Dagblaðið - 07.10.1978, Side 9
Nafni hans, Þorsteinsson, sem eins
og fyrr sagði er efstur á mótinu, er
hins vegar lítið fyrir jafntefli gefinn.
Oft teflir hann svo hvasst, að ekkert
kemur til greina nema vinningur eða
tap. í eftirfarandi skák fórnar hann
t.d. peði óragur i byrjuninni og fær í
staðinn hættulegt frumkvæði, sem
hann nýtir sér skemmtilega til sigurs.
Hvitt: Björn Þorsteinsson
Svart: Július Friöjónsson
Sikiieyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Be2.
Nú í seinni tíð hefur þessum leik
ávallt skotið upp kollinum af og til.
Hvitur fórnar peði, en fær i staðinn
skjóta liðskipan manna sinna. Algeng-
asta framhaldið er þó 6. Rdb5 og eftir
6. — d6 7. Bf4 e5 8. Bg5 kemur upp
Lasker afbrigðið svonefnda, sem mjög
er í tisku um þessar mundir.
6. — Bh4 7. 0—0 Bxc3 8. bxc3 Rxe4
9. Bd3 Rc5?!
Það er ekki mjög viturlegt að skilja
kóngsvænginn eftir auðan og yfir-
gefinn. 9. — Rxc3? er einnig mjög
hættulegt. Framhaldið gæti orðið 10.
Dg4! Kf8 11. Rxc6 dxc6 12. Db4+ og
vinnur.
Best er hins vegar 9. — d5! 10. Ba3
Da5 með flókinni og skemmtilegri
baráttu framundan.
10. Dg4 Kf8
Þessi vandræðalegi leikur sýnir
betur en nokkuð annað hvað svarta
staðan er erfið. Svartur átti hins vegar
ekki um neitt betra að velja. Ef t.d.
10. — 0—0? þá 11. Bh6 Df6 12. Bg5
De5 13. Hfel Dc7 (13. — Dd5 er
skömminni skárra, þótt svarta staðan
sé eftir sem áður töpuð) 14. Bf6!g6 15.
Dg5 og vinnur.
11. Ba3 ba6?!
11. —d6 lítur eitthvað betur út.
12. Rxc6 dxc6 13. Hadl.
Með einföldum, rökréttum leikjum
hefur hvítur þegar náð yfir-
burðastöðu. Svörtu mennimir eru
ákaflega -klúðurslega staðsettir og
leppun riddarans á c5 er mjög
óþægileg. Með næsta leik sinum
reynir svartur að opna útgönguleið
fyrir hrókinn á h8, en hann kemst þó
ekki langt, frekar en kollegi hans í
hinu horninu.
13. —h5 14. Df3 Bb71 15. Be4 Dc7
16. Hd2 Ke7.
Er svartur að sleppa? Honum hefur
tekist að tengja hrókana saman og lið
hans fer nú hvað úr hverju að geta
tekið þátt í baráttunni. Hvítur er hins
vegar ekki á þvi að leyfa honum að
þróa stöðu sína öllu meira og með
næsta leik sínum gerir hann drauma
hans að martröð.
17. De3!
Svona einfalt var það! Hvítur
vinnur nú a.m.k. peðið til baka og
viðheldur stöðuyfirburðum sínum..
17. — De5 er að sjálfsögðu svarað
með 18. f4.
17. —Hhd8.
Besti möguleikinn. Með þessu móti
kemur svartur þó hrókunum í gagnið.
18. Bxc5+ bxc5 19. Dxc5+ Ke8 20.
Hxd8+ Hxd8 21. Dxh5.
Þar með er hvítur orðinn peði yfir
og staða hans er þar að auki mun
betri.
21. - Df4 22. Bf3 g5 23. Hel Ke7.
Hótunin var 24. Hxe6%.
24. g3 Df5 25. Be4 Dc5 26. h4 Hg8
27. He3!
Þar með bætist hrókurinn i sóknina
og fátt virðist ætla að verða til varnar.
27. -Ba6 28.Dh7
28. - Kf8 29. Hf3 Hg7 30. Dh8 +
Hg8 31. Dh6+ Hg7 32. hxg5 Dxg5
33. Dxe6!
Þá er annað peð fallið fyrir borð og
skammt að bíða endalokanna.
