Dagblaðið - 12.12.1978, Qupperneq 32
Tómas vill fara eigin leiðir í skattamálum
„ALLT VITLAUST” í
STJÓRNARLIÐINU
Hörð átök urðu i stjórnarliðinu i
gær um skattamál. Deilurnar stóðu
fram á kvöldið og var ekki búið að
semja um málið í morgun. Þær kunna
að koma í veg fyrir, að önnur umræða
um fjárlagafrumvarpið fari fram á
föstudag eins og að hefur verið stefnt.
DB skýrði í gær frá tillögum skatta-
nefndar stjórnarflokkanna. En Tómas
Árnason fjármálaráðherra var sjálfur
með tillögur i pokahorninu, sem hann
lagði fyrir rikisstjórn. Alþýðubanda-
lags- og Alþýðuflokksmönnum þóttu
tillögur Tómasar ganga of skammt í
skattalækkun á lágtekjufólk. Þeir
sögðu, að Tómas hefði sáralítið tillit
tekið til tillagna skattanefndarinnar.
Alþýðubandalags- og Alþýðuflokks-
menn stóðu þvi saman gegn tillögum
fjármálaráðherra en studdu tillögur
skattanefndarinnar. „Það varð allt vit-
laust,” sagði einn stjórnarþingmaður-
inn í morgun. Málið verður rætt
áfram í stjórnarliðinu í dag. ■ HH
Fingra-
langir jóla-
sveinar
Hvað i ósköpunum eru þessir dular-
fullu karlar aö bjástra í myrkrinu? Ljós-
myndarinn fékk fljótlega skýringu á
þessum aðförum. Hér voru mættir til
leiks jólasveinarnir frá Björgunarsveit-
inni Stefni í Kópavogi og voru að koma
með jólatrén að Nýbýlavegi 2 í Kópavogi
þar sem þeir ætla að sclja borgurunum
jólatré meðan birgðir endast.
Annars heita jólasveinarnir Bubbi og
Nilli og þeir kváðust helzt vilja fá nýja
jólasveinabúninga i jólagjöfl
Helmingur Vestmannaeyjaf lotans til sölu vegna rekstrarerf iðleika
Skuld eins hækkar um
100 milliónir árlega
„Ég get sagt þér eitt lítið dæmi sem
sýnir að þessar aðgerðir okkar eru ekki
út i bláinn. Ég þurfti að endurnýja vél-
ina í bátnum minum í marz í vor, eins og
gerist og gengur, og fékk 17 milljónir i
lán til þess hjá Fiskveiðasjóði. Ég hef
greitt afborganir og vexti af láninu sið-
an. en vegna gengistryggingar lánsins
skulda ég Fiskveiðasjóði nú 25 milljón-
ir.” sagði Daníel WF. Traustason, út-
gerðarmaður i Eyjum í viðtali við DB i
morgun í tilefni þess að Eyjamenn hafa
nú auglýst 40 af bátum sinum til sölu,
sem er nálega helmingur Vestmanna-
eyjaflotans.
Þá var honum kunnugt um enn verra
dæmi eins félaga sins sem keypti bát
fyrir 2 árum á 1/5 milljónir, en skuldar
nú i honum 300 milljónir þrátt fyrir vel-
gengni við veiðar og reglulegar afborg-
aniraf lánunum.
Þá getur Útvegsbankinn á staðnum
ekki lánað meir þar sem á þrem árum
hefur hlutfall útlána hans til útgerðar-
innar aukizt úr 25% útlána i 36% nú.
„Það má segja að við höfum gert út á
fyrirtækin i bænum að undanförnu,”
sagöi Daníel, og átti þá við að þau hafi
lánað bátunum geysilegar upphæðir í
formi þjónustu, svo þeir gætu haldið
áfram.
Daniel sagði að þessar aðgerðir nú
væru því miður ekki i nösunum á mönn-
um, menn væru hreint út sagt að missa
móðinn og vildu í alvöru selja báta sína.
