Dagblaðið - 31.08.1978, Síða 15

Dagblaðið - 31.08.1978, Síða 15
Pálmi „Bimbó” við stjórnborðið. Nýtthljóðupp- tökustúdíó áAkureyrí Um árabil hafa Norðlendingar skemmt sér á diskótekinu Bimbó i Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Sá sem smíðaði það diskótek er Pálmi Guðmundsson og nú hafa Norðlendingar fengið annað skilgetið afkvæmi frá honum; Stúdió Bimbó, — hljóðupptökustúdíó að Tryggvabraut 22. Stúdíó Bimbó er búið hljóðupptökutækjum, amerískum, japönskum og þýzkum. Meðal annars tækjabúnaðar má nefna tvo DB-mynd Fax STUDIO BIMBO ER TEKIÐ TIL STARFA MXR tónjafnara (equalizers), sem mun nýlunda hér á landi. Stúdíóinu er skipt í þrjá hljóðeinangraða klefa auk stjómher- bergis. Stjórnherbergið er glugga- laust og fylgist upptökumaðurinn með þeim sem að störfum eru á sjónvarpsskermum. Þau hljóðupp- tökustúdió, sem starfrækt eru sunn- anlands eru öll með glugga milli stjórnherbergja og upptökusalar. Pálmi Guðmundsson hefur að mestu innréttað húsnæði Stúdíós Bimbó sjálfur og unnið að því síðan I febrúar. Tilraunaupptökur hófust seinni hlutann I ágúst og hafa tekizt vel. Þegar fréttaritari DB á Akureyri leit inn hjá Pálma var hljómsveitin Hver að taka upp. Margar hljóm- sveitir eru á biðlista, bæði sunnlenzkar og norðlenzkar, að sögn Pálma. Næsti áfangi hjá Bimbó er eflaust hljómplötuútgáfa enda hafa aðstæður nyrðra gjörbreytzt með tilkomu upptökusalarins nýja. F.Ax. — Akureyri. WM&HS Hl.lOMDlllU ^KARNABÆR TILBOÐ í TÍU DAGA! Dagblaðið og Karnabœr vilja auðvelda þér að auka við plötusafnið. Gegn framvísun þessa miða veita verzlanir Karnabæjar þér 25%, JÁ, FJÓRÐUNGSAFSLÁTT, af verði hljómplötunnar Buddy Holly & The Críckets 20 Golden Greats á næstu 10 dögum. Móttaka erí verzlunum Karnabœjarað Laugavegi 66, Austurstrœti 22 og í Glœsibœ. Einnig hjá Cesar á Akureyri, Fatavali í Keflavík, Eplinu ó Akranesi og Eyjabœ í Vestmannaeyjum: Íbíiar annars staðar á land- inu geta eignast þessa góðu plötu með því að póstsenda miðann. Allar upplýsingar ísíma 91-28155. Nafh Heimilisfang (Aðeins fyrir póstkröfur) DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978. Hljómsveitin Reykiavík er kom- ma stjá að nýju Hljómsveitin Reykjavík er tekin til starfa eftir nokkurt hlé. Tals- verðar mannabreytingar hafa orðið frá því að síðast heyrðist í hljóm- sveitinni. Aðeins tveir gamlir meðlimireru eftir. „Við sem nú leikum i Reykjavik erum búnir að halda hópinn talsvert lengi. Ætli við höfum ekki byrjað að æfa saman fljótlega eftir að slitnaði Reykjavfk leikur i síðasta skipti i upp að nýju. upp úr samstarfinu I gömlu Reykja- 'vík,” sagði Pétur kapteinn Kristjáns- Klúbbnum i kvöld áður en hún tekur sér þriggja til fjögurra vikna frí frá störfum. 1 haust verður þráðurínn siðan tckinn DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson NYIOCCPLATAA NÆSTU GRÖSUM Ný breiðskífa er væntanleg frá hljómsveitinni lOcc í næsta mánuði. Sú mun bera nafnið Bloddy Tourists. Eitt lag af henni hefur þeg- ar verið gefið út á lítilli plötu, lagið Dreadlock Holiday. Það hefur hlotið sérdeilis góðar viðtökur og var númer sjö á vinsældalista Melody Maker um síðustu helgi. Nákvæm dagsetning á útkomu Bloddy Tourists er 8. september. Búast má við plötunni í verzlanir hérlendis um það bil viku siðar. lOcc er um þessar mundir á hljómleika- ferðlagi um England til að kynna lögin á nýju plötunni. ÚrSOUNDS. son píanóleikari Reykjavíkur er hann var spurður um málefni hljóm- sveitarinnar. „Við vorum því orðnir vel æfðir eftir mánaða spilamennsku í æfingahúsnæðinu okkar þegar við byrjuðum að leika opinberlega fyrir um hálfum mánuði.” Reykjavík leikur í Klúbbnum í kvöld en fer svo í frí í þrjár til fjórar vikur. Ástæðan er sú að þrír Reykvíkingar eru á förum til Banda- ríkjanna, þeir Björn Thoroddsen gít- arleikari og bræðurnir Eyjólfur og Einar Jónssynir. Þeir fara til Kaliforníu þar sem bræðurnir bjuggu um skeið og stendur jafnvel til að þeir taki lagið með þarlendri hljómsveit, að sögn Péturs. „Við tökum upp þráðinn aftur um leið og þremenningarnir eru komnir að utan,” sagði Pétur. „Við erum að undirbúa prufuupptöku á nokkrum lögum sem við erum með og hljóðritum þau við fyrsta tækifæri. Um það bil fjórðungur laganna sem við leikum er eftir okkur Björn Thoroddsen og það eru þau sem við tökum upp.” Þeir sem skipa Reykjavík um þess- ar mundir eru Pétur Kristjánsson, Björn Thoroddsen, Einar og Eyjólfur Jónssynir, Ævar Kvaran og Ólafur Ástgeirsson söngvari, sem er nýliði í hópnum. Ævar lék áður með Logum í Vestmannaeyjum. -ÁT- Lesendur þurfa aðeins að fylla út pöntunarseðilinn Lesendur virðast ekki hafa áttað sig fyllilega á tilboði því, sem Dag- blaðið og hljómdeild Karnabæjar buðu þeim. Siðastliðinn fimmtudag var tilkynnt um samvinnu þessara tveggja aðila um að gefa lesendum kost á að kaupa vissar plötur með 25% afslætti. Fyrstu tíu dagana var boðið upp á safn beztu laga Buddy Holly heitins, — bandarisks rokksöngvara. Að sögn afgreiðslufólks í Karna- bæjarverzlunum hefur mikið verið hringt og spurzt fyrir. Aðallega hefur fólk viljað fá.að vita hvað það þyrfti að gera til að hreppa hinn auglýsta afslátt. Svarið er það að aðeins þarf að fylla út pöntunar- seðilinn, sem fylgir hér með og koma honum með einhverjum ráðum til einhverrar af Karnabæjarverzlunun- um sjö. Hljómplatan Buddy Holly & The Crickets 20 Golden Greats kostar út úr búð 4.350 krónur. Með af- slættinum, sem lesendum er boðinn er söluverð plötunnar 3.260 krónur. Tilboðið á plötu Buddy Hollys stendur til laugardags. Á mánudaginn kemur verður siðan ný plata kynnt. —Lesendur þurfa aðeins að fylla pöntunarseðilinn út með nafni sinu og heimilisfangi til að fá 25% afslátt. -ÁT- KLIPPIÐ

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.