Dagblaðið - 09.10.1978, Page 14

Dagblaðið - 09.10.1978, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978. Seljum í dag: Saab 96 árg. ’74, ekinn 46 þús. km, bíll i sérflokki, verð 2200 þús.' Pontiac LeMans árg. ’73, ekinn 81 þús. km, 2ja dyra sjálfskiptur með öllu, verð 3000 þús. Toyota Corolla SL árg. ’71, litað gler, ekin 78 þús. km, sportfelgur, verð 1000 þús., skipti möguleg á Saab 99 árg. ’74. Auto Bianchi árg. ’77, ekinn 34 þús. km, verð 1700 þús. Saab 95 árg. ’72, ekinn 120 þús. km, verð 1400 þús. Saab 96 árg. '12, ekinn 81 þús. km, verð 1100 þús. Saab 96 árg. ’73, ekinn 74 þús. km, verð 1500 þús. Saab 99 árg. '12, ekinn 100 þús. km, verð 1800 þús. Saab 99 árg. ’74, ekinn 85 þús. km, verð 2300 þús. Saab 99 4 dyra árg. ’74, ekinn 64 þús., km, verð 2500 þús. Saab 99 EMS árg. ’75, ekinn 47 þús. km, verð 3500 þús. B3ÖRNSSON | BiLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK Akureyri Umboðsmaður Dagblaðsins á Akureyri CV - Ásgeir R. Bjarnason Kleifargerði 3, sími 22789. mmiAÐm Oska eftir 50—70 ferm húsnæði á leigu undir kaffistofu við Grensásveg, Skemmuveg eða Smiðjuveg Kópavogi. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H-007 litla f ranska TRÖLLIÐ Höfum fengið 1979 árgerðina af þessum eftirsóttu og margreyndu SIMCA 1100. SIMCA 1100 sendibíllinn er lipurt og þolmikið atvinnutæki, sem hefur marg- sannað ágæti sitt á fslandi, enda er hann í eigu fjölmargra fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga.^ Við getum boðiðtværgerðiraf sendibílnum og eina pick-up gerð. Hafið samband við okkur strax í dag og tryggið ykkur bíl. Sölumenn Chrysler-sal sími 83330 eða 03454 ð %ökull hf. ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491 Sniðill hf., Óseyri 8 Akureyri. Sími 22255. ÍLANDI EINYRKJANS Um yf irlitssýningu á verkum Snorra Arinbjarnar íListasafni íslands Þennan mánuð stendur yfir umfangsmikil yfirlitssýning á verkum Snorra heitins Arinbjarnar i Listasafni íslands og hefur þar verið safnað saman alls 174 myndum, málverkum, vatnslitamyndum, teikningum og grafik. Hún opinberar fyrst ogfremst óvenju heillegt og einkarlegt lífsstarf og af henni hlýtur áhorfandi ennfremur að draga þá ályktun að listamaðurinn hafi verið hamingjusamur maður, — eða þá laginn við að dylja sorgir sínar og hug- arangur. Það er jafnan bjart yfir myndum Snorra og í þeim ríkir hóf- stillt lifsgleði, jafnvægi og rósemi blönduð innilegum gáska. Enginn skuggi Enginn skuggi fellur á verk hans og þá lifssýn sem þar birtist og þótt finna megi samúð og skilning á hlutskipti vinnandi fólks í myndum Snorra þá dregur hann ekki sömu ályktanir af því hlutskipti og t.d. Jón Engilberts, sem beindi skeytum gegn þjóðfélaginu. Vinnan og þorpið var höfuðviðfangsefni Snorra, en sú veröld varð ætið að lúta lögmálum myndlistarinnar og bjartsýni málarans. Það er jafnvel eins og Snorri forðist af ásettu ráði þau myndefni. sent gefiðgætu vísbendingu um sálará- stand hans, — efni eins og ástina, dauðann, einmanaleikann. Eina eiginlega konumyndin á sýningunni, Sunnlensk stúlka, frá 1949 (92) er formæfing í anda Þorvalds og ekkert er þar sagt um kveneðli fyrirsætunnar og i aðeins einni mynd annarri, 1 sólbaði (83) fjallar Snorri um samskipti kynjanna. En það málverk er svo aftur stílæfing í anda „pastorar’mynda Cézannes. Undirtónn afbrýðisemi 1 hinni stórfenglegu Upp þrepin frá 1942 (67) finnst mér ég ávallt greina undirtón afbrýðisemi og örvæntingar og sömuleiðis hef ég freistast til að sjá i vatnslitamynd Snorra, Einyrkinn frá 1942, táknræna lýsingu á eigin högum. Þetta eru að sjálfsögðu allt tilgátur, en nauðsynleg- arsamt. Myndir Snorra benda sem sagt ekki til þess að höfundur þeirra hafi verið heilsutæpur alla ævi og mjög veikur hin síðari ár og sömuleiðis var hann utan við allt venjulegt fjölskyldulíf seinni hluta ævi sinnar og bjó með bróður sínum, sem annaðist hann. Snorri virðist einfaldlega hafa lifað fyrir listina. íslenska þorpið Fyrstu teikningar hans í skóla- kompum bera ekki vott um neina sér- staka hæfileika til lista, enda var teikning. hrein og klár, ávallt veika hliðin á Snorra. Þegar kemur út í fyrstu málverk hans, frá ca 1915—20, þá fer að bera á einhverjumneista. Þau eru af landslagi og eru sérkennilegur blendingur af formlegri nákvæmni Þórarins Þorlákssonar og birtu „effektum” Ásgríms og sýnt er að hinn ungi listamaður leggur mikið upp úr fastri byggingu mynda. Líklega hefur það verið á Blönduósi þar sem hann dvaldist gjarnan á sumrin hjá ættingjum, að Snorri fór að sjá þá myndrænu möguleika sem lágu í hinu íslenska þorpi og smábæ. Þetta var árin 1922—23 en frá árunum 1920 til 1929 eru vart til nema örfá verk eftir Snorra enda var hann við nám á því tímabili, í Kaupmannahöfn frá 1923—24 og 1927—29 í Osló. Skrásetning verður tjáning En það er merkilegt að hann virðist nokkurn veginn hafa gert upp við sig hvert hugurinn stefndi áður en hann hélt út i framhaldsnám, ef marka má mynd eins og Frá Blönduósi frá 1922. Þar hafa áhrif Þórarins horfið fyrir expressjónisma Jóns Stefánssonar þar sem litum er raðað saman i blökkum eftir því sem hughrif málarans krefjast. Skrásetning vikur fyrir tjáningu eins og í verkum svo margra annarra íslendinga á þessu tímabili. Snorri er einnig farinn að nota talsvert knappt sjónhom á þessum tima, sem er annað merki um þroska. Enn leið nokkur timi þangað til þessar hug- ntyndir báru fullan ávöxt í myndurn Snorra, þ.e. um og eftir 1928, þannig Telpa með hest, 1944, olía. f

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.