Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
2
Landssamband íslenzkra útvegsmanna:
Áferðarfallegur
vitsmunalýður
Landssamband islenzkra útvegs-
manna heldur aðalfund sinn um
þessar mundir, þar eru maettir að
vanda allir helztu útgerðarmenn
landsins eða umboðsmenn þeirra.
Höfuðpaurinn, Kristján Ragnarsson,
hélt sína árlegu trúboðsræðu um hið
árvissa tap fiskiflotans islenzka og
kritaði liðugt með tilheyrandi verð-
bólguálagi. Á siðustu 20 árum hefur,
að sögn hans, útgerðarflotinn tapað
milljörðum króna og hefur tapið farið
vaxandi með hverju einasta ári. Og
hver er svo niðurstaðan? Jú, lands-
menn eiga eftir þessi ógnarár ein-
hvern fullkomnasta fiskiflota í
Evrópu, afburða sjómenn, enda fisk-
veiðar undirstöðuatvinnuvegur Islend-
inga.
Kristján vitnaði grátklökkur í
raunasögu lítils sjávarþorps norður i
landi og fór þar með tölur upp í 900
milljónir króna. Var sá málflutningur
hans studdur þeim sama heiðarleika
og milljarðatapið á útgerðinni öll
undanfarin ár. Þesssi kjaftaskur setu-
liðs útgerðarmanna í Reykjavik var
svo ánægður með sjálfan sig að
fundarmenn höfðu við orð að rétt
væri að taka hann í dýrlingatölu þvi
svona kraftaverk gerðust nú fátið um
heimsbyggðina. Útgerðin hefði
sannanlega tapað milljörðum króna á
undanförnum árum, samt hefði skipa
stóllinn verið endumýjaður og tugii
umsókna um að fá að kaupa fiskiskip
lægju fyrir hjá sjávarútvegsráðu-
neytinu.
En fjandinn var ekki lengi i paradís,
eitthvað hafði þetta þvælzt fyrir i
hugskoti sumra fundarmanna, og eftir
nokkra eftirgrennslan kom í Ijós að
samlagningarvél formannsins hafði
verið nýkeypt frá einu tölvuumboðinu
og í gleði sinni yfir þessu nýja undra-
tæki hafði hann lagt saman allar hand-
bærar tölur og fengið þokkalega út-
komu, 900 milljónir. Minnti þetta á
kaupmanninn forðum daga sem
tapaði ósköpin öll á verzlun sinni það
árið en gat þó á engan hátt gert sér
grein fyrir því hvernig í því lægi og lét
þess getið á framtalsskýrslu sinni að
dýrtíðin hefði valdið þessu tapi,
annars hefði verzlunin gengið vel.
Skattstjóranum fannst þetta nokkuð
tork.ennilegt og lét athuga bókhaldið.
Kom þá í Ijós að kaupmaðurinn hafði
lagt saman allar hugsanlegar tölur, svo
sem ártöl, fylgiskjalanúmer, dagsetn-
ingar og nótunúmer og fengið loks
stórtap út á umsvifunum. Þegar
hann var inntur eftir því hvernig stæði
á þessum ósköpum viðurkenndi hann
að hafa fengið sér nýja samlagningar-
vél og hann því í gleði sinni yfir þessu
undratæki lagt saman allar tölur sem
hendi voru næstar.
Kristján hélt nú áfram ræðu sinni
og fullyrti að vaxtahækkun væri hrein
uppgjöf fyrir verðbólgunni. Sparifjár-
eigendur væru fúsir til að lána fé til
skipakaupa þó þeir fengju ekki nema
1/3 af lánsfénu til baka. Engu svaraði
hann þó þegar fundarmaður bað hann
um lista yfir þá sparifjáreigendur sem
vildu lána á þeim kjörum. Sagði hann
að skrýtið væri af mönnum að rengja
sig því ekki ómerkari maður en Lúðvik
Jósefsson alþingismaður hefði sagt
honum þetta. Þetta þótti Þjóðviljan-
um svo vísindalega rökstutt að birt var
mynd af Kristjáni og forsíðugrein, enda
maðurinn fundinn sem Lúðvík var að
leita að til stuðnings því hjartans máli
sínu að með þvi að féfletta sparifjár-
eigendur væri lausnin fundin á verð-
bólguvandanum. Sparifjáreigendur
höfðu fengið 18 milljónir fyrir eignina
sem metin var i dag á 300 milljónir,
þarna í norðlenzka sjávarþorpinu.
Svona skulu hlutföllin verða áfram til
handa þeim ráðdeildarsömu lands-
mönnum, gamla fólkinu og unga
fólkinu.
Það var áferðarfallegur vitsmuna-
lýður sem hélt til veizluhalda að
loknum aðalfundi LÍÚ 1978.
Fundannaður.
VERSLUNIN
VERSLUNIN
KASTALINN
BERGSTAÐASTRÆTI 4A
VERSLUNIN
FEYKIR
LAUGAVEGI 27
VERSLUNIN
DALBÆR
HVERFISGÖTU 32
[§I
PARTNER
ER NÝTT VÖRUMERKI
FYRIR VANDAÐAN
OG ÞÆGILEGAN FATNAÐ
Nokkurorð
til dómsmála
ráðherra
UÓS í KIRKJU-
GÖRÐUNUM
—jól hjá f ramliðnum
Signý Sveinsdóttir hringdi:
Mig langar til að segja fáein orð í
sambandi við frétt sem birtist í Dag-
blaðinu sl. þriðjudag þess efnis að
kirkjugarðamir verði ekki lýstir í ár
frekar en undanfarin ár.Þarsegir Frið-
rik Sigfússon forstöðumaður garðanna
að fyrir nokkrum árum hafi komið
upp deilur vegna þess að hætt var að
lýsa garðana upp en nú séu þær alveg
hljóðnaðar. Ég held að það sé alls ekki
vegna þess að fólk vilji ekki Ijós í garð-
ana heldur vegna hins að það gefst
upp þegar það fær ekki vilja sinum
framgengt. Ég vann einu sinni á
Borgarpsáitalanum um jól og þar
fannst öllum það ákaflega jólalegt og
skemmtilegt að sjá ljósin í kirkjugarð-
inum. Það er langt því frá að þessi
fimm Ijós, sem nú eru í garðinum, geri
sama gagn. Mér fannst alltaf að það
væru komin jól hjá hinum framliðnu
líka þegar ég sá ljósin í kirkjugarðinum
og ég veit að það er einlæg ósk fjöl-
margra að þessum ljósum verði komið
upp á nýjan leik í kirkjugörðunum.
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Það er hægt að draga úr umferðar-
slysum ef dómsmálaráðherra tæki
þessi mál föstum tökum, til dæmis
með þvi að svipta bifreiðarstjóra öku-
leyfi ævilangt, a.m.k. þá sem keyra
fullir. Ef það væri gert mundu þeir
ekki þora að keyra undir áhrifum-
áfengis. Einnig á spursmálslaust að
stórhækka sektir og ég vil einnig láta
lengja fangelsisdóminn. Þetta sem hér
er bent á myndi áreiðanlega draga úr
slysum og ég vona að Steingrímur taki
þessa ábendingu til athugunar. Ég hef
svo þessi orð ekki fleiri.
Allir eru sammála um að slysin I
umferðinni séu allt of mörg. Bréfritari
telur sig vera með lausn á þessu vanda-
máli.
Bréfritari heldur því fram að það sé almennur vilji fólks að Ijósum verði komið
upp f kirkjugörðunum yfir jólahátiðina.
DB-mynd Ragnar Th. Sig.