Dagblaðið - 09.10.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
23
Kortsnojvannaftur:
Rafmögnuð
spenna
í Baguio
Kortsnoj sVndi enn á ný að enda-
taflstækni hanseru engin takmörk sett,
er hann sigraði Karpov í 29. einvigis-
skákinni setn lauk i gær. Þegar skákin
fór í bið á laugardag var staðan mjög
óijós, þó flestir hafi hallast að því að
Kortsnoj hcföi betri möguleika. Kortsnoj
sjálfur var fullur sjálfstrausts og þegar
aðstoðarmenn hans spurðu hann hvor
hefði betri stöðu, svaraði hann:
„Auðvitað ég!” Þegar tekið var til við
skákina að nýju kom i ijós að hann hafði
lög að mæla! Hann jók stöðugt yfirburði
sína og tefldi snilldarvel þrátt fyrir
geigvænlegt timahrak. Eftir 79 leiki
mátti Karpov síðan gefast upp og
Kortsnoj hafði náð að minnka muninn
niður í 5—4. Kortsnoj hefur þá unnið
tvær síðustu skákir og spennan í
einviginu eykst stöðugt. Sá hlýtur heims-
meistaratitilinn, sem fyrr vinnur 6
skákir.
29. einvígisskákina átti upphaflega að
tefla á þriðjud, en var frestað vegna raf-
magnsleysis. Þá átti að tefla hana á
fimmtud. en Korlsnoj frestaði því hann
hafði krækt sér í kvef ogaðaukisól
brunnið á nefninu. Skákin hófst síðan á
laugardag og fór rólega af stað. Kortsnoj
tefldi hægfara byrjun, sem ekki er talin
mjög hættuleg svörtum. Engu að síður
náði hann rýmri stöðu og beindi
spjótum sínum að veikleika svarts á c5.
Karpov varðist þó vel og um tima var
allt útlit fyrir jafntefli. í 34. leik lék
Kortsnoj hins vegar til skarar skríða og
hóf kröftuga sókn, en á kostnað peða-
stöðu sinnar. Eftir bið tefldi hann síðan
snilldarvel og yfirspilaði heimsmeist-
arann á sannfærandi hátt.
29. einvigisskákin Knskur leikur.
Hvítt: V. Kortsnoj
Svart: A. Karpov
1. c4 Rfó 2. Rc3e6 3. e4
Þessi leikur hefur ekki skotið upp
kollinum ieinviginu fyrr. Kortsnoj hefur
ávallt leikið 3. d4 eða 3. Rf3, eftir því
hvort hann hefur viljað tefla Nimzoind-
verska vörn eða drottningarbragð.
3. — c5.
í skák sinni við Farago, Hastings
1976—77, náði Smyslov mun betri
stöðu eftir 3. — d5 4. e5 Rfd7 5. exd5
exd5 6. d4 c5 7. Rf3 Rc6 8. Bb5!
4. e5 Rg8
Það litur svo sannarlega ekki
gæfulega út fyrir svartan að þurfa að
bakka með riddarann upp i borð aftur.
Hann telur sig hins vegar hafa lokkað e-
peðið fram og hyggst ráðast gegn þvi
seinna meir, með...d6 o.s.frv.
5. d4
Nú í seinni tið hefur peðsfórnin 5. Rf3
Rc6 6. d4?! cxd4 7. Rxd4 Rxd5 verið
mjög i tísku. Hvítur fær álitleg færi fyrir
peðið eftir 8. Rdb5, en þannig tefldist
m.a. 11. einvígisskákin milli Spassky og
Hort hér i Reykjavík, eða eftir 8. Bf4!?
en þannig hefur Kortsnoj teflt með
góðum árangri. Afbrigðið sem Kortsnoj
velur nú hefur löngum verið talið
bitlaust. Enski stórmeistarinn Keene,
helsti aðstoðarmaður hans, sagði hins
vegar, að áskorandinn hefði fundið nýja
áætlun í stöðunni, sem gerði honum
kleift að tefla til vinnings.
5. —cxd4 6. Dxd4 Rc6 7. De4 d6 8.
Rf3 dxe5
Hér hafði Karpov notað hálftíma,
Kortsnoj tvær minútur.
9. Rxe5 Rf6
Bækurnar mæla með 9. — Bd7, en
Karpov vill ekki gefa biskupaparið
baráttulaust.
10. Rxc6 Db6!
Eftir 10. — Rxe4 11. Rxd8 Rxc3 12.
Rxf7 Kxf7 13. bxc3 b6 14. Be3 Ba6 er
ekki að sjá annað en svartur hafi
ágætt tafl. Framhaldið í bréfskákinni
Cafferty-Callaghan, 1972, sýndi þó
annað: 15. 0—0—0 Be7 16. c5! Bxfl 17.
Hhxfl Bxc5 18. Bxc5 bxc5 19. Hd7 +
og hvítur stendur betur.