33. — Dd8 34. Dxc6
Allt er þegar þrennt er!
34. - Be3 35. Hf4 Hg5 36. Dh6 -
Ke8 37. Bc6 — og svartur gafst upp.
Að lokum birtist hér snörp skák
með lauslegum athugasemdum, sem
tefld varíC-flokki.
Hvítt: Magnús Alexandersson
Svart: Björn Árnason.
Miðbragð.
1. e4 e5 2. d4 exd4 3. Dxd4 Rc6 4.
De3 g6.
Önnur góð leið gegn vafasamri
byrjun hvits, er 4. — Rf6 o.s.frv.
5. Bc4 Bh6?
Svartur ætlar sér greinilega að refsa
hvitum sem fyrst fyrir að tefla svona
undarlega byrjun. Biskupinn er hins
vegar illa staðsettur á h6 og því hefði
svarturmátt hugleiða5. — Bg7.
6. f4 Re5?
Meira þarf ekki til.Með næsta leik
sinum tryggir hvítur sér vinnings-
stöðu.
7. Dd4!
Riddarinn getur sig nú hvergi hrært
vegna hróksins á h8. Svar svarts er
þvingað, því öðruvísi fær hann ekki
bjargað manninum.
7. —f6 8. fxe5 Bxcl 9. Rf3!
Hvítur hefur nú algjöra yfirburði i
liðsskipan og vinningurinn er ekki
langt undan.
9. — De7 10. 0—0 fxe5 11. Rxe5
Be3+ 12. Dxe3 Dxe5 13. Bf7+ Kd8
14. Rc3.
Hrókurinn á al er nú tilbúinn í
slaginn og lokaatlagan gegn svarta
kónginum getur hafist.
14. - Rf6 15. Df3 Ke7 16. Rd5 + !
Rxd5 17. exd5 Dd4+ 18. Khl d6 19.
Hael + Kd8 20. De2! Bd7 21. De7 +
Kc8 22. Be6!
— og svartur gafst upp. Hann getur
aðeins valið milli þess að verða fljót-
lega mát, eftir 22. — Bxe6 23. Dxe6 +
eða að verða strax mát, eftir 22. —
Hd8 23. Dxd7 +! Hxd7 24. Hf8.
Það er þægilegt að gista Spán sem
ferðalangur — en vatnsskorturinn f
Benidorm og vfðar hefur bagað marga.
Benidorm:
Ferðamenn
urðu að flýja
vatnsleysið
Tjæreborg, ein stærsta ferðaskrifstofa
Evrópu, hefur stöðvað hópferðir á
sínum vegum til Benidorm á Spáni um
stundarsakir vegna mikils vatnsskorts,
sem þar hefur verið að undanförnu.
Telja forráðamenn Tjæreborg að
vatnsskorturinn geti verið hættulegur
heilsu viðskiptavina ferðaskrifstofunnar,
fyrir utan önnur óþægindi sem af hljót-
ast.
Ein islenzk ferðaskrifstofa, Ferðamið-
stöðin, hefur undanfarin sumur boðið
upp á ferðir til Benidorm. Þar fékk DB
þær upplýsingar i morgun, að ferðum
íslendinga þangað væri sjálfhætt, því
þær væru takmarkaðar við sumarmán-
uðina.
„Siðasti hópurinn kemur heim á
morgun,” sagði talsmaður Ferðamið-
stöðvarinnar i morgun. „Vissulega
höfum við orðið vör við vatnsskortinn
þarna og óneitanlega hefur hann valdið
nokkrum óþægindum, enda hefur ekki
rigrtt á Benidorm síðan i febrúar.” .ÓV
Bridge V0 ^0 Bridge
TBK
Nú er lokið þremur umferðum af
fimm í aðaltvímenningskeppni
félagsins. Steingrímur Steingrímsson
og Gissur Ingólfsson hafa haft örugga
forustu frá upphafi, en staða efstu
para er nú þessi:
1. Steingrímur Steingrímsson —
Gissur Ingólfsson 399
2. ViðarJónsson —
Sveinbjörn Guðmundsson 380
3. Gisli Hafliðason —
Sigurður B. Þorsteinsson 373
4. Ragnaróskarsson —
Sigurður Ámundason 362
5. Björn Kristjánsson —
Þórður Eliasson 359
6. HilmarÓlafsson —
Ólafur Karlsson 359
7. Ingólfur Böðvarsson —
Guðjón Ottósson 355
8. Bragi Jónsson —
DagbjarturGrimsson 353
9. Guðmundur Júliusson —
Helgi Ingvarsson 353
10. Gunnlaugur óskarsson —
Sigurður Steingrímsson 352
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Stjórn BH er nú þannig skipuð.
