Dagblaðið - 20.10.1978, Side 15

Dagblaðið - 20.10.1978, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978. 14 d Iþróftir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir 19 Borðtennis í Kef lavík Borðtennisdeild UMFK mun gangast fyrir punkta- móti I borðtennis, <sem ber nafnið haustmót UMFK) i Ungmennafélagshúsinu i Keflavik að Hafnargötuó iaugardaginn 21. október, kl. 2,30 eftir hádegi. Keppt verður i þrem flokkum karla 1., 2. og 3. fl. Notaður verður einfaldur útsláttur i 2. fl. og 3. fl. en allir við alla i 1. fl. Og telst leikurinn unnin þegar annar hefur unnið 2 hálfleiki. ’Ævar Sigurðsson — KR i gærkvóldi. lék sinn 300. leik i meistaraflokkl KR HLAUT 3JA SÆTIÐ KR-ingar tryggðu sér þriðja sætið i Reykjavikur- mótinu, þegar þeir sigruðu Ármann 21—19 i gær- kvöldi. Bæði liðin hlutu tvö stig en markamunur KR var betri. Fjögur mörk i minus gegn átta mörkum Ármenninga. Þetta var mikill baráttuleikur og framan af voru Ármenningar ákveðnari. Komust í 3—1 og 5—3 en KR jafnaði i 6—6. Síðan sáust allar jafnteflistölur upp i 13—13, sem var staðan í hálfleik. En eftir að hafa skorað 13 mörk i fyrri hálfleiknum tókst Ár- menningum ekki að skora mark fyrstu 13 mín. í þeim siðari. KR-ingar þá þrjú og lögðu þar grunn að sigri sinum. Að vísu jafnaði Ármann i 17—17 og 18—18. Siðan sigu KR-ingar framúr á ný og unnu með tveggja marka mun. Verðskuldaður sigur og i heild virkaði KR-liðið betra þó svo Símon Unndórsson vantaði vegna meiðsla. Friðrik Jóhannsson lék ekki með Ármanni. Greinilegt að jöfn barátta verður milli þessara liða í 2. deild í vetur. Fyrir leikinn í gær var Ævari Sigurðssyni (Ólafssonar söngvara) afhentur blómvöndur frá KR. Hann lék sinn 300. leik með meistaraflokki KR. Hefur verið fastamaður um langt árabil í KR-liðinu. Mörk KR í gær skoruðu Ólafur Lárusson 6 — tvö víti — Haukur Ottesen 4, Einar Vilhjálmsson 3, Björn Pétursson 3, Sigurður Páll 2, Jóhannes Stefánsson 2 og Kristinn Ingason 1. Mörk Árman.ts skoruðu Björn Jóhannesson sjö — tvö víti — Jón Viðar fjögur, Pétur Ingólfsson þrjú, Þráinn Ásmundsson og Óskar Ásmundsson tvö hvor, og Kristinn Ingólfsson eitt. Lokastaðan i úrslitakeppninni. Valur Víkingur KR Ármann íslandsmótið í handknattleik hefst á morgun: Berjast Valur, FH og Haukar um íslandsmeistaratitilinn? Reykjavikurmeistarar Vals 1978 — Formaður handknattleiksdeildar Vals, Þórður Sigurðsson, nádi í bikarinn, því hann var ekki afhentur formlega í gær. DB-mynd Bjarnleifur. Markahlutfall réð og Valur meistari —SigradiVíking 19-17 á Reykjavíkurmótinu í handknattleik —Ömurleg dómgæzla setti mest mörk á leikinn Fram og Haukar i 1. deild kvenna og síðan sömu félög í 1. deild karla. Kl. 15.00 leika ÍA og ÍBK á Akranesi í 3. deild karla og kl. 16.00 KA og Leiknir á Akureyri í 2. deild karla. Á sunnudag verða þrir leikir. Kl. 14.00 leika Þór og Leiknir í 2. deild kvenna á Akureyri. Á sama tima leika UMFN og Grótta i 3. deild karla og strax á eftir UMFG og UMFN í 2. deild kvenna. Eins og áður mun mesta athyglin beinast að keppninni í 1. deild karla. Þar