Tveir Eyjabátar hafa nýlega verið seldir,
einn var seldur i gærkvöldi og annar
verður seldur næstu daga, en enginn er
að fá sér bát.
-G.S.
Hermann Gunnarsson, Iþróttafréttaritari útvarpsins er jólasveinn dagsins.
Hvort sem hann er það aðra daga, er látið liggja á milli hluta, en hann hefur hér
hrugðið sérlgervi Kjaftagaurs, sem er nútimajólasveinn.
Hcrmann var svolltið á báðum áttum er hann var spurður að því, hvers hann
óskaði sér I jólagjöf en ef hann gœti ekkifengið Gjaldheimtuna Ijólagjöf, þá vildi
hann fá eina góða sólarlandaferð.
Ljósm. Ragnar Th.
— vegna gengistryggingar lána
— byrjað að selja bátana
Við verðum að fresta birtingu á slðustu mynd jólagetraunarinnar, þvi I gœr
mistókst algjörlega prentun á ncestslðustu mynd getraunarinnar. Hún er
endurprentuð i dag og spurningin er: Hvaða umferðarmerki á við um vanda
þann sem jólasveinninn okkar hefur hér ratað l? Klippið seðilinn út, svarið
spurningunni og geymið seðilinn með hinum sex. Á morgun kemur síðasta
mynd getraunarinnar og þá förum við að huga að undirbúningi að drœtti um
myndsegulbandið góða sem er aðalvinningur getraunarinnar.
I '
frfálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 12. DES. 1978.
Lúðvík
snýst gegn
Steingrími
Þau athyglisverðu tíðindi urðu á
kvöldfundi á Alþingi í gær, að Lúðvík
Jósepsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, snerist gegn landbúnaðar-
frumvarpi Steingríms Hermannssonar
landbúnaðarráðherra.
Lúðvík þótti hlutur bænda gerður
of lítill, ef frumvarpið yrði samþykkt
og kvaðst mundu greiða atkvæði gegn
því.
Steingrímur brást reiður við og
sagði í umræðunum, að hann hefði
talið sig hafa loforð Lúðvíks um stuðn-
ing Alþýðubandalagsins og þvi fluit
frumvarpið sent stjórnarfrumvarp.
Alþýðuflokksmenn ákváðu að
styðja frumvarpið. Sjálfstæðisflokkur-
inn mun vera klofinn í afstöðu.
■ HH
Spánar
vindar
á förum
„Þessum óvenjulega hlýindakafla er
trúlega að Ijúka,” sagði Guðmundur
Hafsteinsson veðurfræðingur i viðtali
við Dagblaðið í morgun, en hlýinda-
skeið það, sem ruglað hefur flesta í
ríminu að undanförnu hefur nú staðið
frá því seint í nóvember, eða á þriðju
viku. Má til dæmis nefna að tíu stiga
hiti var i Reykjavík kl. sex i morgun,
sumarblíða. Hins vegar er myrkrið
samt við sig, eins og vera ber á þessum
árstíma, sólstöður i nánd.
„Við eigum von á að lægðin, sem
verið hefur beint suður af landinu og
valdið þessum hlýindum, færist
nokkuð austur á bóginn,” sagði Guð-
mundur. „Hún hefur fært hingað
hlýja Spánarvinda, en myndi þá hafa i
för með sér kaldari vinda frá Norður-
Evrópu í austanátt."
Kratar:
Félagslegar
ráðstafanir
Meðal hugmynda um ráðstafanir á
félagslegum grundvelli sem Alþýðu
flokkurinn hefur lagt fram i ríkisstjórn
má nefna niðurskurð á eftirvinnu i
áföngum meöal annars þannig, að
eftirvinnudögum verði fækkað um
einn á hverju ári næstu 5 árin og nú
ákvæði um lágmarksuppsagnarfrest
verkafólks. Þá er gert ráð fyrir mjög
auknum slysabótum og gagngerri
endurskoðun á framkvæmd orlofslag-
anna.
BS/ÓV
Þad
Kaupiö
TÖLVUR'
BANKASTRÆTI
&MI 27^2