Dagblaðið - 09.10.1978, Blaðsíða 16
OPIÐHÚS
Bahá’í-kynning
Kynning verður á eftirtöldum stöðum á
Bahá’í-trúnni:
Kópavogi:
Miðvikudaga kl. 20 að Hrauntungu 60 (neðri hæð).
Hveragerði:
Þriðjudaga kl. 20 að Varmahlíð 38.
Kefiavik:
Fimmtudaga kl. 20 að Túngötu 11.
Ólafsvík:
Mánudaga kl. 20 að Hjallabrekku 2.
Reykjavík:
Föstudaga kl. 20.30 að Óðinsgötu 20.
Hafnarfirði:
Mánudaga kl. 20.30 að Gunnarssundi 8.
Njarðvík:
Mánudaga kl. 20.30 að Kirkjubraut 32,1-Njarðvík.
Frá lífeyrissjóóum
opinberra starfsmanna
Hinn 1. janúar 1979 munu taka gildi nýjar reglur um
ákvörðun iðgjalda, er sjóðfélagar í Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins, Lífeyrissjóði barnakennara og Lífeyris-
sjóði hjúkrunarkvenna greiða vegna réttindakaupa í
nefndum sjóðum fyrir starfstíma, sem iðgjöld hafa ekki
verið greidd fyrir áður, en fullnægja skilyrðum um rétt-
indakaup í sjóðunum.
Iðgjöld verða ákvörðuð þannig:
a. Þcgar um cr að ræða starfstfma fyrir 1. janúar 1970, reiknast ið-
fijöld cins og sjóðftlagi hcfði allan tímann haft sömu laun og hann
hcfur, þcgar réttindakaup cru gcrð og greidd. Ekki rciknast vextir
á iðgjöldin.
b. Fyrir starfstíma frá 1. janúar 1970 og síðar rciknast iðgjöld af
launum sjóðfclaga eins og þau hafa verið á hverjum tíma á því tima-
bili, scm réttindakaupin varða. Á iðgjöld reiknast vcxtir til
grciðsludags.
Reykjavik 3. október 1978
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Lifeyrissjóður barnakennara
Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna
Tryggingastofnun rikisins
Þurrkur alla daga
— jafnvel þótt rigni —
Creda
tauþurrkari
er nauðsynlegt hjálpartæki á
nútima heimili.
20 ára farsæl reynsla sannar
gæðin.
Um 4 gerðir er að ræða af TD
300 og TD 400.
Góð ábyrgðar-, viðgerðar og
varahlutaþjónusta.
Fæsthíá
RAFHA, Háleitisbraut 68, sími rU\.VetÖ
84445, og hjá okkur á Ægisgötu 7. VV'\ref'9'"s^T
Sími sölumanns 18785.
Raftækjaverslun íslands h.f.
Ægisgötu 7 — Símar 17975 — 17976.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
Ánauð
Svo er bókin lesin i einum rykk og á
eftirerhugsað:
Kallhlúnkurinn hann Guðmundur
skipstjóri á ekki sjö dagana sæla. Lif
hans er ánauð. Þrútinn af svefnleysi
keniur hann heim eftir margra sólar-
hringa 'eltingarleik við fiskinn á
miðunum, staðráðinn i að halda afla-
meti sinu. Hann hefur kannski skvett i
sig úr einu glasi áður en hann skundar
á heimamið — til Önnu Dóru — og
veiðinni þarf að ná á mettíma, þvi að
stoppið er stutt. Þvi fer sem fer.
Bók
menntir
RannveigG.
Andlegt volæði
Aðalpersónan, Anna Dóra. er ákaf-
lega sannfærandi og á vissulega
margar stallsystur. Það er hreint ótrú-
legt hve vel höfundi tekst að lýsa kven-
legum hugsanagangi hennar. öryggis-
leysi mitt i velmegun, andúð á hrotta-
fengnum eiginmanni, löngun eftir að
einhver þarfnist hennar og þeirri
breytingu sem hún tekur i gegnum
söguna frá andlegu volæði að meira
sjálfsöryggiogfestu.
