Dagblaðið - 25.08.1978, Síða 12

Dagblaðið - 25.08.1978, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. ÁGUST 1978. I DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1978. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I Hcimsmcthafinn 1 kúluvarpi — Udo Beycr, A-Þýzkalandi. Algjör úrslitaleikur og Víkings um UEFA- Víkingur sigraði FH í 1. deild á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Það veröur því hreinn úrslitaleikur um UEFA-sætið þegar Keflavik og Víkingur leika í Kcflavik laugardaginn 9. septem- ber. Önnur lið hafa ekki lcngur mögu- leika á að komast í þá keppni eftir úrslit- in í gær. Vestmannaeyingar geta náð 19 stigum — en það er sama hvcr úrslit verða i leik Vikings og Keflavikur. Ann- að hvort liðið fer upp fyrir þá stigatölu. Víkingur hefur nú 19 stig — Keflavik 18 stig. Eftir úrslitin i gær er staða FH mjög alvarieg í 1. deild. Liðið hcfur aðeins 10 stig — KA 11 og Þröttur 12. FH á einn leik eftir — við Brciðablik í Kaplakrika 9. september — og sama dag leika Þröttur og KA á Laugardalsvelli. Þróttur á hins vegar einnig eftir að leika í Vestmannaeyjum. Leikurinn i gærkvöld var mikill bar- áttuleikur — Víkingar áberandi skarpari í fyrri hálfleik og greinilegt að Youri landsliðsþjálfari hefur breytt Vikingslið- inu mjög til hi.ns betra. En FH-ingar börðust grimmilega allan timann án þess þó að uppskera stig. Lengi vel virtist Víkingum fyrirmunað að koma knettin- um í mark FH — enda áttu þeir í höggi við frábæran markvörð. Friðrik Jónsson lék sinn bezta leik á ævinni og fjórum sinnum bjargaði hann svo snilldarlega að beztu markverðir heims hefðu mátt vera stoltir af þeirri markvörzlu. en það hlaut að koma að því að hann yrði einnig að láta i minni pokann. Heimir Karlsson skoraði sigurmark Víkings á 66. mín. með skalla eftir vel tekna auka- spymu Gunnars Arnars Kristjánssonar. Víkingur vann því sanngjarnan sigur. I- 0. Vikingar léku undan vestangolu i fyrri hálfleik og voru ^trax ágengir við mark FH. Jóhann Torfason átti hörku- skot, sem rétt fór fram hjá stöng, Heimir annað, sem fór í stöngina og út aftur. Gunnari Erni tókst að spyrna yfir FH- markið af metra færi — og Friðrik varði þrivegis meistaralega. Fyrst þegar hann lyfti knettinum rétt yfir þverslá eftir þrumufleyg Jóhanns. Siðan tókst honum að verja skalla Óskars Tómas- sonar af örstuttu færi neðst í hornið — og strax á eftir fast skot Heimis. Sóknar- lotur FH voru ekki margar í hálfleikn- um — en liðið fékk þó opið færi á 27. min. Jóhannesi Bárðarsyni. sem lék vel i Vikingsliðinu. urðu þá á óskiljanleg mis- tök, lagði knöttinn fyrir fætur Ásgeirs Arnbjörnssonar rétt utan markteigs. Ásgeir spyrnti knettinum hins vegar beint i Jóhannes — ekki markið. FH varð fyrir áfalli þegar Logi Ólafsson. sá sterki leikmaður. varð að yfirgefa völl- inn vegna meiðsla. I s.h. sóttu FH-ingar í sig veðrið og fengu strax gott færi. Leifur Helgason komst einn inn fyrir