Dagblaðið - 09.10.1978, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
15
að hann getur varla talist sérlega
bráðþroska listamaður.
Ljóðabálkur
En eftir Noreg byrjar Snorri að
blómstra, fyrst í vatnslitamyndum og
svo i málverkum eins og Póstskipið
kemur (18), sem er nokkurs konar
upphaf ljóðabáks Snorra um mannlíf
í íslenska þorpinu. 1 því efni slær
honum enginn við.a.m.k. ekki innan
málaralistar okkar, en finna má
ákveðna samsvörun við islenska
Ijóðlist milli stríða. Eins og flestum er
Ijóst og tíundað hefur verið hér að
ofan þá var umfjöllun Snorra á
aðstæðum öllum ekki raunsæ, heldur í
hæsta máta rómantísk. Þvi mætti
e.t.v. segja að fátækt og örbirgð
þessara ára komi ekki fram i verkum
Snorra og sé hann ekki eins
marktækur fyrir vikið. Slik sjónar-
mið eiga að sjálfsögðu rétt á sér út frá
vissum forsendum. En var í raun hægt
að ætlast til þess af draumlyndum og
næmum listamanni eins og Snorra, að
hann gerðist skrásetjari? Ég held ekki.
aðrar, — safameiri, ef nota má það
orð.
Næsta skref Snorra var svo sér-
staklega athyglisvert og sýnir hve vel
hann var með á nótunum. Þá voru
Septemsýningarnar að hefjast og
afstraktið í loftinu og verk Snorra
sjálfs verða æ einfaldari frá ca 1947—
8. Við fylgjumst með því hvernig hann
hreinsar myndflötinn þangað til
næstum ekkert er eftir nema sterkir,
litaðir fletir. Þessar myndir bera hlut-
læg nöfn og sýna að hlutveruleikinn
var málaranum enn i huga, en þegar
kemur að myndum eins og Múrverk
1948 (87), Við sjóinn 1948-50 og loks
Málverk 1947—49 (98), þá er
ómögulegt annað en ætla að Snorri sé
á valdi hins óhlutbundna.
Afneitun
afstraktsins
Síðustu ár sín varð Snorra ekki
mikið úr verki sökum veikinda, en það
sem hann gerði var með sömu
Sjálfsmynd, olfa.
Einyrkinn, 1945, vatnsl.
Einstök
innsýn
1 staðinn litur hann á líf og starf í
þorpinu sem eina heild, samfléttaða og
Ijóðræna og miðast öll list hans að því
að festa á léreft þá lífssýn. Öll
niðurröðun litflata og samstilling lit-
anna sjálfra þjónar henni dyggilega.
Slíkt er kannski hægt að gera eftir
reglum, en öll vinna Snorra var
tilfinningaleg og hjálpaði það einnig
að hann hafði einstaka innsýn í eðli
lita. Litrænt séð er varla til slæm
mynd eftir hann. Þegar liður á þriðja
áratuginn verða litir hans dýpri og
hreinni og formskipunin einfaldari,
bæði i málverkunum og vatnslita-
myndunum og þegar kemur fram yfir
1940 verður túlkun hans á nánasta
umhverfi sínu allt að því episk: Telpur
með brúðu 1943, Þvottaborð
málarans 1944 og Guli glugginn
1944-45.
Yfirí
afstraktið
í þessum myndum eru einhver
tengsl við vin Snorra, Þorvald Skúla-
son, en litaáherslur Snorra eru allt
einkennum og eldri verkin, hlutbundin
og rómantisk, þannig að hann afneitar
afstraktinu endanlega.
Þessi yfirlitssýning er mikill
viðburðursérstaklega fyrir okkur yngri
kynslóðina, því ekki hafa svo mörg
verk eftir Snorra sést saman um árabil
og er upphengingin sjálf nokkuð góð
þótt skelfing sé ankannalegt að lenda
allt í einu inni í einu herbergi með úr-
vali verka eftir aðra málara svona á
miðri sýningunni. Og hvenær skyldi
Listasafninu lærast að gera lista-
mönnum verðug skil?
Vantar ræki-
lega úttekt
Það er einfaldlega ekki nóg að safna
saman myndum þrem vikum fyrir
sýningu og hengja þær upp í snarhasti.
Safninu ber að gera rækilega úttekt á
lífsstarfi og skoðunum listamanna í
sýningarskrá i stað þess að prenta í
sifellu smábæklinga með almennum
athugasemdum og nokkrum myndum.
Hefði það t.d. ekki verið gagnleg og
góð lesning að fá lýsingar Þorvalds
Skúlasonar á námsárum þeirra Snorra
og persónuleika hans? Þessar handa-
hófssýningar safnsins eru að verða
óþolandi.
í-roS'l
Hæsti
vinningurinn
í desember verða hæstu
vinningarnir dregnir út. 9
fimm milljón króna vinningar
eóa samtals 45 milljón
krónur á eitt númer.
Endurnýjaðu strax í dag til
að glata ekki vinnings-
möguleikum þínum.
10. flokkur
18 @ 1.000.000.- 18.000.000,-
18 — 500.000- 9.000.000-
324 — 100.000- 32.400.000,-
693 — 50.000,- 34.650.000,-
9.279 — 15.000- 139.185.000-
10.332 233.235.000-
36 — 75.000,- 2.700.000,-
10.368 235.935.000,-
Við drögum 10. október.
/
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Hæsta vinningshlutfall í heimi!