Aukapersónur eru eftirminnnilegar
og athyglisverðar. í fáum orðum lýsir
höfundur heilli mannsævi. Dóri bóki,
sem vann sér til óbóta og var settur á
Klepp. Siðar kemur fram að þetta var
allt út af kvenmanni. Gestur keila,
sem hafður var að háði meðal þorps-
búa allra, fyrirfer sér vegna þess að
kona (Fanney) hlustar á hann eina
nótt. Stefán gamli blindi þurfti að ala
upp hórbarn konu sinnar (Guðmund
skipstjóra) en þetta gefur höfundur i
skyn i tveimursetningum (bls. 136).
Feministabók
Og lestur hefst. — Seyðisfjörður:
....grá regnský sem héngu niður i
miðjar fjallshlíðarnar og mynduðu
samfellt þak yfir fjörðinn. Úlpu-
klæddur maður gekk hálfboginn i átt-
ina að frystihúsinu, eins og hann væri
hræddur um að rcka sig upp undir
þetta litlausa lofl.” (6). Þetta er um-
hverfi höfuðpersónunnar, Önnu
Dóru. sem vaknar i byrjun bókar i
einu svitakófi með ákafan hjartslátl og
verk í móðurlífi . . . töflurnar hættar
að verka. — En brátt snarast skipstjór-
inn inn. eiginmaðurinn. og vill hafa
sitt. í viðureign þeirra verður Önnu
Dóru að orði: ,.Þú ert kannski kominn
heini til þess að landa í mig einu sinni
enn . . . hvort sem mér líkar betur eða
verr?” (15).
„Kúgunt konuna." eins og
Eyvindur sagði. Ekki ber á öðru. þetta
verður feministabók af fyrstu gráðu.
púngQrinn hennar (væri) leiðinlegri en
heill togarafarmur... og svo niskur
að hann tínidi ekki einu sinni að fara á
sjómannadagsballið i vor” (82). Eða
þá hún Sigga, sem var svo feit og
skemmtileg en spurði þegar hún var
orðin vel hífuð af hverju hún gæti ekki
verið eins falleg og þessar stelpur í
dönsku blöðunum með mjóu lærin og
stinnu brjóstin. Eða þá hún Ása. sem
var leynilega skotin í manninum
hennar Jónu. þessunt hrútleiðinlega:
„Já . .. Vitiði það, að þegar ég mæti
honum úti á' götu, get ég ekki stillt
mig- um að reyna að ímynda mér
hvernig hann liti út þegar hann er
ber. .. ”
Selflutningur
Það á við um allar þessar konur sem
Fanney segir við Önnu Dóru: „Þú ert
alin upp eftir hugmyndum karlmanns-
ins og þér er ætlað að lifa sem kona í
auðvaldsþjóðfélagi þar sem karlmenn
ráða öllu" (139). Anna Dóra orðar
sömu hugsun þannig: „Maur var alinn
upp til þess að verða eldhúsmella og
ekkert annað, og ég veit það, að á
mínu heimili kom aldrei til greina að
ég menntaði mig eitthvað” (138).
Fanney vill losa Önnu Dóru undan
kúgun eiginmanns sins og fá hana með
sér suður. þar sem þær geti búið
saman i kommúnu. Anna Dóra hugsar
málið og segir við Fanneyju: „En
hvað get ég gert ef ég fer með þér?
Verður það ekki bara selflutningur frá
einum vaskanum til annars?” 1141).
Nei, lausn Guðlaugs er auðsjáan-
lega ekki sú að konur flytji saman og
fari að búa eins og hjón, það verður
sama hjónabandsmunstrið: Annar
hvor aðilinn kúgar hinn.
Listavel skrifuð
Miklu nær er að taka orð Önnu
Dóru sem endurspeglun á afstöðu höf-
undar:
„Ég held að við getum ekki enda-
laust skellt skuldinni á karlmennina,
... Þetta er ekki svona auðvelt. Mér
finnst það fyrst og fremst vera sjálfum
okkur að kenna hvernig við erum. ekki
síst eftir að við höfum gert okkur grein
fyrir óréttlætinu. Það erum við kon-
urnar sem kúgum hvor aðra með því
að geta ekki staðið saman... Ef ein-
hverjum finnst hann vera kúgaður, þá
á hann að berjast á móti því, alveg
sama hvort það er karlmaður eða
kvenrhaður.”(l39).
Þessi saga leynir á sér. Hún er
skrifuð frá sjónarhóli konu og til full-
tingis konum i jafnréttisbaráttunni.
