Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
7
Efnahagsbandalag:
TEKST AÐ SEMJA UM
FISK FYRIR ÁRAMÓT?
Erlendar
fréttir
Ráðherrar Efnahagsbandalagsrikj-
anna munu koma saman til fundar í
dag og ræða hugsanlegar leiðir til að
ganga frá samningum um sameigin-
lega fiskveiðistefnu ríkja bandalagsins.
Þykir nú nokkur von til að takast megi
að komast að samkomulagi eftir
tveggja ára samningaþóf.
Sagt er að James Callaghan
forsætisráðherra Breta hafi gefið fiski-
málaráðherra sínum, John Silkin,
fyrirmæli um að gera allt sem í hans
Samningur ísraels og Egyptalands:
SADAT SEGIST VIUA
TRYGGINGU
FYRIR HEILDARFRKH
—göngum f rá f ramtíð Palestínuaraba áður en við undirritum
Fregnir frá Kairo herma að Anwar
Sadat Egyptalandsforseti hafi í simtali
við Jimmy Carter Bandaríkjaforseta
verið mjög áfram um að heildarsam-
komulag tækist um frið milli araba og
Israelsmanna áður en friðarsamningur
milli landanna tveggja yrði formlega
undirritaður.
Símtal þetta var i fyrrakvöld og að
sögn sagði Sadat að hann vildi ná sam-
komulagi um framtið Palestínuaraba á
vesturbakka árinnar Jórdan og Gaza
svæðinu áður en nokkrar undirskriftir
færu fram. Sadat sagðist ekki aðallega
vera að leita eftir sérstökum friðarsamn-
ingi Egypta við Ísraelsmenn heldur væri
höfuðmarkmið hans friður í þessum
heimshluta.
Webb Chiles frá San Diego i Bandarikjunum ætlar að sigla kringum knöttinn á þessu litla fieyi, sem hann situr i á mvndinni.
Revndar hefur piltur brugðið sér hringinn áður, en þá var það i stærri bát en þessum, sem ekki er nema rétt sex metrar á
lengd.
EGYPTAR UNDIR-
RITIEÐA ALLT BÚIÐ
segir Moshe Dayan utanríkisráðherra
ísraels
Moshe Dayan utanrikisráðherra Isra-
el sagði í gær að ísrael mundi ekki sam-
þykkja neinar frekari breytingar Egypta
á þeim tillögum, sem israelska þingið
hefur samþykkt. Haft er eftir utanrikis-
ráðherranum, að annaðhvort undirriti
Egyptar þá útgáfu samningsins eða
hafni henni. Engin millileið væri nú
fyrir hendi.
Talið er að Dayan utanrikisráðherra
og Weizman varnarmálaráðherra Israel
séu sáttari við stefnu Egypta en Begin og
meirihluti ráðherra i ráðuneyti hans.
Fyrrnefndu tvimenningarnir eru aðal-
samningamenn Israel í friðarviðræðun-
um við Egypta sem fram fara í Washing-
ton.
Moshe Dayan utanrikisráðherra ísra-
el.
færi er til að ganga frá samningum
fyrir næstu áramót. Hingað til hafa
Bretar ekki fallizt á tillögur annarra
Efnahagsbandalagsríkja um veiði-
kvóta og fiskverndarsjónarmið. Silkin
sagði eftir fund með dönskum og
vestur-þýzkum ráðamönnum á mánu-
daginn var, að samningar yrðu líklega
tilbúnir fyrir árslok. Ljóst er þó að ekki
eru öll vandamál þessu máli viðvíkj-
andi leyst. í tillögum embættismanna
bandalagsins er til dæmis ekkert
minnzt á leyfilegt veiðimagn.
Nú er rétti tíminn
aó endurryóverja
bílinh fyrlr veturinn.
Verklýsing á endurryóvörn.
ÞVOTTUR:
Óhreinindi á undirvagni og annarsstaðar eru
þvegin burt með upplausnarefni og heitu vatni (sem
hefur þrýsting allt aö 130 kg/cm2). Kemur það í veg
fyrir aö óhreinindi geti leynst í undirvagni eöa hjól-
hlífum.
ÞURRKUN:
Eftir nákvaeman þvott, er bifreiðinni ekiö í lyftu inn í
þurrkskáp og þurrkuð með 60—70° heitum loft-
blæstri. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum,
sem nauösynlegt er að framkvæma, til aö ná sem
bestum árangri gegn ryöi og tæringu, þ. e. að bif-
reiðin sé bæöi hrein og þurr þegar ryövarnarefni er
borið á.
BORUN:
Þegar bifreiðin er orðin þurr, er henni ekið úr
þurrkskápnum. Síðan eru boruö 8 mm göt til að
koma ryðvarnarefninu Tectyl í öll holrúm og á þá
staði, sem nauðsynlegt reynist með hliðsjón af þar
til geröu plani, sem til er yfir flestar tegundir bif-
reiða. — öllum slíkum götum, sem boruö hafa
verið, verður lokaö eftir sprautun á snyrtilegan hátt
með sérstökum plasttöppum.
1. SPRAUTUN:
Fyrst er þunnu ryövarnarefni (Tectyl 153B) spraut-
að í öll samskeyti, brot og suður, en það hefur mjög
góöa eiginleika til aö smjúga inn í staði þar sem
mest hætta er á ryöskemmdum. Þetta efni er einnig
sett inn í huröir, lokuö rúm, vélarhús o.fl.
2. SPRAUTUN:
Eftir aö sprautun 1 er lokið, er sprautaö þykkara
ryðvarnarefni (Tectyl 125) á staöi, þar sem meira
mæðir á, svo sem allan undirvagn og bretti.
3. SPRAUTUN:
Að lokum er sprautað gúmmímassa innan í bretti og
á alla viðkvæma staöi undir bllnum til frekari hlíföar
ryðvarnarefninu og til einangrunar.
ÞURRKUN:
Aö sprautun lokinni heldur bifreiðin áfram á lyftunni
inn í þurrkskáp, en þar er ryövarnarefniö á bif-
reiöinni þurrkað með heitum loftblæstri.
ÞVOTTUR:.
Aö lokum er bifreiöin þrifin aö utan jafnt sem innan.
Fyrst er hún úðuð með hreinsiefni og síöan spraut-
uð með vatni, þannig aö Tectyl og önnur óhreinindi
á lakki skolast burt.
Ryövörn sem aöeins tekur um tvo daga.
Ryóvarnarskálinn
W vióSigtún
Sími 19400 - Pósthólf 220 |BCT|fll
IL^ptSaoc^
lit^
M
Betri líðan
Alsírforseta
Liðan Houari Boumedienne forseta
Alsír var sögð nokkru betri i morgun en
undanfarna daga. Hann hefur verið
rænulaus siðustu fimm sólarhringa. For-
setinn, sem er 51 árs, mun þjást af lifrar-
sjúkdómi. Læknar frá Sovétrikjui.um,
Bandaríkjunum og Frakklandi gæta nú
heilsu hans.