Dagblaðið - 09.10.1978, Side 36
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
Velheppnuð byrjun á
vetrarstarfí Jazzvakningar
Velrarstarfsemi lazzvakningar
fór vel af stað siðastliðiö mánudags-
kvöld. Þá var efnt til jazzkvöldx á
Hótel Sögu þar sem tvær hljóm-
sveitir léku og vetrarstarfsemi félags-
ins var kynnt. Alls mættu um tvö
hundruð manns.
,.Það náðist prýðisgóð stemmning
þama.” sagði Jónatan Garðarsson,
ein aðalsprauta Jazzvakningar, er
hann var inntur l'rétta af jazztónlcik-
unttm. „Átthagasalurinn virðist
henta mjög vcl til starfscmi Jazz-
vakningar. Hann er hæfilega stór og
liljómh rðurinn til fyrirmyndar.
Það kemur vel til greina að nýta
þctta húsiuvði i framtiðinni."
Jazzkjallarinn að Erikirkjuvegi 11
hefur vcrið lagður niður, i bili að
minnsta kosti, þar cð ekki mun vera
grundvöllur fyrir að hafa hann op-
inn nú. Jaz.zvakning hafði haldið þar
tónleika og tónlistarkynningar um
nokkurt skeið.
Það voru hljómsvcitirnar Jaz.z
mcnn og kvartett Reynis Sigurðs
sonar sem komu fram i Átthagasaln
um á mánudagskvöld. Báðar cru
hljómsveitirnar skipaðar valinkunn-
unt jazz.leikurum sem hafa verið í
cldlinunni um langt skeið. Reyndar
hefur litið sézt framan i bassaleikara
Jazzmanna á þessum vettvangi
hingað til. Sá er Scott Gleckler og
leikur hann á kontrabassa með Sin
fóniuhljómsveit íslands.
Erlendar
heimsóknir
á döf inni
Að sögn Jónatans'Garðarssonar
var aðallcga rætt um væntanlegar
heimsóknir crlendra lónlistarmanna
i þessum og næsta mánuði, cr vctrar-
starfið var kynnt. Saxófónlcikarinn
Dextcr Gordon leikur hár á tónlcik
unt þann átjánda þessa mánaðar og i
nóvcmbcr cr von á tríói pianólcikar
ans Duke Jordan.
„Það hcfur einnig komið til tals að
ýntsir l'rægir jazzistar heimsæki
okkur á næsla ári,” sagði Jónatan.
„Það er fjöldi rnanna scnt hefur
áhuga á að heimsækja okkur þcgar
þcir fljúga ylir Atlantshafið. Þar eð
engir samningar hafa vcrið gerðir
ennþá er bezt að nefna engin nöfn að
svostöddu.”
Skemmtana-
skatturinn
Þrándur í Götu
Jónatan bætti þvi við að þó að
rnikill áhugi væri innan Jazzvakn-
ingar fyrir því að fá erlenda
skemmtikrafta í heimsókn væri þó
einn veigamikill hængur á að slikt
gcngi vel og án verulegrar fjárhags-
lcgraráhættu.
„Jazz. er ekki talinn santa menn-
ingarvara og sigild tónlist,” sagði
Jónatan. „Og nteðan viðhorf ráð-
andi manna eru slik fáuni við ekki
niðurfellingu skemmtanaskatts á að-
gönguntiðum að jazzhljómleikum.
Hún fæst liins vegar á klassiskum
hljómleikum og þar með er l'járhags-
afkoma þcirra tryggari. Við verðum
liins vegar að berjast i bökkunt og fá
ánægjuna eina að laununt lyrir
okkarstörf.”
- ÁT
leikið með þcssari liðsskipan i Jazzkjallara Jazzvakningar. DB-mynd RagnarTh. Sigurðsson.
RUTH REGINALDS
SYNGUR FURÐUVERH
Öðru hvorunt megin við næstu
hclgi kcntur á markaðinn ný islenzk
hljómplata. Þar er á ferðinni Ruth
Reginalds söngkona með sina
limmtu breiðskifu. Sú hefur hlotið
nafnið Furðuverk.
Ruth er nú orðin þretlán ára görn-
ul. Hún hefur fengizt við að syngja
inn á plötur frá þvi hún var 9-10 ára
gömul. Af plötunum hennar fimni
teljast þrjár beinharðar sólóplötur.
Einnig var hún með á Jólastrengjum
— plötu sem Hljómplötuútgáfan
sendi á markaðinn fyrir jólin i fyrra.
Á Furðuverki syngur Ruth tiu
lög. Flest þeirra, sjö talsins, eru eftir
Jóhann G. Jóhannsson. Tvö eru er
lend og eitt eftir Gunnar Þórðarson.