leika átta félög, Reykjavíkurfélögin Fram, Fylkir, ÍR, Valur og Víkingur, FH og Haukar úr Hafnarfirði og HK úr Kópavogi. Fylkir og HK komust upp í I. deild í vor. KR og Armann féllu niður i 2. deild. Ef að likum lætur kemur keppnin um íslandsmeistaratitilinn fyrst og fremst koma til með að standa milli íslands- meistara Vals og Hafnarfjarðarliðanna FH og Hauka. Þessi þrjú félög eiga sterkum liðum á að skipa. Hafa æft mjög vel. FH undir stjórn póisks þjálfara, Valur undir stjórn Hilmars Björnssonar og Haukar undir stjórn Þor- geirs Haraldssonar. Víkingar hafa einnig góðu liði á að skipa og hafa æft vel undir stjórn pólsks þjálfara. Liðið hefur misst sterka leikmenn til útlanda — en þó mun verða þyngra á metunum, að Víkingar munu vart koma til með að blanda sér í toppbaráttuna eins og þeir eru lagðir í einelti af flestum þeim dómurum, sem koma tii með að dæma leiki þeirra í vetur. Nýliðar Fyikis og HK munu þurfa að berjast mjög til að halda sætum sinum i deildinni — en þó eru þessi lið alls ekki án möguleika. Til dæmis tapaði Fylkir aðeins með eins marks mun fyrir meisturum Vals á Reykjavíkurmótinu á dögunum. HK er óþekkta stærðin á mótinu—og talsvert spurningamerki er einnig við Fram og IR. Fram hefur misst þekkta leikmenn — og ÍR-ingar virðast ekki eins sterkir og áður. Þó álltaf lið sem kemur á óvart. Allar likur eru á að Ármann og KR reynist sterkust liða í 2. deild, en þar leika einnig KA, Leiknir, Stjarnan, Þór, Vestmannaeyjum, sem hefur mörgum þekktum leikmönnum á að skipa, Þór, Akureyri og Þróttur, Reykjavík I I. deild kvenna er lið Fram sigurstrangleg- ast — Valur og FH gætu þó veitt Fram- stúlkunum harða keppni. Valur sigraði Viking 17—15 í gær- kvöld i Laugardalshöll — en lengi vel á eftir vissi enginn hvort liðið hafði orðið Reykjavfkurmeistari. Bæði lið með fjögur stig i úrsUtakeppninni og sama markamun. Nýr úrsUtaleikur, sögðu dómarar leiksins. Aðrir, markahlutfaU ræður nú, og enn aðrir. Það liðið, sem skorað hefur fleiri mörk er sigurvegari. Loks eftir nær klukkutima frá leiks- lokum náðist i formann HKRR i sima. Þá féU stóridómur. Á fundi Handknatt- leiksráðs Reykjavikur var bókað að markahlutfaU réði úrsUtum ef lið yrðu jöfn að stigum og markamun. Valur varð þvi Reykjavikurmeistari. Hafði fengið á sig færri mörk en Vikingur. Valsmenn eru mjög vel að þeim sigri komnir. Sigruðu Víkinga tvivegis á mótinu og hafa sterku liði á að skipa. Leikurinn var spennandi en þvi miður setti ömurleg dómgæzla Gunnars Kjart- anssonar og Hannesar Þ. Sigurðssonar mörk sín á leikinn. Lengi vel voru þeir síflautandi að því er virtist til að sýna hverjir hefðu völdin. Það kostaði Vaismenn að minnsta kosti tvö mörk. Taugaspennan þrúgaði Gunnar lengstum — og mikið eru taugaveiklaöir dómarar leiðinleg fyrirbrigði. Leikmenn reknir af velli fyrir það eitt að hrista höfuðið. Ekkert orð. . Ýmislegt gleymdist. Hannes.þessimikli spekingur dómaramála, gleymdi svo einföldu atriði, að hann er hluti - lifandi liður leikvallarins. Þorbjörn Jensson tvíbókaður án þess að vera vikið af velli. Sex sinnum var Víkingum vikið af velli — tveimur Valsmönnum. Sex sinnum fengu Valsmenn vítaköst — Víkingur tvisvar.