Dagblaðið - 09.10.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
1
i
Dæmt í
Alþýðu-
bankamálinu
í vetur
Dóms i Alþýðubankamálinu er að
vænta i vetur, hugsanlega fyrir áramót
verði ekki af verjenda hálfu krafizt
framhaldsrannsóknar á einhverjum at-
riðum málsins.
Það var 10. april i vor, sem ákæra
var gefin út á hendur tveimur fyrrver-
andi bankastjórum Alþýðubankans,
þeim Jóni Hallssyni og Óskari K.
Hallgrimssyni, svo og fyrrverandi
skrifstofustjóra bankans, Gísla Jóns-
syni. Er þeim gefið að sök að hafa
farið óvarlega með fé bankans, svo
hann tapaði tugum milljóna. Þeir eru
einnig ákærðir fyrir að hafa látið
geyma innistæðulausa tékka í
bankanum mánuðum saman og loks
eru tveir ákærðir fyrir að hafa gefið út
fjölda innistæðulausra tékka og látið
geyma þá i bánkanum i langan tíma.
Gerðistalltþettaáárinu 1975.
Málið kom upp i kringum áramót
1975/76 og stóð-rannsókn yfir í rúm
tvö ár. Sl. vor var málið þingfest í
sakadómi en þvi síðan frestað til
hausts.
Sverrir Einarsson, sakadómari fer
með málið nú eins og á rannsóknar-
stigi.
Falska skeytið til DB:
Ákvörðun
ríkissak-
sóknara
næstu
daga
Eins og lesendur DB rekur minni til
birti blaðið i sumar frétt um fjárhags-
stuðning erlendis frá við
Alþýðuflokkinn á lslandi, og var sú
frétt byggðá fréttaskeyti, sem blaðinu
hafði borizt. Síðar kom í ljós að
skeytið hafði verið skáldað af einum
starfsmanni ritsímans í þeim tilgangi
að striða vinnufélaga hans.
Póstur og simi kærði málið og hefur
það síðan gengið sína leið i gegnum
kerfið og er nú á afgreiðslustigi hjá
embætti ríkissaksóknara. Verður1
tekin ákvörðun þar alveg á næstunni
um hvort höfðað verður mál á hendur
höfundi skeytisins.
Honum var strax er málið kom upp
vikið úr starfi og hefur sam-
gönguráðuneytið nýlega staðfest að
frávikningin skuli vera endanleg.
Guðbjartsmálið:
Hæstiréttur
fjallar um
kæru ríkis-
saksóknara
— sem vill láta
rannsaka málið
fyrir sakadómi
Revkiavíkur
Hæstiréttur hefur nú til meðferð-
ar kæru ríkissaksóknara vegna
Guðbjartsmálsins svonefnda, sem
varðar fjármálaumsvif Guðbjarts
heitins Pálssonar.
Þegar Guðbjartur lézt á síðasta ári,
skömmu eftir að rannsókn málsins
hófst i kjölfar handtöku hans i
Vogum, var málið sent ríkissak-
sóknara. Þar var málið þar til í haust,
að rikissaksóknari sendi málið í saka-
dóm Reykjavíkur með kröfu um opin-
bera rannsókn þess.
Kröfunni var visað frá, enda taldi
sakadómur ekki vera skilyrði fyrir
hendi til að hefja slika rannsókn.
Ríkissaksóknari kærði sakadómsúr-
skurðinn til hæstaréttar og er úr-
skurðar nú beðið þaðan. Sá úrskurður
er væntanlegur á næstu dögum.
Dómur
kveðinn
uppá
næstunni
Eins og skýrt var frá í Dagblaðinu í
siðustu viku er nú nokkur biðstaða í
Grjótjötunsmálinu svonefnda, á
meðan framhaldsrannsókn fer fram í
Noregi.
Þegar þau gögn berast til landsins
verður lögð síðast hönd á málið fyrir
dómi og verður þess vart langt að biða
að dómur verði kveðinn upp.
Tveir menn eru ákærðir i
Grjótjötunsmálinu og hljóðar ákæran
upp á fjárdrátt, umboðssvik og falska
skýrslugjöf. Þessir tveir menn eru
hæstaréttarlögmennirnir Þorfinnur
Egilsson og Knútur Bruun. Þess er og
krafizt að þeir verði sviptir
málflutningsréttindum sínum.