Víkingsvörnina en Diðrik Ólafsson kom fingurgómunum á knöttinn og varði i horn. Jafnræði var með liðunum. Janus Guðlaugsson var ákaflega sterkur i FH-liðinu. Tækifæri voru þó ekki mörg — og svo kom sigur- mark Vikings um miðjan hálfleikinn, sem Heimir skoraði. Rétt á eftir átti hann einnig hörkuskot á FH-markið en Friðrik varði á hreint ótrúlegan hátt. Þreyta gerði vart við sig í lokin — eink- um hjá Víkingum — en FH tókst ekki að bjarga stigi. sem þó hefði verið svo þýðingarmikið fyrirliðin. Þokkalegur leikur — einkum hjá Vík- ingi í f.h., Diðrik, Róbert og Magnús öryggið sjálft í Vikingsvörninni — og Gunnlaugur Kristfinnsson. sem lék sinn fvrsta leik með Víkingi í sumar. gerði fallega hluti eins og honum er lagið. Út- haldið brást honum hins vegar eins og svo mörgum öðrum. í framlínunni er Óskar kominn I sinn gamla ham og Heimir, 17 ára, er bráðefnilegur leik- maður. sæti Hjá FH var Friðrik stórkostlegur — Janus einnig frábær. En heildarsvipinn vantar — liðsheild — þrátt fyrir góða einstaklinga: Gunnar Bjarnason. Viðar Halldórsson og Ólaf Danivalsson. Dómarinn, Magnús Pétursson. flaut aði meira en flautuleikari i sinfóniu hljómsveit á þriggja klukkustunda kons ert. Þó var engin þreytumerki að sjá á honum i leikslok. - hsíni Staöan í 1. deild er nú þannig: Valur 17 16 1 0 i t -S ■> 1 Akranes 17 13 3 1 47- -12 29 Víkingur 17 9 1 7 2t>- -28 19 Keflavík 17 7 4 6 28- -24 18 Fram 17 7 2 8 21 - -28 10 ÍBV 16 6 3 7 23- -22 15 Þróttur 16 3 6 7 21- -24 12 KA 17 3 5 9 14- -37 11 FH 17 2 6 9 21- -34 10 Breiðáblik 17 2 1 14 16- -44 5 ÍBV og Þróttur eiga að ieika i Eyjum á laugardag. HEIMSMETIOLLUM SUNDUMIGÆR Sex heimsmet voru sett á heims- meistaramótinu í sundi i Vestur-Berlín í gær. Keppt var til úrslita í fimm greinum og nú dreifðust gullverðlaunin mcira en áður. USA hlaut aðeins tvenn; 16 í allt cða mun fleiri en í siðustu heims- meistarakeppni í Cali. Mest kom á óvart i gær að bandaríska sunddrottningin, Caulkins, sem hlotið hefur þrenn gull- verðlaun, komst ekki i úrslit í 200 m bringusundi í gær. Hún hlýtur að hafa verið mjög illa fyrirkölluð. Strax i gærmorgun var sett nýtt heimsmet í þeirri grein, Lina Kachusite, Sovét, og hún bætti siðan heimsmetið um sekúndu í úrslitasundinu. Hin 15 ára Tracy Wickham, Ástralíu, sigraði í 400 m skriðsundi eftir hörkukeppni, bætti heimsmet Kim Lineham. USA. úr 4:07.66 i 4:06.28 mín. Graham Smith, Kanada. bætti heimsmet í 200 m fjór- sundi í 2:03.65 min. Steve Lundquist, sem átti gamla heimsmetið, 2:04.39 mín. varð fjórði. Linda Jezek, USA, bætti heimsmetið í 200 m baksundi kvenna I 2:11.93 mín., bætti met Birgit Treiber, A-Þýzkalandi, um 0.54 sek. Það var elzta kvennametið i sundi, frá 1976! 