Dagblaðið - 09.10.1978, Side 9

Dagblaðið - 09.10.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978. 9 Gífurleg aðsókn á „Laugardagskvöldsfárið” og „Náin kynni af þriðju gráðu” Á laugardaginn hóf Háskólabíó sýningar á bandarísku kvikmyndinni Saturday Night Fever en myndin hefur farið mikla sigurför um Bandarikin og viðar eftir að hún var frumsýnd fyrir tíu mánuðum. Aðalleikari myndarinnar, John Travolta, hefur á svipstundu orðið heimsþekktur og átrúnaðargoð unglinga um allan hinn vestræna heim. Það fór heldur ekki framhjá þeim er áttu leið fram hjá Háskólabíói eftir kl. tvö á laugardaginr. að eitthvað stórkost- legt stóð til þar. Blaðamaður Dag- olaðsins átti leið þarna framhjá kl. 2.15 og hafði þá myndast a.m.k. 30 metra löng biðröð þrátt fytrir að miðasala ætti skki að hefjast fyrr en kl. 3.00. Flestir bíógestirnir voru á aldrinum 12—14 ára og minnti þetta ónertanlega á bítlaæðið hérumárið. Myndin Saturday Night Fever fjallar í sem allra stytztu máli um ungu kynslóðina í dag og skemmtanalíf hennar. John Travolta leikur ungan pilt, sem er hetja diskótekanna og nýtur mikillar kvenhylli. Það er hin góðkunna hljómsveit Bee Gees, sem flytur tónlist- ina i myndinni og á hún ekki minnstan þátt í velgengni myndarinnar. En það er ekki bara Háskólabíó sem hefur tekið heimsfræga mynd til sýning- ar. Stjörnubíó hefur nú hafið sýningar á kvikmyndinni Close Encounters of the Third Kind, sem fjallar um fljúgandi furðuhluti og fleira í þeim dúr. Við gerð kvikmyndarinnar hefur ekkert verið sparað og standa að myndinni helztu kunnáttumenn á sviði ýmissa þátta kvik- myndalistarinnar. Fór enda kostnaðurinn við gerð myndarinnar upp úr öllu valdi en slík hefur aðsóknin að myndinni verið að framleiðendur þurfa ekki að hafa minnstu áhyggjur af peningahliðinni. Og eftir fyrstu viðbrögðin við þessum myndum að dæma virðist svo sem íslendingar ætli ekki að láta sitt éftir liggja. Langar biðraðir að fyrstu sýningunum, en uppselt var á allar sýningar helgarinnar i báðum kvik- myndahúsunum. -GAJ- Hafnarfjörður: Banaslys í umferðinni Banaslys varð i umferðinni í Hafnarfirði aðfaranótt laugardagsins. Slysið varð viö Hörðuvelli á mótum Lækjargötu og Hringbrautar. Þar valt jeppabifreið og lenti út í lækinn. Við veltuna kastaðist ökumaðurinn út úr bifreiðinni. Ekkert vitni varð að slysinu en maður sem býr á Hörðuvöllum sá einhvern Ijósagang og fór út. Ekkert lífsmark var með ökumanninum þegar að var komið. Tilkynnt var um slysið kl. 00.02, en ekki er vitað um tildrög þess en svo virðist sem ökumaðurinn hafi ekki náð beygjunni af einhverjum ástæðum. Maðurinn sem fórst hét Jóhann E. Sigurjónsson, 35 ára, að aldri óg til heimilis að Hringbraut 58, í Hafnar- firði. -GAJ- Bflvelta á Þingvallavegi Siðdegis á laugardag varð bilvelta á Þingvallavegi við Seljabrekku. Bílstjórinn missti skyndilega vald á bilnum með þeim afleiðingum að hann valt. Þrir farþegar i bílnum slösuðust en enginn þeirra alvarlega. Að sögn lögreglunnar I Hafnarfirði hefur verið mikið um slík minni háttar slys og árekstra í umferðinni að undanförnu. -GAJ- BIABh "jálst ahái Hluti biðraðarinnar við Háskólabió á laugardag. Ung stúlka tekur létt dansspor fyrir Ijósmyndara DB. DB-mynd Hörður. ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR QG ÞJÓflU/Tfl /Vallteitthvaó gott í matinn ur STIGAHLIÐ 45-47 SÍMI 35645 daga ’^Liindúnaferð 6.-11. nóvember. íslenskur fararstjóri Brottför 6. nóv. kl. 7 f.h. og komið til baka á mið- nætti 11. nóvember. Gist verður á Hótel Cumberland, Stratford Court og Hotel Y Knattspyrnn- áhugamenn missið ekki af einstöku 'tækifæri til að sjá leik í 4. umferð enska deildarbikarsins 8. nóv- ember. Einnig eru tveir leikir 11. nóvember: QPR — Liv- erpool og Tottenham — Nottingham Forest. Jólin nálgast Tryggið yður í tíma frá- bæra ferð á hagstæðu tækifærisverði. Leitið nánari upplýs- inga í tíma. iSamvínnu- w LANIIji N W&lUir %/lll# SKÓLAVÖRÐUSTÍG16 AUSTURSTRÆT112 SÍMI27077 SÍMI 28899 Bíræfn- ir bíl- þjófar Snemma I gærmorgun varð árekstur á Suðurlandsvegi ofan við Lækjarbotna. Lögreglunni var tilkynnt um slysið kl. 5.12. Reyndist önnur bifreiðin vera stolin og var ökumaður þeirrar bif- reiðar grunaður um ölvun. Hann var fluttur á slysavarðstofuna eitthvað meiddur og einnig annar piltur sem með honum var. Að sögn Selfosslögreglunnar munu þessir sömu piltar sem voru frá Reykjavík hafa stolið bifreið á Selfossi. Grunur leikur á að þeir hafi upphaflega stolið bifreið við Stjörnubíó og keyrt á henni austur fyrir fjall. Virðist sem þeir hafi orðið að skilja bilinn eftir við Ingólfsfjall þar scm hann hafði gefið sig. Síðan hafi þeir á einhvern hátt komizt niður á Selfoss og stolið öðrum bíl þar. Á honum fóru þeir að írafossi þar sem þeir veltu honum. Þeir létu þó ekki þar við sitja heldur stálu þar enn einum bílnum og héldu til Reykjavíkur. Viðburðarikri ferð þeirra mun svo hafa lokið við Lækjarbotna þar sem þeir' lentu I árekstri eins og áður sagði. -GAJ-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.