Dagblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 30.08.1978, Blaðsíða 1
I / J 4. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST1978 — Í89. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.— AÐALSÍMI 27022. Ráðherrastólarnir: VIII. HANN DOMSMAUN JA, ÞVÍ EKKIÞAД „Nú — vill hann dómsmálin — ja, því ekki þaö?” sagði Ólafur Jóhannes- son, þegar Alþýðuflokkurinn lagði fram ráðherralista sinn í gær. Það var Benedikt Gröndal ætlað utanríkis- ráðuneytið, Kjartani Jóhannssyni sjávarútvegsráðuneytið og Vilmundi Gylfasyni dómsmálaráðuneytið. „Nú, ef blessaður drengurinn vill dóms- málin eru þau mér ekki föst i hendi,” sagði Ólafur og sá honum enginn bregða. Sagt er að Lúðvík hafi sprottið upp og spurt Benedikt hvað þetta ætti eiginlega að þýða. Benedikt er sagður hafa svarað því þannig: „Hann getur fengið góða lögfræðinga sér til aðstoð- ar, ef þörf gerist á því.” Enn bætti Ólafur við: „Það er mikið af góðum mönnum í dómsmálaráðuneytinu." Þegar mætt var til næsta fundar í gærkvöldi var annað hljóð i strokkn- um hjá báðum flokkunum, Alþýðu- flokknum og Framsóknarflokki. Leyndi þá Ólafur því ekki að dóms- málaráðuneytið lægi ekki alveg á lausu. Munu þá mestar líkur hafa verið taldar á því að Tómas Árnason yrði dómsmálaráðherra. Þannig hafa viðræður um skiptingu ráðuneyta milli stjómarmyndunar- flokkanna gengið. Gert er ráð fyrir að Alþýðubanda- lagið fái fjármálaráðherra. Sennilegir ráðherrar Alþýðubandalagsins, a.m.k. fram að kvöldmat í gær, voru þessir menn: Ragnar Arnalds, Helgi Seljan og Svavar Gestsson. Fast á eftir þeim fylgdu svo Hjörleifur Guttormsson og Ólafur Ragnar Grimsson. Geir Gunnarsson hefur oft verið nefndur væntanlegur fjármálaráð- herra Alþýðubandalagsins. Var enn á hann knúið i gær að setjast í það emb- ætti. Ennfremur var skorað á Lúðvík Jósepsson að fara i ráðherrastól. Eins og sakir standa hefur hvorugur þeirra fengizt til þess. Steingrimur Hermannsson er nefndur sem iðnaðar- og orkumálaráð- herra. Þá er talið sennilegt að Ingvsr Gislason bjóðist til að fara i mennta- málin, ef þau koma í hlut Framsóknar- flokksins. Einar Ágústsson hefur látið í það skina að hann geti vel hugsað sér að gegna starfi utanríkisráðherra áfram. Hvað sem þessu liður er alveg Ijóst að verði mynduð sú vinstri stjóm sem hér er nú sagt frá. verður Ólafur Ólafur J óhannesson Jóhannesson forsætisráðherra. Skipun i önnur ráðherrasæti er mörgum svo mikið tillfinningamál að vandinn virðist ærinn að ná samkomulagi um hana. jafnvel þótt málefnalegur ágreiningur sé settur til hliðar unt stund. BS/HH Réó sér og eigin konu sinni bana Grænmeti íkroppinn — sjá bls. 4 Sá voveiflegi atburður varð i gær- morgun á bænum Þormóðsdal. að bóndinn þar, Gísli Kristinsson, réð konu sinni, Sólveigu Jórunni Jóhannsdóttur bana. Síðan hringdi hann i lögreglu og tilkynnti um atburðinn og réð sér siðan bana. Samkvæmt upplýsingum Njarðar Snæhólm rannsóknarlögreglumanns i morgun fundu lögreglumenn hjónin bæði látin af skotsárum er þeir komu að bænum skömmu siðar. Atburður þessi átti sér stað um kl. 6 i gærmorgun. Gísli var á sextugsaldri en Sólveig Jórunn var um fertugt. Hjónin voru bamlaus. Þau hjón bjuggu að Þormóðs- dal. þar sem Gísli hafði umsjón með hundum sem eru í eigu embættis Veiðistjóra ríkisins. Þormóðsdalur er i eigu Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins, en embætti veiðistjóra hafði þaraðstöðu. Ekki er nánar vitað um tildrög þessa hörmulega atburðar. JH. Lækjartorgsmótið í skák: Guðmundur færði Dagblaðinu bikar — hvað annað? „t siðustu umferð keppa Dagblaðið og Landsbankinn,” sagði Jóhann Þórir í magnarann, þegar blásið var til siðustu umferðar i f> rirtækjakeppni í skák sem háð var undir berum himni á Lækjar- torgi í gser. Guðmundur Siguriónsson stórmeist- ari fór með sigur af hólmi fyrir Dag- blaðið. Keppt var eftir Monrad-kerfi og voru þátttakendur 36. Guðmundur hlaut 8 vinninga af 9 mögulegum. Einn af skákmótafréttamönnum DB, Bragi Sigurðsson, tekur við forkunnar- fögrum farandbikar úr hendi Guð- mundar á ritstjórn Dagblaðsins í morgun. Haraldur Blöndal var einnig við- staddur afhendinguna. Hann var einn af framkvæmdastjórum keppninnar og tefldi sjálfur fyrir Tímann. DB-mvnd Ari DB-m.vntk Ari Kristinsson. Ung og atvinnulaus vann ferð til Grikklands Ung og atvinnulaus stúlka á Eyrar- bakka vann Grikklandsferðina í Sumargetraun Dagblaðsins. Dregið var i gærdag. Á myndinni dregur Karl Pétur Jónsson (8 ára i gær, 9 ára i dag) og réttir Hrafnhildi Sveinsdóttur umslagið. Þegar hún opnaði umslagið kom i Ijós nafn Ragnheiðar Markúsdóttur á Eyrar- bakka. Hún ogeiginmaður hennar halda utan til Grikklands á þriðjudaginn og fær hann þá fri úr loðnunni um tveggja vikna skeið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.