1 4x200 m skriðsundi karla var banda- ríska sveitin í algjörum sérflokki, bætti met' USA-sveitar frá Montreal-leikunum um 2.6 sek. Aðeins einn sundmaður var úr Montreal-sveitinni, Bruce Furniss, og hann náði strax góðri forustu á fyrsta spretti. synti á 1:51.18 min. Urslit I gær urðu þessi. Ellefu heimsmet hafa fallið á HM. 400 m skriósund kvenna: 1. Tracy Wickham, Ástralíu, 4:06.28 2. Cynthia Woodhead, USA. 4:07.15 3. Kimberley Lineham, USA, 4:07.77 4. Barbara Krause, A-Þýzk., 4:12.08 5. Michelle Ford, Ástraliu. 4:13.16 6. Annelies Maas, Hollandi, 4:14.39 7. lrine Aksenova.Sovét, 4:16.28 8. Enith Brigitha, Hollandi, 4:18.60 200 m bringusund kvenna: 1. Lina Kachushite, Sovét, 2:31.42 2. Yulia Bogdanova. Sovét, 2:32.69 3. Susanne Nielsen, Danmörku, 2:33.60 4. Irena Fleissnerova, Tékk., 2:36.09 5. Margaret Kelly. Bretlandi. 2:37.24 6. Annick deSusini, Frakkl., 2:37.58 7. Dagmar Rehak, V-Þýzkal. 2:37.68 Debbie Rudd. Bretlandi, sem einnig tók þátt I úrslitasundinu, var dæmd úr leik, snerti bakkann ekki rétt. 200 m fjórsund karla: 1. Graham Smith. Kanada. 2:03.65 2. Jesse Vassallo, USA, 2:04.99 3. Alexander Sidorenko, Sov.. 2:05.29 4. Steve Lundquist, USA. 2:05.80 5. Bill Sawchuk, Kanada, 2:06.65 6. Sergei Fesenko, Sovét, 2:06.96 7. Arne Borgström, Noregi, 2:08.18 8. Miloslav Rolko, Tékk., 2:09.26 200 m baksund kvenna: 1. Linda Jezek, USA. 2:11.93 2. Birgit Treiber. A-Þýzk. 2:14.07 3. Cheryk Gibson, Kanada, 2:14.23 4. Carmen Bunaciu, Rúmeniu, 2:16.65 5. Margaret Browne, USA. 2:17.19 6. Antje Stille, A-Þýzkal., 2:18.79 7. Elena Kruglova, Sovét. 2:18.99 8. Gabriella Verraszto, Ung.. 2:19.63 4 X 200 m skriðsund karla: I.Bandarikin 7:20.82 2.Sovétríkin 7:28.41 3. V Þýzkaland 7:33.29 4.Sviþjóð 7:33.48 5. Ítalía 7:34.89 6. A-Þýzkaland 7:38.53 7. Frakkland 7:39.87 8. Ástralla 7:39.94 GuðmundurÞórarinsson: EvrópumótiðíPrag Aðeins Udo Beyer sem allir spá sigri Hástökk EM sigurvegari: Rolf Seilschmidt, A- Þýzkalandi. EM—’74: 1) Törring, Dan- mörku 225, 2) Shapka, Rússi. 225, 3) Maly, Tckkóslóv. 219. OL—’76: 1) Wszola, Póllandi 225, 4) Budalov, Rússl., 218, 6) Bcrgamo, Italiu 218. Beztur 1977: Beilschmidt, sem sigraði i heimsbikarnum á 230 og á Fvrópubikarnum á 231 Hatin var einnig valinn bezti hástökkvarinn 1977 þótt liann ætti aðeins næstbezta árangur ársins. Hæst stökk Jasjtsjenko frá .Rússl. 2,33. Það er rétt, að rússneska undrabarnið Jasjtjenko á bæði heimsmetin inni 235 og úti 234 og hefur sett bæði i ár. En hann hefur lítið keppt í stærri mótum og er lítt reyndur. Því vel ég Beilschmidt (231), sem er alveg frábær keppnismaður og hefur þá eiginleika að geta alltaf, þegar á þarf að halda, náð sínu persónulega bezta eða bætt sig. En það verður mikil keppni og það eru margir skæðir hástökkvarar sem ntæta til keppni, svo sem Vestur-Þjóðverjarnir Lauterbach (228) og Thránhardt (226) og auðvitað Pólverjinn Wszola, sem í ár hefur að vísu ekki stokkið hærra en 220. Þá verður einnig gaman að sjá hvað Hol- lendingurinn Wielart (227) getur á stór- móti. Stangarstökk EM sigurvegari: Wladyslaw Kozakiewicz, Póllandi. EM—’74: 1) Kishkun, Rússlandi 535, 2) Kozakiewicz 535, 3) lsakov, Rússlandi 