Þar naut Valur mikilla forréttinda — en Valsliðið er alltof gott til að vera nokkuð upp á slíkt komið. Hins vegar var ekki hægt að greina, að þessi gríðarmunur væri á brotum leikmanna liðanna. Lokamínútu leiksins lék Hannes Þ. Sigurðsson aðalhlutverkið eins og svo oft áður á fjölum Laugardalshallarinnar. Fyrst rak hann Pál Björgvinsson af velli fyrir smávægilegt brot miðað við flest það, sem sást i leiknum, og svo féll bomban. Sex sekúndum fyrir leikslok tók Jón Pétur Jónsson ailtof mörg skref án þess að stinga knettinum niður áður en hann rakst á varnarmann Víkings. Flautað. Flestir bjuggust við að Víkingur fengi aukakast — og Gunnar Kjartansson gerði sig líklegan til að dæma það — en þá benti Hannes á víta- punktinn eftir nokkurt hik. Dæmdi vitakast á Víking.Hörðustu Valsmenn sneru sér undan til að geta hlegiö i laumi. Þorbjörn Guðmundsson skoraði úr vítakastinu eftir að leiktima lauk — og síðar kom í ljós að það mark hafði úr- jslitaáhrif. En það verður að segja Hannesi Þ. Sigurðssyni til málsbóta, að það er ofur skiljanlegt, að dómara, sem kominn er á sextugsaldur, verði á mistök einmitt undir lok leiksins, þegar þreytan smýgur iinn i merg og bein. Það er erfitt að idæma og hlaupa í klukkustund, æfingar- 'litill í þokkabót. En þvi þekkja ísl. dómarar ekki sinn vitjunartíma? Undan- tekningarlaust leggja enskir dómarar flautuna á hilluna 47 ára. Valur lék stórvel í fyrri hálfleiknum. Ákaflega sterkir í vörn og með snjallan markvörð, Ólaf Benediktsson. Það kom á óvart að forusta liðsins í hálfleik var jekki nema tvö mörk, 8—6. Víkingar langt frá sínu bezta en Kristján Sig- mundsson hélt Víking á floti með stór- jsnjöllum leik í marki. Varði m.a. tvö vítaköst. í síðari hálfleiknum léku Víkingar betur og tókst þá að opna Vals- vörnina. Jöfnuðu í 12—12, siðan 14— 14 og 15—15 en Valur skoraði tvö 'síðustu mörk leiksins. Stefán Gunnarsson átti mjög góðan leik í Valsliðinu — og lék ákaflega taktískt á dómarana. Hann skoraði Ifimm mörk. Þorbjörn G 4/1, Jón jKarlsson 3/1, Jón Pétur 2, Steindór 2/1 'og Bjarni 1. Viggó Sigurðsson var Vals- [mönnum ákaflega erfiður. Orðinn mjög sterkur leikmaður. Skoraði 8 mörk, Páll 2, Árni 2/2, Ólafur Jónsson. Skarphéðinn og Steinar eitt hver. -hsim. Nick Faldo, enski golfleikarinn, sem aðeins er 21 árs, var 1 fyrsta sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á opna Evrópu- meistaramótinu i golfi, sem hófst i Tadworth á Englandi i gær. Verðlaun 'nema 105 þúsund sterlingspundum. Nick Faldo lék á 68 höggum — fimm 'undir pari vallarins en hann er um 7000 metrar á lengd, í suðurjaðri Lundúna- Iborgar. Þó þripúttaði hann á loka- holunni. Næstir komu Lon Hinkle, Bandaríkjunum, Greg Norman, Ástraliu og Manuel Calero, Spáni. Þeir léku allir á 69 höggum. Meðal þeirra, sem léku á 70 höggum, var Gil Morgan, sem er annar á listanum yfir tekjuhæstu leikmenn USA á þessu ári, og Tom Weiskopf. Spánverjinn Seriano Ballesteros, sem