Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
9
Ríkisbankarnir
misjafnlega
gestrisnir
Laun bankastjóra við ríkisbankana
eru nú frá kr. 631.620.00 á mánuði.
Við þetta bætist þóknun til þeirra
fyrir setu á bankaráðsfundum kr.
27.170 á mánuði. Kjarasamningar
bankastarfsmanna tryggja þeim laun
fyrir "þrettánda mánuðinn” eins og
það er nefnt manna á meðal. Njóta
bankastjórar þeirra sem aðrir starfs-
menn bankanna. Þessi launaviðbót er
hugsuð sem greiðsla fyrir ómælda yfir-
vinnu.
Þessar upplýsingar komu fram á
Alþingi í gær frá viðskipta- og banka-
málaráðherra Svavari Gestssyni vegna
fyrirspurnar frá Stefáni Jónssyni.
Í svari ráðherra kom fram að
bankastjórar njóta somu kjara og
ráðherrar vegna bilakaupa. Bankarnir
greiða aðflutningsgjöld af bifreiðum
bankastjóra og veita þeim lán til
kaupanna á góðum kjörum.
Þá fá bankastjórar árlegakr.200.000
í risnufé, nema bankastjóiar Seðla-
bankans, sem fá 260 þúsund.
Annar kostnaður vegna gestamót-
töku bankanna er misjafn. Kostnaður
Útvegsbankans var tæpar 2 milljónir
króna, Landsbankans rúmlega 22
milljónir. Af svari ráðherra sést að
Búnaðarbankinn hefur komizt hjá
þessum útgjöldum árið 1977. Aftur á
móti varð kostnaður Seðlabankans
vegna gestamóttöku rúmar 17
milljónirásl. ári.
Í svari ráðherra kom fram að
væntanlegar eru nýjar reglur um
hlunnindi ráðherra vegna bifreiða-
kaupa. Telja má vist að bif-
reiðahlunnindi bankastjóra og
annarra rikisstarfsmanna, sem búið
hafa við hliðstæð hlunnindi, verði þá
einnig endurskoðuð.
Ráðherra kvað væntanleg innan
tiðar svör við fyrirspum Stcfáns Jóns
sonar um nafnlausar bankabækur.
■BS.
/
Hey manni...!
„Heyrðu manni. taktu mynd af filmu. Og með þessari mynd minnum varhugaverður og engum að treysta
okkur,” kölluðu þessir skólafélagar. Og við unga fólkið á að fara varlega i nema eigin dómgreind ogathyglisgáfu.
það var ekki að sökum að spyrja, Ijós- umferðinni. og þá ekkert síður eldra
myndarinn festi þessa æskumenn á fólkið og bilstjórana. Snjórinn er — DB-mynd RagnarTh.Sig.
Mikill snjór og
sfld á Eskifirði
Hér hefur snjóað mikið undanfarna
daga. Þrátt fyrir það hefur sildin borizt
hingað og var mesta sildarsöltunin hér
sl. vikuogyfirhelgina.
Söltunarstöðin Sæberg er búin að
salta i 2300 tunnur, sildarsöltunarstöðin
Auðbjörg i 4400 tunnur og hyggst
Kristinn Jónsson í Auðbjörgu salta
eitthvað meira. Friðþjófur h.f. er búinn
aðsalta i 5800 tunnur.
Sildarsaltendum bar flestum saman
um það, þegar ég talaði við þá áðan. að
lítið væri upp úr þvi að hafa að salta síld,
þvi endarnir rétl næðu saman þegar
upp væri gert. Háir vextir af lánum éins
og nú er orðið gerðu stórt strik i
reikninginn. Svo hefur hitzt þannig á sl.
vikur að mest hefur verið saltað hjá
Sæbergi og Auðbjörgu. Þá er fólkið
auðvitað á helgarkaupi, nenia sildar-
stúlkurnar, sem vinna jal'nan i akkorði.
Krislinn Jónsson. sem er elzti sildar
saltandinn hér, sagði tnér að það hefði
verið mikið upp úr sildarsi lum að hafa
á árununi 1960—1967 en nú rðu næðu
endarnir saman fjárhagslega þegar upp
væri gert. enda er sildin misjöfn nú en á
áruni áður var mestallt stórsild og vcl
feit.
Einnig sagði Kristinn aðekki væri alll
búið þótt sildin væri komin söltuð niður
i tunnur. mikill kostnaður væri þvi
samfara að pækla og sortéra síldina.
-Regína/ÓV.
Tveir hestar eknir
niður — lýst eftir eigendum þeirra
Ekið var á hest i fyrrinótt við bæinn
Kross í Ölfusi og stakk ökumaður af frá
slysinu. Slasaðist hesturinn svo illa að
aflifa varð hann á staðnum. Enn cr ekki
vitað hver hestinn átti og óskar Selfoss-
lögreglan að eigandinn gefi sig fram sent
fyrst. Hesturinn var brúnn, ungur, og
ómarkaður. Einnig er óskað eftir öllum
upplýsingum. sem leilt gætu til þess að
ökuntaður fyndist.
Annar hestsdauði af völdum
umferðar varð við vegamót Suðurlands
vegar og Skeiðavegar 26. október sl.
Eigandi þess hests er einnig ófundinn.
Selfosslögreglan lýsir eftir honunt.
JJesturinn sem drapst var jarpur að lit.
ungur og ómarkaður óljósu marki sem
Selfosslögreglan telur vera „biti framan
vinstra”.
•ASt.
Dunnv ocrr/ di/huahí S/G
Fjárfestingahandbókin er skrifuð af sérfræðing-
um Fjárfestingarfélags íslands fyrir alla. í bók-
inni er fjallað um þá fjárfestingarmöguleika, sem
íslendingar eiga kost á, en fáir þekkja til hlítar.
svo sem:
Sparískírteini ríkissjóðs Fasteignir Listaverk
Happdrættissku/dabréfríkissjóðs Bifreiðaviðskipti Frímerki og mynt
Veðskuidabréf Fyrirtæki Eðaisteina og eðaimáima
Hiutabréf Tryggingar Fornmuni
Með lestri á Fjárfestingahandbókinni geturðu þekkingu og bættu skipulagi, losnað úr fjárhags-
aukið öryggi þitt og sjálfstraust í samningum.
minnkað tilkostnað við fjárráðstafanir með betri
VÖRN GEGN VERÐBÓLGU
iegri óreiðu og náð árangri í baráttunni við verð-
bólguna.
■Útgefandi Frjá/st framtak hf.i