Dagblaðið - 20.10.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 20.10.1978, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978. Um nokkurt skeiö hefur því verið haldið fram af mörgum að ekki mætti blanda flúor í drykkjarvatn vegna þess að slíkt gæti valdið aukinni' tíðni krabbameins. 1 bandaríska timaritinu Consumers Report hefur verið skýrt frá því að rannsóknirnar og kannanir, sem krabbameinskenningarnar voru byggðar á voru falsaðar. Var látið lita svo út, að hér væri um að ræða vísindalegar rannsóknir en að sögn timaritsins var hér aðeins um að ræða vísvitandi aðgerð til að vinna gegn notkun flúors til varnar tann- skemmdum. Segir að stofnun, sem kölluð er National Health Federation hafi ráðið vísindamann til að koma af stað illum grun á hollustu flúors. Var það gert með árangri á þann hátt að birtar voru rangar tölfræðilegar upplýsingar þessu viðkomandi. Samkvæmt niðurstöðunum það er að segja hinum fölsku kom í Ijós, að þar sem flúori var bætt í drykkjarvatn jókst tíðni krabbameins. Þessar fölsku niðurstöður urðu til þess að víða um heim var hætt að blanda flúori í drykkjarvatn. En það er talin ein öruggasta vörn gegn tannskemmdum sem þekkter. National Health Federation var stofnuð í Bandaríkjunum árið 1954. Var þar að verki maður að nafni Fred J. Hart. Fékk hann síðar dóm fyrir alls kyns svindlbrask. Meðal annars bauð hann fólki upp á þá þjónustu að greina alla sjúkdóma þess ef það sendi honum blóðprufu. Hart lét ekki þar við sitja heldur réð til sín lífefnafræðing John Yiamou- yannis að nafni. Fól hann honum að færa sönnur á skaðsemi flúors. Með því að draga rangar niðurstöður af tölfræðilegum samanburði milli land- svæða þar sem flúor var í drykkjar- vatni og ekki tókst honum að fá umbeðnar niðurstöður. Meðal annars var ekkert tillit tekið til aldurs og þeirrar staðreyndar að krabbamein mun vera algengara meðal eldra fólks en yngra. Árið 1975 hóf lífefnafræðingurinn samstarf við annan „vísindamann” sem framleitt hafði lyf gegn krabba- meini sem þó mun vera talið algjörlega gagnslaust. Bætti hann þá við auknum tölfræðilegum upplýsingum.sem renndu fleiri stoðum undir þá kenningu um að flúor væri krabba- meinsvaldandi. Er aðrir vísindamenn og tölfræðing- ar hófu að kanna réttmæti útreikninga John Yiamouyuannis kom fljótlega í ljós að hér var farið með staðlausa stafi. Samkvæmt öllum reglum tölfræðinnar var ekki hægt á neinn hátt að sýna fram á tengsl milli flúors í drykkjarvatni og krabbameins. Þar með var málið tapað í Banda- ríkjunum. Reyndu þeir félagar þá að hefja baráttuna gegn flúori i Englandi og Hollandi. Þar tókst þeim einnig að valda hræðslu og óróa meðal stjórn- málamanna og almennings. Þegar lagðar voru fram sannanir gegn þeim og misnotkun þeirra á töl- fræðilegum gögnum reyndu þeir að láta líta svo út sem þar væri um að ræða vísindalegan ágreining. Að sögn tímaritsins Consumers Report er þó alls ekki um neitt slíkt að ræða í þessu tilviki. Segir að sjö virtar heilbrigðis- og töl- fræðirannsóknarstofur hafi sannreynt að fullyrðingar Bandaríkjamannanna tveggja um flúor og krabbameinstil- felli séu staðlausir stafir. REUTER FRÁSAGNIR UM KRABBA- MEIN AF FLÚOR í DRYKKJ- ARVATNITÖLFRÆÐILEGT SVINDL — samstarf svikulla lífef naf ræðinga og falskra bandarískra rannsóknarstofa virðist hafa tafið f ramfarir í tannheilbrigðismálum j i Playboy á Spáni Hið þekkta timarit