flestir spáðu sigri, lék á 75 höggum. „Við vinnum ekki án fyrirhafnar” — sagði Ólaf ur Thorlacius eftir 101-86 tap Vals gegn eldf jörugum stúdentum „Liklega var gott fyrir okkur að fá þetta tap núna og vonandi verður það til þess að koma Valsliðinu aftur niður á jörðina,” sagði Ólafur Thorlacius, liðs- stjóri Vals, eftir leikinn við ÍS 1 úrvals- deildinni f körfuboltanum i gær. Honum lauk með sigri ÍS 101—86 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 46— 43 stigum. „Þetta var aðeins framhald af ástandinu i fyrsta leiknum i mótinu en þá lékum við gegn Þór. Þá tókst okkur að visu að vinna. En samt sem áður vantaði allan baráttuanda í liðið — hann vantaði einnig að þessu sinni. Andinn er sá, að sigra á í leiknum án þess að hafa nokkuð fyrir þvi,” sagði Ólafur Thorlacius. „t kvöld gerði góð hittni og barátta stúdentanna útslagið og betra liðið vann,” sagöi Ólafur. Fyrri hálfleikur var mjög jafn en í síðari hálfleik fóru stúdentar að siga fram úr. Dirk Dunbar átti stórleik sem oftar en lék þó töluvert öðruvísi en áður. Uppbygging heildarleiks liðsins sat nú í fyrirrúmi hjá honum og gaf það góðan árangur. Þó átti hann einnig sín „einka- gegnumbrot” og skoraði hann mikið. Um miðjan siðari hálfleik var staðan 77—68 fyrir ÍS og eftir það jókst munur- inn og lauk leiknum eins og áður sagði- með 101 stig stúdenta gegn 86. Birgir örn Birgis, þjálfari ÍS, sagðist vera ánægður með að liðið virtist vera að smella saman. „Þeir áttu að vísu allir góðan leik strákarnir en ég vil sérstak- lega vekja athygli á því að nú lék Dirk Dunbar eins og í síðustu þrem leikjunum síðastliðiö vor. Hann hefur verið gagn- rýndur fyrir einleik en sýndi nú að hann kann ekki siður að byggja upp leik liðsins. Einnig er ég mjög ánægður með Jón Oddsson frá tsafirði sem stóð sig vel í kvöld en honum fer fram með hverjum ileik og hverri æfingu. Aðalatriðið er, að ÍS liðið er orðin sterk heild. Valur lék kannski eitthvað úndir getu að þessu sinni en vonandi er :þetta aðeins forsmekkurinn af því hvernig baráttan í úrvalsdeildinni verður í vetur. Ég er sammála þvi að sigurvegararnir komast ekki í gegn með færri en þrjá fjóra ósigra á bakinu,” sagði Birgir örn Birgis að lokum. Dirk Dunbar var stigahæstur stúdenta með 38 stig, Steinn Sveinsson var með 22 stig þar af 16 í fyrri hálfleik. Jón Héðinsson gerði 18 stig. Steinn og Jón áttu báðir mjög góðan leik. Tim Dwyer var stigahæstur Valsmanna með 26 stig, Kristján Ágústsson gerði 23 stig. Tim Dwyer mun hafa fengið rauða spjaldið eftir lok leiksins fyrir aðför að dómara. Á hann þvi yfir höfði sér leikbann. ÓG. Fertugasta tslandsmótió 1 handknatt- leik hefst á morgun — og mótió veröur sett fyrir leik Handknattleiksfélags Kópavogs og Vikings, sem veröur i íþróttahúsinu aö Varmá í Mosfellssveit Sá leikur hefst kl. 14.00 — en heima- leikir Kópavogsliðsins verða þar i vetur. Alls senda 27 félög lið á íslandsmótið samtals 195 flokka. Keppendur á mótinu verða þvi á þriðja þúsund. Leikjum i 1. deild karla er raðað þannig niður að aðeins er háður einn leikur i