Dagblaðið - 29.11.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 29.11.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978. 5 — en ekki jólasveinar og Grýla Jólaskreytingar i Regent-stræti eru med mesta móti nú en hafa verið litlar undanfarin ár vegna orkukreppu. I Oxfordstræti eru hins vegar rauöir og grænir lasergeislar. DB-mynd JH Jólaösin skoðuð íLondon: PRINSESSA í GULUMKJÓL Jólaös í stórverzlunum Lundúna er hafin fyrir nokkru og þyrpast útlend- ingar til borgarinnar til þess að gera jólainnkaupin. Helztu verzlunargötur eru Ijósum og trjám skreyttar og er nú aftur að lifna yfir skreytingum borgar- innar éftir sparnaðartímabilið er fylgdi i kjölfar olíukreppunnar. Ljósaskraut er yfir endilöngu Regent-stræti og ný tækni hefur verið nýtt í Oxford-stræti. Þar lýsa rauðir og grænir lasergeislar upp dimman him- ininn. Hægt er að senda þessa geisla eftir endilöngu strætinu eða beint upp i loftið. Geislamir eru örmjóir og dreifa sér ekki og eru þessi örmjóu strik falleg, sérstaklega ef örlítið rignir. Þá eru regndroparnir til að sjá sem litlar perlur i skini geislans. Nokkrar deilur voru um lasergeislana áður en leyft var að nota þá við hina fjölförnu verzlunargötu. Sumir telja þessa geisla hættulega heilsu manna. Aðdáendur geislanna urðu þó ofan á og því fá íbú- ar og gestir heimsborgarinnar að njóta þeirra nú fyrir jólin. Mörlandanum finnst þó ekki tiltak- anlega jólalegt I London þessa dagana þrátt fyrir jólaljós. Þar hefur veður verið með bezta móti undanfarið, kyrrt og hiti 14— 15 stig. Lauf eru víða enn á trjám og veitingar á gangstétt- um. Það vantar jólasnjóinn til að full- komna myndina. t hita og blíðviðri vantar jólasnjóinn tilfinnanlega til að kóróna sköpunarverkið. Er undirritaður var á rápi um stræti London á dögunum, genginn upp að hnjám eftir búða- og magasinskoðun, sá hann hvar mannfjöldi safnaðist saman á Leicester-torgi. Börn voru á öxlum feðra sinna og reyndi hver sem betur gat að troða sér og sjá, þrátt fyrir rómaða biðraðamenningu borgarbúa. Hér hlaujteitthvað merkilegt að vera á seyði og kont helzt í hugann að jóla- sveinar væru komnir af fjöllum enda farið að styttast til jólanna. Ekki man ég eftir svipuðum mann- söfnuði á Fróni, nema ef vera skyldi þegar jólasveinar safnast saman á Austurvelli. Það var þvi forvitnilegt að sjá brezka jólasveina, svo ekki sé minnzt á skötuhjúin Grýlu og Leppa- lúða. Ég olnbogaði mig þvi gegnum mannþröngina til þess að sjá Grýlu. Svæðið var afgirt og innan skamms bar að virðulegan svartan bíl. Það þótti mér frábrugðið þvi sem gerist með þá Grýlu sem ég þekki svo nú sóttu aðefasemdir. Efasemdirnar voru ekki ástæðulaus- ar þvi út úr bílnum steig engin önnur en Anna prinsessa, dóttir Betu og Pusa sem sitja búið Bretland. Þótt brezka kóngafólkið sé e.t.v. ekki jafn- frítt og Karólina og móðir hennar Grace i Mónakó fer þvi þó fjarri að það líkist hérlendri Grýlu og Lcppa lúða. Prinsessan var klædd gulum kjól og veifaði alþýðlega til mannfjöldans. Fjölmargir ljósmyndarar mynduðu hennar hátign sem reyndist vera komin til þess að horfa á frumsýningu kvikmyndar á staðnum. Jólasveina sá ég þvi ekki og þvi siður Grýlu. En Önnu prinsessu hafði ég barið augum og mátti vel við una. Og þegnum hennar hátignar þótti aug sýnilega fengur i að sjá meðlim hinnar tignu fjölskyldu sem að öðru jöfnu sést aðeins vaxborin á safni frúar T ussaud. - JH eiHa Háskólabíó sunnudag ki 22:00 OLAKONSERT Hljómplötuútgáfunnar h.f. og fíeiri til styrktargeð- veikum (einhverfum) börnum • Brunaliðið • Halli og Laddi • Ruth Reginalds • Björgvin Halldórsson • Pálmi Gunnars- son • Magnús Sig- mundsson • Ragnhildur Gísla- dóttir • Kór Öldutúns- skóla • Félagar úr Karla- kór Reykjavíkur Allur ágóði rennur til stofnsjóðs með- ferðarheimilis fyrir geðveik börn. Forsala aðgöngu- miða: SKÍFAN, Laugavegi 33, R. SKÍFAN, Strandgötu 37, Hafnarfirði KARNABÆR VÍKURBÆR, Keflavík Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson Vé

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.