Því er haldið fram af ákæruvaldsins
hálfu, að þeir félagar hafi keypt skipið
Grjótjötun í 'Noregi fyrir 2.4
milljónir norskra króna, en gefið upp
hér heima 2.8 milljónir og þannig m.a.
fengiðaukna lánafyrirgreiðslu.
Dómari í Grjótjötunsmálinu er
Haraldur Henrysson, sakadómari.
Rannsóknin hefur tekið rúm tvö ár.
Rannsókn
Pundsmálsins
hefur staðið
Í3ár
Siðustu yfirheyrslur í Pundsmálinu
svonefnda standa yfir þessa dagana,
Handtökumálið:
að sögn Hallvarðs Einvarðssonar,
rannsóknarlögreglustjóra rikisins.
Rannsóknin hefur staðið yfir siðan í
nóvember 1975, en hefur dregizt úr
hömlu m.a. vegna veikinda hins
kærða og mikilla anna þess
rannsóknardómara sem fór með málið
i upphafi.
í upphafi rannsóknarinnar voru
tveir menn handteknir og var annar
þeirra forstöðumaður Sparisjóðsins
Pundið. Kæra hafði borizt á þá frá
viðskiptamanni sparisjóðsins, sem
kvaðst hafa orðið að greiða okurvexti
til að njóta víxilkaupa hjá
sparisjóðnum. Hefði hann einnig þurft
að greiða háar fjárhæðir til
milligöngumanns, sem átti innistæður
í Pundinu. <-
Mikill fjöldi manna hefur verið yfir-
heyrður vegna málsins og er
rannsókninni nú um það bil að ljúka.
Verður málið þá sent ríkissaksóknara
til fyrirsagnar.
Dómsmeðf erð f restað
um óákveðinn tíma
— frekari framhaldsrannsókn ekki útilokuð
„Meðferð málsins fyrir dómi er á
frumstigi. Það var þingfest um miðjan
september en siðan frestað um
óákveðinn tima á meðan verjendur
athuga gögn málsins, en þau eru mikill
stafli,” sagði Ólafur St. Sigurðsson,
skipaður setudómari i hand-
tökumálinu svonefnda, í samtali við
fréttamann DB í gær.
Ólafur kvað hugsanlegt að einhverjir
verjendur sakbommganna sex myndu
óska eftir framhaldsrannsókn á
tilteknum atriðum málsins, þótt saka-
dómsrannsóknin væri mjög itarleg.
Treysti setudómarinn sér þvi engan
veginn til að spá um hvenær hand-
tökumálið yrði dómtekið.
Ákæra í málinu var gefin út 26. júli
sl. á hendur Hauki Guðmundssyni,
fyrrum rannsóknarlögreglumanni í
Keflavík og fimm öðrum vegna ólög-
legrar handtöku Guðbjarts heitins
Pálssonar og Karls Guðmundssonar í
Vogum á Vatnsleysuströnd 6.
desember 1976.
Aðrir ákærðir eru Viðar Á. Olsen,
fyrrum fulltrúi bæjarfógetans i Kefla-
vik, Viðar Pétursson, fyrrum lög-
reglumaður, Ragnheiður S. Ragnars-
dóttir og „huldumeyjar.nar” Svanfríð-
ur Kjartansdóttir og Kolbrún E.
Einarsdóttir.
Fjárdrátturinn hjá Rannsóknarlögreglunni:
Rannsókn setudómarans
um það bil að Ijúka
„Ég bið nú eftir lokaskýrslu frá
ríkisendurskoðun og þar með má segja
að rannsókninni sé lokið. Það verður
alveg á næstu dögum,” sagði Ásgeir
Friðjónsson, setudómari í fjárdráttar-
máli Baldvins Erlingssonar, fyrrum
skrifstofustjóra Rannsóknarlögreglu
ríkisins, i samtali við fréttamann DB.
Það var i sumar, sem upp komst um
fjárdrátt skrifstofustjórans, sem þá var
í sumarleyfi. Var hann handtekinn við
heimkomuna og játaði hann brot sitt.
