Dagblaðið - 09.10.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
Spurning
dagsins
3
Dularfull fyrirsögn
— Þú ert ekki í rétti
— þó þú sértírétti
1 „Dagblaðinu" hinn 25. sept. sl. las
ég feitletraða fyrirsögn, svohljóðandi:
„Þú ert ekki i rétti — þó þú sért i
rétti”.
Heimilis-
læknir
svarar
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
Mig furðaði, að slik þversögn skyldi
sjást á prenti, en þarf nokkurn,
nokkuð að furða á þeim tima, sem allt
er að kafna í alvísindalegum vaðli um
allt, sem menn þykjast vita, þó að þeir
viti, að þeir vaða heimskuna upp að
öxlum.
Vitnað er til 67. gr. umferðarlaga
varðandi þessa fyrirsögn. Ég tel að
hver sá, sem lætur frá sér fara slíka
fyrirsögn, hafi ekki kynnt sér umgetna
grein, né aðrar greinar
umferðalaganna, sem geta um skyldur
og réttindi vegfaranda, bæði til or-
sakar og afleiðinga.
í 67. gr. segir: „Lækka má fébætur
og jafnvel fella þær niður, ef sá. sem
Raddir
lesenda
fyrir tjóni eða slysi verður, telst
meðvaldur þess.”
í 68. gr. er getið um skiptingu á
greiðslu vegna tjóns, með hliðsjón af
öllum aðstæðum og þannig má finna
tengsl milli ákvæða laganna i heild,
sem ætlast er til að gæti réttar beggja,
tjónvalds og tjónþola, til alls jafn-
ræðis.
Það er ekki sök laganna, heldur þvi,
hvernig úr þeim vinnst, fari svo að
augljóst virðist að niðurstaða
rannsóknar og dóms sé röng.
Lögin benda á skyldur og réttindi
allra, sem um vegi fara, en svo kemur
almannarómurinn, og fjölmiðlar, sem
stundum gera tilraun til að afskrænta
lögin, í stað þess, að styðja réttarfars-
legan tilgang þeirra.
ídagvilég segja þetta:
Mikið er talað um skyldur bifreiðar-
stjóra og framferði þeirra i
umferðinni, og vissulega er þörf að
brýna fyrir þeim fyllstu aðgæzlu, en
hvernig haga sumir vegfarendur sér,
sem ekki eru á vélknúnum tækjum?
Umferðamenning gangandi fólks er
svo ömurleg, að ekki er sýnilegt
annað, en að því sé alveg sama um líf
og limi, og þvi miður sker yngsta
fólkið sig úr hvað þetta snertir, með
auðsýnu tillitsleysi til annarar
umferðar, eins og það eitt eigi fullan
umferðarrétt.
Sá háttur virðist lika orðinn
upptekinn, að stöðva bifreiðar fyrir
gangandi fólki í tima og ótíma, en
einmitt þessi umferðarþróun er og
verður, orsök margra tjóna og slysa.
Vegna þeirrar, þó nauðsynlegu
brýnslu til bifreiðarstjóra, um fyllstu
aðgæzlu og tillitssemi til annarar
umferðar, hefur þróast, einkuin i
hugum yngra fólks. að þvi er. irðist, sú
hugsun, að það þurfi enga gát að hafa
á sjálfu sér, sern kemur fram í þvi, að
það flanar þverl um vegi hvar sern er,
án þess að virða aðra urnferð.
Það sjást ekki langar greinar i
fjölmiðlum um óvarkárni gangandi
fólks, en jafnan er það bílstjórinn, sem
vitanlega má gæta sin, sem er
dómfelldur af almenningi, hendi hann
nteira eða minna umferðarslys.
Mér er það vel Ijóst að fjölntargir,
sem sitja undir stýri á bifreið,'ættu
ekki að hafa leyfi til þess, og þetta vita
yfirvöld lögreglumála, en mér er
einnig vel kunnugt unt, að erfitt
vandamál er að útrýma slikum mönn-
um frá því að stýra bil, en vitanlega er
það gert, náist til þeirra.
Kristinn Hákonarson.
Hvað viltu vita?
Hvernig leggst vetur-
inn í þig?
Jón Guðnason, atvinnulaus múrari:
Veturinn hlýtur að verða góður. Það er
búið að vera svo gott veður undanfarið
að veturinn leggst bara reglulega vel í
mig.
Loftur Magnússon húsvörður Vals-
heimilisins: Hann leggst mjög vel í mig.
Ég held að það verði lítið um snjó.
Veðrið hefur verið indælt og
staðviðrasamt. Vonandi er að það haldi
áfram á þeirri braut.
Fever er einhver
FALKIN N
Sími 84670
Laugavegi24
Sími 18670
Vesturveri
Sími 12110
Þorleifur Guðjónsson sjómaður: Vet-
urinn leggst ágætlega í mig. Vonandi
verður hann eins góður, og veðrið hefur
verið undanfarna daga. Eg held að það
verðiekki mikill snjór.
Lesandi spyr:
Hvar er hægt að fá limmiðana Á
eftir bolta kemur barn . . . ?
Svar:
Þessum límmiðum Junior Chamber
kvenna er farið að fækka, þær hafa út-
býtt þeim til almennings undanfarna
daga. En svolitið er eftir og getur hver
sá er vill fengið þá fáu sem eftir eru,
hérá Dagblaðinu, Síðumúla 12.
Maria Sigurðardóttir húsmóðir: Hann
leggst sæmilega í mig, ef hann verður
eins góður og haustið hefur verið. Ég
vona bara að það verði ekki mikið um
óveður.
• Ólafúr Ásgrimsson nemi: Ég vona að
hann verði ágætur. Mér leiðist svo snjór
og rigning. Þegar snjórinn er fer ég á
skíði í Bláfjöll og stundum í Kerlingar-
fjöll.
Suðurlandsbraut 8
MNrt. Jónsson fyrrverandi mat-
MhNt Veturinn leggst illa í mig. Ég er
Dutftn að vera tiu ár á sjó. Hefur mig
dreymt óvenju mikið kvenfólk á þeim
tima. Það hefur aldrei þótt gott að
dreyma þær, blessaðar.
'll#
Alá*-.!-.#-
mest selda, athyglis-
verðasta og albezta
plata allra tfma. Vilj-
um við eindregið
benda á þessa ein-
stöku plötu sem
tekur öllu fram hvað
varðar diskótónlist
A EFTIR BOLTA
KENUR BARN
JUNIOR CHAMBER
..EFLUM ÖRYGGI ÆSKUNNAR'