Dagblaðið - 12.12.1978, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978.
26. skoðanakönnun Dagblaðsins: Hvaða flokk munduð þérkjósa, ef þingkosningar færu fram nú?
)
Sjálfstæðisflokkurinn mundi vinna
5 þingsæti af stjórnarflokkunum
Sjálfstæðisflokkurinn mundi ^erða
sigurvegari þingknsninga efþæi færu
fram nú. Þetta sýnir skoðanakónnun
Dagblaðsins, sem var gerð um lielgina.
Sjálfstæðisflokkurinn mundi auka
fylgi sitt um 9.5 prósentustig og vinna
5 þingmenn af stjórnarflokkunum.
Alþýðubandalagið mundi tapa 1,8
prósentustigum og 1 þingmanni.
Alþýðuflokkurinn mundi tapa
0,9 prósentustigum og 1 þingmanni.
Framsókn mundi tapa 1,3 prósentu
stigum af fylgi og 3 þingmönnum
vegna þess hve tapið kollvarpar kjör
dæntakjörnum framsóknarmönnum.
þar sem þcir standa tæpt, en sanit fær
Frantsókn engan uppbótarmann.
Miðað við Jylgistap Framsóknar
utan Reykjavikur og Reykjaness
munu þeir ntissa annan mann i
Vesturlandskjördæmi, þar sem
Alexander Stefánsson félli fyrir Jósef
H. Þorgeirssyni (S). í Norðurlands-
kjördæmi vestra mundi annar frant-
sóknarmaðurinn, Páll Pétursson. falla
fyrir Finni Torfa Stefánssyni |A), sent
yrði þá kjördæmakjörinn. í Suður
landskjördæmi mundi annar fram-
sóknarmaðurinn, Jón Helgason. falla
fyrir 3. manni D-listans, Steinþóri
Gestssyni.
Þeir munu falla:
Alexander Stefánsson.
Páll Pétursson.
Þannig fengi Sjálfstæðisflokkurinn
18 kjördæmakjörna í stað 16. Alþýðu-
flokkurinn fengi 11 kjördæmakjörna í
stað 10. Framsóknarflokkurinn fengi
9 kjördæmakjörna í slað 12.
Óvíst er hvar síðasti uppbóta
maðurinn lendir. þar sem 26. þing
maður sjálfstæðismanna hefði sama
fylgi og 13. maður bæði Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags. (Sjá töflu).
Mætti allt eins líta svo á, að 26. þing-
ntaður D-listans sé inni en þá 13.
maður úti hjá Alþýðuflokki eða
Alþýðubandalagi.
Óbreytt
Reykjavík
Skipting þingsæta í Reykjavik yrði
samkvæmt könnuninni óbreytt frá
siðustu kosningum.
Atkvæði munu skiptast þannig (I
sviga úrslit siðustu kosninga):
Alþýðuflokkur 22,0%(22.6%)
Framsókn ll,8%( 8,3%)
Sjálfstæðisflokkur 41,2%(39,5%)
Alþýðubandalag 25,0%(24,3%j
Um fjöruliu af hundraði þeirra sem
spurðir voru voru ýmist óákveönir.
Jón Helgason.
Þeiryrðu kjördœmakjömir:
Jóscf H. Þorgeirsson.
Steinþór Gestsson.
Eins og sést varð tap stjórnarflokk
anna úti á landsbyggðinni en ekki í
Reykjavtk, svo og fylgisaukning Sjálf-
stæðisflokksins að sama skapi, auk
þess sem „litlu listarnir” detta út og
fylgi þeirra ferannað.
DB sneri sér til 300 ntanna, 150
karla og 150 kvenna, með spuming
una. Slikar kannanir hafa jafnan gcfið
góðaraun. -HII
neituðu að svara eða sögðust „engan útkomu i könnun DB fyrir siðustu
flokk" styðja. Þetta minnir á svipaða kosningar, en þá reyndust úrslitin
^^^...mjög nærri lagi eins og kunnugt er.
