Dagblaðið - 09.10.1978, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
11
Danmörk:
LÆKNAR GEFA
PENÍSILLÍNIÐ
BLINDANDI
Forstöðumaður danska heilbrigðis-
ráðuneytisins, Sören K. Sörensen,
hefur lýst undrun sinni og
vonbrigðum vegna þcss hve margir
danskir læknar virðast tilbúnir til að
gefa fólki. sem þeir ekki þekkja.
penisillin eftir símaviðtal.
Sörensen lýsti yfir vonbrigðum
vegna þáttar um heilbrigðismál i
danska sjónvarpinu. Stjórnandi
þáttarins sýndi þar fram á hve létt er
að fá penísillin frá læknum. Starfsfólk
sjónvarpsins hringdi til 25 lækna víðs
vegar í Danmörku og hver og einn
sagðist vera slæmur í hálsi og með
hita.
Fjórtán læknanna gáfu penísillin án
þess að hafa séð sjúklingana. Hinir
ellefu óskuðu eftir að sjá sjúklingana
áður en þeir segðu til um meðalagjafir.
Sörensen sagði: „Það vekur undrun
mína hve auðvelt var fyrir fólk úti í
bæ að fá lyfseðil upp á penisillin fyrir
fólk, sem læknarnir þekktu ekkerl til.
Það hefði gegnt öðru máli ef hér hefði
verið um að ræða fólk, sem læknarnir
þekktu áður til og vissu um sjúkrasögu
þess."
„Ég hef fengið upplýsingar hjá sjón-
varpinu,” sagði Sörensen,, og þar kom
i Ijós, að aðeins einn læknanna spurði
viðkomandi hvort hann hefði fengið
þetta lyf áður. Fyrsta skilyrði fyrir
penísillín gjöf hlýtur- að vera að sjá
sjúklinginn og vita hvað að honum
gengur. Menn geta fengið slæmsku í
hálsinn af ýmsum orsökum, án þess að
það þurfi penisilín til þess að bæta þar
úr.
Það er alltaf áhætta viðpenisillin-
gjafir. Bakteriur mynda mótefni gegn
lyfinu og verða smám saman ónæmari
fyrir penísillíngjöf. Sé penísillin notað í
óþörfum tilfellum kann það að hafa
alvarlegar afleiðingar ef lyfsins verður
verulega þörf síðar meir.
Það hefur ekki verið upplýst um
hvaða lækna er að ræða, en Ijóst er að
þeir hafa ekki sýnt þá aðgát, sem þeim
ber að sýna,” sagði Sörensen.
Skýfall i Róm
Miklar rigningar hafa verið 1 Róm að undanförnu, nánast skýfall. Margar götur
eru eins og árfarvegir og kljúfa bílarnir vatnið eins og fjöldi smábáta. Þessi mynd
var tekin i miðborg Rómar og sýnir ástandið. Kirkjan í baksýn er Kirkja vorrar
frúar frá Loreto.
Sex daga glasa-
barni lidur vel
— heitir Durga eftir trúargyöju Hindúa
Hinu sex daga gamla stúlkubami sem
getið var i tilraunaglasi í Kalkútta á
Indlandi heilsast vel og hefur verið
nefnt Durga eftir trúargyðju Hindúa,
sem vann bug á óvætti í nautslíki. Var
það afi hennar sem skýrði frá þessu, en
að sögn dvelst hún á sjúkrahúsi þar sem
hún sýgur brjóst móður sinnar eins og
hvert annað venjulegt barn.
Tvisvar áður höfðu læknar reynt að
valda þungun hjá móðurinni áður en
það heppnaðist. Móðirin er þrjátiu og
eins árs. Læknarnir tveir, sem stóðu
fyrir aðgerðinni, hafa ekkert viljað láta
hafa eftir sér um málið en segjast ntunu
gefa skýrslu til vísindaráðs lands síns.
Þeir hafa þó tekið fram að engin
ástæða sé til að efast um réttmæti
frásagna af getnaði glasabarnsins.
Móðurinni leið ekki vel i gær og var
haldin ógleði, sem læknar sögðu að ekki
væri óeðlilegt fyrir konu sem gengizt
hefði undir keisaraskurð.
Bandaríkin:
SPILLA NÆRINGAR-
EFNIN HEILSUNNI?
Niðurstöður opinberrar rann-
sóknarnefndar hafa ekki fært sönnur
á, að neyzla bandarískra borgara á
óþarflega næringarrikri fæðu hafi i för
með sér aukna tiðni sjúkdóma eins og
hjartasjúkdóma, krabbamein, krans-
æðasjúkdóma, sykursýki og lifrarsjúk-
dóma.
Þeirri skoðun vex þó mjög fylgi að
þarna séu einhver tengsl á milli. Hefur
ráðgjafaraðili öldungadeildar Banda-
ríkjaþings komizt að þeirri niðurstöðu
að svo sé. Hefur verið bent á, að þeim
fjármunum sem varið sé til rannsókna
á næringargildi matar sé ekki rétt
varið. Of mikil áherzla sé lögð á að
kanna næringargildið 'einvörðungu.
Ekki sé eins mikil þörf á því og fyrir
fimmtiu árum. Nú sé svo komið, að
reglur um næringarinnihald matar og
drykkjar séu orðnar of kreddubundn
ar.
Er því haldið fram að kröfum unt
næringargildi matar sé haldið fram án
þess að taka tillit til að ofneyzla nær
ingarríkrar fæðu geti haft slæmar af
leiðingar er til lengri tima sé litið. Segir
ráðgjafaraðili öldungadeildarinnar að
ofneyzla næringarefna í fæðunni geti
haft varanleg áhrif til ills á lif margra
þeirra sem nú eru að alast upp og
næstu kynslóða.
Snnna býðnr allt það besta á Kanaríeyinm
NJOTIÐ SOLRIKRA SOLSKINSDAGA
í VETRARSKAMMDEGINU
Gran Canaria,
Playa del Ingles
Eftirsóttustu gististaðirnir: Kóka, Roca Verde,
Corona Roja, Eguenia Victoria o.fl.
Las Palmas
Don Carlos, eftirsóttustu íbúðirnar, alveg við bað-
ströndina.
Tenerife, blómaeyjan fagra
íbúðir og smáhýsi í Puerto de la Cruz og á Playa de
las Americas á suðurströnd Tenerife, þar sem vetrar-
sólin er svo örugg að fólk fær endurgreidda þá ferða-
daga sem sólin ekki skín.
Nú er rétti tíminn að panta sólarferðina, hafið sam-
band við okkur strax, þvi mikið hefur bókazt undan-
farið.
Brottfarar- 13. 28. október, 17. nóvermber.
dagar: 1.8.15. 22. 29. desember.
5., 12. 19. 26.janúar.
2. 9. 16. 23.febrúar.
2. 9. 16. 23. 30. marz.
6. 13. 20. 27. apríl.
SVNNA
BANKASTRÆTI10, SÍMI29322.