Dagblaðið - 12.12.1978, Síða 31
|C3|
V"
■
'
■Í1;||ÍÍÍ
1
Þjóðsögur f rá ýmsum löndum
í útvarpi í dag kl. 17.35 er þátturinn
Þjóðsögur frá ýmsum löndum. Það er
Guðrún Guðlaugsdóttir sem tekur
saman þjóðsögur og segir frá þeim.
Í þættinum i dag ræðir Guðrún við
Hallfreð örn Eiriksson, sem hefur lengi
rannsakað íslenzkar þjóðsögur.
Ætlar Hallfreður að velja nokkrar
skemmtilegar íslenzkar þjóðsögur og
flytja ásamt Guðrúnu. Einnig ætla þau
að athuga tengsl innlendra þjóðsagna og
erlendra.
Þetta er næstsíðasti þáttur Guðrúnar
sem fjallar um þjóðsögur frá ýmsum
löndum en hann mun ekki halda fram
eftir jól. Þátturinn er tuttugu minútna
langur.
- ELA
í kvöld kl. 22.55 er þáttur á dagskrá
sjónvarpsins sem nefnist Heldur Írans-
keisari völdum? Mynd þessi er brezk
fréttamynd sem fjallar um þróun mála í
íran að undanförnu.
Sagt er frá óeirðunum í íran og vanda-
málum sem þar hafa risið út af keisaran-
um. Einnig er sagt frá verkföllum og
spillingu i efnahagsmálum sem hefur
grafið undan trú landsmanna á keisaran-
um.
Er siðan farið út i að ræða stöðu hers-
ins þar i landi og hvort hann eigi að taka
til sinna ráða. Ennfremur er talað um
hvort íranskeisari þurfi að láta af völd-
um.
Jafnframt því er siðan fjallað um tvo
trúarleiðtoga, Sharietmadari, sem er
andstöðumaður innanlands, og
Khomeni, sem er trúarleiðtogi utan-
lands, en hann er landflótta og býr nú í
París.
Þangað leitar til hans mikill mann-
fjöldi sem flúið hefur land og er i and-
stöðu eins og hann sjálfur. Þýðandi og
þulur myndarinnar er Bjarni Gunnars-
son og er hún um hálftíma löng.
Guðrún Guðlaugsdóttir starfsstúlka hjá dagskrárdeild Rikisútvarpsins sér um þáttinn Þjóðsógur frá ýmsum löndum.
DB-mynd Ragnar Th.
Útvarp kl. 17.35:
Bjami Gunnarsson menntaskólakennari
og þýðandi hjá sjónvarpinu. Hann er
jafnframt þulur i myndinni um íranskeis-
ara.
DB-mynd Hörður
voss
rómuð gæði - loksins á íslandi
Vegna einstakra gæða og orðstirs dönsku VOSS
eldavélanna höfum við árum saman reynt að fá þær
til sölu á íslandi, en það er fyrst núna. með aukinni
framleiðslu. sem verksmiðjan getur sinnt nýjum
markaði.
77/marks um orðstir VOSS eldavélanna ernær60%
markaðshlutur í heimalandinu. sem orðlagt er fyrir
góðan mat og kökur. en íslenskur smekkur er einmitt
mótaður af sömu hefð í matargerðarlist, hefð sem
eiginleikar VOSS eru miðaðir við.
VOSS er því kjörin fyrir íslensk heimili, og fyrst um
sinn bjóðum við eina gerð, þá fullkomnustu, eina
með öHu. t.d. 4 hitastýrðum hraðhellum, stórum
sjálfhreinsandi ofni með fullkomnum grillbúnaði.
hitastýrðri hitaskúffu og stafa-klukku, sem kveikir,
slekkur og minnir á. 4 litir: hvítt. gulbrúnt, grænt
og brúnt.
Hagstætt verð og afborgunarskilmálar.
iFOmx
Hátúni - Sími 24420
erum vid komnk med Mt hús afjó/a-
skrauti og jóhpappír sem engmn amar
ermed
MMhCjsio
Laugavegi 178 — Sími 86780
(næsta hús við Sjónvarpið)
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978.
FRÉTTAMYND—sjónvarp kl. 22.55:
Heldur írans-
keÍSari vnlHi im?