Hún sýnir lika að konur verða aldrei
frjálsar einar og sér. Þvi aðeins verða
þær frjálsar að mennirnir þeirra, ást-
menn, eiginmenn, synir, verði frjálsir
undan ofurþunga þeirra væntinga sem
kapitalískt samfélag gerir til þeirra.
Hér er ekki á ferðinni neinn femin-
ismi. Þetta er jafnréttisbók. spennandi.
litrik samfélagslýsing, listavel skrifuð
og timabær.
Rannveig G. Ágústsdóttir
AÐ LANDA í
KONUNA SÍNA
Guðlaugur Arason:
ELDHÚSMELLUR, skáldsaga.
Mól og menning, Reykjavik 1978.
Þula útvarpsins les kvöldfréttir:
Dómnefnd var sammála um að veita
skáldsögunni Eldhús .. . (þögn, siðan
hvisl) MELLUR . . . verðlaunin.
Hlustandi sperrir eyrun. Hvað er kon
an að segja sem hún þó varla þorir að
segja? EldhúsMELLUR? Er það nenia
von hún stami.
Þetta var þriðjudaginn 20. septem-
ber 1978 og strax daginn eftir fer
maður og kaupir sér nýju verðlauna-
söguna hans Guðlaugs.
Eins og venjulega gerir maður sér
hugmyndir um ólesna bók: Jafnréttis-
bók — skrifuð af ungum manni sem
verið hefur i Danmörku undanfarið
innan uni flóð kvennabóka á borð við
„Fri os fra kærligheden" eftir Suzanne
Brögger og „Creme Fraiche” eða
„Brud" eftir Bente Clod, allar þessar
sjokkerandi bækur sem neyða mann
til að horfa öðruvisi á heiminn.
Hvernig skyldi íslendingnunt takast
til?
fólks verða átök sem varpa skýru Ijósi
á lifið í litlu sjávarplássi á íslandi — á
það hvernig vinnuþrælkunin leikur
þelta fólk og rænir það allri lifsgleði, á
það — hvernig „Að peningar skipta
ekki máli fyrir þá manneskju sem þarf
að berjast fyrir tilveru sinni allt sitt líf”
(Anna Dóra bls. 97). og ennfremur á
það að „Það er viðar óréttlætið en á
milli karla og kvenna” (84).
Fanney er flókin persóna og vissu-
lega hefur höfundur ást á henni. En
hún er verkfæri hans til að kryfja þjóð-
félagið. Þess vegna verður hún að
segja óþægilega hluti. Hún hegðar sér
einnig eins og litill kúgari og á margt
sammerkt með Guðmundi skipstjóra.
Bæði dragast þau að Önnu Dóru, bæði
vilja þau beygja hana undir sinn vilja
þótt með nokkuð ólikum hætti sé. Sitt
i hvoru lagi koma þau t.d. að auðu
húsi og verða gröm yfir að Anna Dóra
er ekki heima, ekki til reiðu.
Agústsdóttir
Fanney er hreyfiafl sögunnar. Hún
kemur eins og sviptivindur að sunnan
og setur allt á hreyfingu. Hún er ung,
29 ára, kommi (ekki Alþýðubandalags-
bleyða), hefur lesbískar tilhneigingar,
er fráskilin móðir.
Lítill kúgari
Gegnum hana fær lesandi kennslu-
stund i stéttarlegum og kynferðisleg-
um jafnréttishugsjónum, því þetta
tvennt verður ekki aðskilið eins og
Fanney segir. Milli hennar og heima-
Óborganlegar
lýsingar
Lýsingu kvennanna hagar hann
öðruvisi. Hann stefnir þeim saman i
frystihúsinu eða saumaklúbbnum.
Þessar aukapersónur Guðlaugs eru
óborganlegar, hann hefur samúð með
þeim og lýsir þeim af glettni um leið og
hann dregur fram kosti þeirra og galla.
T.d. Jóna hans Tona, sem var „ein
af þessum trúuðu frystihúsakellingum
sem ýmist kölluðu á guð eða andskot-
ann til fylgis við sig, allt eftir þvi
hvernig stóð i bólið hjá þeim” (81) sem
sagði um Tona sinn að „helvítis kall