Það er lagið Fyrsti kossinn scm var á
fyrstu plötu hljómsveitarinnar
Hljóma á sínum tima. Jóhann G. Jó
hannsson hefur einnig samið vcl-
flesta texta plötunnar.
Ruth til aðstoðar á Furðuverki er
föngulegt lið hljóðfæraleikara. Fyrsl
skal þar frægan telja Magnús Kjart-
ansson. Hann stjórnaði upptökum
og útsetti lögin á plötunni, auk þess
að leika á hljómborð sin. Sigurður
Karl'sson sér um slagverksleik og
Pálmi Gunnarsson leikur á bassa.
Gitarleikarinn á plötunni er Friðrik
Karlsson I Tívoli og ferst honum
leikurinn vel úr hendi. Þá grípur
Björgvin Halldórsson einnig i gitar
öðru hvoru.
Aðrir hljóðfæraleikarar á Furðu-
verki Ruthar eru Sigurður Rúnar
Jónsson fiðluleikari og Halldór Páls-
son sem blæs i saxófón að venju.
Strengjasveit kemur einnig litilshátt-
ar við sögu á plötunni og hélt
Magnús Ingimarsson í hendur
hennar i myrkviðum stúdíó-
mennskunnar.
Þaðer Hljómplötuúlgáfan hf. sem
gcfur Furðuverk út. Platan er ein af
fimm sem útgáfan sendir á jólamark-
aðinn alræmda. Hinar eru sólóplata
með Björgvini Halldórssyni. ný
Brunaliðsplata, ein með barnakór
Öldutúnsskólans og loks plata þar
sem flutt eru lög eftir Magnús Sig-
mundsson við Ijóð Kristjáns frá
Djúpalæk. Um allar þessar plötur
verður fjallað i Dagblaðinu síðar.
ÁT
Ruth Reginalds sendir nú brátt frá
sér sina fimmtu breiðsklfu. Af þeim
fimm eru þrjár síðustu sólóplötur.
London-nýjasta hljómsveitin
á markaðinum
Scott Gleckler, bassalcikari
Sinfóniunnar, lék með Jazzmönnum
á mánudaginn var.
Hljómsveitin London. — Hún
er ekki enskt punkband hvað þá
heldur kammermúsikkvartett. Við
skúlum gefa einum liðsmanna
London, Guðlaugi Sigurðssyni.
orðið.
„Hljómsveitin London varð
þannig til,” sagði Guðlaugur, „að
tveir þeirra sem léku i hljómsveit-
inni Eymönnum hættu og í þeirra
staðkomu tveir Logamenn, Henry
Erlendsson bassaleikari og Ólafur
Bachmann, kunnur trommari og
söngvari. Við þessar breytingar
þótti okkur tilhlýðilegt að breyta
nafninu og köllum okkur nú
London.”
Lesendum ætti nú vonandi
flestum að vera orðið Ijóst að
London er Vestmannaeyjahljóm-
sveit. Af fimm liðsmönnum
hennar eru fjórir sem áður léku
með Logum. Auk þeirra Ólafs og
Henrys, sem fyrr eru nefndir, eru
þeir Sigurður Stefánsson trommu-
leikari og Guðlaugur, sem sér um
hljómborðaspil. Fimmti liðs-
maðurinn er Elías Angantýsson
gitarleikari, sá sami og hreppti
Chevrolet Nova bílinn sem Dag-
blkaðið bauð upp á í áskrifenda-
happdrætti sinu fyrr á árinu.
Guðlaugur Sigurðsson var að því
spurður hvers vegna hljómsveitar-
nafninu hefði ekki verið breytt i
Loga þegar svo margir Logamenn
voru saman komnir á nýjan leik í
hljómsveit.
„Ég kann varla að skýra það að
öðru leyti en því að við myndum
varla standa undir Loganafninu
núna,” svaraði Guðlaugur. „1
hugum okkar eru Logar mjög sér-
stæð hljómsveit sem tæpast verður
Elías Angantýsson gitarleikari London I Novunni sem hann vann I áskríf-
endahappdrætti Dagblaðsins.
sköpuð á nýjan leik. Við leituðum
okkur því að öðru nafni.”
London mun starfa i vetur i
samkomuhúsinu í Vestmannaeyj-
um, sem einnig gengur undir nafn-
inu Höllin. Að sögn Guðlaugs
verður lagaval allt miðað við létta
og góða tónlist .Engar áætlanir eru
uppi um að heimsækja megin-
landið á næstunni. — London tók
til starfa um siðustu helgi.
- AT
i
■