530. OL—’76: 1) Slusarski, Póllandi 550, 2)Kalliomáki, Finnlandi 550, 4) Abada, Frakklandi 545. Beztur 1977: Kozakiewicz. sent sigraði í Evrópubikamum á 560. Varð annar í heimsbikarkeppninni á 555, auk þess sem hann stökk hæst allra. eða 566. Eftir að hafa tapað tveim siðustu stór- mótum EM 74 og OL 76 veðja ég á að nú sé komið að Kozakiewicz (562) og að helzti keppinautur hans muni Kalliomáki hinn finnski (558) verða. En þeir eru líka hættulegir þeir Slusarski (560) og Rússinn TrofimenKo (561) og mætti búast við árangri um heimsmet, sem ekki er víst að standist þessi átök. Langstökk EM sigurvcgari: Jacques Rousseau, Frakklandi. EM—’74: 1) Podlusnij, Rússlandi 812, 2) Stekic, Júgóslaviu 805, 3) Shubin, Rússlandi 798. OL—’76: 3) Wartenbcrg, DDR 802, 4) Rousseau 800,6) Stekic 789. Beztur 1977: Rousseau, sem sigraði í Evrópubikarkeppninni með 805. Átti annan bezta árangur heimsins 825 og var valinn bezti langstökkvari ársins. Sá sem stökk lengra var Stekic 827 Það er óhemju erfitt að gera sér glögga grein fyrir stöðunni í langstökkinu. Ég trúi þó á að Rousseau (811) muni sigra, enda þótt hann sé nokkuð þekktur fyrir að hafa um of spilandi franskar taugar í keppnum. Þetta verður þó mjög spennandi keppni og gaman verður að sjá hvað Pólverjinn Cybulski (811) og Rússinn Podlusnij (802) gera eða þá 17 ára stjörnuskot Spánverja, Cervantes (805). Hér gæti Sviinn Ulf Jarfelt (794) komið á óvart og blandað sér i toppbaráttuna. Hann er nú í mikilli framför. Þá er heldur ekki ómögulegt að gamli Stekic geti sýnt keppinautum sínum hvar gullverðlaunin eiga að hanga. Þrístökk EM sigurvegari: Anatolij Piskulin, Rússlandi. EM—’74: 1) Sanejev, Rússland 17,23, 2) Corbu, Rúmeníu 16,68, 3) Sontag, Póllandi 16,61. OL—’76: 1) Sanajev 17,29 6) Kolmsee, Vestur-Þýzkal. 16,68, 7) Biskupski, Póllandi 16,49. Beztur 1977: Piskulin með sigur í Evrópubikarnum á 17,09 og 2. sætið í heimsbikarnum (16,61), auk þess sem hann átti 2. bezta árangur ársins 17,04. Piskulin (1709) er manna líklegastur til að vinna gullið í þrístökkinu. Annars eiga Rússar fjölda góðra þrístökkvara, svo sem Valjukevitj (1702), Jakoljev. (16,89), Kovtunov (16,87) og Sanejev (16,83). Það er næstum ótrúlegt annáð en að hinn síungi Sanejev verði meðal keppenda í Prag, og þá verður hann áreiðanlega í baráttunni um gullið. Sá eini sem mér sýnist hafa möguleika á verðlaunum auk Rússanna, er Frakkinn Lamitie (16,92). Kringlukast EM sigurvegari: Wolfagang Schmidt, DDR. EM — ’74: 1) Kahma, Finnlandi 63,62, 2) Danek, Tékkóslóv. 62,76, 3) Bruch, Svíþjóð 62,00 OL — ’76: 2) Schmidt 66,22, 4) Thiede, DDR 64,30,5) Pachale, DDR 62,24. Beztur 1977: Schmidt. Hann sigraði i heimsbikarkeppninni á 67,14, en varð 2. i Evrópubikarnum á eftir Finnanum Tuokko með 66,86 á móti 67,06. Hann átti næstbeztan árangur ársins 68,26, og var þó talinn beztur. Betri en Wilkins sjálfur. Það verður lítið að gera fyrir kringlu- kastarana annað en að skipta næstu sæt- unum á milli sín. Það munu allir vera sam- mála um eftir að Schmidt bættf fyrst Evrópumet sitt i 68,92 og sló síðan heims- metið jafnrækilega og hann gerði. 