Dagblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
Bílasölumálin:
Ekki allar bflasölur
rannsakaðar — f lestar
Halldór Snorrason, Aðalbílasölunni
við Skúlagötu, hringdi:
Mér fannst það fullgrófur uppslátt-
ur hjá ykkur á mánudaginn að allar
bílasölur yrðu teknar til rannsóknar
áður en yfir lyki — jafnvel þótt það
hafi verið sett fram i spurningarformi.
Spurningarmerkin vilja nefnilega
gleymast.
Ég er ekki i nokkrum vafa um að
flestar bílasölur eiga eftir að lenda I
þessari rannsókn en það verða örugg-
lega ekki allar. Mér sýnist það gott mál
því það er hreinasta skömm að því hve
lengi það hefur fengið að damla átölu-
laust að hver sem er geti hafið bila-
sölu, lausafjárskipti með milljónatugi
daglega, á meðan alls konar verzlunar-
leyfi þarf til að selja karamellur út um
lúgur.
Raddir fésenda
Sími 27022
Kl. 13—15 virka
daga.
Bilafloti landsmanna er mjög öflugur og hér á landi hafa bilasölur blómstrað. Nú virðist hins vegar sem viða sc pottur
brotinn hjá bilasölum. Halldór Snorrason segir þó að ekki megi draga þá ályktun að ástandið sé alls staðar jafnslæmt og
engin ástæða til að ætla að allar bílasölur verði rannsakaðar.
Er fríhöf nin á
Keflavíkurflugvelli
okurstofnun?
Frihöfnin á Keflavikurflugvelli hefur verið mjög i fréttum að undanförnu. Hér
segir „ferðalangur” stutta sögu af viðskiptum sínum við frihöfnina og þykir
honum verðlagið þar anzi hátt.
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
HeimiHs-
læknir
svarar
fíaddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" I síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
Ferðalangur hringdi:
Mig langar til aðsegja stutta sögu af
viðskiptum mínum við frihöfnina á
Keflavíkurflugvelli. Þann sautjánda
þessa mánaðar skrapp ég út fyrir land-
steinana. Ég keypti mér súkkulaði
stykki með hnetum i frihöfninni á
Keflavíkurflugvelli. Þetta stykki var
370 grömm á þyngd og kostaði 4.50$.
Ég tók það á sölugengi sem var þá
314,30. Skv. því reiknast mér til að
það hefði átt að kosta 1414,35 kr. Ég
borgaði 1420 kr. fyrir þennan pakka.
Siðan keypti ég út úr búð i Glasgow
sams konar súkkulaði, tvo pakka sem
voru hvor um sig 200 grömm á þyngd.
Slykkið kostaði 64 penny. Þannig
reiknast mér til að ég hafi borgað 896
kr. fyrir 400 grömm i Skotlandi en
1420 kr. fyrir 370 grömm á Kefla
víkurflugvelli.
Raddir
lesenda
Annað dæmi: Casio niini vasatölva
CL-78 kostar á Keflavikurflugvelli
13.040 kr. en i Glasgow út úr búð
10.176 kr. í umboðinu i Bankastræti
kostar hún 14.175 kr. Þvi vaknar sú
spurning hvort söluskattur og vöru-
gjald sé lagt á vörur i frihöfninni.
Þriðja dæmið get ég nefnt. Mc-
Intosch dós kostar hér 6,50$ eða 2080
kr. Slik dós kostar tvö pund út úr búð í
Glasgow.
r
Spurning
Heldurðuað
ríkisstjórnin
lifilengi?
Emma Ottósdóttir húsmóðir: Ég ætla að
vona það.
Steinar Júliusson feldskeri: Jesús, það
veit ég ekki. en hún verður að standa sig
bctur.
Halldór Baldursson læknir: Nei, ég
hugsa að hún tóri til vors.
Sighvatur Jónasson afgreiðslum. hjá
Seðlabankanum: Hún er dauð, hahaha.
Hún gerir ekkert af viti. Hvað á hún að
gera? Því er nú erfitt að svara. Lækka
vexti. Stjórna bönkunum betur. Nei, það
er engin stjórn á Seðlabankanum.
Jóhanna Haraldsdóttir afgreiðshistúlka:
Ha? Ha? Það veit ég ekki, ég hef ekkert
vit á stjórnmálum. Nei, ekkert.
Þuriður Heiðarsdóttir skrifstofustúlka:
Já, alla vega út kjörtimabilið. Ég held að
hún standi við loforðin sín.