartur engin vandamál við að glíma.
Textaleikurinn virðist vera góð tilraun
til að blása lífi í hina hálfútdauðu
Ponzianibyrjun.
7. - hxg6 8. Bd3 Rf6 9. 0-0 Bc5
10. b4 Bb6 11. a4 a6 12. a5 Ba7 13. c4
d6 14. Bf4?
Hér bregst hvitum bogalistin. Með
14. Bg5! gat hann tryggt sér betri
möguleika. Sóknarmöguleikar svarts á
kóngsvængnum verða að engu því
hann nær ekki að notfæra sér opnu h-
línuna. Sem svar við 14. - Hh5 kæmi
einfaldlega 15. h4!
14.— Rg4! 15. Bg3
Ef 15. h3, þá 15. — Df6! með tvö-
faldri hótun. Þó má vel vera að það
hafi verið skárri möguleiki....
15. — Rxh2! 16. Hel +
Riddarinn var auðvitað friðhelgur
vegna 16. — Dh4 og mátar.
16. — Kf8 17. Rc3 Bg4 18. Be2
Eini leikurinn. Ef 18. Dc2, þá 18. —
Rf3 + !ogvinnur.
18.—Dg5 19. Bxh2
19. — Hxh2!
Einfaldast. Eftir 19. — Dh4 20.
Bxg4 opnast útgönguleið fyrir
kónginn um e2-reitinn.
20. Bxg4
Engu betra er 20. Kxh2, vegna 20.
- Dh4+ 21. Kgl Dxf2+ og
síðan....Dh4 mát. Svartur gerir nú út
um skákina á snaggaralegan hátt.
20. — Dh4 21. Bh3 Hxh3! 22. gxh3
Dg3 +! 23. Khl Dxh3+ 24. Kgl
Dg3+ 25. Khl Bxf2!
Hvitur gafst upp.
Gegn hótuninni 26. — Dh3 mát er
ekkert viðunandi svar.
Arftaki Tónabæjar
Eftir að Reykjavíkurborg hætti rekstri
Tónabæjar hafa unglingar haft fremur
lítið athvarf og því gjarnan leitað á Hall-
ærisplanið sér til afþreyingar.
Ungir menn, aðstandendur Ferða-
diskóteksins Disu, vilja breyta þessu
ástandi. Þeir hafa því fengið skemmt-
analeyfi og munu halda dansleiki í Kaffi-
teríunni í Glæsibæ um hverja helgi í
sumar, að verzlunarmannahelginni und-
anskilinni. Leyfið er veitt til reynslu i
sumar, en staðurinn rúmar 150-200
gesti.
Þarna geta 16 ára unglingar og eldri
skemmt sér og hlustað á öll nýjustu lög-
in auk þess sem Dísa lumar á svonefndu
„ljósashowi". Ef vel tekst til hafa að-
standendur Dísu hugsað sér að stofna
klúbb, sem allir unglingar geta gengið í
og staðurinn yrði þá eingöngu opinn
klúbbfélögum. Með því móti cr hægt að
lækka verð aðgöngumiða, t.d. i 700 kr.,
en gert er ráð fyrir að nú muni kosta
lOOOkr. miðinn. —JH.
Arneskirkja fær stórgjöf
Séra Andrés Ólafsson prófastur á
Hólmavik messaði i Árneskirkju á
sunnudaginn. Fjölmenni var við kirkju
eins og jafnan er þar. Meðal kirkjugesta
var Albert Valgeirsson sjúklingur á
Reykjalundi og var hann í hjólastól
sinum. Tilkynnti hann að hann gæfi 100
þúsund kr. til Árneskirkju.
Séra Andrés þakkaði Albert fyrir
þessa stóru og rausnarlegu gjöf, en þess
má geta að Albert hefur verið sjúklingur
isl. 20 ár. Regína ThorJabj.
Óskum ettir:
Einbýlishúsi,
helzt á einni hæð I Breiðholti. Má kosta 30—35 milljónir fullklárað að utan
og innan. Útborgun yfir 20 millj. eftir samkomulagi. Upplýsingar á skrifstof-
unni og í heimasima sölumanns.
Einbýli — vesturbær.
Höfum í sölumeðferð stórglæsilega eign sem gæti hentað fyrir sendiráð eða
stóra fjölskyldu. Húsið er 220 ferm auk bílskúrs. í húsinu eru 60—70 ferm
stofur, mjög stórt eldhús og 5—6 stór herbergi. Eignaskipti koma til grcina
fyrir íbúð í vesturbæ með stórum stofum. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni
en ekki i sima.
Sérhæð — vesturbær.
Neðri sérhæð, ca 130 ferm, 3 svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur. Bíl-
skúrsréttur.
Norðurmýri.
Tvær þriggja herb. ibúðir, 85 ferm hvor íbúð, í sama húsi. Bilskúr fylgir ann
arri íbúðinni.
Laugarnesvegur.
2ja herb. 60ferm nýstandsett íbúðaðöllu leyti, í risi. Björt. Útb. 5,5—6 millj.
Húsamiðlun
Fasteignasala.
Templarasundi 3. Simar 11614 og 11616.
Sölustjóri:
Vilhelm Ingimundorson. Heimasimi 30986. Þorvaldur Lúðviksson hrl.