Dagblaðið - 14.10.1978, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1978.
u. c< cv u: s X X 4 X C< X X o: CV a:
Oc ■vl o: ó: k X K co X -x 43 'v ÚJ X 4 tV
4 Qc ö -4 ■4 -X X 4 4 X 4 N V: CV
k 43 X K cy -V X . 4 4 X X -4 X XI iv;
43 h K X '•u Uh 4 V X co '4 4 X X
0Q 4 QC 43 Kl X vl K X V. \ X X) X
K CSS .o -4 X T| X 4 cy X X X X X 0
\ vn -4 Uj X) '4 43 V 4 43 X N 'A X
'4 -4 X) V 4 X 4 V X :o k X
-4 u: V) N N cc K <*: (4 X X X CO K (4
X v. ■4 •4 4 43 X O (4 4 X) 4
u. fð V) -4 U4 43 Ö CC :0 X O X -X X N X
4] X '4 43
Haustmót Taf Ifélags Reykjavíkur:
Sævar með
örugga
forustu
— Fjórar umf erðir eftir á mótinu
í B flokki er hart barist um efsta
sætið. Jóhannes Gísli Jónsson og Torfi
Stefánsson eru efstir með 6 vinninga
Þegar þetta er ritað, eru aðeins 4
umferðir eftir á Haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur og í A-flokki hefur Sævar
Bjarnason tekið örugga forustu með 6
vinninga af 7 mögulegum. Næsti
maður er Bjöm Þorsteinsson með 5
vinninga, en siðan koma þeir Guð-
mundur Ágústsson og Jón Þorsteins-
son með 4 1/2 vinninga. t 5. sæti er
Björn Halldórsson, sem hefur hlotið 4
vinninga. t 7. umferð tókst honum að
hrista af sér jafnteflisslenið og vinna
sína fyrstu skák — gegn Jóhanni
Hjartarsyni.
Sævar hefur teflt manna best á mót-
inu til þessa og unnið hvern andstæð-
inginn á fætur öðrum á „snyrtilegan”
hátt. Nú í lok þáttarins skulum við
renna yfir eina af skákum hans, sem er
einkennandi fyrir skákir hans í mót-
inu. Hann þjarmar þar hægt og sig-
andi að andstæðingnum þar til hann
verður gjörsamlega leiklaus. Fyrst
skulum við hins vegar rifja upp
stöðuna í hinum flokkunum:
og síðan kemur Steingrímur Steinþórs-
son með 5 v. Elvar Guðmundsson er
svo ekki langt undan með 4 v. og 2
biðskákir, sem að sögn kunnugra eru
báðar betri.
Árni Á. Árnason er langefstur í C-
flokki, hefur hlotið 6 1/2 vinning og
því aðeins leyft eitt jafntefli. í 2. sæti
er Björn G. Jónsson með 4 1/2 v. en 3.
er Gisli Stefánsson með 4 v. og bið-
skák.
D-flokkur: 1. Ragnar Magnússon 6
1/2 v. 2. Skúli Magnússon 5 v. 3. Ró-
bert Harðarson 4 1/2 v. og biðskák. 4.
Jón Magnússon 4 1/2 v.
I E-flokki er Jóhann Helgason
efstur (eins og síðasta laugardag) með
6 v. af 7 mögulegum.
8. umferð var tefld i gærkveldi, en á
morgun, sunnudag, verður 9. um-
ferðin tefld og hefst hún kl. 14 í Skák-
heimilinu viðGrensásveg.
263
230
228
223
218
217
217
214
fÖ Bridge
Tveir á útopnuöu
Eftir 1. umferð í aðaltvi-
menningi BH er röð efstu manna
þessi:
1. Bjarni Jóhannsson —
Þorgeir Eyjólfsson
2. Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson
3. Kjartan Markússon —
Óskar Karlsson
4. RunólfurSigurðsson —
Þorsteinn Þorsteinsson
5. Björn Eysteinsson —
Magnús Jóhannsson
6. -7. Árni Þorvaldsson —
Sævar Magnússon
6.-7.Guðniog
Sig. B. Þorsteinssynir
8. Bjarnar Ingimarsson —
Þórarinn Sófusson
Meðalskor 210. Önnur umferð
verður spiluð á miðvikudag.