Playboy kom í gær í fyrsta skipti í verzlanir á Spáni á spænskri tungu. Eru þetta ein merkin um minnkað eftirlit með útgáfu bóka og tímarita á Spáni eftir dauða Francos árið 1975. Blaðið hefur verið selt í ensku útgáfunni þar <i landi síðan árið 1976. Deilureða ekki deilurí friðarviðræðum Talsmaður friðarsamningafund- arins milli utanríkisráðherra ísraels og Egyptalands fullyrti i- gær að enginn fótur væri fyrir því að miklir erfiðleikar hefðu komið upp í viðræðunum. Sagði hann þetta er hann var krafinn skýringa á hvers vegnaJimmyCarter forseti Bandaríkjanna hefði gripið inn í viðræðurnar. Moshe Dayan utan- ríkisráðherra Ísraels lét hafa eftir sér í fyrradag að mikill ágreiningur hefði komið upp milli deiluaðila. Nýttdagblað íNewYork Ástralski blaðakóngurinn Rupert Murdoch hefur tilkynnt að hann hyggist stofna nýtt dagblað sem komi út i New York einhvern næstu daga. Nafn blaðsins á að verða The Dáily Sun og mun það að líkindum helzt keppa við New York Times og Daily News, sem hvorugt hefur komið út síðan í ágúst vegna vinnudeilu. Gunnar Nilsson þungt haldinn af krabbameini Hinn frægi sænski kappaksturs- maður Gunnar Nilsson liggur nú þungt haldinn á Charring Cross sjúkrahúsinu í Londort. Að sögn lækna er hann í dái en ástæðan mun vera krabbamein á mjög háu stigi. Nilsson ók fyrir Lotus verksmiðjurnar árið 1977 og varð þá áttundi í heimskeppninni. Hann er 29 ára að aldri og oft nefndur sem framtiðar heims- meistari. BRAUTIR & GLUGGATJÖLD Ármúla 42 Símar: 83070 82340. álNUTA Namibía: HORFUR A TVENN- UM KOSNINGUM EN NIÐURSTAÐAVIÐ- RÆÐNA ÖLL ÓUÓS Horfur virðast nú á, að tvennar kosningar verði á næstunni i Namibiu eftir einhvers konar samkomulag, sem náðst hefur milli stjórnar Suður-Afrlku og utanríkisráðherranna fimm frá Bandarikjunum, Bretlandi, Frakklandi, Vestur-Þýzkalandi og Kanada. Niður- staða viðræðnanna, sem farið hafa fram í Pretóriu undanfarna daga, er þó mjög óljós. Þó mun utanrikisráðherrunum ekki hafa tekizt að fá hinn nýja forsætis- ráðherra Suður-Afríku, Pieter Botha, til að hætta við fyrirhugaðar desember- kosningar í Namibíu. Þó mun hann hafa gefið þau fyrirheit, að stjórn Suður- Afríku mundi reyna að sjá til þess að sigurvegarár kosninganna féllust á lausn sem yrði alþjóðlega viðurkennd. Búizt er við skýrslu og álitsgerð Kurts Waldheim aðalritara Sameinuðu þjóðanna um Namibíumálið á mánudaginn. Er búizt við fundi í öryggisráðinu síðar í vikunni. Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt að þessi gamla þýzka nýlenda, sem Suður- Afríka hefur stjórnað í sextíu ár, fái sjálfstæði á næsta ári. Einnig var samþykkt að þar færu fram kosningar undir eftirliti samtakanna. Á þetta hafa Suður-Afríkumerin ekki viljað fallast. Bent hefur verið á, að mjög sé óljóst hver staða sigurvegara í desember kosningum í Namibíu verði. Alveg sé óljóst hvernig þeir muni taka í að haldnar verði kosningar síðar undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Einnig hefur verið bent á, að allir flokkar í Namibiu hafa lýst yfir, því, að þeir muni ekki taka þátt í kosningum í desember undir stjórn Suður-Afríku. Þetta gæti í raun þýtt að fremur hægrisinnaður flokkur, sem í eru bæði hvitir og svartir, væri öruggur sigurvegari kosninganna vegna þess svo virðist sem hann verði eini stóri stjómmálaflokkurinn, sem bjóða muni fram.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.