Dagblaðið - 23.11.1978, Side 23

Dagblaðið - 23.11.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978. 23 a Útvarp Sjónvarp 9 HIN RÉTTLATU — útvarp íkvöld kl. 20.15: EIGA POUTISK MORD RETT A SER? Útvarpsleikritið í kvöld greinir frá hópi stjórnleysingja í Rússlandi í byrjun þessarar aldar. Þessir menn höfðu það meðal annars á stefnuskrá sinni að myrða þjóðhöfðingja og aðra valda- menn. Boris Annenkoff eða Boria, eins og hann er kallaður, fær það verkefni ásamt hóp manna að ráða stórhertogann af dögum. Allt er vandlega undirbúið en það er haegara sagt en gert að myrða mann með köldu blóði. valdsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Arnar Jónsson, Róbert Arnfinnsson og Aðalsteinn Bergdal fara með stærstu hlutverkin. Leikritið er tveggja tima langt og hefst klukkan 20.13. I Hinum réttlátu þykir eftirtektarvert hversu vel kemur fram mismunandi afstaða einstaklinga sem þó tilheyra. sama hópi. Sumir hafa svæft samvizku sína og þykir ekkert að því að drepa mann á meðan aðrir finna til sektar- kenndar og heyja mikið sálarstríð. Dregin er upp mynd af þeim sem drepa af hugsjón og hinum sem ekki hafa lengur hugsjón en drepa samt, drápsins vegna. Einnig er sýrit inn í hugarheim þeirra sem eru of „góðir” til þess að eiga heima i slíkum félagsskap. Höfundur spyr: Eiga pólitísk morð rétt á sér? DS. Arnar Jónsson og Róbert Arnfinnsson. Leikritið nefnist Hin réttlátu og er eftir Albert Camus. Þýðinguna gerði Ásmundur Jónsson. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson sem er nýr í leik- stjórastétt hér á landi. Hjalti Rögn- Höfundur leikritsins í kvöld Albert Camus Dauðinn varð jafn fárán- legur og skrifin Höfundur Hinna réttlátu, Albert Camus, er einn af forvígismönnum heimspekistefnu sem nefnd hefur verið existensíalismi. Hann var fæddur árið 1913 í Alsír þar sem hann lærði heim- speki sem ungur maður. Hann var heilsuveill og treysti sér þvi ekki út í eins langan lærdóm og hann langaði til en fór þess í stað að leika. Seinna varð hann kennari en fluttist að lokum til Parísar þar sem harin hóf að skrifa leikrit og skrifaði þáeinnig í blöð. Camus vaj mjög virkur í frönsku and- spyrnuhreyfingunni i seinna stríði og tók þá meðal annars að sér ritstjórn vinstri sinnaðra blaða. 1948 hætti hann þó öllum skrifum um stjómmál en þá þegar hafði hann unnið sér heimsfrægð með skáldsögunni L’Etranger (Útlendingur- inn) sem skrifuð er i nihílskum stil um hinn fáránlega mann í hinum fáránlega heimi. Camus setti sér það að gefa mannin- um gildi til að lifa eftir i öllu tilgangsleysi heimsins. Um það skrifaði hann ritgerð- ina Goðsögnina um Sisyfos. Sisyfos þessi varð fyrir þeim þungu örlögum að verða að velta steini upp á fjall. Jafn- skjótt og steinninn var kominn upp valt hann beint niður aftur. Þetta er það sem á islenzku hefur verið nefnt kleppsvinna. Uppreisnarmaðurinn kom út 1951 og Plágan 1947. Þekktustu leikrit Camus eru Misskiln- ingur, Umsátursástand og Hin réttlátu. Camus fékk bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1957 en lézt skömmu seinna í bíls- iysi. Dauði hans var jafnfáránlegur og lif hans og skrif. Þar sem hann stóð og beið eftir lestinni sem hann fór ævinlega með ók kunningi hans hjá og bauð honum far sem hann þáði. En bíltúrinn varð ekki langur, endaði á tré við veginn. DS/EJ • V w- * Sveltur sitiandi kráka, en íijúgandi fær fjögur þásund kall Sértflboö í sex mánuöi4.000.- króna spamaður Viö bjóðum nú nýja og stækkaða VIKU (64 bls.) fyrir aðeins kr. 2.160 á mánuöi í sex mánuði. Veró hvers blaðs er þá aóeins kr. 498. Á þessum 26 eintökum sparar þú þér kr. 4.000,— miðað við lausasöluverð. — Og þú færð VIKUNA senda heim til þín þér að kostn- aðarlausu! VIKAN flytur efni fyrir alla fjölskylduna: Forsíðuviðtölin frægu, framhaldssögur, smá- sögur eftir íslenska sem erlenda höfunda, myndasögur fyrir börnin, bílaþætti, poppþætti, getraunir, heilabrot, draumaráðningarog margt, margt fleira. Sem nýja þætti nú má nefna: ÆVAR KVARAN ritar um „Undarleg atvik“ Klúbbur íslenskra matreiðslumeistara kennir matreiðslu nýstárlegra rétta. Nákvæmar leið- beiningar í máli og myndum. Alít hráefni fæst í verslunum hérlendis. Og VIKAN birtir litmyndir úr Sumarmyndaget- raun DB og VIKUNNAR. Framundan eru svo PALLADÓMAR UM ALLA ALÞINGISMENNINA VIKAN er sífellt á neytendamarkaði með DAG- BLAÐINU, glaðvakandi, glögg og gagnrýnin. Af því njóta allir iesendur góðs. Hugsaðu þér bara: 26 eintök framundan og 4.000.- aöur! króna sparn- Gríptu símann, hringdu í 2 70 22 oq hafðu samband við áskrifendaþjónustu VIKUNNAR, og pantaðu hálfs árs áskrift. Áskriftarsími: 27022. Opið til kl. 10 öll kvöld nema laugardagskvöld er stækkuð

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.