einu — ekki tveir eins og venja var áður. Með leikjum i 1. deild verða leikir i 1. og 2. deild kvenna eftir þvi, sem við verður komið. Forráðamenn Handknattleikssam- bands íslands skýrðu frá mótinu á blaða- mannafundi í gær. Framkvæmd mótsins er mikið verk. Alls verða leikir 876 svo þar er af ýmstu aö taka fyrir áhorfendur. Mótið hefst á morgun eins og áður segir og lýkur um 20. april. Hlé verður á því frá 15. febrúar til 6. marz 1979 en þá tekur ísland þátt í B-keppninni á Spáni. Að öðru leyti verða litlar frátafir frá mótinu. Þó hlé 9.-14. janúar, þegar ísland ieikur við Dani, Þjóðverja og Pólverja í Baltic-bikarkeppninni. Það er í fyrsta sinn, sem tsland leikur í þeirri keppni. Tekur þar sæti Finnlands. Landsleikir við Dani verða 16. -17. desember hér heima. Við Bandarikin milli jóla og nýárs og við Pólverja strax eftir áramótin. Einnig við Sovétríkin fyrst i febrúar. Þá mun islenzka lands- liðið leika á móti i Frakklandi 28. nóvember til 2. desember í vetur. Tíu leikir verða á íslandsmótinu nú um helgina. Sjö á laugardag. Þrír á sunnudag. HK og Víkingur leika í 1. deild að Varmá á laugardag. Þá leika FH og UBK í 1. deild kvenna í íþrótta- húsinu í Hafnarfirði. Sá leikur hefst kl. 14.00 og strax að honum loknum leika FH og ÍR í fyrstu deild karla. Kl. 16.00 verða tveir leikir i Laugardalshöll. Fyrst Leikmenn Slask Wrockaw — en i borginni eru um 600 þús. íbúar. Þaðan höfum við oft fengið góða gesti áður — handknattleiksmenn Slask en Slask er iþrótta- félag hersins i tiu deildum. Stofnað 1947. Komst i 1. deild 1973. Varö bikarmeistari 1976 og Póllandsmeistari eftir leiktimabilið 1976—1977. LEIKMENN SLASK HAFA ALDREILEIKIÐ Á MÖL! —leikur Vestmannaeyinga og pólska liðsins Slask verður á Mellavelli á laugardag „Okkur lízt mjög vel á íþrótta- leikvanginn i Laugardalnum en brá i brún, þegar við komum á Melavöllinn. Leikmenn mínir i Slask Wrocklaw hafa aldrei leikið á malarvelli svo ég get ekkert sagt um það hvernig okkur tekst upp i UEFA-leiknum við Vestmanna- eyinga á laugardag,” sagði Papiewski, þjálfari Slask, á blaðamanmnafundi, sem ÍBV efndi til í gær. Vestmannaeyingar gátu ekki fengið Laugardalsvöllinn eða grasvöllinn i Kópavogi — og urðu því að leita á náðir gamla Melavallarins. Fyrir þremur árum léku Akurnesingar þar i Evrópubikarnum gegn Dynamo Kiev. Sá leikur tókst vel — og ekki er ástæða til að ætla að annað verði uppi á teningnum á laugardag. Leikur ÍBV og Slask er f 2. umferð UEFA-keppninnar og það er i fyrsta sinn, sem islenzkt lið leikur i 2. umferð þeirrar keppni. „Viö erum sárir út í forráðamenn. Evrópusambandsins að fá ekki aö leika í Vestmannaeyjum. Þeir neituðu okkur um það i fyrstu umferöinni vegna þess að viðgætum ekki ábyrgzt lif og limi írsku ieikmannanna hjá Gientoran. Ég fullyrði að svo hefði verið — og það hlýtur að hafa verið köld skvetta á for- mann og framkvæmdastjóra UEFA þeir atburðir, sem áttu sér staö þegar viö lékum við Glentoran á írlandi. Þar tókst ekki að hemja fólkið og einn leikmanna okkar var sleginn í rot,” sagði Jóhann