Sævar Magnússon, formaður, Björn
Eysteinsson, varaformaður, Hörður
Þórarinsson og Ægir Magnússon,
gjaldkerar, Stefán Pálsson, áhalda-
vörður og Guðni Þorsteinsson, ritari.
Sl. mánudag var spilaður eins kvölds
tvimenningur sem upphitun fyrir
komandi átök. Efstir urðu:
1. J úlíus og Sigurður Lárusson 130
2. Bjarnar og Þórarinn 128
3. Bjami og Þorgeir 124
Spilað er (ávallt á mánudögum!) að
Hjallahrauni 9 í nýjum og glæsilegum
húsakynnum, sem eru í eigu slysa-
varnafélaganna i Hafnarfirði og þykir
það fyrirboði þess að bridgeslysunum
muni fara ört fækkandi. Nk.
mánudag, þ. 9.10 hefst siðan
aðaltvímenningskeppni félagsins og er
áætlað að hún standi í 4 kvöld. Eru
menn hvattir til að fjölmenna.
Barðstrendingfélagið
í Reykjavík
Fimm kvölda tvímenningur hófst 2.
október, átta efstu eftir 1. þessir: umferð eru
1. Pétur—Hermann 141
2. Gunnlaugur-Stefán 130
3. Ari-Diana 124
4. Haukur-Guðmundur 124
5. Sigurjón-Óli 120
6. Hclga Erla 118
7. Ragnar-Eggert 118
8. Viðar Haukur 115
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Fimmtudaginn 28. september hófst
vetrarstarf félagsins með 3ja kvölda
tvímenningskeppni. Besta árangri
náðu
Stlg
Óli M. Andreasson —
Guðmundur Pálsson 19.8
Jönatar. Lindal —
Þórir Svernsson 191
Hrólfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason 186
Ármann J. Láruszon —
Haukur Hannesson 180
Barði Þorkelsson —
JúliusSnorrason' 178
Meðalskor 165 stig.
Hvers vegna æ fleiri munu ferðast
tfl FiEppseyja og Thailands
Þar er ýmislegt markvert að skoða — meðal
annars hina sögufrægu borg Manila með hinum
spánska bakgrunni og 20. öldina í Makati rétt við
hliðina, eldfjallagigurinn í Týndadal þar sem
baðast er í jarðhituðum laugum, spennandi báta-
ferðir um gljúfur Pagsanjan-fossasvæðisins og
hinn dýrlegi hitabeltisgarður Punta Balurte,
musteri og borgarsýki Bangkok að ekki sé
talað um munaðinn allan á Pattaya-strönd.
Nútímalegt en ósnortið — alþjóðleg hótel (gædd
litauðgi landanna beggja) ódýrar samgönguleiðir
með vögnum, einkabílum, áætlunarbílum, nætur-
klúbbar, sannkallað fjör (allir geta dansað eftir
hljómfalli okkar Filippseyinga), samt er allt svo
ósnortið. Þægindi vestursins ásamt austrænu
andrúmslofti. Slíkt er ekki auðvelt að finna nú til
dags.
Austrið er ekki dýrt — Drykkur á hótelinu, að
borða úti, leigubílar, minjagripir, og svo allt þetta
aukalega, allt svo ódýrt að það verður næstum
ánægjulegt að eyða peningum....Nokkuð sem
ferðamenn í öðrum löndum eru löngu búnir að
gleyma.
Undirritaöur vill gjarnan héyra meira um hin fjarlægu austurlönd,
Filippseyjar og Thailand. Vinsamlegast sendið upplýsingar til:
Nafh:
Heimili:
Sendið til Philippine Airlines, lOCollingham Road, London SW5
Philippine Airlines
TVISVARIVIKU FRÁ EVRÚPU
/