TBK
Nú er lokið fjórum umferðum af
fimm í aðaltvímenningi félagsins.
Steingrímur Steingrimsson og
Gissur Ingólfsson hafa nú tekið
svo afgerandi forustu, að sigri
þeirra verður vart ógnað. Spilað er
í fjórum tíu para riðlum og munu
tiu efstu pör spila saman í siðustu
umferð. Staða tiu efstu para:
1. Steingr. Steingrimsson —
Gissur Ingólfsson
2. Gisli Hafliðason —
Sig. B. Þorsteinsson
3. Viðar Jónsson —
Sveinbjöm Guðmundsson
4. Gunnlaugur Óskarsson —
Sigurður Steingrímsson
5. Ragnar Óskarsson —
Sigurður Ámundason
ó.Guðm. Júliusson —
Helgi Ingvarsson
7. HilmarÓlafsson —
Ólafur Karlsson
8. Ingólfur Böðvarsson —
Guðjón Ottósson
9. Anton Valgarðsson —
Sverrir Kristinsson
10. Björn Kristjánsson —
Þórður Eliasson
Meðalskor 432
Barðstrendingafélagið
i Reykjavík
Úrslit úr annarri umferð
menningskeppninnar.
1. Gunnlaugur Þorsteinsson —
534
487
480
474
471
470
469
466
460
458
tVl-
Stefán Eyfjörð 2. Ari Þórðarson — 262
Diana Kristjánsdóttir 3. Helgi Einarsson — 243
Erla Lorange 4. Ragnar Þorsteinsson — 243
Eggert Kjartansson 5. ísak Sigurðsson — 239
Árni Bjarnason 6. ViðarGuðmundsson — 227
Haukur Zóphaniasson 7. Þórarinn Árnason — 227
Finnbogi Finnbogason 8. PéturSigurðsson — 227
Hermann Samúelsson 225
Riðuveiki í sauðfé breiðist nú mjög út
hérlendis og með meiri hraða en áður
hefur þekkzt. DB sneri sér til Sigurðar
Sigurðarsonar og ræddi við hann um
veikina.
„Það fara ekki miklar sögur af fyrsta
tímabili veikinnar en 1912 er Sigurður
Hliðar að rannsaka útbreiðslu þessarar
veiki á Norðurlandi og er þvi þá trúað,
að hún hafi borizt til landsins 1878 með
enskum hrútum,” sagði Sigurður er DB
spurði hann hvenær veikin hefði fyrst
borizt til landsins.
Hann bætti við: „Veikin hélt sig á
Miðnorðurlandi lengst af og breiddist
ekki ört út. Útbreiðsla hennar var hins
vegar orðin talsverð þegar fjárskipti
voru vegna mæðiveiki á þessu svæði
1946—49. Við niðurskurðinn hreinsast
síðan verulega til en hann dugar samt
ekki til. Hún kemur upp aftur á
nokkrum stöðum þar sem hún hafði
áður verið skæð og hefur síðan breiðzt
út.
Á siðari árum er veikin farin að
breiðast út með miklum hraða og á
nýjum stöðum og i ný varnarhólf.
Þannig að það hlýtur að vera að hún
berist út með öðrum móti en við
samgang sauðfjár.
Veikin hefur verið einna mest ógn-
vekjandi á Austurlandi. í tveimur
sveitarfélögum, þ.e. Borgarfirði eystra
og Norðfirði, má heita að veikin sé
komin á hvern einasta bæ.”
— Er þá ekki vitað hvernig veikin
breiðist út?
„Nei, það er ekki vitað en sterkur
grunur leikur á, að hún hafi borizt með
heyi eða jafnvel með fólki sem hand-
leikur oft riðufé.”