Dagblaðið - 23.11.1978, Page 24

Dagblaðið - 23.11.1978, Page 24
/ % VERZLUN AISLANDIER í DAUÐATEYGIUNUM — segir einn af stærri heildsölum landsins „Verzlun á lslandi er í dauðateygj- unum um þessar mundir,” sagði einn af stærri heildsölum landsins i viðtali við DB í gær. „Hvar sem borið er niður er fjárskortur i verzlun svo gífur- legur að jafnvel stærstu og traustustu fyrirtæki risa ekki undir nauðsynleg- ustu útgjöldum og geta ekki leyst út vörur sinar úr tolli nema kaupandi sem á peninga sé fundinn.” Versti „óvinur” heildsala og kaup- manna er íslenzka ríkið. Dæmi eru um að ríkisstofnanir panti og „plati” heild- sala til að leysa út vörusendingu með loforðum um greiðslu innan fárra daga frá afhendingu. en þegar reikn- ingurinn er siðan sýndur geta liðið vikur og mánuðir þar til hann fæst greiddur. Heildsölufyrirtæki hér i borg leysti t.d. út vörur fyrir ríkisstofnun í júní- mánuði siðastliðnum og átti greiðsla að fylgja fáum dögum siðar. Greiðslan er ókomin ennþá og erlendir seljendur geta með engu móti skilið þennan seinagang. Annað fyrirtæki, sem telst smátt i sniðum, veit blaðið um sem leysti út vörur fyrir rikisstofnun 17. október sl. og lagði út fyrir stofnunina upphæð sem þykir smá eða með öðrum orðum rétt innan við milljón króna. Greiðslu var lofað innan tveggja daga þegar varan var plötuð út úr heildsalanum. Hún er ókomin ennþá og i gær fengust þau svör að hún yrði ekki greidd i þess- ari viku og er það sjötta vikan frá af- hendingu. Verst og sárast þykir heildsölum og kaupmönnum að íslenzka ríkið krefst söluskatts af seldri vöru 25. hvers mánaðar. Sé söluskattur ekki greiddur á þeim tíma, hvort sem kaupmenn hafa fengið vöruna greidda eða ekki, er umsvifalaust lokað hjá þeim með innsigli. Til greiðslu söluskatts gilda alls ekki ógreiddir reikningar íslenzka ríkisins — slíkar nótur telur tollstjóri og innheimtumenn ríkisins alls ekki gildar. Alveg til sóma! Ofan gefur snjó á snjó þessa dagana. Glöggir menn segja að aðrir eins snjóar hafi ekki komið í Reykjavik i 16 ár. Og ekki virðist neitt lát á snjónum. Sífellt verður þyngra færi á götum borgarinnar. Mikilvægt er að ökumenn tryggi sér gott útsýni út úr bifreiðum sínum, eins og stúlkurnar á myndinni. Ljósmyndarinn hitti þær i Siðumúlanum, eða Blaðsiðumúlan- um, eins og hann er oft kallaður. Þær eru báðar starfandi hjá dagblöðum við götuna, Ásta Valmundsdóttir, nær á myndinni, hjá Visi og Sólveig Jónsdóttir á Timanum. DB-mynd Bjamleifur Alþýðuflokkurinn svarar tillögum Ólafs: Ráðstafanir til lengri tima „Við teljum, að ekki verði unnt að halda stjómarsamstarfmu áfram nema mörkuð verði ákveðin stefna rikis- stjórnarinnar um baráttu gegn verð- bólgu, sem taki til næsta árs,” sagði einn þingmaður Alþýðuflokksins í morgun í viðtali við DB. Hann sagði, að botninn vantaði i til- lögurnar, sem Ólafur Jóhannesson for- sætisráðherra bar fram i gær til að leysa desembervandann. Tillögurnar ella hættum við boðuðu eina skammtimalausnina