Þegar rannsókn lýkur verður málið
sent ríkissaksóknara, sem siðan gefur
út opinbera ákæru. Þaðan fer málið
væntanlega til sakadóms Reykjavíkur,
og þar verður dómur kveðinn upp.
Fjárdráttur flokkast undir 247. grein
hegningarlaga. Hámarksrefsing er 6
ára fangelsi.
Finansbankamálið:
Skattayfirvöld
afgreiða flest málin
Flest mál reikningseigendanna í
Finansbanken í Kaupmannahöfn hafa
verið afgreidd af skattyfirvöldum.
Einstök mál verða send til skattsekta-
nefndar og væntanlega einhver til
ríkissaksóknara.
Þórður Björnsson rikissaksóknari
sagði í samtali við fréttamann
blaðsins að Seðlabankinn hefði sent
embætti sinu skýrslur um afgreiðslu
nokkurra mála og fleiri slíkar skýrslur
væru væntanlegar.
Ríkissaksóknari kvaðst bíða með af-
greiðslu þessara mála frá embætti sínu
þar til allt væri komið, þannig að hægt
yrði að afgréiða allt nokkurn veginn á
sama tíma.
Allt er óvíst með hvort opinber mál
verða höfðuð á hendur þeim
einstaklingum, sem sl. vetur reyndust
eiga verulegar fjárhæðir i erlendri
mynt í Finansbanken, enda er á valdi
rikissaksóknara að taka ákvörðun um»
það.
Kaupin á
Guðmundi RE:
Dæmt í
skipakaupa-
máli síðla
vetrar
Væntanlega verður dæmt í málinu,
sem spratt af kaupunum á togskipinu
Guðmundi RE, í sakadómi Reykja-
víkur seinni partinn í vetur.
Málið var þingfest í sumar og ákæra
birt þremur mönnum, eigendunum
Páli Guðmundssyni og Hrólfi
Gunnarssyni og skipamiðlaranum
Þorfinni Egilssyni hrl., sem sætir sams
konar ákæru i Grjótjötunsmálinu.
Þetta mál er áþekkt Grjótjötuns-
málinu, talið eraðkaupverð í Noregi
hafi verið lægra en gefið var upp hér.
Getur því brotið verið margháttað.
Skjöl málsins eru komin til verjenda
þeirra þremenninganna, Jóhanns
Finnssonar, hrl., og bíður Gunnlaugur
Briem saksóknari nú eftir vörnum.
Antíkmálið:
Ákærður fyrir
skjalafals
Antík-málið svonefnda var þingfest
i byrjun þessa mánaðar og hefur
gögnum málsins verið komið í hendur
verjanda ákærða, Björns Vilmundar-
sonar.
Sjái verjandi ekki ástæðu til aö óska
eftir frekari rannsókn á einhverjum at-
riðum málsins, þá skilar hann vörn
sinni áður en langt um liður og má
vænta þess, að dómur verði kveðinn
|tipp í vetur.
Antík-málið varðar innflutning og
sölu á antík-húsgögnum. en ákærnn
hljóðar upp á skjalafals. Hántarks-
refsing fyrir skjalafals er átta ára lang-
elsi.
Björn Vilmundarson var forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins þegar málið
kom upp. Hann neyddist til aðsegja af
sérembættinu.
Rannsókn málsins stóð i um tvö ár.
Dómari í Antík-málinu er
Gunnlaugur Briem, sakadómari.
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna:
Fjárdráttur-
inn enn til
rannsóknar
Rannsókn á meintum fjárdrætti
fyrrrum forstöðumanns Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna tekur væntanlega til
allmargra ára. Talið er að fjár-
drátturinn sé upp á allt að tug milljóna
króna.
Forstöðumaðurinn fyrrverandi vék
úr starfi sl. vor þegar grunur vaknaði
um fjárdráttinn. Kæruefnið er
umfangsmikið og að því er virðist er
málið nokkuð umfangsmeira en virtist
i upphafi, nær til dæmis alllangt aftur í
timann.
Rannsókn málsins er í höndum
Rannsóknarlögreglu ríkisins.