Dagblaðið - 09.10.1978, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
Staða skólastjóra
Verzlunarskóla íslands
Staða skólastjóra Verzlunarskóla íslands er
laus til umsóknar. Ráðningartími er frá og með
1. júní 1979. Ráðgert er að væntanlegur skóla-
stjóri kynni sér kennslu í viðskiptafræðum
erlendis fyrir næsta skólaár er hefst 1.
september 1979. Þá er einnig æskilegt að
umsækandi geti annazt kennslu í viðskipta-
greinum.
Launakjör eru samkvæmt kjara-
samningi Félags menntaskólakennara.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, ásamt greinargerð um
ritsmíðar og rannsóknir, skulu sendar skóla-
nefnd Verzlunarskóla íslands, Laufásvegi 36,
Reykjavík, fyrir 1. desember nk.
Skólanefnd Verzlunarskóla Íslands.
Bátalónsbátar
Höfum til sölu 2 mjög vel útbúna 11 tonna Bátalónsbáta
smíðaða árið 1972 og 1975. í eldri bátnum er m.a. 120
hestafla P.M. vél, keyrð 5 þús. tíma, radar, dýptarmæl-
ir, fisksjá, sjálfstýring, línu- og netaspil ásamt tilheyr-
andi. Trollspil ásamt gálgum og rúllum, 6 rafmagns-
handfæravindum, 2 eignartalstöðvar. Bátnum fylgja 4
netatrossur ásamt tilheyrandi (með blýteinum) auk þess
60—70 net og blýteinn fyrir 20 net. Útb. 6—6 1/2 millj.
Nánari uppl. um bátana gefur:
EiGNAVAL SF.
Suðurlandsbraut 10.
Simi 85650.
Heimasimi sölumanns 13542.
Háskóla
Val/artorgi —- Áusturstræti $
við Austurvöif imr,,r l
Suðureyrarhreppur:
Hagkvæmara að
ráða útlendinga
Hreppurinn tapar 9.4 millj. í útsvarsgjöldum til annarra sveitarfélaga
Suðureyri.
„Ég fékk fyrirtæki til að taka saman
hvað aðkomumenn aðrir en útlendingar
fengju mikil laun hér á Suðureyri sem
þeir tækju svo með sér heim og greiddu
af útsvar i sínu sveitarfélagi. Upphæðin
nam 85 milljónum árið 1977 og með
11 % útsvari gerir það um 9,4 milljónir i
útsvarsgjöld.” sagði Kristján Pálsson
sveitarstjóri á Suðureyri við Súganda-
fjörð i viðlali við DB fyrir skömmu.
„Ef sveitarfélagið hér fengi þessi gjöld
þá þýddi það 18% aukningu á útsvars-
tekjum. Álagt útsvar hér á siðasta ári
var 52 milljónir króna."
En hefur Suðureyri einhverja sér-
stöðu hvað þetta varðar?
„Já, ég mundi segja að þetta væri dá-
lítið sérstakt hér. Hingað kemur alltaf
mikið af aðkomufólki einkum á sumrin.
mest af Reykjavikursvæðinu og af
Suðurnesjum. Það hefur komið fyrir að
greiðslur til þessara aðila hafa verið allt
að helmingur af öllum vikulaunum. Það
er mikið hagstæðara fyrir sveitarfélögin
að hafa útlendinga i vinnu þvi að þeir
greiða af sínum laununi hér. Hér voru á
síðasta ári 33 útlendingar. viðs vegar að
úr heiminum. t.d. frá Nýja-Sjálandi.
Ástraliu, Ródesíu og S-Afriku, og senni-
legt er að svipaður fjöldi útlendinga
verði hér i vetur."
Hvað erumargir aðkomumenn þarna
á sumrin?
„Það cr voðalega breytilegt en ég er
hér t.d. með tölur frá Fiskiðjunni
Freyju, sem er eina fyrirtækið sem eitt-
hvað kveður að hér. Það hefur á einni
viku greitt laun til 127 launþega. Þar af
eru 45 aðkomumcnn sem tóku í laun 4
milljónir af þeim 9 milljónum sem fyrir-
tækið greiddi í laun þá vikuna. Hér eruni
við að missa útsvarstekjur til annarra
sveitarfélaga. Mér finnst ekki óeðlilegt
að við njótum þess. að við erum að
halda uppi atvinnu sem aðrir virðast
ekki geta. Með staðgreiðslukerfi skatta
væri mjög auðvelt að leiðrétta þetta á
þann hátt, að sveitarfélögin fái alla út-
svarsálagningu af þeini tekjum sem
þaðan eru teknar. Ég skil vel að staðir
eins og Seltjarnarnes og Garðabær séu
ekki hrifnir af slikum hugmyndum.
staðir sem veita nánast enga atvinnu. Ég
teldi hins vegar eðlilegast að þessir staðir
santeinuðust Reykjavík."
Hafið þið eitthvað hreyft þessum mál-
um?
„Við höfum vakið niáls á þessu
vandamáli á fundum Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga, en það hefur ekki
borið árangur. Þá hef ég einnig sótt um
styrk út á þetta frá jöfnunarsjóði sveitar-
félaga. og ég get aðeins sagt. að ég vona
hið bezta," sagði Kristján Pálsson.
sveitarstjóri á Suðureyri að lokum.
- GAJ
$ \
GM-Vetrarþjónusta
CHEVROLET BUICK VAUXHALL OPEL
1. Mótorþvottur
2. Rafgeymasambönd hreinsuð
3. Mæling á rafgeymi og hleðslu
4. Skipt um loftsíu
5. Skipt um platínur
6. Skipt um kerti
7. Viftureim athuguð
8. Kúpling stillt
9. Kælikerfi þrýstiprófað
10. Skipt um bensínsíu í blöndungi
11. Frostþol mælt
12. Mótorstilling
13. Öll Ijós yfirfarin og aðalljós stillt
14. Hemlar reyndir
15. Stýrisbúnaður skoðaður
16. Rúðuþurrkur og sprauta athuguð
Verð: 4 strokka vél kr. 20.549.—
6strokka vél kr. 22.488.—
8 strokka vél kr. 24.186.—
Gildir9/10—1/12
Efni, sem innifalið er í verði:
Kerti, platínur, frostvari, bensínsía og loftsía
SAMBANDIÐ VELADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.: 85539