Dagblaðið - 12.12.1978, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978.
„SUPER-MAC” MED
ARSENALANÝ
—eftir fjögurra mánaða f jarveru
vegna meiðsla
Malcolm MacDonaldl lék aftur með
Lundúnaliðinu Arsenal eftir Qögurra
mánaða Qarveru vegna meiðsla. Mal-
colm MacDonald, einn mesti marka-
skorari enskrar knattspyrnu i dag, kom
inn á sem varamaður gegn Rauðu stjörn-
unni frá Belgrad i UEFA-keppninni.
Staðan var 0-0 er MacDonald kom inná.
Honum var ákaft fagnað af um 40
þúsund áhorfendum er sungu „Super-
Mac— Super-Mac.”
Og það var eins og við manninn mælt,
skömmu eftir að MacDonald kom inná
skoraði Arsenal, að vísu ekki Mac-
Donald sjálfur. Hann þótti þó standa sig
vel, gerði usla, og var Frank Stapleton
mikill styrkur I fremstu viglinu. En þrátt
fyrir látlausa sókn Arsenalgegn Rauðu
stjörnunni tókst Arsenal ekki að skora
fleiri mörk —■ hins vegar Rauðu stjörn-
unni. Skömmu fyrir leikslok náði Kauða
stjarnan skyndisókn og júgóslavneski
landsliðsmaðurinn Savic skoraði en
hann er nú markhæsti leikmaðurinn i
júgóslavnesku 1. deildinni. Arsenal féll
þvi út, en það duldist engum, að Mac-
Donald var Arsenal mikill styrkur.
Arsenal keypti MacDonald frá New-
castle fyrir 333 þúsund pund og i 80
leikjum með Arsenal hefur MacDonald
skorað 40 mörk, sem þykir gott á Eng-
landi.
Með Newcastle lék MacDonald 187
leiki og skoraði 97 mörk og vann sér þá
sæti í enska landsliðinu. Newcastle
keypti MacDonald frá Luton, en þar lék
MacDonald fyrst sem bakvörður. Hann
var settur i framlínuna og þá fóru hjólin
að snúast. Með Luton skoraði
MacDonald drjúgt, lék 88 leiki með
Luton og skoraði 49 mörk. Stóru félögin
á Englandi fengu brátt augastað á Mac-
Donald og Newcastle varð hlutskarpast,
MacDonald hóf feril sill i Lundúnum,
lék fyrst með Fulham. Þar lék hann
'aðeins 10 leiki en skoraði þrátt fyrir það
5 mörk. Þrátt fyrir þetta var MacDonald
seldur, fyrir lítinn pening, aðeins 15 þús-
und pund. Nú er MacDonald aftur að
komast á fulla ferð á Englandi, og víst
að „Super-Mac” mun hljóma um High-
bury oft i vetur.
íslenzkur adall
n;t&saam amw
r- ;
' í- r
Líttu við, skoðaðu úrvalið!
Fallegar, vandaðar og hentugar innréttingar frá JP eru eins og
svo margur annar innlendur iðnaður sannkallaður „sómi ís-
lands”. Við bjóðum þér upp á21 möguleika á útliti og verði. Það er
þitt að velja en við erum ávallt til þjónustu reiðubúnir eí þú þarft á
aðstoð að halda.
JP ínnréttingar
Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 — 31113
Í2.deild. Hefurákveí
Ólafur Danivalsson, hinn snjalli landsliös-
maður FH, hefur nú ákveðið að skipta um
féjag. Hann vill ekki leika með FH i 2. deild
en alveg er óvist hver Óli Dan.fer. Þannig
mætti hann á æfingu hjá Þrótturum i gær-
kvöld en áður hafði hann mætt á æfingu hjá
Viking. Virðist vera að gera upp hug sinn.
Ólafur Danivalsson hefur veriö einn af
máttarstólpum FH undanfarin ár. Hann
hefur leikið tvo landsleiki fyrir Ísland. En
FH hefur átt erfitt uppdráttar í l. deild eftir
að félagið lék fyrst i l. deild, árið 1975.
anus í E
þessc
mun leika með varalið
Janus Guðlaugsson verður út þessa viku
hjá belgiska félaginu Standard Liege. Janus
Guðlaugsson lék með varaliði Standard
Liege um helgina og stóð sig mjög vel, þrátt
fyrir erfið skilyrði. Hann skoraði annað
marka Standard i 2—1 sigri.
Standard vildi hafa Janus þessa viku einn-
Strassbourg
efst
Strassbourg, forustuliðið i Frakklandi,
hlaut mikinn skell i UEFA-keppninni i sið-
ustu viku i Duisburg. Um helgina náði
Strassbourg svo aðeins jafntefli i Strass-
bourg gegn Rheims, 2-2. Nantes og St. Eti-
enne eru nú aðeins stigi á eftir Strassbourg í
baráttunni um franska meistaratitilinn.
Nantes vann stórsigur i Nimes, 4-0, og St.
Etienne gerði jafntefli á útivelli við Nancy.
Meistarar Mónakó léku i Mónakó en
þeim tókst ekki að ágra, geröu jafiitefii við
Sochaux, 1-1. Staða efstu liða er nú: Strass-
bourg er efst með 31 stig, Nantes og St. Eti-
enne hafa 30 stig, Mónakó 29, þá koma
Lyons og Bordeaux með 28 stig en Bor-
deaux sigraði Paris St. Germain 5-2 i Paris.