Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 8
8
kr.sJM
mV) eru það tvöföldu
* HÁLSKEÐJURNAR!
SENDUM í PÓSTKRÖFU
X: ^tUttr
LAUGAVEGI 35 — SIMI 20620
Breyttur epnunartlmi
OPID
KL. 9-9
Amerísku stytturnar
frá Lee Borten nýkomnar
Naag bilaatasði a.nt.k. á kvöldin
|{I<)MÍ\M\TII{
HAFNARSTRÆTI Simi 12717
TRÉSMÍÐAVÉL
Tvíblaðasög óskast til kaups.
Gamla Kompaníið
Sími36500
Deilur kirkjuþingsmanna:
„BETRIERU VINAR
SÁRIN EN KOSSAR
HATURSMANNS”
— segir Hermann Þorsteinsson kirkjuþingsmaður og hvetur til
opinskárrar umræðu um málefni kirkjunnar
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
Hermann Þorsteinsson til hægri. Siðan árið 1967 hefur hann m.a. starfað fyrir
kirkjuna sem ólaunaður framkvæmdastjóri Hins islenzka Bibliufélags. Hér er
hann i heimsókn hjá brezka og erlenda Bibliufélaginu I London og afhendir bóka-
verði þess að gjöf til félagsins frá HÍB ensku útgáfuna af hinni merku bók dr.
Selmu Jónsdóttur um Stjórnarhandritið, sem geymir fyrstu þýðingar Ritningar-
innar á íslenzku.
„Ágreiningur á sér alltaf stað, hvar
sem er í mannlífinu. Opinskáar
umræður eru oft nauðsynlegar til betri
samvinnu og hennar er greinilega þörf
hér.” Ég hafði rétt nýlokið við að lesa
þessi niðurlagsorð Helga Ólafssonar
skákmeistara í einu dagblaðanna 17.
þ.m. um ágreining í Skáksamþandinu,
er mér barst í hendur DB sama dag,
þar sem vinur minn og félagi, sr. Jónas
Gislason dósent, vísar brosandi
(mynd) á bug gagnrýni er fram kom í
viðtali DB við mig 13. þ.m." Þannig
fórust Hermanni Þorsteinssyni,
kirkjuhingsmanni orð í samtali við DB
og hann hélt áfram.
Vanstilling ein-
kennir oft til-
svör prestanna
„Um þessa gagnrýni mína segir sr.
Jónas: „Ég lýsi furðu minni á að sjá
þetta á prenti eftir þær umræður sem
við höfum átt og öllum þessum
spurningum hefur verið svarað fyrir
löngu. Ekkert bros er i þessari
Birgir Isleifur Gunnarsson fyrrverandi
borgarstjóri. Hann vék að þvi við ýmis
tækifæri að það væri þvi líkast sem
kirkjan fyndi ekki sinn tón i
nútimanum. Hermann sagðist vera viss
um að Birgir tsleifur haft talað af
heilum og góðum hug til kirkjunnar.
furðuyfirlýsingu mins ágæta vinar,
heldur gætir einmitt vanstillingar.
sem of oft vill einkenna tilsvör presta I
orðræðum þeirra við leikmenn um
málefni kirkjunnar, rétt eins og þau
mál komi þeim harla litið við.
Vanstillingartónninn staðfestir
einmitt réttlæti þeirrar gagnrýni, sem
fram hefurverið sett.
Opinskárrar umræðu er þörf i
kirkjunni, ekki siður en hjá þeim í
Skáksambandinu, þ.e. málefnalegrar
umræðu og skoðanaskipta, en ekki
bara brottvisunaryfirlýsinga og
fullyrðinga um að öllum spurningum
hafi verið svarað fyrir löngu.
Enginn almennur
blaðamanna-
fundur
Að afstöðnu Kirkjuþingi nú hefði
að venju verið ástæða til að boða til
almenns fundar með fréttamönnum
fjölmiðla til að skýra opinberlega frá
umræðum og afgreiðslu mála þar. Það
var af einhverri ástæðu ekki gert 13.
þ.m. tekur blaðamaður DB
frumkvæðið og spyr mig án fyrirvara
frétta af málum og viðburðunt síðasta
kirkjuþings. Auðvitað hefði ég getað
svarað án þess að segja nokkuð eins og
diplomata er siður. Slikt er mér ekki að
skapi og þvi talaði ég opinskátt eins og
ég gerði á þingum kirkjunnar, bæði nú
og árið 1976. Sumir. bæði lærðir og
leikir, velja að hvislast á um
ágreiningsefnin i kirkjunni, vilja ekki
taka áhættuna af að tala j heyranda
hljóði um það sem að er, og þarf að
breytast og lagast.