Ólafsson, varaformaður knatt- spyrnuráðs Vestmannaeyja. En hvað um það. Vestmannaeyingar munu fjölmenna á leikinn á Melavelli á laugardag. Herjólfur fer aukaferð — og kl. 18.00 aftur til Eyja, og Flugfélag lslands ætlar að koma á loftbrú milli Eyja og lands. Sú loftbrú verður þó veðri háð. En leikurinn á laugardag er áhuga- verður fyrir knattspyrnuunnendur fleiri en Vestmannaeyinga. ÍBV mætir sterku pólsku liði — liði, sem náð hefur góðum árangri í Evrópukeppni. Meðal annars komizt í átta-liða úrslit i bikarkeppni, bikarhafa. Var þá slegið út af Napoli, 0—0 og 0—2. Það var 1977 og árið áður komst liðið í átta-liða úrslit í UEFA- keppninni. Tapaði þá fyrir Liverpool 1— 2 og 0—3. Þetta er í fjórða sinn, sem Vest- mannaeyingar leika i Evrópukeppni og i fyrsta sinn, sem þeir komast i aðra umferð. Unnu Glentoran i þeirri fyrstu en i sömu umferð vann Slask Pezoporikos Larnaca frá Kýpur 5—1 og; 2—2. Melavöllurinn verður varla; erfiðari fyrir þá en völlurinn á Kýpur. Vestmannaeyingar fóru i sumarfrí eftir að þeir slógu Glentoran út. Æfðu, þá vel á Spáni og eftir að þeir komu heim hafa þeir æft mjög vel undir stjórn Sig- mars Pálmarssonar. Skinner þjálfari hefur ekki sézt eftir síðari leikinn við Glentoran þó hann ætti að ljúka' keppnistímabilinu — og engar fréttir hafa borizt frá honum. Reiknað er með að allir beztu ieikmenn tBV taki þátt í leiknum á laugardag — en þrír hafa þó átt við lasleika að stríða nú í vikunni. Það er mikið fjárhagslegt atriði fyrir Vestmannaeyinga að leikurinn á laugar- dag verði fjölsóttur — þeir þurfa 2500— 300 áhorfendur til að sleppa skaðlaust frá leiknum. Mikið tap varð á leiknum við Glentoran í Kópavogi. Fáir áhorf- endur — en ýmsir hafa reynt að bæta ÍBV skaðann. Meðal annars var safnaö um hálfri milljón í þremur fyrirtækjum í Eyjum. Margir kunnir leikmenn eru í liði Slask — þó aðeins einn, sem leikið hefur i pólska landsliðinu i ár. Það er Wladyslaw Zmuda, sem leikið hefur 45 landsleiki. Lék á HM i sumar og einnig 1974. Varð ólympíumeistari 1972 og i öðru sæti 1976. Fjórir aðrir ieikmenn liðsins hafa leikið í landsliði. Markvörðurinn Zygmunt Kalinowski, sem leikið hfur sjö landsleiki, framherjinn Pawcowski, sem leikið hefur sex landsleiki. Miðherjinn Janusz Sybis, sem einnig hefur leikið sex lands- leiki og Jozef Kwiatkowski með sjö landsieiki. Valur— Refstad Valsmenn náðu sínum langbezta leik i haust gegn Viking i gærkvöld — og ef þeir leika jafnvel gegn Refstad i Evrópukeppni meistara- liða á sunnudag ættu þeir örugg- lega að komast i aðra umferð Evrópukeppninnar. Ólafur Benediktsson, sem lék sinn fyrsta leik með Val eftir Svíþjóðardvölina í gær og Stefán Gunnarsson, léku báðir mjög vel. Þeir voru ekki með í fyrri leiknum gegn Refstad i Osló. Refstad sigraði þá með tvcggja marka mun, 16—14, eftir að Valur hafði um tima þrjú mörk yfir. Ólafur og Stefán verða leyni- vopn Vals á sunnudag — leikurinn hefst kl. 15.00 — og Valur þarf að sigra i þeim leik með minnst þriggja marka mun til að komast áfram.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.