Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.11.1978, Qupperneq 1

Dagblaðið - 29.11.1978, Qupperneq 1
• áháð | tfJiau fdagblað 4. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 197« — 267. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. Wleint sviksemi í fasteignaviðskiptum rannsökuð: _ 110 MIUJðNA EIGN SELD Á 49 MILUÓNIR Skólavörðustigur 14. —„Skjólstæðingur minn var beittur brögðum, ” segir lögmaður seljanda Rannsóknarlögreglu ríkisins barst nýlega kæra út af meintri sviksemi i fast- eignaviðskiptum. Var hafin rannsókn i málinu og taldi rannsóknarlögreglan nauðsynlegt, að sakaður maður yrði úrskurðaður í gæzluvarðhald. Beiðni um þann úrskurð var synjað í Sakadómi Reykjavíkur í gær. Eigi að síður heldur rannsókn málsins áfram. Jafnframt hefur verið beiðzt rökstuðnings saka- dóms fyrir synjuninni. ♦ í veðmálabókum Reykjavíkur er að finna afsal fyrir fasteigninni Skólavörðu- stíg 14. Söluverð er talið kr. 48.750.000.00. Kaupandi er Stjarnan hf. Það fyrirtæki var skráð i firmaskrá Reykjavíkur sl. sumar, eða 27. júlí sl.' Tilgangur þess er meðal annars kaup, sala og rekstur fasteigna. Hlutafé er 2 milljónir í 50 hlutabréfum, hverju að upphæð kr. 40 þús. Lögmaður seljanda kærði þessi viðskipti til rannsóknarlögreglu ríkisins. Taldi hann, að skjólstæðingur sinn hefði verið beittur brögðum. Meðal annars liggur fyrir mat tveggja viðurkenndra fasteignasala þar sem segir að umrædd fasteign sé að verðmæti 105—110 milljónir króna miðað við 70 milljón króna útborgun. Hefur rannsókn meðal annars beinzt að því, hvort forráðamenn kaupanda hafi notað sér til framdráttar í auðgunar- skyni heilsufar seljanda. Það sé eða hafi verið með þeim hætti, að hægt hafi verið að níðast á því í viðskiptum. Sem fyrr segir var talið nauðsynlegt og eðlilegt, að forráðamaður kaupanda og framkvæmdastjóri yrði úrskurðaður i gæzluvarðhald i þágu rannsóknarinnar. Beiðni um það var synjað i gær af fulltrúa yfirsakadómarans í Reykjavik. -BS. Afbflaviðskiptum: Það varð metregn íEyjum Úrkoman í Eyjum frá kl. 18 á mánudagskvöld til kl. 6 i gærkvöldi mældist 193 millimetrar. Er þetta algjör metúrkoma i Eyjum, að sögn Markúsar Á. Einarssonar veður- fræðings, en alllangt frá Islands metinu. Metregnið sem skráð er mældist að Vagnsstöðum i Suðursveit og var tæplega 234 millimetrar á einum sólarhring. Af völdum rigningarinnar urðu tals- verðar skemmdir á malargötum í Eyjum. Eru í þeim djúpar rásir og jafnvel skurðir þar sem vatnið hefur skolað ofaníburði burt. Hvergi er ófært um götur, en þær eru vara- samar. Framhald veðursins eru svo að skil eru skammt SV af landinu sem búizt er við að fari yfir landið í dag. í kjölfarið kólnar aðeins með SV-átt og skúraveðri. Á föstudag er svo gert ráð fyrir að djúp lægð taki að valda SA átt. -ASt. Strákarnir i Reykjavik höfðu nóg af stórum og djúpum pollum, en ekki líkt því einsog Eyjakrakkar. Hér eru börn i Reykjavfk að ösla i pollunum i gærdag. DB-mynd Hörður. 74 módelið reyndist vera árgerð 1969 Ungur maður i Reykjavík keypti sér notaðan bíl ekki alls fyrir löngu. Samkvæmt skoðunarvottorði Bifreiða- eftirlits ríkisins var bíllinn af árgerð 1974. Skömmu síðar hitti nýi bíleigandinn bifvélavirkja sem hann tók tali. Kom í Ijós að viðmælandi hans hafði áður átt við bílinn og þekkti hann vel. Bar þeim saman um að þetta væri ágæt- asta kerra — en bifvélavirkinn fullyrti að um væri að ræða árgerð 1969, en ekki 1974. „Ég náði i manninn sem hafði flutt bílinn til landsins,” sagði kaupandinn vonsvikni í samtali við DB í morgun. „Hann flutti bílinn til landsins 1974 og kann enga skýringu á þessu. Maðurinn sem ég keypti hann af hafði aðeins átt bílinn í tvo daga og hafði tekið hann i skiptum. Bílasalan sem í hlut á veit ekkert um málið.” Hann kvaðst nú hafa afráðið að kæra málið til Rannsóknarlögreglu ríkisins, enda væri ekki hægt að una við þessi málalok. ÓV. Þessi bill er af árgerð 1969 — en hjá Bifreiðaeftirlitinu er hann skráður árgerð 1974. Enginn virðist nú kunna skýringu á misræminu. — DB-mynd: Ragnar Th.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.