þótl hátt hlutfall aðspurðra nefndi
engan flokk.
Áberandi var að Alþýðubandalagið
fékk mun minna fylgi hjá konunt en
körlum en Alþýðuflokkurinn ntun
meira fylgi nteðal kvenna.
Niðurstöður skoðanakönnunarinn-
ar urðu þessar: Alþýðuflokkur 38 eða 12 2/3%
F ramsóknarflokkur 28 eða 9 1/3%
Sjálfstæðisflokkur 76 eða 25 1/3%
Alþýðubandalag 38 eða 12 2/3%
„Engan flokk” 22 eða 7 1/3%
Svara ekki 57 eða 19%
Óákveðni. 41 eða 13 2/3%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem afstöðu tóku,
verða niðurstöðurnar þessar: (í sviga at- kvæðahlutfall í síðustu kosningum):
Alþýðuflokkur 21,1% (22,0%)
F ramsóknarflokkur 15,6% (16,9%)
Sjálfstæðisflokkur 42,2% (32,7%)
Alþýðubandalag 21,1% (22,9%)
í síðustu kosningum fengu einnig Samtökin 3,3% atkvæða og ýmsir óháðir listar og smá-
flokkar samtals 2,2%.
Þingsæti mundu skiptast þannig samkvæmt skoð- anakönnuninni (í sviga þingsætaskiptingin nú):
Alþýðuflokkur 13(14)
Framsóknarflokkur 9(12)
Sjálfstæðisflokkur 25 (20)
Alþýðubandalag 13(14)
Skiptingin er ekki alveg nákvæm, því að við skiptingu upp- bótasæta hefur 26. maður Sjálfstæðisflokksins sama fylgi og 13. maður Alþýðuflokks og Alþýðubandalags.
„Lítil reynsla af stjórmnni” \
„Stjórnin hefur aðeins setið stutt og
og litil reynsla er fengin af henni.”
Þannig er viðkvæði margra sem studdu
stjórnarflokkana, en þeir gáfu í skyn
að biölund þeirra kynni að þrjóta ef
málum yrði ekki fljótlega komið i lag.
Tölurnar bera með sér að mjög margir
hafa þegar snúizt á sveif með stjómar-
andstöðunni. Þá sögðu menn gjarnan
að kosningaloforð hefðu verið svikin.
„Það er að visu engin reynsla komin
á þessa stjórn, en ef ég ætti að kjósa nú
kysi ég helzt Sjálfstæðisflokkinn,”
sagði karl á Akureyri, og var það svar
nokkuð dæmigert fyrir marga.
„Ég kaus Alþýðuflokkinn í síðustu
kosningum, en ég er búinn að fá nóg
af honum. Þeir standa aldrei við neitt
sem þeir segja,” sagði karl á Suður-
nesjum.
„Held ég mundi bara halla mér að
gamla ihaldinu Þeir eru ekki verri en
aðrir,”sagði kar' i Grundarfirði.
„Ég hef ckki l'undið neinn flokk til
að kjósa. Þeir segja hver • annan Ijúga
og mér sýnist þetta vera allt sömu
mennirnir,” sagði karl i Hafnarfirði,
dæmigerður fyrir þá, sem segjast eng-
an flokk styðja.
„Þetla er of persónuleg spurnmg.
Finnst þér það ekki?” sagði kona i
Reykjavík eins og allmargir aðrir.
„Ég kysi Sjálfstæðisflokkinn ef
skipt yrði um nokkra af þeim köllum
sem lengst hafa verið í nokknum,”
sagði karl á Suðurnesjum.
„Ætli ég kjósi ekki Alþýðubanda-
lagið, þótt þetta sé orðið helvítis
krataflokkur,” sagði karl á Seltjarnar-
nesi.
•HH.
V