Dagblaðið - 29.11.1978, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 29.11.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978. Cirkus hæ ttir sem húshljóms veit íKlúbbnum „Björgum móralnum” Ahugi fyrirhendi að gefa útlöghljómsveitarinnar „Ástæðan fyrir því að við hættum sem húshljómsveit í Klúbbnum er fyrst og fremst sú að við viljum forðast þreytuna sem slikri spila- mennsku fylgir.” sögðu þeir Davið Karlsson og Þorvarður Hjálmars- son, liðsmenn hljómsveitarinnar Cirkus i samtali við DB. Til stendur að Cirkus færi sig i auknum mæli út á hinn almenna markað í framtíð- inni — án þess þó að endanlega verði sagt skilið við sviðið i Klúbbn- um. „Það verður óskaplega leiðinlegt til lengdar að leika sífellt á sama staðnum,” sagði Þorvarður. „Við höfum sömu andlitin sifellt fyrir augunum og þurfum alltaf að vera að leika sömu tónlistina, — jafnvel lög sem við teljum að séu fyrir löngu búin að ganga sér til þúðar. Þetta skapar fyrst og fremst þann leiða og þreytu sem við ætlum að forðast.” Rétt er að rifja það upp að hljóm- sveitin Poker, sem starfaði sem hús- hljómsveit Klúbbsins á undan Cirkusi, hætti einmitt af svipuðum ástæðum. En hvað tekur við hjá Cirkus- mönnum eftir að fastri vinnu sleppir og óvissan tekur við. — Davið Karlsson: „Við ætlum nú að fara að æfa i auknum mæli okkar eigið efni. Við eigum talsvert af frumsömdum lögum sem sífellt bætist við. Ein hljómplötuútgáfan hefur sýnt áhuga á að gefa eitthvað af þessu efni út. Við förum því í Hljóðrita í næsta mánuði og tökum upp sýnishorn — demó svokallaðan — fyrir út- gáfuna.” Og Þorvarður bætir við: „Þó að deyfðin í dansleikjahaldi i kringum Reykjavík hafi verið gifur- leg að undanförnu, þá erum við bjartsýnir á betri tíð. Það er alltaf dálítið um að við séum pantaðir út á land til að leika í skólum. Við notum þá tækifærið og bætum öðru kvöldi við, svo að ferðin nýtist betur. Þannig verður það til dæmis um næstu helgi, er við förum til Akureyrar. Nú. það gefur lika sæmilegt í aðra hönd ef maður nær einu góðu balli í viku. Skólaböllin bæta það líka upp, þau halda hljómsveitunum raunar gangandi yfir veturinn. Við höfum verið nokkuð heppnir með þau hingað til. Til dæmis erum við pantaðir fimm sinnum i næsta mánuði. Auðvitað má búast við ein- hverjum tekjumissi að sleppa Klúbbnum,” sagði Þorvarður Hjálmarsson ennfremur. „Við teljum þó að við verðum að velja þann kostinn til að bjarga móralnum innan hljómsveitarinnar. Nú. og þá höfum við líka tækifæri til að leika fjölbreyttari tónlist en við höfum gert að undanförnu. -ÁT. CIRKUS — Þeir búast við tekjumissi þegar þeir hætta að leika i Klúbbnum. En með þvi móti ætti timabundinni stöðnun hljómsveitarinnar að vera lokið. DB-mynd Kristinsson. Nýplata, Þegarmamma varung Gömul revíulög með urum „Það er Pétur Pétursson útvarps- þulur sem á hugmyndina að plöt- unni Þegar rnarnma var ung. Ætli það hafi ekki verið á miðju ári i fyrra. sem hann spurði mig hvort ég væri ekki til i að gefa út plötu sern þessa, og nú er ntálið komið i höfn," sagði Steinar Berg plötuútgefandi er Dagblaðið innti hann eftir tildrögum að reviuplötu, sem út kom hjá honum á mánudag. Steinar sagði að vinnsla plötunnar hefði að miklu leyti verið á herðum Valgeirs Guðjónssonar Spilverks- manns. Hann naut meðal annars aðstoðar Péturs, sem er fróður um gullöld revíunnar, og Auróru Halldórsdóttur leikkonu, sem meðal annars söng öll þrettán lög plöt- unnar inn á þand til að hægt yrði að gera þau sem likust upprunalegu út- gáfunum. Alls eru á plötunni Þegar mamma var ung þrettán lög úr sex revíum. Þær gengu allar á gullöld reviunnar, en svo hefur tímabilið 1938—46 verið nefnt. Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona Spilverks þjóðanna og Egill Ólafsson Þursadróttinn sjá um allan söng á plötunni. Hljóðfæraleik- arar eru Árni Elvar, sem leikur á píanó, Grettir Björnsson harmóniku- leikari, Guðmundur R. Einarsson - . . » , í •: c . ..T ■ * $ § , s S EGILL OG DIDDÍJ — Þessir gömlu samstarfsmenn i Spilverki þjóðanna taka nú lagið saman að nýju og kirja að þessu sinni ein þrettánlög frá gullöld revíanna. Ljósm. Effect. trommari, Sigurður Rúnar Jónsson fiðluleikari og Helgi Kristjánsson bassaleikari. Að sögn Steinars Berg var platan Þegar mamma var ung tilbúin i ágúst sl. en beðið með að senda hana á markað þar til nú. „Eftir að ákveðið. var að gefa þessa plötu út lágu allar framkvæmdir niðri þar til í vor,” sagði Steinar. „Síðan var hún í vinnslu í mestallt sumar. Með því að fá Sigrúnu og Egil til að syngja revíulögin gömlu erum við að reyna að gera þau aðgengilegri fyrir unga fólkið. Þarna er oft á tíðum á ferð- inni merkilegur skáldskapur og bráðskemmtilegur í þokkabót, sem ætti að geta höfðað til allra.” -AT. EMERSON, LAKE OG PALMER — Nýjasta plata þeirra, Love Beach, var tekin upp á Bahamaeyjum siðasta sumar. Litil plata með lagi af þeirri stóru er komin út. Nýplata með Emerson, Lake og Palmer Astarströnd Emerson, Lake og Palmcr sendu á föstudaginn frá sér nýja breiðskífu, Love Beacb. Plata þessi var hljóð- rituð í Nassau á Bahamaeyjum síðastliðið sumar. Hljómsveitin sjálf annaðiststjórn upptöku. Eitt lag af Love Beach kom út á lítilli plötu fyrir nokkrum dögum. Það nefnist All I Want Is You. Hinum megin er að finna gamlan kunningja af Tarkus — annarri plötu ELP — lagiö Are You Ready Eddie? Á hlið eitt á nýju plötunni eru fimm lög en hinum megin er lieil- steypt verk er ncfnisl An Offi er And Gentleman. Þvi er siðan skipt niður i fjóra kafla. Ekkert hefur komið út af lögum Emerson, Lake og Palmer siðan i fyrra. Þá sendi hljómsveitin frá sér tvær LP plötur. Workslogll. OrMELODY MAKER LedZeppelin hljóðritar nýjaplötuhjá ABBA íStokkhólmi Timaritið Melody Maker telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir þvi að næsta plata hljómsveitarinnar Led Zeppelin verði hljóðrituð i Svíþjóð. Nánar tiltekið á hljómsveitin að hafa fengið inni í stúdiói ABBA í Stokkhólmi. Að upptökum loknum á hljómsveitin, samkvæmt heimildum blaðsins, að fara í hljómleikaferð. Undanfarna mánuði hefur Led Zeppelin verið við æfingar víða í Englandi. Stöðugur orðrómur hefur verið uppi um að hljómsveitin væri að æfa undir hljómleikaferð. Liðsmenn Zeppelin, þeir Robert Plant, Jimmy Page, John Paul Jones og John Bonham, NinaSimone Jazzsöngkonan heimsfræga Nina Simone á y fir höfði sér allt að eins árs fangelsi og þriggja milljón króna sekt fyrir að h5fa trassað að telja fram til skatts árið 1971. Simone, sem er nú 45 ára gömul, játaði sekt sína. Dómur verður kveðinn upp yfir henni þann 15. desember. Ákærandinn i máli Ninu Simone segir að árið 1971 hafi söngkonan haft tekjur sem nema 11,5 milljónum islenzkra króna. hafa ekki komið saman á sviði siðan í fyrra er þeir voru á ferð um Ameriku. Sú hljómleikaferð leystist upp cr sonur Plants lézt. Útgáfufyrirtæki Led Zeppelin hefur hvorki viljað staðfesta né neita þeint upplýsingum sem Melody Maker telur sig hafa áreiðanlegar heintildir fyrir. Yfirleitt hefur það tekið hljómsvcitina mánuði að hljóðrita plötur sinar. en nú á að ljúka upptökum á þreinur vikum. Þó verða upptökurnar væntanlega teknar til endurvinnslu i Englandi, þar sem bætt verður við hljóðfærum og hljóð- blöndun fer fram. Þessi plata er ekki sú eina sem Led Zeppelin cr með i takinu um þessar mundir. Jimmy Page hefur undanfarið ár verið að safna saman Sögu Led Zeppclin — tvöfaldri plötu með öllu því bezta sem hann fann af hljómleikaupp- tökum Led Zeppelin. Þá hefur Page, gítarleikari hljóm- sveitarinnar, sömuleiðis verið að gera sólóplötu. sagnfræðilegs eðlis að þvi er heimildir herrna. Fngar tipplýNin<»ar lissja fvrjr um hvenær þessar plötur verða út gefnar né heldur hvenær Les Zeppclin heldur hljómleika næst. Úr MF.LODY MAKER

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.