11. Df3 bxc6 12. Be2 Bb7 13. 0—0 c5
14. Dh3 Be7 15. Bf3.
Eftir uppskiptia hvítreita biskupunum
koma veilurnar i peðastöðu svarts á
drottningarvæng betur i ljós.
15. _ 0—0 16. b3 Hfd8 17.Be3 Bc6.
Hvitur hótaði að vinna peð með 18.
Ra4 Dc7 19. Bxb7 Dxb7 20. Bxc5
o.s.frv.
18. Ra4 Dc7 19. Bxc6 Dxc6 20. Hadl
Hac8 21. Dg3 Bd6 22. Dh4 Be7 23. f3
Kf8
ikl mk 'y* m íi Ikie
JB|w fSI i ij Bjmj
m Æ j 'M
Sigurvegarar Flugleiða.
Flugleiðir sigruðu
í f irmakeppni KR
Leikið var til úrslita í firmakeppni KR
sl. laugardag. Til úrslita léku þau 9 lið,
sem um sl. helgi unnu hvert sinn riðil í
undankeppni. Úrslit leikja í úrslita-
keppninni urðu sem hér segir:
Ásfell — SláturfélagSuöurlands
Undanúrslit:
Kristján ó. Skagfjörð — Ásfell
Flugleiðir — Shell
Leikur um 3. sæti:
Kristján Ó. Skagfjörð — Shcll
Úrslitaleikur:
4-3
2- 3
3- 0
4- 2
Forkeppni:
Ásfell — Endursk. skrifst. Bjöms E. Ámas. 1—0
8 liöa úrslit:
Kristján Ó. Skagfjörð — Trésm. Reykjav.borgar 5—0
Flugleiðir — Sementsverksmiðjan 4—0
Málun — Shell 0—1
Flugleiðir — Ásfell 3—0
Sigurvegari var þvi Flugleiðir og hlutu farandbikar
þann. sem um var keppt og litinn bikar til eignar.
Liðin i 2. og 3. sæti hlutu einnig bikara og leikmenn i
tveimurefstu liðunum hlutu verðlaunapeninga.
Að sjálfsögðu ekki 23. — Rd5?? 24.
cxd5 og drottning svarts er einnig í
uppnámi.
24. Df2 Hxdl 25. Hxdl Dc7
Hvitur stendur greinilega betur vegna
veikleika svarta peðsins á c5. Hann
getur hins vegar vart bætt stöðu sína
öllu meira og kýs því að freista
gæfunnar i endatafli. Þegar hér var
komið sögu áttu báðir keppendur um
50 minútur eftir af umhugsunartima sin-
um til að ljúka 40. leiknum.
26. Dg3! Dxg3 27. hxg3 h5! 28.KÍ2 Kc8
29. Ke2 g6 30. Rc3 a6 31. Ra4 Ilc6 32.
Hhl Bd6 33. Bf2 Rd7
Svo er að sjá sem skákin sigli nú
hraðbyri í jafnteflishöfn, því hvorugur
virðist geta aðhafst nokkuð af viti. Með
næsta leik sinum tekur Kortsnoj hins
vegar af skarið.
34. g4!?
Djarflega leikið — sérstaklega ef tekið
er tillit til þess, að aðeins ein mistök
gætu kostað áskorandann heimsmeist-
aratitilinn, H-linan opnast nú hvitum i
hag, en á móti kemur að peðastaða hans
veikist mjög.
34. — hxg4 35. Hh8+ Kc7 36. fxg4 g5
37. Be3 f6 38. Rc3.
Hvitur hefur fengið aukið athafna-
frelsi fyrir menn sína og nú bætir hann
stöðu riddarans.
38. — Kf7 39. Hh7 + Ke8 40. Re4 Be7
Hér fór skákin i bið. Nokkuð skiptar
skoðanir voru meðal „sérfræðinganna" í
Baguio um það hvor stæði betur. Þó
voru flestir á því að hvitur hefði betra
tafl, því menn hans eru mun virkari og
veikleikinn á g4 hefur ekki það mikið að
segja.
41. Hh6
Kortsnoj hugsaði í 36 mínútur um
biðleikinn og var því þegar kominn i
tímahrak!
41. — Kf7 42. Hh7+ Kf8 43. Hh8 +
KI7 44. Bd2.
Þessi leikur kom „sérfræðingunum”
mjög á óvart, sem frekar höfðu búist við
44. Ha8. Kortsnoj finnst aftur á móti
mikilvægara að koma biskupnum i betri
stöðu.
44. -RÍ8
44. — Re5 er svarað með 45. Rf2
ásamt46. Bc3 o.s.frv.
45. Hhl Kg646. Hdl f5
Karpov reynir að gera sér mat úr
peðameirihluta sinum á kóngsvæng, en
leikurinn hefur hins vegar þann ókost að
hvitur losnar við veikleikann á g4.
47. Rf2 Bd6 48. Bc3 Rd7 49. gxf5 +
exf5 50. g4! Rh6 51. KD Be7.
