Dagblaðið - 09.10.1978, Síða 24

Dagblaðið - 09.10.1978, Síða 24
24 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978. Bifreiðir til sölu Land Rover jeppi árg. ’66, dísil (ónýt grind), Ford Trader, 3 1/2 tonn, árg. ’66, dísil, með krana (lélegt hús), Saab árg. ’66, góð vél, nýr gírkassi (lélegt boddí). Bifreiðirnar eru til sýnis að Vesturbraut lOa Keflavík og er óskað að tilboðum sé skilað þangað fyrir 15. þessa mánaðar. Heimilt er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Rafveita Keflavíkur. —Danskennsla----------------------------- í Reykjavík, Kópavogi, og Hafnarfirði. Innritun daglega kl. 10—12 og 1—7. Börn, unglingar, fullorðnir (pör eða einstaklingar). Kennt m.a. eftir alþjóðadanskerfinu, einnig fyrir brons, silfur og gull. Nýútskrifaöir kennarar við skólann: Niels Einarsson Rakel Guðmundsdóttir Athugið: Ef þópar, svo sem félög eða klúbbar, hafa áhuga á að vera saman í tímum þá vinsamlega hafið samband sem allra fyrst. — Góð kennsla. Allar nánari upplýsingar í síma 41557. Allra síðasti innritunardagur Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS Hraðhreinsun Kópavogs auglýsir: Frá 9. október er opið frá kl. 9—12 og 13—18 mánudaga til fimmtudaga, föstudaga frá kl. 9—12 og 13—19. Hraðhreinsun og pressun, kílóhreinsun ogþvottur. Hraðhreinsun Kópavogs Borgarholtsbraut 71, sími 43290. Sauna ofnar Hinir vinsælu finnsku saunaofnar komnir aftur. Einnig tréfötur og ausur. Hagstætt verð. Benco, Bolholti4, sími21945. DÓTTIR SKÓARANS OG SONUR LEIGUBÍL- STJÓRANS ..Undirsiaðan aösönnum kúltúrcru vandaðir skór." segir Jói. sonur skóarans. í bráðfyndnu og þó um leið sorglegu leikriti Jökuls i Þjóðleikhúsinu. Hann segir þetta þegar hann cr búinn að flækjast unt hálfan hnöttinn i ákafri löngun til að drýgja dáðir i nafni frclsis og lýðræðis. en snýr heini aftur einlæglega sannfærður um að það eina sem gæti gefið lífi hans gildi sé að halda áfrant verki föður sins: að sjá til þess að þorpsbúar gangi á almennilega sóluðum skóm. „Þú hefur farið langa leið til að komast þennan stutta spöl." segir æskuunnustan, löngu gift lyfsalanum og hætt að hafa gaman af nokkru ncma sitja á leiði í kirkjugarðinum og sauma skyrtur. En hann afsakar sig: „Sumt er svo nálægt þér að þú nærð þangað ekki nema fara i öfuga átt." Þriggja ára með naglbít En sumir eru gáfaðri en aðrir. Uppi i Austurveri er 18 ára gömul skóar- dóttir, Jónina Soffia. sem ekki þurfti að fara langt út í lönd til að finna út úr þvi hvað hún vildi gera. heldur sncri sér strax að þvi sem nærtækast var. Lykt bernskunnar getur maður aldrei gleymt. segja skáldin. og lyktin af bernskunni henna Jóninu var sannarlega leðurlykt. Pabbi hennar. Sigurbjörn Þorgeirsson. hefur alla tið rekið skósmíðavinnustofu, og mamma hennar, Þórunn Pálsdóttir. oftast vcrið þar að hjálpa honum. Jónina er einkabarn svo það var enginn til að passa hana heima og hún var þá bara þarna hjá pabba og mömmu og skónum. „Mamma segir, að pinulítil budda hafi ég setið með ónýtan skó og naglbít á gólfinu og þóst vera að gera við." segir Jónína. „Ellefu tólf ára var ég oft að hjálpa pabba við léttari viðgerðir. þegar ég kom heinr úr skólanum, rífa undan ónýta hæla eða gera við litlar saumsprettur. Sautján ára ákvað ég að læra iðnina. og gera hana að framtiðarstarfi. Ég er líka i Verzlunarskólanum og ætla að taka þar stúdentspróf — rnaður verður að kunna eitthvað i bókhaldi til að geta rekið fyrirtæki ” Fyrsta stúlkan á Islandi, Jónina Soffia, sem lærír skósmiði. Bak við hana er unnustinn, Gunnar Rúnar: „Mér finnst reglulega sniðugt hjá henni að drífa sig i þetta.” DB-mynd Bjarnleifur % ■nwBamelf' ímí J 1; B 1 iii iy Vi

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.