enn. „Það er ekki nóg að leysa þetta eina tiltekna viðfangsefni,” sagði þing- maðurinn. „Málið snýst um baráttu gegn verðbólgunni. Hjá okkur er sú barátta númer citt, tvö og þrjú.” „Stjómin er öruggari í sessi I dag heldur en hún var í gær,” sagði einn stjórnarliðinn úr forystu verkalýðs- samtakanna i viðtali við DB í morgun. Ólafur Jóhannesson, forsætisráð- herra, boðaöi forystumenn ASÍ á sinn fund í gær. Þær könnunarviðræöur leiddu meðal annars til þess, að hann lagði fram tillögur i gær á ríkis- stjórnarfundi, sem hófst kl. 11. Tillögur Ólafs eru I megindráttum þær, að laun skuli hækka um 6,1% hinn 1. desember næstkomandi. t stað þeirra 8% til viðbótar sem verðbóta- vísitalan gerir ráð fyrir í launahækkun komi aðrar aðgerðir launþegum til góða, aðallega i þrennu lagi: Niður-, greiðslur 3%, félagslegar umbætur 3% og lækkun skatta 2%. Umræður um tekjuöflun til launa- hækkunarinnar eru enn skammt á veg' komnar. Mögulegt er að þær fáist meðal annars i veltuskatti og skyldu- sparnaði á hátekjur. Skattalækkunin gæti verið fólgin i lækkun eða afnámi sjúkratryggingargjaldsins. HHBS FIMMTUDAGUR 23, NÓV. 1978, ÓLAFUR KOMÁ ÓVART Ólafur Jóhannesson kom flokks- bræðrum sínum sem öðrum mjög á óvart með tillögum sinum í vísitölu- málinu. Þingflokkur Framsóknar hafði áður samþykkt tillögur, sem gerðu ráð fyrir, að kauphækkun í desember yrði 3,6%. Þeir, sem hæst vildu fara, nefndu um 5%, en 3,6 prósentin urðu ofan á. Tillögur Ólafs eru mjög nálægt tillögum, sem Alþýðubandalagið hafði lagt fram. Útborguð kauphækkun er hin sama. Niðurgreiðslurnar nema 3% i stað 3,5% hjá Alþýðubandalaginu. Skattalækkunin er hin sama hjá báðum. Ólafur vill hins vegar ekki, að land- búnaðurinn leggi fram 0,5% eins og segir í tillögum Alþýðubandalagsins. Þess vegna á hinn félagslegi „pakki” að nema 3% hjá Ólafi en 2% hjá Alþýðu- bandalaginu. -HH Hvítblettaveikin: Sigurður Þórðarson stöðvarstjóri með plastpoka með seiðum. Hvergi nema í Kolla- firðinum — segir sérf ræðingurinn á Keldum „Ég hef ekki orðið var við hvítbletta- veikina i hrognum í öðrum fiskeldis- stöðvum en í Koilafirði,” sagði dr. Sigurður Helgason fisksjúkdómafræð- ingur að Keldum í viðtali við DB. Veiði- málastjóri tjáði blaðinu á þriðjudaginn að þessi veiki í hrognum væri algeng og fyrirfyndist í öllum fiskeldisstöðvum hérlendis og erlendis. Dr. Sigurður tók fram aö hann hefði enn stutta reynslu af fisksjúkdómakönn- un hér á landi, en hann fjallaði ekki núna um hvítblettaveiki í hrognum nema frá Kollafjarðarstöðinni. Sigurður sagði að þessi árstími væri viðkvæmasti tíminn fyrir hrognin. Rannsóknir á hrognum i Kollafjarðar- stöðinni koma heim og saman við reynslu manna erlendis, að hér sé ekki um smitsjúkdóm að ræða. Trú manna er að sjúkdómurinn geti vart stafað af öðru en hnjaski eða af völdum efna í vatni. Beinast rannsóknir nú að vatninu fyrst ogfremst. -ASt. Þad AN S* Kaupio ® TÖLVUR: ‘ BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.