71,16 En það geta krosstré brugðizt sem önn- ur tré, og það er alveg vist að þrátt fyrir hin löngu köst Schmidt verður hann að taka á honum stóra sínum til þess að vinna. Það munu þeir Klimenko, Rúss- landi (65,70), Farago, Ungverjal. (64,90), Vestur-Þjóðverjinn Wagner (64,60), Tékk- amir Bugar (64,54) og Danek (64,00) auk Svians Gardenkrans (64,00) sjá um. Hvað getur Tuokko hinn finnski eftir sitt árslanga bann frá keppni, og getur Danek 41 árs nú blandað sér enn i verð- launastriðið? Óskar Jakobsson verður meðal kepp- enda og eftir þvi sem hann hefur sýnt undanfarnar vikur ætti hann að geta staðið sig mjög vel og komizt áfram i aðal- keppnina. Óska ég honum góðs gengis. Kúluvarp EM sigurvegari: Udo Beyer, Austur- Þýzkalandi. EM—’74: 1) Briesenick, DDR 20,50, 2) Reichenbach, Vestur-Þýzkalandi 20,38, 3) Capes, Bretlandi 20,21. OL—’76: 1) Beyer 21,05 2) Mironov, Rússlandi 21,03, 3) Baryschnikov, Rúss- landi 21,00. Beztur 1977: Það var án efa Bayer, sem sigraði í heimsbikarkeppninni með 21,74 og i Evrópubikarnum 21,65 og átti beztan árangur í kúluvarpinu á árinu. Það er varla nokkur keppandi, sem allir hljóta að spá sigri i grein sinni, nema þá Beyer. Hann virðist bera höfuð og herðar yfir mótherja sina, og þá sérstaklega eftir hið nýja heimsmet sitt 22,15, sem hann setti i Gautaborg í sumar. Það verða stór undur að ske til að koma i veg fyrir sigur hans. En það verður hart barizt og taugarnar eiga sjálfsagt eftir að gera sitt til að auka á spennuna. Hverjir aðrir komast á pallinn verður erfitt að segja. Meðal keppenda verða finnska vonin Stalberg 20,96, hring- stilskastarinn rússneski Baryschnikov 20,95, Mironov hinn rússneski 20,82, enski lögregluþjónninn Oapes 20,62, auk Strandamannsins sterka, Hreins Halldórs- sonar, sem við öll óskum að blandi sér i keppni hinnaallrafremstu og hreppi eitt af fremstu sætunum. Til þess held ég að Hreinn verði að bæta met sitt og ég trúi þvi að hann geri það. Sleggjukast. EM sigurvegari: Boris Sajtjuk, Rfiss- landi. EM — ’74 1) Spiridonov, Rússl. 74,20 2) Sachse, DDR 74,00, 3) Theimer, DDR 71,62 m. OL — ’76: 1) Sedych, Rússlandi 77,52, 2) Spiridonov 76,08, 3) Bondartchuk, Rússlandi, 75,48 m. Beztúr 1977: Riehm, VesturÞjóðverj- inn, sem sigraði í heimsbikarnum á 75,64 og í Evrópubikarnum á 75,98, auk þess sem hann átti beztan árangur heimsins 77,60 m. Það verður geysihörð keppni milli Sajtjuk (80,14) og Riehm (80,32) sem hefur kaslað í ár ekki sjaldnar en 7 sinnum yfir 77 metrana i keppni. En ég vel þó Rússann, sem öruggara kort. Rússar eiga liklega um helming allra beztu sleggjukastara heimsins og hafa átt lengi, svo það verður gaman að sjá hverja þeir senda: Maljukov (78,32), Sedych (77,44), Litwinov (76,22), Dmitrenko (75,86) eða Spirodonow (75,02). Vestur- Þjóðverjar eiga annan ágætan kastara, Húning (76,52) og Austur-Þjóðverjar eiga þrjá frábæra kastara. eða þá: Steuk með nýtt heimsmet unglinga eða 78,14, Sachse 75,22 og Gertsenberg með 75,04 sem bezt i ár. Sajtjuk og Riehm eru hinir einu i heim- inum, sem kastað hafa yfir 80 metra. Báðir i sumar,— og heimsmet þess sovézka stóð aðeins i nokkra daga. Þá bætti Riehm það eftir miklar æfingar í Svörtuskógum. Spjótkast EM sigurvegari: Wolfgang Hanisch, DDR. EM — ’74: 1) Siitonen, Finnlandi, 89,58, 2) Hanisch DDR 85,46, 3) Thors- lund, Noregi, 83,68 m. OL — ’76: 1) Nemeth Ungverjal. 94,58, 2) Siitonen 87,92, 3) Megelea, Rúmeníu, 87,16 m. Beztur 1977: Trúlega Nemeth, sem kastaði lengst 9^,10 og var talinn beztur. Þó varð hann aðeins þriðji í heimsbikarn- um, sem vannst af Wessing, Vestur-Þjóð- verja, á 87,46, en Hanisch varð annar með 84,28 m kast. f Evrópubikarnum vann svo Rússinn Grebnjev á 87,18 m. Ég er í miklum vafa þegar ég vel Hanisch sem sigurvegara, en hann hefur nú kastað 91,04 auk 90,32 Þetta er líklega sú grein frjálsíþrótta, sem fram koma hvað mestar sveiflur I ár- angri keppenda, samanber úrslit síðustu stórmóta, og líklega verða þeir Wessing (90,34) ogGrebnjev (88,82) hættulegastir. Norðurlöndin hafa átt fjölda góðra spjótkastara og eru Finnar þar fremstir i flokki. Núna hefur Puranen kastað 88,64 og Hárkönen 85,70. og þá verður einnig gaman að sjá hvað Hovinen kastar nú eftir sitt árslanga bann. Úr þvi losnaði hann 14. ágúst. Norðmaðurinn Grimnes á 87,20 og Svíinn Pihl 86,88, svo þeir geta blandaðsér i stríðið. Én það má heldur ekki gleyma ung- verska trióinu, sem er alltaf hættulegt eða þeim Nemeth (83,58), Boros (85,36) og Paragi (84.80). Spurningin er: Fær Ingi Björn blóm á ný eða verða það Akurnesingar, sem veita þeim viðtöku? Myndin að <>f n var tekin á Akureyri á þriðjudag, þegar Ingi Björn Albertsson, fyrirliði Vals, tók á móti hlómvendi frá Elmari Geirssvn' _f'rirtiða KA eftir leikinn. DB-mvnd Jim Smart. Fær IA bikarinn í níundu tilraun! — eða verður Valur bikarmeistari í fimmta sinn? „Nú kemur það—þetta er ekki hægt lengur,” sagði Hans Nielsen, einn trygg- asti vallargesturinn, þegar hann spáði því að Akurnesingar vrðu i fyrsta sinn bikarmeistarar á sunnudag. Valsmenn eru áreiöanlega á annarri skoöun en kl. 14.00 mætast þessir risar íslenzkrar knattspyrnu i úrslitaleik bikarsins á Laugardalsvelli. Valur hefur fjórum sinn- Selfoss-Víðir íkvöld Úrslitaleik urinn í A-riðli 3. deildar verður háður í kvöld á Kópavogsvelli kl. sjö. Þá leika Selfoss og Víðir, Garði, aukaleik um efsta sætið i riðlinum. Þýðingarmikill leikur því liðinu, sem sigrar, er spáð sæti í 2. deild næsta keppnistimabil. um orðið hikarmcistari — þar af tvö síðustu árin — en Akurnesingar hafa aldrei sigrað. Þeir lcika þó sinn níunda úrslitaleik í keppninni á sunnudag. Valur og Akranes hafa þrivegis áður leikið til úrslita i bikarnum. Valur hefur alltaf