Biskup svarts er hálfgerður vand-
ræðagripur. því hann hefur ekkert til
að bíta á nema sín eigin peð. Þar að auki
er peðastaða svarts ekki mjög traust-
vekjandi, hviti hrókurinn ræður yfir
d-linunni og menn hvíts standa að öllu
leyti betur. Hvitur hefur því greinilega
undirtökin.
52. Ba5 Hf6 53. Kg2fxg4
Leikið eftir 15 minútna umhugsun.
Karpov álti nú um 20 minútur til að
ljúka þremur leikjum. en Kortsnoj átti 4
mínútur.
54. Rxg4 He6 55. Kf3 Bf6 56. Rxf6
Biskup svarts hefði orðið mjög sterkur
ád4.
56. — Hxf6 57. Kg4 Rc8 58. Bd8
Svartur á erfitt lif fyrir höndum.
Riddari hans er mun verri maður en
biskup hvits og peðastaða hans er jafn
sundruðsem fyrr.
58.—Hf4+ 59. Kg3 Hf5.
Ekki 59. — Hd4? 60. Hxd4 cxd4 61.
Kg4ogpeðfellurfyrir borð.
60. a4!
Eftir 29 minútna umhugsun komst
Kortsnoj að þvi að þetta væri besta
vinningstilraunin. Svartur getur sig nú
vart hrært. Hrókurinn er bundinn á 5.
reitaröðinni til að vama 61. Hd5 og ridd-
arinn er fastur á c8 til að hindra 61.
Hd6 +.
60. — Kf7 61.Hd3 He5.
Nú fór leikurinn að æsast. Kortsnoj
átti nefnilega ekki eftir nema II minútur
til að Ijúka 72. leiknum. Karpov átli hins
vegar um 40 mínútur eftir.
62. Kg4 Kg6 63. a5 He4+ 64. KB
Hf4+ 65. Ke3 Hh4.
Ef 65. - Hf5 þá 66. Ke4 Hf4+ 67.
Kd5 og hvíti kóngurinn ryðst inn fyrir
víglinuna.
66. Hd5!
Þrátt fyrir að Kortsnoj hafi nú aðeins
átt eftir 2 minútur á næstu 8 leiki teflir
hann snilldarvel. Heimsmeistarinn á
bókstaflega ekkert svar við markvissri
taflmennsku hans.
66. — Hh3+ 67. Kd2 Hxb3 68. Hxc5
Hb8.
Eini leikurinn til að bjarga riddar-
anum. Ef 68. — Ra7, þá 69. Bb6 og ridd-
arinn fellur, og sú verður einnig raunin á
eftir 68. — Rd6 69. Hc6.
69. Hc6+ Kf5 70. Hxa6.
Þar með hefur hvitur unnið peð og
vinningslikur hans aukast stöðugt.
Svartur hefur hins vegar nokkurt mót-
vægi i frelsingjanum á g-línunni.
70. — g4 71. Hf6+ Ke4 72. Bc7!
Auðvitað ekki 72. Hf4 + ? Kxf4 73.
Bc7 + Ke4! 74. Bxb8 Kd4 og nær
auðveldlega jafntefli. Nú hótar hvitur
hins vegar máti i einum leik, og það sem
meira er — hann er sloppinn yfir tima-
mörkin!
72. — Hb2+ 73. Kc3 Hb7 74. Bh2 Hh7
75. Bb8 Hb7 76. Bg3 Hbl 77. Hf4 +
Ke3 78. Hf8.
Einfaldast. 78. Hxg4 var að sjálf-
sögðu einnig mögulegt. en til hvers?
78. — Re7 79. a6!
— og svartur gafst upp. Ef 79. —
Rc6, þá 80. a7! Rxa7 81. Bf2+ og
Heimsmeistaramót í MASTERMIND
GRÆNT SVART blAtt RAUTT S S . .
blAtt SVART HVÍTT GULT H S . .
blAtt SVART BLATT GRÆNT S • , • •
blAtt GULT blAtt GULT H H ,. .
GULT GRÆNT GULT RAUTT s s s .
s s s s
Hér að ofan er sýnishorn af tölvuröðuðu spili, eins og þeim sem keppendur koma til með að fá. Raðið þessu
spili upp á ykkar eigið MASTER MINDogfinnið rétta lausn.
Réttar lausnir getið þið séð í gluggum PENNANS, HALLARMÚLA og FRÍMERKJAMIÐSTÖÐV-
ARINNAR, SKÓLAVÖRÐUSTÍG.
Komið og takið þátt i þessari nýstár-
legu keppni um heimsmeistaratitilinn i
MASTER MIND sem hefst laugar-
daginn 14. október kl. 10.00 i
PENNANUM, HALLARMÚLA og
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐINNI,
SKÓLAVÖRÐUSTÍG.
V
Frímerkjamiðstöðin
Master Mind-umboflið
á íslandi
David Pitt & Co.