Ég hef valið að tala upphátt um þá
hluti i stjórnun og starfsháttum
kirkjunnar sem mér sýnast óheilía-
vænlegir. Auðvitað hefi ég ekki fengið
neinar þakkir fyrir opinskátt tal mitt
og við þvi þjóst ég ekki heldur. En það
hefur glatt mig að sjá ýmis merki þess
að gagnrýni þessi hefur haft sin áhrif
til góðs."
— En hvað hefur vakað fyrir þér með
þessari gagnrýni?
„Fyrir ntér hel'ur vakað að kirkjan
lagaði sig hið ytra að lífi og þörfum
okkar manna nú, þannig að hún fái
mikil og góð tengsl við fólkið i landinu
í sem flestum greinum, ekki bara á
stórhátíðum og öðrum helgum dögum
heldur einnig í hinu daglega lífi, bæði í
gleði og sorg.
Aðfinna sinn tón
Hú hefi ég siður en svo verið einn
um opinskátt tal um málefni
kirkjunnar. Birgir ísleifurGunnarsson
vék að þvi við ýmis tækifæri í kirkjum
okkar meðan hann var borgarstjóri að
það væri þvi likast sem kirkjan fyndi
ekki sinn tón i nútimanum. Ég varð
var við að þetta tal borgarstjórans
okkar fyrrverandi fór nokkuð í taug-
arnar á eldri prestum okkar sér-
staklega. Þó er ég sannfærður um að
Birgir ísleifur talaði af heilum og
góðum hug til kirkjunnar. Þetta var
og er máski enn hans álit. Blaðamaður
talaði við ungan prest á Synodus
(prestastefnu) í sumar um kirkjunnar
málefni. Ungi presturinn, sem er i
mjög miklum tengslum við ungu
kynslóðina á höfuðborgarsvæðinu,
sagði m.a. að það væri eins og kirkjan
hefði orðið eftir i startholunum.
Eigum við ekki að ræða um þessi at-
riði fyrir opnum tjöldum i náinni
framtíð. Væri ekki ágæt tilþreyting
fyrir lesendur DB frá hinni endalausu
umfjöllun unt verðbólgu og efnahags-
öngþveiti að kynnast og hugleiða dá-
litið málefni þjóðkirkju okkar?
Góðir
ráðsmenn
Sænski presturinn Helge
Brattegaard, dr. theol. hefur skrifað
frábæra bók um starf kristinna
leikntanna i kirkjunni. Bókina nefnir
hann Góða ráðsmenn (Goda för-
valtare). Þessa bók hefi ég lesið oftar
en einu sinni með athygli. Þar segir á
einum stað: „Goda husholdere har
ingen stilling at forsvare. De har kun
opgaver at udfylde. De hart lært at
bede: gör os til herre over os selv, sá at
vi kan blive tjenere for andre.”
Þetta eru umhugsunarverð orð,
ekki bara fyrir leikmenn kirkjunnar.
Kær, látinn vinur minn i prestastétt
kenndi mér ungum að þekkja þessi orð
Ritningarinnar: „Betri eru vinarsárin
en kossar hatursmanns.” Þetta eru líka
orð sem ég vil biðja sára vini mína i
prestastétt um að hafa i huga þegar
þeir meta og dæma gagnrýni mína,”
sagði Hermann Þorsteinsson að
Ríkið ábyrgist örorkudánarbætur
og laun ef f y rirtæki f er á hausinn
— nýtt f rumvarp f rá Ólafi Ragnari Grímssyni
„Með vaxandi tiðni vinnuslysa og
þeirri óvissu, sem einkennir rekstrar-
grundvöll margra fyrirtækja, geta gölluð
lög skert afkomutryggingu, sem þeim er
ætlað að veita þeim, sem örorku hljóta
af vinnuslysum. Hið sama á við um
afkomendur og maka þeirra, sem látast
af slysförum við vinnu," sagði Ólafur
Ragnar Grimsson, er hann mælti fyrir
lagabreytingu á Alþingi. Frumvarp
Ólafs Ragnars var lagt fram á Alþingi i
fyrradag.
Rikissjóður ber ábyrgð á greiðslum
launa til starfsmanna við fyrirtæki, sem
verða gjaldþrota. Vill flutningsmaður
auka þessa ábyrgð þannig, að hún taki
til bóta, sem vinnuveitanda er gert að
greiða vegna örorku. sem hlýzt af
vinnuslysum sem og bótum vegna
dauðsfalla. sem þannig ber að.
Kvað hann til hörmuleg dæmi um
það. að þrátt fyrir launagreiðslur
ríkisins samkvæmt áþyrgð i lögum,
hefðu ööm eða/ogmakarglataðaðfullu
dánarbótum og örorkubótum, sem
ógreiddar voru. þegar til gjaldþrots kom.
Kvað flutningsmaður nauðsyn bera
til lagabreytingar þar sem dómstóíar litu
svo á, að tryggingin tæki ekki til
áðurnefndra tilvika. -BS.