sigrað, fyrst 1965 með 5-3, þá 1974 með 4—1 og 1976 með 3—0. Eins og áður segir varð Valur einnig bikar- meistari i fyrrahaust og vann þá Frani 2—1 í úrslitaleiknum. Leikurinn á sunnudag ætti að geta orðið mjög skemmtilegur. Bæði lið geta á góðum degi leikið stórgóða knatt- spyrnu — og eitt er vist. það liðið, sem skorar á undan á sunnudag, hefur góða sigurmöguleika. Það verður þvi hart' barizt frá fyrstu mínútu. Bæði lið munu stilla upp sinum beztu leikmönnum — og í leikslok mun Einar Ágústsson utan- rikisráðherra, fyrrum markvörður i Vikingi. afhenda sigurvegaranum bikarinn. GOLF Um næstu helgi fer fram hjá Golf- klúbbi Suðurnesja hin árlega Víkur- bæjark'eppni, sem hatdin er á vegum verzlunarinnar \ ikurbær í Kcflavík. Keppni þessi verður síðasta stórmótið í Leirunni en undanfarin ár hefur hún ætíð verið mjög fjölmenn. Keppt verður fjórum lokkum karla. kvennaflokki og uuglingaflokki. Keppni i meistaraflokki gefur ekki stig til lands- liðs. í meistarafiokki eru leiknar 36 holur en i öðrum flokkum 18 holur. Leikmönnum úr fyrsta flokki er heimilt að taka þátt í stigakcppninni. Keppni hefst á laugardag kl. 9.00 <■ Landslið Póllands gegn Islandi Pólverjar hafa valið landsliðshópinn í Evrópuleikinn gegn íslandi á Laugar- dalsvelli 6. september. Mikla athygli vekur, að markvörðurinn heimsfrægi, Tomaszewski, komst ekki í liðið. Fyrir- Skiptingverð launaáHM Skipting verðlauna á HM í sundi er nú þannig: Bandarikin Sovétríkin Kanada V-Þýzkaland Ástralia A-Þýzkaland N-Sjáland Ungverjal. Danmörk Bretland Ítalía Japan Svíþjóð G S B 16 10 3 4 5 1 3 1 3 0 0 7 3 1 0 0 2 0 1 0 1 liði Pólverja á HM — Deyna — er heldur ekki í liöinu vegna samninga hans við Man. City. Hins vegar koma aörir þekktustu leikmenn Póllands — þó ekki Lubanski, sem ekki er valinn. Liðið er þannig: Vlarkvcrðir Kukla og Mowlik. Aðrir Teikmcnn Rudy, Maculewicz, Wojcicki, Majewski, S/vmanowski, Boniek, Blanchno, Kupcewicz, Nawalka, Masztaler, Kusto, l.ato, Ter- lecki, Dworczyk, Mazur og Ogaze. Öster vann Malmö Öster vann ákaflega þýðingar- mikinn sigur I Allsvenskan í gær. Lék þá í Málmey gegn Malmö FF og sigraöi 2—1. Tommy Evesson og Teitur Þórðarson skoruðu mörk Öster í f.h. Tore Cervin skoraði mark Malmö undir lokin. Um síðustu helgi náði Ö.ster forustu I Allsvenskan með sigri á Norrköping 4—1. Markaskorar Öster í þeim leik sjást hér að neðan — frá vinsfri Mats Nordgren, Teitur og Tommy Evesson, tvö. Eftir sigurinn í gær hefur Öster aukið forustu sina í tvö stig. Hefur 23 stig en Malmö FF 21 stig. Jönköping, liðið, sem Árni Stcfánsson og Jón Pétursson leika með I 2. deild i Sviþjóð, hefur sótt sig mjög siðustu vikurnar eftir slæma hyrjun! í 17. umferðinni i vikunni gerði Jönköping jafntefli við Halmia i llalmstad I —I. Halmia var lengi i efsta sæti en hefur nú 19 stig. Jönköping 18. IFK Malmö efst mcð 23 stig, Hacken og Mjallhy 20 stig.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.